Morgunblaðið - 12.06.2002, Side 14
ÞRJÁR umsóknir bárust um
stöðu skólastjóra Glerárskóla
á Akureyri. Umsækjendur
eru: Halldór Gunnarsson, að-
stoðarskólastjóri Glerárskóla,
Karl Erlendsson, skólastjóri
Þelamerkurskóla, og Úlfar
Björnsson, skólastjóri Odd-
eyrarskóla.
Vilberg Alexandersson,
sem verið hefur skólastjóri
Glerárskóla undanfarin 35 ár,
er nú að láta af störfum. Gler-
árskóli er einsetinn grunn-
skóli með um 430 nemendur
og yfir 50 starfsmenn, þar af
um 30 kennara. Hlutfall fag-
menntaðra kennara við skól-
ann er nú yfir 90%. Skólinn er
fullbyggður og við hann eru
íþróttahús og sundlaug.
Skólastjóri
Glerárskóla
Þrjár
umsókn-
ir um
stöðuna
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, í hópi kvenna á fyrsta fundi bæjarstjórnar í gær. F.v. Valgerður
H. Bjarnadóttir skrifari, Þóra Ákadóttir forseti , Kristján Þór og Gerður Jónsdóttir skrifari .
KONUR eru í meirihluta í nýrri
bæjarstjórn Akureyrar, en fyrsti
fundur hennar var síðdegis í gær.
Alls náðu nú 6 konur kjöri í bæjar-
stjórn af 11 fulltrúum og er þetta í
fyrsta skipti sem konur skipa
meirihluta í bæjarstjórn á Akur-
eyri.
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur mynda nýjan meirihluta í
bæjarstjórn og er Kristján Þór Júl-
íusson bæjarstjóri og Jakob Björns-
son formaður bæjarráðs. Þá var
Þóra Ákadóttir kjörin forseti bæj-
arstjórnar á fundinum í gær. Jakob
Björnsson er fyrsti varaforseti og
Oktavía Jóhannesdóttir annar
varaforseti. Þær Gerður Jónsdóttir
og Valgerður H. Bjarnadóttir voru
kjörnar skrifarar bæjarstjórnar.
Í bæjarráði verða, auk Jakobs,
Þórarinn B. Jónsson, varafor-
maður, Sigrún Björk Jakobsdóttir,
Oddur Helgi Halldórsson, Oktavía
Jóhannesdóttir og þá situr Val-
gerður H. Bjarnadóttir í bæjarráði
sem áheyrnarfulltrúi.
Bjarni Jónasson er formaður at-
vinnumálanefndar, Heiða Hauks-
dóttir formaður áfengis- og vímu-
varnanefndar, Jakob Björnsson
formaður félagsmálaráðs og einnig
formaður framkvæmdaráðs. Guðný
Jóhannesdóttir er formaður
íþrótta- og tómstundaráðs, Björn
Snæbjörnsson formaður jafnréttis-
og fjölskyldunefndar og Sigrún
Björk Jakobsdóttir formaður
menningarmálanefndar. Ingimar
Eydal stýrir náttúruverndarnefnd,
Jón Kr. Sólnes skólanefnd og Páll
Tómasson er formaður stjórnar
Norðurorku. Þá er Guðmundur Jó-
hannsson formaður umhverfisráðs.
Kristján Þór gerði á fundinum
grein fyrir málefnasamningi meiri-
hlutaflokkanna og helstu fram-
kvæmdum sem ráðist verður í á
komandi kjörtímabili. Oktavía Jó-
hannesdóttir, Samfylkingu, gagn-
rýndi samninginn, sagði hann lang-
an en ekki að sama skapi innihalds-
drjúgan og hlutur framsóknar væri
heldur rýr. Þá fannst henni samn-
ingurinn loðinn og óskýr, fátt væri
þar nýtt að finna og skortur væri á
ferskum andblæ.
Þóra Ákadóttir forseti í nýrri bæjarstjórn á Akureyri
Konur skipa meiri-
hluta í fyrsta sinn
AKUREYRI
14 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
Áhugafólk um leiklist
Dagana 21.-22. júní nk. verður haldin
ráðstefna um leiklist á Akureyri.
Viðfangsefni ráðstefnunnar verður: Samspil áhugaleikfélaga
og atvinnuleikhúsa.
Ráðstefnan stendur frá kl. 10.00 til 16.30 á föstudaginn
og frá kl. 9.30 til 12.15 á laugardaginn.
