Morgunblaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 13 FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF. Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515, www. gjtravel.is Netfang: outgoing@gjtravel.is ELSTA STARFANDI FERÐASKRIFSTOFA LANDSINS – Almenn farseðlaútgáfa, hópferðir, einstaklingsferðir, viðskiptaferðir, ferðaráðgjöf, hótelbókanir. Ofangreind verð eru háð gengi og forsendum. ORÐSPORIÐ SEGIR SÍNA SÖGU Ein hagstæðasta vikuferð ársins til Prag Vikuferð, sjöunda árið í röð! Eins og undanfarin ár, munum við bjóða vikuferð til Prag í ágúst á sérstaklega hagstæðu verði. Flogið verður með Flugleiðum og gist á Hótel Pyramida, sem er þægilegt og vel staðsett nýlega endurnýjað hótel með rúmgóðum og vel búnum herbergjum. Á hótelinu er sundlaug, líkamsræktaraðstaða o.fl. Í Prag, höfuðborg Tékklands, búa 1.2 milljónir manna. Borgin, forn og sögufræg var til skamms tíma höfuðborg sambandslýðveldisins Tékkó- slóvakíu og áður konungsríkisins Bæheims, sem um aldir var hluti af veldi Habsborgarættarinnar. Næsta vikuferð er 10. ágúst – síðdegisflug Annað árið í röð bjóðum við Berlínarferðir í beinu síðdegisflugi með Flugleiðum. Gist verður á Hótel Crowne Plaza, sem er fjögurra stjörnu hótel rétt við Minningarkirkjuna, dýra- garðinn og Kurfürstendamm. Boðnar verða ýmsar skoðunarferðir, m.a. til Dresden og Potsdam, sem bókast og greiðast sérstaklega hjá fararstjóra. Fararstjóri verður Emil Örn Kristjánsson. Verð frá 83.200 kr. á mann Innifalið í verðinu er flug, flugvallaskattar, akstur milli flug- vallar og hótels, gisting í 2ja manna herbergi með baði, morgunverður, skoðunarferð um Berlín og íslensk fararstjórn. Beint leiguflug með þotu Flugleiða til höfuðborgar Tékklands, 2.–10. ágúst Næsta vikuferð er 1. október Flogið er með Flugleiðum til Kaupmannahafnar og áfram með SAS til Búdapest og dvalið þar í 6 nætur á Hotel Novotel í göngufæri við sögustaði og verslanir. Á öðrum degi er haldið í yfirgripsmikla skoðunarferð um borgina en fleiri ferðir verða einnig í boði. Til Vínarborgar er svo ekið á næst síðasta degi, farið í skoðunarferð um borgina og gist þar eina nótt. Flogið er heim á leið í gegnum Kaupmannahöfn daginn eftir. Í Búdapest mætir austrið vestrinu í einni elstu borg Evrópu sem geymir einar fegurstu mannlífsminjar í veröldinni. Vínarborg er háborg menningar í Evrópu, þar sem listir og menning tengjast í aldagömlum höllum og skrúðgörðum, kirkjum og söfnum. Verð 89.900 kr. á mann Innifalið í verði er flug til Búdapest og heim frá Vínarborg, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli, akstur milli Búdapest og Vínarborgar, gisting í 2ja manna herbergi, morgunverður, skoðunarferðir um báðar borginar, og íslensk fararstjórn. Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson. Aðrar skoðunarferðir greiðast sérstaklega. Búdapest og Vínarborg í einni ferðBeint til Berlínar í ágúst Allar bókanir og almenn ferðaráðgjöf – fagleg þjónusta 71.500 Innifalin er skoðunarferð um Prag og er sú ferð farin á fyrsta degi. Þá verður ekið um borgina auk þess sem gengið verður um Kastalahæðina, Gamla bæinn og Gyðingahverfið. Meðan á dvöl stendur verða einnig boðnar skoðunarferðir til Karlstejn- kastala, Terezín, Cesky Krumlov, Cesky Budejovice, til Kutna Hora og kvöldsigling á Moldá, sem bókast og greiðast hjá fararstjóra. Verð á mann er 71.500 krónur. Innifalið í verðinu er flug, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli, gisting í tveggja manna herbergi, morgunverður, yfirgripsmikil skoðunarferð um Prag og íslensk fararstjórn. Aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 14.400 krónur. Flogið verður í beinu leiguflugi með flugleiðaþotu. Fararstjórar verða Emil Örn Kristjánsson, Pétur Gauti Valgeirsson og William Þór Dison, sem þekkja vel til sögunnar og staðhátta í Prag. Þeir munu aðstoða og veita leiðsögn alla ferðina. Hópferðir á IAA-bifreiðasýninguna í Hannover, dagana 12.–16. september n.k. og Automechanica-bifreiðasýninguna í Frankfurt, dagana 17.–22. september 2002. HAFIN er athugun Skipulagsstofn- unar á mati á umhverfisáhrifum stækkunar ÍSAL í Straumsvík. Stækkunin er lögð fram í tveimur áföngum þar sem í fyrsta áfanga verði stækkað í allt að 330.000 tonn á ári og í öðrum áfanga í allt að 460.000 tonn á ári. ÍSAL er framkvæmdarað- ili en verkfræðistofan Hönnun vann að mati á umhverfisáhrifum fram- kvæmdarinnar og skrifaði mats- skýrslu. Meginniðurstaða mats á umhverfisáhrifum er sú að losun mengunarefna verði innan viðmiðun- armarka utan þynningarsvæðis fyrir báða áfanga álversins. Önnur um- hverfisáhrif séu ekki þess eðlis að þau mæli gegn fyrirhugaðri fram- kvæmd. Í tilkynningu frá Skipulagsstofn- un segir, að fyrirhuguð stækkun feli í sér framleiðsluaukningu um 260.000 t á ári í tveimur áföngum. Í núgild- andi starfsleyfi hefur fyrirtækið heimild til framleiðslu á allt að 200.000 tonnum á ári. Vegna stækk- unarinnar er fyrirhugað að reisa tvo tæplega 950 m langa kerskála, sunn- an núverandi Reykjanesbrautar. Nokkurt bil (um 130 m) verður á milli núverandi kerskála og fyrirhug- aðra kerskála. Ástæða þess er sú að forðast þarf rask á rústum kapellu, fornrar tóftar sem Kapelluhraun dregur nafn sitt af, með því að stað- setja skálana sunnan tóftarinnar. Áætlað er að hefja byggingu fyrri áfanga árið 2003 Önnur helstu mannvirki fyrirhug- aðrar stækkunar eru súrálsgeymir, þurrhreinsistöð, skautsmiðja, ker- smiðja og stækkun steypuskála, spennistöðvar og geymsluhúsnæðis. Áætlað er að hefja byggingu fyrri áfanga árið 2003 ef semst um orkuaf- hendingu. Áætlaður byggingartími hvors áfanga er um tvö ár og því gæti gangsetning fyrri áfangans hafist ár- ið 2005 og þess síðari árið 2007. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru ekki í samræmi við gildandi aðal- skipulag. Nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi eru vegna færslu Reykjanesbrautar til suðurs og að stækkuð lóð ISAL verði samfellt iðn- aðarsvæði. Ennfremur þarf að gera grein fyrir þynningarsvæði um- hverfis álverið. Talið er að núverandi þekja gróð- urs í nágrenni álversins haldist að mestu í kjölfar stækkunar þess þar sem viðkvæmar tegundir (mosar og fléttur) nái sér ekki á strik og þekja krækilyngs eykst enn meir. Fyrir- huguð stækkun álversins og