Morgunblaðið - 22.05.2002, Qupperneq 55
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 55
afsláttur af öllum vörum
Garðar Ólafsson
úrsmiður, Lækjartorgi, sími 551 0081
Gucci úr 30% - Reymond Weil 30% - vasaúr 30% 30%
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
10
11
/
T
A
K
T
ÍK
-
N
r.:
2
8
B
LÍKT og áður hef ég haft gaman af
því að fylgjast með kosningabarátt-
unni fyrir sveitarstjórnakosning-
arnar og sérstaklega í mínu sveit-
arfélagi, Garðabæ. Mér brá þó
dálítið þegar ég fór á opinn borg-
arafund í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ liðlega viku fyrir kosn-
ingar. Þar sagði Lovísa Einarsdótt-
ir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinn-
ar, að það mætti ekki setja of ung
börn á leikskólana vegna þess að
þar væri allt fullt af bakteríum.
Þetta sagði hún til að mótmæla
þeirri stefnu sjálfstæðismanna að
foreldrar ættu að hafa val um leik-
skólapláss allt frá því að fæðing-
arorlofi lyki.
Ég varð alveg agndofa þegar ég
heyrði þessar yfirlýsingar Lovísu.
Er þetta álit þeirra á leikskólum
bæjarins? Frambjóðendur S-listans
sögðu líka að best væri að börnin
byrjuðu ekki í leikskóla fyrr en eft-
ir að þau væru búin að fá allar bólu-
setningar. Hvað finnst þeim um
starfsemi dagmæðra? Mér finnst
þetta beinar árásir á dagmæður í
bænum sem eru með börn allt frá
sex mánaða aldri.
Börn eru bólusett þriggja, fimm,
tólf og átján mánaða, 5 ára og loks
9 ára. Í ljósi þess er málflutningur
Samfylkingarinnar stórfurðulegur.
Sjálf er ég lærð ljósmóðir og er
fimm barna móðir og veit vel að
mikilvægt er að hlúa sem best að
ungum börnum. Það er mjög vel
hægt á þeim góðu leikskólum sem
Garðabær rekur og ekki síst í ljósi
þess að sjálfstæðismenn vilja
byggja upp sérstaka aðstöðu fyrir
yngri börnin í skólunum. Satt best
að segja fannst mér ég vera komin
aftur í tímann þegar ég heyrði
Samfylkinguna tala um leikskólana
sem stórhættulegan stað fyrir ung
börn og þar ættu þau ekki að vera.
FRÍÐA EINARSDÓTTIR,
ljósmóðir,
Ásgarði 2, Garðabæ.
Allt fullt af bakteríum
á leikskólunum?
Frá Fríðu Einarsdóttur:
ÞAÐ MUN hafa verið síðla árs
1974 sem breska popphljómsveitin
Slade kom fyrst til Íslands. Ég var
þá kennari á unglingastigi í Val-
húsaskóla á Seltjarnarnesi, en sá
jafnframt um unglingaefni í Morg-
unblaðinu, einkum þó um popptón-
list. Ég kenndi samfélagsfræða-
greinar, m.a. landafræði og
mannkynssögu í 2. bekk þar sem
sátu unglingar á 15. aldursári.
Þetta var fyrsta árið mitt við
kennslu og sjálfsagt hefur reynslu-
leysið átt sinn þátt í því að náms-
árangurinn var misjafn hjá nem-
endunum og einkunnir á prófum
dreifðust um mestallan skalann,
frá 3-4 og upp í 10.
Um þessar mundir komu Slade
til landsins og léku á tónleikum í
Laugardalshöll. Þeir voru stórt
nafn í poppheiminum og gríðarlega
vinsælir meðal krakka, einkum á
aldrinum 10-18 ára. Ég fór í Höll-
ina sem blaðamaður til að geta
skrifað um tónleikana í Morgun-
blaðið. Mér til ánægju hitti ég
marga nemendur mína þar, feikna-
lega káta og hrifna af ensku stór-
stjörnunum. Ekki var laust við
undrunarsvip á nemendum mínum
er þeir sáu mig, kennarann sinn, og
var ég þó bara 11 árum eldri en
þau.
Eftir tónleikana var haldið teiti
fyrir hljómsveitina á Hótel Esju
þar sem hún bjó og var blaðamönn-
um boðið að vera meðal gesta.
