Morgunblaðið - 12.06.2002, Page 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐAL um 40 Falun Gong-
iðkenda sem komu með flugvél frá
Kaupmannahöfn um hádegisbilið í
gær og voru kyrrsettir í Leifsstöð
var Laney Wang, en hún er frá
Taívan, eins og flestir úr hópnum.
Hún er spurð hver sé leiðtogi
hópsins en svarar því til að engin
leiðtogaembætti séu í hreyfing-
unni, hins vegar sé önnur kona,
Pan Hsing Ming, fararstjóri þeirra
sem komu frá Taívan.
„Falun Gong er ekki skipulögð
hreyfing með embættum og valda-
stiga,“ segir Wang. „Sjálf er ég frá
Taívan eins og flestir aðrir í hópn-
um, við erum frá ýmsum stöðum á
Taívan. Ég lauk námi við banda-
rískan háskóla og var í meira en 20
ár starfsmaður útibús bandarísks
banka á Taívan en fór á eftirlaun í
fyrra.
Sumir eru húsmæður, aðrir op-
inberir starfsmenn, hér er fólk af
ýmsu tagi, með margs konar
menntun. Ég þekkti fæsta af þeim
sem hér eru áður en við fórum af
stað til Íslands með viðkomu í
Moskvu og Kaupmannahöfn. Við
vildum koma hingað til Íslands af
því að okkur finnst þetta mjög sér-
stætt land og gerólíkt okkar landi.
Við vildum fá tækifæri til að segja
fólki sannleikann um Falun Tava,
sem líka er kallað Falun Gong, við
komum hingað til að stunda æfing-
arnar og sýna hvernig þær eru
gerðar. Um er að ræða fimm æf-
ingar en mikilvægast af öllu er
hjartalagið, við leggjum áherslu á
sannleika, samhygð og umburðar-
lyndi og reynum eftir bestu getu
að leggja rækt við þessa eiginleika
í daglegu lífi okkar.
En við fáumst ekki við stjórn-
mál, reynum aðeins að verða góðar
manneskjur og halda góðri heilsu.
Kínversk stjórnvöld pynta nú iðk-
endur Falun Gong algerlega að
ástæðulausu, fólkinu er misþyrmt
eingöngu vegna þess að það leggur
stund á æfingarnar.“
Hún segist aðspurð ekki vita
hvers vegna kínversk stjórnvöld
berjist svo hart gegn Falun Gong.
Fólk sem stundi æfingarnar sé of-
sótt á ýmsa lund, það sé fangelsað
og beitt pyntingum. Segist hún
hafa séð myndbönd þar sem afleið-
ingar pyntinganna birtast með
skýrum hætti. Fjölmiðlum landsins
sé skipað að flytja ósannindi um
hreyfinguna og liðsmenn hennar í
Kína og utan landsins. „Það hrygg-
ir okkur mjög að sjá hvað kín-
verskir lögreglumenn fara illa með
félaga okkar,“ segir Wang.
– En ef hreyfingin er ekki skipu-
lögð eins og önnur samtök hvernig
stendur á því að þið eru komin
hingað til lands svona mörg? Þarf
ekki einhvers konar samráð til að
koma því í kring og tengist koma
ykkar ekkert opinberri heimsókn
Kínaforseta?
„Fæst okkar vissu að Jiang for-
seti væri að koma hingað þegar við
lögðum af stað frá Taívan. Við er-
um búin að vera í mörgum lönd-
um, í mars var ég í Grikklandi og
Sviss. Í desember sl. var ég í
Þýskalandi. Þegar minnst var á Ís-
land fannst mörgum hugmyndin
hljóma vel.“
– Er það virkilega aðeins til-
viljun að svo margir félagar í Fal-
un Gong eru hér samtímis þegar
Jiang forseti er í heimsókn?
„Ég get aðeins svarað til um
fólkið frá Taívan, okkar markmið
var að kynna Falun Gong fyrir Ís-
lendingum. Ég veit að lögreglu-
mennirnir hérna í stöðinni eru að-
eins að stunda sitt starf, þeir eru
góðir menn. Og ég held að þeir viti
að við erum gott fólk sem ekki vill
gera neinum mein.“
– Íslenskir embættismenn segja
að sumir talsmenn Falun Gong hér
hafi sagt að þeir ætli ekki að hlýða
fyrirmælum lögreglunnar og mót-
mæla Jiang á stöðum þar sem
þeim verður bannað að vera. Ætlar
þú að taka þátt í slíkum mótmæl-
um?