aukning útblásturs í kjölfar þess er ekki talin hafa skaðleg áhrif á heilsu starfs- manna álversins né íbúa í nágrenn- inu, en mun þó hafa takmarkandi áhrif á stækkun íbúðabyggðar á Hvaleyrarholti í vesturátt eins og nú er. Eftir fyrirhugaða stækkun er ekki talið æskilegt að sauðfé sé á beit innan þess svæðis þar sem styrkur flúoríðs getur farið yfir 0,3 grömm á rúmmetra. Ekki talin þörf á vothreinsi- búnaði við álverið Rekstur álversins eftir stækkun í 460.000 t mun valda útstreymi á gróðurhúsalofttegundum sem nem- ur um 805.000 t á ári. Umhverfis- ráðuneytið telur líklegt að þetta út- streymi sé utan þeirra marka sem lýst er í stefnu íslenskra stjórnvalda um losun gróðurhúsalofttegunda. Fram kemur í matsskýrslunni að ef markmið stjórnvalda um losun gróð- urhúsalofttegunda náist ekki muni ISAL hafa náið samráð við stjórn- völd um viðeigandi ráðstafanir og hugsanlegar mótvægisaðgerðir. Að beiðni Skipulagsstofnunar voru áhrif vothreinsunar á útblæstri könnuð. Niðurstaða matsskýrslunn- ar er á þá leið að ekki er talin þörf á því að setja upp vothreinsibúnað við álverið. Ef vothreinsun yrði sett þá sýna útreikningar að áhrifa hennar gætir á rúmlega 7 ferkílómetra svæði í sjó framundan iðnaðarsvæð- inu. Skammtímameðaltöl brenni- steinstvíoxíðs og meðaltal flúors yfir gróðurtímabilið ákvarða stærð þynn- ingarsvæðis. Núverandi tillaga að þynningarsvæði nær yfir núverandi svæði takmarkaðrar ábyrgðar sam- kvæmt samningi á milli ríkisstjórnar Íslands og fyrirtækisins. Áhrifa- svæði álversins stækkar því ekki frá því sem fyrir er. Ekki kemur því til breytinga á landnotkun utan núver- andi þynningarsvæðis. Þjóðarframleiðsla eykst um 2% Samfélagsleg áhrif fyrirhugaðrar stækkunar á álveri ÍSAL í Straums- vík felast einkum í fjölgun starfa og íbúafjölgun á höfuðborgarsvæðinu, aðallega í Hafnarfirði. Áætluð mannaflaþörf á byggingartíma (2004–2007) er um 1.500 ársverk. Þá er gert ráð fyrir um 2.000–3.000 ár- verkum í tengslum við nauðsynlegar virkjanaframkvæmdir. Gert er ráð fyrir um 350 nýjum framtíðarstörfum og að heildarfjöldi starfsmanna í álverinu muni verða um 850. Einnig má reikna með að til verði rúmlega 800 ný óbein og af- leidd störf vegna margfeldisáhrifa stækkunarinnar. Talið er að þjóðar- framleiðsla aukist um 2% á bygging- artíma stækkunar álvers ÍSAL og tengdra virkjanaframkvæmda. Var- anleg áhrif stækkunar ÍSAL á þjóð- ar- og landsframleiðslu eru hins veg- ar talin verða um 1%. Tilkynning um mat á umhverfis- áhrifum var send Skipulagsstofnun 3. maí 2002. Matsskýrslan liggur frammi til kynningar frá 17. maí til 28. júní 2002 á skrifstofum Hafnar- fjarðarbæjar og á bókasafni Hafn- arfjarðar. Einnig í Þjóðarbókhlöð- unni og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík. Skýrslan er aðgengileg á heimasíðum Hönnunar. Almenningi gefast 6 vikur til að kynna sér fram- kvæmdina og leggja fram athuga- semdir sem þurfa að berast Skipu- lagsstofnun eigi síðar en 28. júní 2002. Stækkun álversins í Straumsvík í umhverfismati hjá Skipulagsstofnun 805 þúsund tonn af gróður- húsalofttegundum á ári Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.