Heldur var þetta bragðdauf sam-
koma, enda voru aðrir gestir flestir
á mínu reki eða eldri og virtust
ekki vera jafn upprifnir yfir Slade
og krakkarnir á tónleikunum. Ég
staldraði stutt við, enda þurfti ég
að fara að kenna morguninn eftir,
en náði þó að krækja í eiginhand-
aráritanir hjá þeim þremur liðs-
mönnum Slade sem litu inn í boðið.
Morguninn eftir voru krakkarnir
í Való ennþá í skýjunum og höfðu
um margt annað við mig að spjalla
en um landafræði og sögu. Þá kom
mér í hug að gera þeim tilboð. Ég
minnti þau á skyndipróf sem var á
dagskrá innan fárra daga og
kvaðst myndu gefa þeim þremur
nemendum sem stæðu sig best á
prófinu eiginhandaráritanirnar
dýrmætu. Ég bætti þó við að þar
kæmu jafnt til greina þeir sem
fengju hæsta einkunn og hinir sem
bættu sig mest frá síðasta prófi.
Þessu var tekið með miklum
fögnuði, þó heldur dempaðri en á
tónleikunum kvöldið áður.
Ég varð þess fljótt áskynja að
krakkarnir fóru að lesa eins og vit-
lausir fyrir prófið, enda til mikils
að vinna. Ég varð þó mjög undr-
andi þegar ég fór yfir úrlausnirnar,
því að nánast hver einasti nemandi
var með fína einkunn, á bilinu 8 til
10. Þar á meðal voru krakkar sem
sennilega höfðu sjaldan fengið slík-
ar tölur í einkunnabækur sínar en
voru skyndilega meðal þeirra
fremstu.
Nú var úr vöndu að ráða og því
dróst að ég afhenti úrlausnirnar.
Hverjir áttu helst skilið að fá árit-
anirnar? Það voru liðnar tvær vik-
ur þegar ég bar vandamálið loks
upp við bekkinn. Krakkarnir virt-
ust áhugalitlir og sögðu bara: „Þú
skalt ákveða þetta sjálfur.“ Slade-
æðið var augljóslega runnið af
þeim. Ég velti þessum vanda fyrir
mér enn um hríð en svo gleymdist
málið, áritanirnar lentu niður í
skúffu og enginn spurði um þær.
Ellefu árum síðar komu þær í
ljós þegar ég var að pakka búslóð-
inni til að flytjast búferlum. Ég
bauð elstu dóttur minni sem þá var
orðin 12 ára að eignast áritanirnar,
en hún hafði engan áhuga. Hún
kannaðist ekkert við Slade en vissi
hins vegar allt um Duran Duran,
nýjustu hetjurnar.
Áritanirnar fóru því í ruslið,
enda taldi ég þær verðlitlar úr því
sem komið var.
Nú eru Slade aftur á ferðinni á
Íslandi og leika á Broadway. Þegar
ég sá auglýsingu þess efnis rifj-
aðist sagan upp fyrir mér um próf-
árangurinn ótrúlega og ég hugsaði
til þessara liðnu tíma með mikilli
ánægju.
Það sem ég tel mig hafa lært af
þessu er:
– Maður ætti aldrei að vanmeta
hæfni unglinga til að læra og ná ár-
angri ef þeir hafa rétta (innri)
hvatningu.
– Maður ætti aldrei að henda
áritunum „gleymdra“ poppstjarna
– þær geta orðið verðmætar með
árunum ef stjörnurnar fara á kreik
á nýjan leik.
– Maður ætti að reyna að komast
á góða tónleika sem oftast – þeir
fylla mann gleði og krafti sem get-
ur enst dögum saman í próflestri
og öðrum verkefnum.
Þetta er ég reiðubúinn að skrifa
undir hvenær sem er – en ég held
að enginn hafi áhuga á að eignast
áritunina mína!
STEFÁN HALLDÓRSSON,
Skaftahlíð 1, Reykjavík.
Hver átti að fá
eiginhandaráritanir
Slade?
Frá Stefáni Halldórssyni:
Sveit Norðurlands
eystra vann kjör-
dæmamótið í brids
Sveit Norðurlands eystra sigraði á
kjördæmamóti Bridssambands Ís-
lands sem fram fór í Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum um helgina. Þetta er ann-
að árið í röð sem sveitin undir
traustri stjórn Stefáns Vilhjálmsson-
ar vinnur á þessu skemmtilega móti
sem fyrst var haldið á Akranesi 1994.
