Morgunblaðið - 22.05.2002, Side 20
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Fjöldi manns var viðstaddur þegar Egilsbúð bóka- og minjasafn flutti.
EGILSBÚÐ bóka- og minjasafn í
Þorlákshöfn var flutt í nýja og glæsi-
lega aðstöðu í Ráðhúsi Ölfuss um
síðustu helgi. Það er óhætt að segja
að við þessa breytingu eigi Ölfus-
ingar safn sem er sambærilegt við
það sem best gerist annarstaðar,
safn sem er í takt við tímann. Á safn-
inu eru 15 fullkomnar tölvur sem
tengdar eru Netinu, hljóm- og
myndböndum hefur fjölgað mikið og
eru orðin jafn sjálfsagður hlutur og
bækurnar í nútíma safni. Hjörleifur
Brynjólfsson oddviti flutti opnunar-
ræðuna og flutti hann stutt ágrip af
sögu safnsins en hún er ekki ýkja
löng.
Hjörleifur sagði: „Það var árið
1965 sem þáverandi hreppsnefnd
ákvað, að frumkvæði Gunnars
Markússonar, þáverandi skóla-
stjóra, að koma á fót bókasafni í Þor-
lákshöfn en fram til þess tíma hafði
bókasafn sveitarfélagsins verið í
Hveragerði. Fyrsti formaður bóka-
safnsstjórnar var Benedikt Thor-
arensen. Bókasafnið var í upphafi til
húsa í grunnskólanum og opið einu
sinni í viku – tvo tíma í senn.
Árið 1980 hafði þáverandi hrepps-
nefnd samþykkt að koma á fót
minjanefnd sem hafði það hlutverk
að safna sem flestum sögu- og nátt-
úruminjum úr Þorlákshöfn. Síðar
sameinaðist þessi nefnd bókasafns-
stjórninni og úr varð Egilsbúð,
stofnun sem var kennd við Egil
Thorarensen, kaupfélagsstjóra. Eg-
ilsbúð var formlega stofnuð á Þor-
láksmessu að sumri 1982. Þá var
stigið stórt skref í því að gera bóka-
safnið að menningarmiðstöð. Gunn-
ar Markússon var fyrsti starfsmaður
bókasafnsins en síðar réðst þar einn-
ig til starfa eiginkona hans, Sigur-
laug Stefánsdóttir. Endalaus þolin-
mæði, nýtni og ráðdeild gerðu það
að verkum að safnið óx og dafnaði,
enda báru þau hjón hag safnsins
mjög fyrir brjósti og stendur sveit-
arfélagið í þakkarskuld við þau hjón.
Árið 1998 réðst til starfa við safnið
Jón Sævar Baldvinsson bókasafns-
fræðingur og hefur hann haft veg og
vanda að uppbyggingu safnsins nú
síðastliðin ár. Undir hans stjórn hef-
ur safnið breyst úr bókasafni í nú-
tíma upplýsingamiðstöð.“
Vegleg bókagjöf
Við þetta tækifæri færði Sigur-
laug A. Stefánsdóttir safninu höfð-
inglega bókagjöf til minningar um
Gunnar, frá sér og börnum þeirra
Gunnars. Bækurnar sem þau gáfu
voru rúmlega 800 titlar og auk þess
10 tímaritsárgangar, þetta er bróð-
urparturinn af safni Gunnars sem
var mikill áhugamaður um bækur.
Sigurlaug sagði meðal annars við
þetta tækifæri. „Þegar ég stend hér
og lít yfir þetta pláss og allar þessar
bækur, verður mér óneitanlega
hugsað til fyrstu ára bókasafnsins,
sem opnað var í smákytru í skól-
anum 29. október 1965, eða fyrir
tæpum 37 árum, ekki er að furða að
barnið þurfi eitthvað stærra að vera
í, komið á þennan aldur. Safnið var
opnað með rúmlega 100 bókum og
um áramót hafði verið opið 8 sinnum
og lánaðar út 242 bækur, en þá var
bókaeignin komin í 209 bindi.“
Til að kaupa bækur þarf peninga
og þeir voru ekki á lausu í stórum
stíl. Því notaði Gunnar þá peninga
sem hann átti að fá í vinnulaun til að
kaupa bækur fyrstu tíu árin þannig
að hann á stóran þátt í uppbyggingu
safnsins. Jón Sævar Baldvinsson tók
við gjöfinni fyrir hönd safnsins og
þakkaði gjöfina.
Egilsbúð bóka- og minjasafn
í nýtt og glæsilegt húsnæði
Þorlákshöfn
Morgunblaðið/Björn Björnson
„Mikkarnir“, Aage, Kristinn og Franch.
NÚ síðla vetrar barst Byggðasafni
Skagfirðinga í Glaumbæ góð gjöf frá
sonum Jörgens Franchs Michelsens
fyrrum úrsmíðameistara á Sauðár-
króki, er þeir færðu safninu verk-
færi, áhöld og ýmsa muni úr verk-
stæði og búi föður síns.
Í samvinnu og samráði við gefend-
urna hefur verkstæði Michelsens nú
verið sett upp í Minjahúsinu á Sauð-
árkróki og er það hluti af röð verk-
stæða sem komið hefur verið upp á
neðri hæð hússins. Uppsetningu
annaðist safnvörðurinn í Glaumbæ,
Sigríður Sigurðardóttir.
