Morgunblaðið - 22.05.2002, Side 64

Morgunblaðið - 22.05.2002, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. MIKLAR framkvæmdir hafa stað- ið yfir við Tjarnargötuna í Hafn- arfirði að undanförnu en búið er að breikka götuna og gera gang- stíg meðfram Læknum. Að sögn upplýsingafulltrúa bæjarins stendur til að gangstéttin muni tengjast nýja leikskólanum á Hörðuvöllum sem á myndinni sést fjærst til hægri. Í gær voru þessir herramenn að vinna við kanthleðslu við göt- una og vantar ekki kraftinn í verkið ef marka má allt það grjót sem kvarnast hefur úr garðinum. Morgunblaðið/Ásdís Grjótið mulið af miklum móð SENDINEFND Íslands á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins gekk út af fundi ráðsins í gær eftir að hafa mótmælt vinnubrögðum sem við- höfð voru á fyrsta fundardegi. Þjóðir sem stutt hafa sjónarmið Ís- lands á fundinum sýndu stuðning sinn í verki með því að klappa þeg- ar Íslendingarnir gengu úr fund- arsalnum. Markmiðið áfram að hefja hvalveiðar Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra segir íslensku sendinefnd- ina hafa tekið rétta ákvörðun, ekki hafi verið um annað að ræða í stöð- unni. Málið var rætt á fundi ríkis- stjórnarinnar í gærmorgun en eng- ar ákvarðanir um framhaldið voru þó teknar. Árni segir ýmsa kosti í stöðunni sem farið verði gaumgæfi- lega yfir á næstunni en tekur fram að íslensk stjórnvöld séu ekki undir neinni tímapressu í málinu. ,,Við þurfum að fara vel yfir stöð- una og sjá hvaða kostir eru í spil- unum. Markmiðið er áfram að hefja hvalveiðar sem fyrst og það er ekk- ert búið að loka fyrir það með þessu,“ segir sjávarútvegsráðherra. Lýstu ásökunum á hendur nokkrum ríkjum og yfirgáfu svo fundarsalinn Stefán Ásmundsson, formaður ís- lensku sendinefndarinnar, sagði að við upphaf fundar hvalveiðiráðsins í fyrradag hefði stofnsamningur ráðsins, reglur þess og almennar reglur þjóðarréttar verið brotnar. „Eftir þá framkomu sem okkur var sýnd og eftir að það hefði verið brotið harkalega á okkur töldum við okkur ekki fært að sitja lengur í þessum sal. Við upphaf fundarins í morgun [í gærmorgun] las ég upp yfirlýsingu frá íslensku sendinefnd- inni þar sem ég lýsti ásökunum nefndarinnar á hendur Bandaríkj- unum, sem vörsluaðila samnings- ins, Bo Fernholm frá Svíþjóð, for- manni ráðsins, og þeim ríkjum sem staðið hafa að þessu. Eftir að hafa gert grein fyrir afstöðu okkar yf- irgáfum við fundarsalinn,“ sagði Stefán. Íslenska sendinefndin gekk út af ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins Sjávarútvegsráðherra segir ýmsa kosti í stöðunni  Gengu út/11 HOLLENSK dómsmálayfir- völd hafa framselt íslenskan mann á fertugsaldri til lögregl- unnar í Reykjavík og kom hann til landsins í gær. Hann situr nú í gæsluvarð- haldi en lögreglan óskaði eftir framsali hans í tengslum við hvarf Valgeirs Víðissonar sem ekkert hefur spurst til síðan 1994. Það var í janúar síðastliðnum að æðsti dómstóll í Hollandi féllst á að framselja Íslending- inn en hann afplánaði þá dóm í Hollandi vegna smygls á 16 kílóum af kókaíni inn í landið. Það var síðan hollenska dóms- málaráðuneytið sem tók ákvörðun um að maðurinn yrði framseldur til Íslands. Að sögn Harðar Jóhannes- sonar yfirlögregluþjóns taka nú við yfirheyrslur yfir mann- inum í tengslum við rannsókn málsins. Fram- seldur frá Hollandi til Íslands HRÆ af rollum og skotinni kú, auk kálfs, liggja óurðuð í landi Vatnsness í Grímsnesi til að egna fyrir tófur að sögn Þorsteins Magnússonar ábú- anda þar á bæ. Samkvæmt upplýs- ingum Hollustuverndar ríkisins er um að ræða brot á reglugerð land- búnaðarráðuneytisins um meðferð og nýtingu á sláturúrgangi og dýra- úrgangi. Heilbrigðisnefnd Suður- lands hefur ekki borist kvörtun vegna málsins. Þorsteinn segir að kýrin hafi verið skotin og rollurnar hafi drepist með ýmsum hætti. Hann segist ekki hafa heyrt að slíkar ráðstafanir þurfi samþykki héraðsdýralæknis. Um sé að ræða einkaland og hræin séu ekki fyrir öðrum. Algengt sé að egnt sé fyrir tófu með þessum hætti. Hjá heilbrigðisnefnd Suðurlands fengust þær upplýsingar að ráðstaf- anir sem þessar samrýmdust ekki góðum búskaparháttum. Var sagt að mál af þessu tagi heyrðu aðallega undir héraðsdýralækni. Skotin kýr óurð- uð ásamt nokkr- um dauðum ám FISKISTOFA er ekki undir það búin að sinna útgáfu rekstrarleyfa og eftirliti með þorskeldi. Þessi starfsemi er nú á hennar hendi eftir nýja lagasetningu um eldi nytja- stofna sjávar. Því munu rekstrarleyfi fyrir þorskeldi tæpast verða gefin út í bráð. Þetta kom fram í erindi Þórðar Ásgeirssonar fiski- stofustjóra á fundi um þorsk- eldi á Reyðarfirði. Ráðuneytið eftir að gefa út gjaldskrá Hann sagði Fiskistofu ekki undir það búna að taka við þessu og vantaði reglur, fjár- muni, mannskap og sérfræði- þekkingu til að sinna málefn- inu. Það væri ljóst að umsóknum um þorskeldi sem bærust á næstunni yrði ekki sinnt að svo komnu máli. Hvað eftirlit með eldinu varðaði ætti sjávarútvegsráðuneytið eftir að gefa út gjaldskrá þar að lút- andi. Viðamiklar reglur ESB um eldisafurðir Þórður sagði að margt þyrfti að hafa í huga þegar reglur um þorskeldi yrðu samdar. Hann benti í því sambandi á viða- miklar reglur Evrópusam- bandsins um eldisafurðir, sem taka m.a. á fóðrun, meðhöndl- un og eftirliti með nytjaveið- um. Augljóst væri að Evrópu- sambandið myndi krefjast þess að þessar reglur yrðu innleidd- ar á Íslandi, ef eldisfiskur héð- an ætti að eiga leið inn á Evr- ópumarkaði. Þá sagði Þórður að Fiskistofa myndi að sjálf- sögðu reyna að sinna þessu nýja verkefni sínu sem best, en embættið þyrfti að fá rétt tæki í hendurnar til að svo mætti verða.  Þorskeldi/23 Fiskistofu vantar fjármuni og fólk Umsókn- um um þorskeldi ekki sinnt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.