Sigursveitin hlaut 471 stig eða
rúmlega 67 stig úr hverri umferð en
kjördæmin eru átta og því spilaðar 7
umferðir.
Sveit Reykjavíkur varð í 2. sæti
með 453 stig, Reyknesingar urðu 3.
með 450 og heimamenn 4. með 434
stig.
Aðstaða til mótshalds eystra er
mjög góð, veðurguðirnir sýndu sínar
bestu hliðar og mótshaldið var
heimamönnum til sóma. Keppnis-
stjóri og reiknimeistari var Björgvin
Már Kristinsson.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Sveit Norðurlands eystra sigraði á Kjördæmamótinu sem fram fór á Egilsstöðum um síðustu helgi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Mjög góð mæting, eða 24 pör, var
þriðjudaginn 14. maí og var að venju
spilaður Michell tvímenningur.
Lokastaða efstu para í N/S:
Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 257
Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars. 254
Guðm. Þórðarson - Magnús Þorsteinss. 243
Hæsta skor í A/V:
Þórhildur Magnúsd. - Bent Jónsson 262
Hannes Ingibergss. - Magnús Halldórss. 262
Einar Guðnason - Ragnar Björnsson 258
Sl. föstudag mættu aðeins 18 pör
en þá urðu úrslitin þessi í N/S:
Helga Guðbrandsd. - Ólafur Lárusson 319
Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss. 230
Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 226
A/V:
Magnús Halldórss. - Þorsteinn Laufdal 292
Ernst Bachman - Garðar Sigurðsson 244
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 243
Nokkra athygli vekur hátt skor
Helgu Guðbrandsdóttur og spila-
félaga hennar en þetta mun vera um
74% skor sem er með því hæsta sem
sézt. Meðalskor báða dagana var
216.
Sumarbrids
í góðum gír
Miðvikudagskvöldið 15. maí
mættu 10 pör í Howell tvímenning
þrátt fyrir knattspyrnuveisluna í
Skotlandi, Real Madríd og Lever-
kusen.
Meðalskor var 108. Keppnisstjóri
var Ísak Örn Sig. Efstu pör:
Gylfi Baldursson - Hermann Friðriksson 132
Vilhjálmur Sigurðss. jr - Aron Þorfinnss. 128
Jón Stefánsson - Guðlaugur Sveinsson 119
Hafþór Kristjánss.- Guðlaugur Bessas. 117
Bryndís Þorsteinsdóttir - Jens Jensson 114
Fimmtudagskvöldið 16. maí urðu
þessi pör efst. Matthías var keppn-
isstjóri. (Miðlungur 108):
Arngunnur Jónsd. - Harpa F. Ingólfsd. 139
Ragnar Ö. Jónsson - Alfreð Kristjánsson 129
Guðlaugur Sveinsson - Jón Stefánsson 122
Jón V. Jónmundsson - Torfi Ásgeirsson 114
Dagmar Arnard. - Valgerður Kristjónsd. 111
Föstudagskvöldið var 14 para Ho-
well tvímenningur, Ljósbrá stýrði
spilamennskunni og var haldin
sveitakeppni á eftir. Úrslit í tví-
menningnum urðu þessi, meðalskor
var 156:
Ragna Briem - Þóranna Pálsdóttir 203
Alfreð Kristjánss. - Baldur Bjartmarss. 188
Friðrik Jónsson - Eggert Bergsson 172
Emma Axelsdóttir - Davíð Lúðvíksson 165
Halla Bergþórsd. - Vilhjálmur Sigurðss. 164
Úrslitin í sveitakeppninni urðu
þessi:
1. Ragnar Örn Jónsson- Arnar Arngrímsson
- Ljósbrá Baldursdóttir - Matthías Þorvalds-
son 57
2. Torfi Ásgeirsson - Leifur Aðalsteinsson -
Árni og Oddur Hannessynir 47
3. Emma Axelsdóttir - Davíð Lúðvíksson -
Björn Svavarsson - Helgi Samúelsson 42
4. Baldur Bjartmarss. - Alfreð Kristjánsson -
Óskar Sigurðss. - Sigurður Steingrímss. 34
Í Sumarbrids 2002 er spilað alla
virka daga kl. 19 í Síðumúla 37.
Allir eru velkomnir og keppnis-
stjóri aðstoðar við að mynda pör,
mæti spilarar stakir. Nánari upplýs-
ingar fást hjá BSÍ eða hjá Matthíasi í
síma 860-1003. Einnig má senda
tölvupóst til sumarbridge@bridge.is