Morgunblaðið - 22.05.2002, Side 18

Morgunblaðið - 22.05.2002, Side 18
SUÐURNES 18 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ REYKJANESBÆR var eitt þeirra bæjarfélaga sem tóku þátt í átaki Geðræktar og landlæknisembætt- isins „Sleppum fordómum“ sem hrundið var í framkvæmd víða um land sl. laugardag. Dagskráin fór fram við félagsmiðstöðina Fjör- heima í Njarðvík og var ýmislegt til gamans gert. Skemmtuninni lauk með því að 1.000 blöðrum var sleppt lausum sem tákn um þá for- dóma sem fólk ætti að sleppa. Skemmtidagskráin hófst með pílukastkeppni þar sem allir sem vildu gátu verið þátttakendur. Síð- an rak hver keppnin aðra og það sem einkenndi daginn var að allt aldursbil var þurrkað út, allir kepptu á jafnréttisgrundvelli sama á hvað aldri þeir voru og hlaut sig- urvegarinn í hverri grein verðlaun. Að verðlaunaafhendingu lokinni flutti Hjördís Árnadóttir, félags- málastjóri Reykjanesbæjar, stutt ávarp um fordóma og að því loknu var 1.000 blöðrum sleppt lausum út í rokið og fuku burt, og vonandi margir fordómar með. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Börnin áttu erfitt með að koma böndum á blöðrurnar og voru þær fljótar að berast með vindinum. Fordómar fuku burt Reykjanesbær Villandi samanburð- ur gjalda FJÁRMÁLASKRIFSTOFA Reykjanesbæjar hefur óskað eftir birtingu á eftirfarandi athugasemd vegna auglýsingar Reykjavíkurlist- ans: „Í tilefni af auglýsingu er birtist í Morgunblaðinu föstudaginn 17. maí um álagningu fasteignagjalda á eldri borgara vill fjármálaskrifstofa Reykjanesbæjar koma á framfæri athugasemd við villandi samanburð á fasteignagjöldum. Í auglýsingunni er vísað í grein Péturs Guðmundssonar sem birtist í félagsriti eldri borgara í Reykjavík. Í greininni er þess getið að hafa verði í huga að fasteigna- og lóðarmat er alltaf miklu lægra úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu. Fasteigna- og lóðarmat í Reykja- nesbæ á sambærilegri eign og kem- ur fram í auglýsingunni er um kr. 7.600.000. Álögð gjöld á slíka eign með afslætti væri nálægt kr. 51.000, en ekki kr. 105.000 eins og fram kemur.“ Reykjanesbær NÝVERIÐ lauk í Keflavík nám- skeiði fyrir nýbakaða foreldra með sín fyrstu börn. Námskeiðið er nýj- ung á Íslandi en námskeiðshaldarar eru barnahjúkrunarfræðingarnir Kristín Guðmundsdóttir og Hertha W. Jónsdóttir. Þær höfðu haldið eitt námskeið í Kópavogi og auglýst ann- að, en þar sem flestar fyrirspurnir bárust frá Reykjanesbæ ákváðu þær að halda með námskeiðið suður, enda markmiðið að vera sem næst foreldrum hverju sinni. Það var notaleg stemmning í Kirkjulundi, safnaðarheimili Kefla- víkurkirkju, þegar blaðamaður Morgunblaðsins leit þar við síðari námskeiðsdaginn. Hertha byrjaði á því að kveikja á tveimur kertum, einu kærleikskerti og einu fyrir vin- áttu og frið og um salinn ómaði hug- ljúf tónlist. „Þetta er eitt það mik- ilvægasta til að fólk fái notið foreldrahlutverksins sem best. Kær- leikurinn og vináttan samstillir fjöl- skylduna og það er mjög mikilvægt að hafa kærleikann að leiðarljósi og jafnframt tjá hann ríkulega, bæði til barns og maka,“ segir Hertha. Á námskeiðinu, sem skipt var á tvö kvöld, var í fyrstu farið yfir sam- setningu fjölskyldu og þjóðfélags- mynd og þá breytingu sem verður á fjölskyldunni við fæðingu barns. Síð- ari daginn var farið yfir vöxt og þroska barnsins og allar þarfir þess. Þær stöllur leggja áherslu á að foreldrar fái notið hlutverksins sem allra best og er það eins og rauður þráður í gegnum námskeiðið. „Nám- skeiðið er hugsað sem viðbót við aðra þá fræðslu sem foreldrum býðst frá starfsfólki heilbrigðiskerfisins,“ seg- ir Kristín. „Við leggjum áherslu á gildi foreldrahlutverksins annars vegar og hins vegar þess að njóta. Eins og nýbökuðu foreldrarnir hafa sjálfir lýst á námskeiðinu þá vaknar hjá þeim ábyrgðartilfinning og löng- un til að standa sig gagnvart af- kvæmi sínu. Þegar tekist er á við nýtt hlutverk þá koma upp spurn- ingar og efasemdir sem gott er að geta rætt við einhvern um og ungir foreldrar í dag hafa ekki þann bak- hjarl sem stórfjölskyldan var hér áð- ur fyrr. Í nútímanum eru flestir upp- teknir og hraðinn orðinn svo mikill að nýbakaðir foreldrar sitja stund- um inni með spurningar og óleyst verkefni, sem valda kvíða og óöryggi að óþörfu.