Fyrirlesarar verða Stefán Baldursson, Þjóðleikhússtjóri,
Sigurður Hróarsson, leikhússtjóri, Ágústa Skúladóttir, leikstjóri,
Hörður Sigurðarson frá BÍL, Eyðun Johannessen, leikhússtjóri,
Færeyjum, Kaj Puumalainen, leikmyndasmiður, Finnlandi og
María Öller, leikari, Finnlandi.
Nánari upplýsingar og skráning á ráðstefnuna er á skrifstofu
Gilfélagsins í Ketilhúsinu, Akureyri. Vinsamlega tilkynnið
þátttöku fyrir 15. júní nk.
Sími 466-2609 og netfang listagil@listagil.is.
Ráðstefnan er haldin á sama tíma og leiklistarhátíðin
„Jónsmessuleikur“, þar sem sýnd verða 6 forvitnileg leikrit frá
Íslandi, Færeyjum og Finnlandi.
Gilfélagið.
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga
Aðalfundur KEA verður haldinn á Hótel KEA
á Akureyri miðvikudaginn 19. júní nk.
og hefst kl. 20.00.
Dagskrá:
Fundarsetning
Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna
fundarins
Skýrsla stjórnar
Skýrsla kaupfélagsstjóra
a. Reikningar félagsins
b. Tillögur félagsstjórnar um ráðstöfun
eftirstöðva o.fl.
Afgreiðsla reikninga og tillaga félagsstjórnar
Skýrsla stjórnar Menningarsjóðar KEA
Erindi deilda
Þóknun stjórnar og endurskoðenda
Kosningar
a. Sjö menn í stjórn, fjórir til tveggja ára og
þrír til eins árs, og þrír í
varastjórn til eins árs
b. Níu fulltrúar á aðalfund Sambands ísl.
samvinnufélaga
c. Löggiltur endurskoðandi
Önnur mál, sem heyra undir aðalfund
skv. félagssamþykktum
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga.
FÉLAG áhugafólks og aðstand-
enda Alzheimer-sjúklinga og
heilabilaðra á Norðurlandi, FA-
ASAN, er 10 ára á þessu ári. Af
því tilefni afhenti félagið Sambýl-
inu í Bakkahlíð á Akureyri, sem er
sambýli fyrir heilabilaða, raf-
magnsorgel að gjöf. Við það tæki-
færi var haldin smáhátíð í Bakka-
hlíðinni, þar sem söngfólk úr
röðum aðstandenda ásamt undir-
leikara skemmti heimilisfólki og
aðstandendum þeirra, eins og seg-
ir í fréttatilkynningu frá félaginu.
FAASAN var stofnað 4. apríl
1992 en félagið er hluti af lands-
samtökum og hlutverk þess er að
fræða og upplýsa aðstandendur
um sjúkdómin, gæta hagsmuna
sjúklinga með Alzheimer og
skylda sjúkdóma og auka skilning
stjórnvalda, heilbrigðisstétta og
almennings á þeim vandamálum
sem sjúklingar og aðstandendur
eiga við að etja.
FAASAN heldur 4-5 félags-
fundi yfir veturinn þar sem boðið
er uppá fræðslu og veittar al-
mennar upplýsingar, stuðnings-
hópar fyrir aðstandendur eru á
vegum öldrunarlækningadeildar-
innar í Kristnesi. Bæklingur sem
FAASAN gaf út fyrir tveimur ár-
um liggur frammi á Heilsugæslu-
stöðinni, FSA, Kristnesi og fleiri
stöðum um allt Norðurland.
Sambýli heila-
bilaðra fært
rafmagnsorgel
FÉLAGAR í Kiwanisklúbbnum
Emblu á Akureyri gáfu á dögunum
100 þúsund krónur til minningar um
Lilju Sigurjónsdóttur, fyrrverandi
félaga í klúbbnum, en hún lést í apr-
ílmánuði síðastliðnum.
Ákveðið var að styrkja Kven-
félagið Baldursbrá vegna minning-
arsjóðs Júditar Sveinsdóttur. And-
virði sjóðsins fer til kaupa á
steindum gluggum í Glerárkirkju.
Þess má geta að Kiwanisklúbburinn
Embla á Akureyri varð 10 ára 25.
apríl sl.
Kiwanisklúbburinn Embla
Frá afhendingu minningargjafarinnar í Glerárkirkju.
Baldursbrá fær styrk
alltaf á föstudögum