„Málið er að við ætlum ekki að
taka þátt í mótmælum heldur að-
eins stunda æfingar okkar með
friðsamlegum hætti og sýna fólki
hvað Falun Gong er. Við ætlum
ekki að mótmæla stjórn eða for-
seta Kína með neinum hætti. Fal-
un Gong er ekki í stjórnmálum.“
– Sumir félagar ykkar hafa þó
efnt til mótmæla í öðrum löndum,
er það ekki?
„Hefurðu séð hvernig þau mót-
mæli fara fram? Þau eru ákaflega
friðsamleg. Notaðar eru friðsam-
legar aðferðir til að segja sannleik-
ann og ekki er verið að skaða
nokkurn mann.“
– Embættismenn hér segja að
þeim beri skylda til að vernda Ji-
ang fyrir Falun Gong, hann sé
gestur hér.
„Við erum frá Taívan og ég get
sagt þér að þar förum við alger-
lega eftir fyrirmælum opinberra
yfirvalda. En við sættum okkur
ekki við að okkur sé meinað að
koma hingað til lands eingöngu á
þeirri forsendu að við séum Falun
Gong-iðkendur og verðum því að
fara á brott. Það getum við ekki
sætt okkur við.“
„Ætlum ekki
að taka þátt í
mótmælum“
Morgunblaðið/Þorkell
Laney Wang: „Við ætlum ekki að mótmæla stjórn eða forseta Kína með
neinum hætti. Falun Gong er ekki í stjórnmálum.“
XIAOXU Shean Lin, líffræðingur
frá Atlanta í Bandaríkjunum, og
Mengyang Jian, sem er nýútskrifuð
úr menntaskóla í Boston, eru meðal
þeirra 26 áhangenda Falun Gong
sem synjað var um landvist á Ís-
landi og hafa verið í haldi lögreglu í
Njarðvíkurskóla frá því í gærmorg-
un.
Farþegar af asískum uppruna
yfirheyrðir í hliðarherbergi
Þau komu með Flugleiðavél frá
Boston og segjast hafa verið stöðv-
uð í landamærahliðinu í Leifsstöð.
Allir farþegar sem litu út fyrir að
vera af asískum uppruna hafi verið
stöðvaðir í hliðunum og leiddir inn í
hliðarherbergi til yfirheyrslu. ,,Við
vorum spurð hvort við þekktum
Falun Gong og hvort við værum
komin hingað til lands í þeim til-
gangi að mótmæla. Síðan var okkur
tjáð að okkur væri neitað um land-
göngu á Íslandi og vorum svo öll
flutt hingað í skólann,“ segir Meng-
yang Jian.
Shean Lin segir greinilegt að ís-
lensk yfirvöld hafi látið undan
þrýstingi frá Kínverjum vegna
heimsóknar Jiang Zemin, forseta
Kína. ,,Kínversk stjórnvöld hafa
dreift þeim áróðri að Falun Gong
ætli að standa fyrir miklum mót-
mælaaðgerðum hér. Ég tel að þess-
ir atburðir séu afleiðing af áróðurs-
þrýstingi frá Kínverjum,“ segir
hann.
Aðspurð hvort þau séu komin til
Íslands í þeim tilgangi að mótmæla
komu kínverska forsetans segir
Mengyang Jian svo ekki vera. Áður
en þau stigu um borð í flugvélina í
Bandaríkjunum hafi þau undirritað
sérstaka yfirlýsingu um að tilgang-
ur fararinnar til Íslands væri ekki
sá að hafa í frammi mótmæli. ,,Við
erum hér hvert fyrir sig að eigin
ákvörðun og sem einstaklingar. Ég
þekki ekki yfir 90% þessa fólks sem
er hér saman komið í skólanum,“
segir hún.
,,Það skiptir ekki öllu máli þótt
við sjáum ekki kínverska forsetann
á meðan við erum hér, heldur mun
nálægð okkar hér á landi einfald-
lega setja þrýsting á hann vegna
þess að þá er honum gert ljóst að
umheimurinn veit um mannrétt-
indabrotin, sem framin eru gegn
Falun Gong í Kína,“ segir hún.
Þau leggja áherslu á að Falun
Gong-iðkendur hafi eingöngu frið-
arboðskap fram að færa og hafi
m.a. staðið að friðsamlegum mót-
mælum við höfuðstöðvar Sameinuðu
þjóðanna í New York og í Genf og
hlotið viðurkenningu lögregluyfir-
valda fyrir friðsamlegar aðgerðir.