“ „Hér nenna allir að hlusta“ Hjónin Björg Alexandersdóttir og Arinbjörn Þórhallsson eignuðust sitt fyrsta barn, dreng, fyrir hálfu ári. Þau segjast hafa verið dugleg að lesa sér til þegar erfingjans var beðið og setið foreldranámskeið á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja. „Þetta nám- skeið hefur komið sér mjög vel og hefur að miklu leyti styrkt þá vitn- eskju sem við höfðum fyrir,“ segir Arinbjörn og Björg tekur undir. „Það er svo margt sagt í þessum efn- um og allir virðast veita góð ráð, þannig að það er mjög gott að geta rætt sín hugðarefni við fagmenn sem eru margreyndir í faginu, eins og Kristín og Hertha eru. Hér nenna líka allir að hlusta, fólk er ekki alltaf tilbúið til að ræða við mann um þessi efni, þannig að þetta er góður vett- vangur til skoðanaskipta,“ segir Arnibjörn. Björg segir að uppbygging nám- skeiðsins hafi komið þeim skemmti- lega á óvart. „Við héldum að þetta snerist að mestu um barnið og þarfir þess en það að farið sé náið út í sam- stillingu fjölskyldunnar og þær breytingar sem verða á henni við komu barns er mjög þarft og gott innlegg. Að eignast barn er svo mikil breyting á lífi manns,“ segir Björg að lokum. Námskeið fyrir nýbakaða foreldra „Vilja standa sig vel gagnvart afkvæmi sínu“ Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Björg og Arinbjörn voru ánægð með námskeiðið og sögðu uppbyggingu þess hafa komið skemmtilega á óvart. Keflavík NEMENDUR Flensborgarskólans í Hafnarfirði fóru til Krýsuvíkur síð- astliðinn föstudag til að gróðursetja trjáplöntur í brekkuna sunnan í bæjarhlaðinu. Uppgræðslan er lið- ur í verkefni skólans, Samtakanna Gróður fyrir fólk í Landnámi Ing- ólfs og Krýsuvíkursamtakanna um uppgræðslu og mannlega uppbygg- ingu og um leið hluti af lífsleikni- námskeiði við skólann. Auk gróð- ursetningar mæla og skrá nemendur ýmsa þætti. Krýsuvík- ursamtökin og skjólstæðingar þeirra aðstoða þá og sjá um ákveðnar veðurathuganir. Morgunblaðið/Ásdís Krýsuvík Uppgræðsla og mannleg uppbygging Vortón- leikar Víkinga SÖNGSVEITIN Víkingar held- ur sína árlegu vortónleika fimmtudaginn 23. maí næst- komandi kl. 20.30 í Samkomu- húsinu í Garði og í Safnaðar- heimilinu í Sandgerði föstu- daginn 24. maí kl. 20.30. Söngsveitin Víkingar var stofnuð 1994 og er Suðurnesja- mönnum að góðu kunn, að því er segir í fréttatilkynningu. Vík- ingarnir eru nú undir stjórn Sig- urðar Sævarssonar, en hann tók við sveitinni í september síðast- liðnum. Undirleikari er Ragn- heiður Skúladóttir. Efnisskráin er fjölbreytt og samanstendur af þekktum ís- lenskum og erlendum lögum frá ýmsum tímum. Víkingar telja að hér sé upplagt tækifæri fyrir Suðurnesjamenn og aðra tón- listarunnendur til að gera hlé á „kosningaskjálftanum“ og njóta kórsöngs stutta kvöldstund. Garður/Sandgerði FRAMBJÓÐENDUR D-lista sjálf- stæðismanna í Reykjanesbæ boða til fundar í kvöld til að kynna hugmyndir um grænan orkugarð. Orkugarðurinn er eitt af stefnumálum Sjálfstæðis- flokksins í komandi kosningum. Fulltrúar frá Hitaveitu Suðurnesja taka þátt í umræðum, segir í frétt frá kosningaskrifstofu. Fundurinn verð- ur í kosningamiðstöðinni í Hafnar- götu 6 í Keflavík og hefst kl. 18 í dag. Kynna græn- an orkugarð Reykjanesbær HANDVERKSSÝNING fé- lagsstarfs eldri borgara í Sandgerði verður um helgina 25.- 26. maí. Sýn- ingin er í sal Miðhúsa við Suðurgötu frá kl. 13 til 18 báða dagana. Á sama tíma verður í Miðhúsum einkasýning á málverkum eftir Jónu Arnbjörns- dóttur. Heitt verður á könnunni og eru Sandgerðingar og nærsveita- menn hvattir til að líta inn og skoða afrakstur vetrarins í Miðhúsum. Handverkssýning eldri borgara Sandgerði ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.