Önnur söfn iðnmeistara sem eru
til sýnis eru vélsmiðja Jóns Nikó-
demussonar fyrrum hitaveitustjóra,
en það var fyrsta verkstæðið sem
flutt var í húsið í heild. Þá er þar tré-
smíðaverkstæði Ingólfs Nikódemus-
sonar, bróður Jóns, en um árabil
teiknaði Ingólfur hús og byggði á
Sauðárkróki og í Skagafirði, auk
þess sem hann smíðaði alla mögu-
lega og ómögulega hluti, allt frá lík-
kistum til leikfanga. Er verkstæði
Ingólfs líkt og hin verkstæðin upp-
sett þannig að líkt er og meistarinn
hafi rétt brugðið sér frá.
Eru verkstæði þeirra Jóns og Ing-
ólfs einnig gjafir frá afkomendum
þeirra.
Fjórða verkstæðið er hins vegar á
annan máta, en þar er safnað saman
verkfærum og hlutum sem tengdust
söðlasmíði, en þetta safn er komið úr
ýmsum áttum og ekki úr eigu eins
manns.
Við athöfn í Minjahúsinu, þar sem
viðstaddir voru þrír af sonum Mich-
elsens, þeir Aage, Kristinn og
Franch, opnaði Sigríður Sigurðar-
dóttir safnvörður sýninguna og sagði
frá tildrögum þess að verkstæðin
væru nú öll komin á einn stað og frá
uppsetningu þeirra.
Sagði Sigríður að sú stefna hefði
verið mörkuð að setja upp heil verk-
stæði eins og þau voru í eðlilegum
rekstri og gefa þannig innsýn í þann
veruleika sem löngu er liðinn.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður sagði það ánægjulegt
að varðveita svo vel minjar verk-
menningar fyrri tíðar, og með því
væri henni sýndur sómi. Þakkaði
hún öllum þeim, sem að verkinu
komu, fyrir frábært og fagmannlega
unnið verk.
Tveir tóku til máls, sem báðir bera
nafn föður og afa, Franchs Michel-
sens, og lýstu ánægju með það
hversu vel hefði til tekist við upp-
setningu sýningarinnar, en einnig
ávörpuðu gesti þeirJón Garðarsson
formaður Menningarmálanefndar
Skagafjarðar og Jón H. Ingólfsson
Nikódemussonar.
Iðnmeistarasöfn á
Sauðárkróki
Sauðárkrókur
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UM sextíu nemendur á yngsta
stigi og miðstigi í Grunnskól-
anum í Borgarnesi tóku þátt í
sýningu á Dýrunum í Hálsaskógi.
Sýnt var í Félagsmiðstöðinni
Óðali en aðeins var um tvær sýn-
ingar að ræða og því ekki aug-
lýst.
Markmiðið var að hafa gaman
af þessu og að foreldrar, systkini
og ættingjar gætu komið og séð
listamennina.
Krakkarnir eru alls ófeimnir
við að koma fram og syngja bæði
einsöng og samsöng. Birna Þor-
steinsdóttir tónlistarkennari sá
um undirleik, kórstjórn og alla
uppsetningu verksins.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Dýrin í Hálsaskógi sett á svið
Borgarnes
ESB styrk-
ir félags-
miðstöðina
Ný-ung
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Ný-ung á
Egilsstöðum hlaut nýverið Evrópu-
sambandsstyrk vegna þátttöku í fjöl-
þjóðlegu verkefni
í sumar. Styrkur-
inn kemur frá
samtökunum
„Ungt fólk í Evr-
ópu“ og nemur
tæpum 6 milljón-
um króna. Mun
það vera hæsti
styrkur sem ís-
lenskt verkefni
hefur fengið úr
sjóðnum.
Um er að ræða samvinnuverkefni
átta hópa, frá Bretlandi, Ítalíu, Ír-
landi, Slóvakíu og Slóveníu, auk Ís-
lands. Þátttakendur eru á aldrinum
16 til 19 ára og er reiknað með að
hver þjóð taki a.m.k. einu sinni á
móti öllum hópnum. Þannig getur
verkefnið spannað 5-6 ár.
Verkefnið hefst á Íslandi í sumar
og mun Þráinn Sigvaldason, for-
stöðumaður Ný-ungar, halda utan
um þann hluta. Í þessari lotu verður
tekið fyrir hugtakið „einangrun“ í fé-
lagslegu, fjárhagslegu, landfræði-
legu og persónulegu tilliti og unnið
með það á ýmsa vegu út frá sjón-
armiði hverrar þjóðar. Þátttakendur
verða 57 talsins, þar af 47 útlend
ungmenni, sem koma til landsins í
ágúst nk. og dveljast á Héraði í rúm-
lega vikutíma.
Egilsstaðir
Þráinn
Sigvaldason
20 ÁRA afmæli Tónlistarskólans á
Kirkjubæjarklaustri var haldið há-
tíðlegt föstudaginn 17. maí í félags-
heimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæj-
arklaustri. Þar komu fram bæði
fyrrverandi og núverandi nemendur
tónlistarskólans, sem spiluðu, sungu
og dönsuðu fyrir viðstadda sem voru
yfir 100. Jafnframt voru þetta vor-
tónleikar og skólaslit á sama tíma. Í
tilefni af þessum tímamótum gaf
Kvenfélag Kirkjubæjarhrepps tón-
listarskólanum höfðinglega gjöf, 100
þúsund krónur, sem formaðurinn,
Rannveig Bjarnadóttir, færði Birnu
Bragadóttur skólastjóra sem þakk-
aði vel fyrir, einnig fengu allir nem-
endur tónlistarskólans í vetur af-
mælispakka sem í voru bolir og
peysur, merkt skólanum. Þótti þessi
hátíð takast með afbrigðum vel.
Afmælishátíð
tónlistar-
skólans
Kirkjubæjarklaustur
♦ ♦ ♦