,,Við reynum aldrei að vera lögreglu
erfið í neinu landi,“ segir hann.
– Íslensk lögregluyfirvöld halda
því fram að dæmi séu um að félagar
í Falun Gong virði ekki öryggis-
reglur og reyni að komast inn á af-
mörkuð öryggissvæði. Hverju svar-
ið þið þessu?
,,Ég fæ með engu móti séð af
hverju við ættum að haga okkur svo
óskynsamlega. Við leggjum okkur
alltaf fram um að eiga samvinnu við
lögreglu hvar sem við erum. Allt
annað væru mikil mistök,“ segir
hann.
Stuðningur við stefnu
Kínverja ef látið er undan
kröfum þeirra
Þau láta vel af aðbúnaðinum í
Njarðvíkurskóla og segja að ís-
lenska lögreglan hafi komið vel
fram við þau. Þeim sé færður matur
og drykkir og þeim hafi verið leyft
að hringja hvert sem er.
Shean Lin segir að íslensk stjórn-
völd eigi við það vandamál að stríða
að kínversk stjórnvöld séu að reyna
að koma fram hryðjuverkastefnu
sinni gagnvart Falun Gong út um
allan heim, sem fótum troði grund-
vallarmannréttindi. Með því að láta
undan kröfum kínverskra stjórn-
valda séu íslensk stjórnvöld í raun
að veita þessari stefnu stuðning.
,,Ef íslensk stjórnvöld ákveða að
vísa Falun Gong-fólki frá landinu,
fólki sem á engan sakaferil að baki,
munu kínversk stjórnvöld hagnýta
sér það í áróðri sínum um Falun
Gong og valda enn fleiri þjáning-
um,“ segir hann.
Þau sögðust að lokum vona að ís-
lensk stjórnvöld breyttu ákvörðun
sinni og veittu þeim landvist svo
þeim yrði ekki vísað frá landinu í
dag.
Xiaoxu Shean Lin og Mengyang Jian eru í haldi í Njarðvíkurskóla
Leggjum okkur fram um
samvinnu við lögreglu
Morgunblaðið/Júlíus
Mengyang Jian frá Boston og Xiaoxu Shean Lin frá Atlanta eru í hópi 26 Falun Gong-félaga í Njarðvíkurskóla.
UNGLIÐAHREYFINGAR
Framsóknarflokks, Samfylk-
ingar og Sjálfstæðisflokks
sendu í fyrradag frá sér sam-
eiginlega yfirlýsingu þar sem
mannréttindabrotum kín-
verskra stjórnvalda er harð-
lega mótmælt. Í yfirlýsing-
unni kemur fram að kínversk
stjórnvöld hafi fótum troðið
sjálfsögð mannréttindi þegna
sinna, þar á meðal skoðana-
og tjáningarfrelsi, félagafrelsi
og rétt fólks til þess að fá
réttláta málsmeðferð fyrir
óháðum dómstólum. Þá mót-
mæla ungliðahreyfingarnar
þeirri ákvörðun íslenskra
stjórnvalda að meina fé-
lagsmönnum í Falun Gong að
koma til Íslands, enda sé
fólkið komið hingað í þeim til-
gangi einum að hafa uppi
friðsamleg mótmæli gegn
mannréttindabrotum.
Í andstöðu við þær lýð-
ræðishefðir sem íslensk
stjórnskipun byggir á
Í yfirlýsingunni segir:
„Þessi ákvörðun er í andstöðu
við þær lýðræðishefðir sem
íslensk stjórnskipun byggir á
og samræmist ekki þeim al-
þjóðlegu skuldbindingum sem
Íslendingar hafa gengist und-
ir um að virða mannréttindi.
Ísland er eina vestræna ríkið
sem tekur upp á því að banna
inngöngu Falun Gong-félaga
inn í landið. Við lýsum yfir
miklum áhyggjum yfir því að
hefð virðist vera að myndast
hjá íslenska ríkinu að beygja
eða jafnvel brjóta lög og
mannréttindi þegar kínversk-
ir ráðamenn heimsækja land-
ið.“
Ungliðarnir, auk samtaka
stúdenta við Háskóla Íslands,
munu skipuleggja væntanleg-
ar mótmælaaðgerðir á næst-
unni.
Mótmæla
mannrétt-
indabrot-
um í Kína
Ungliðahreyfingar