Morgunblaðið - 12.06.2002, Side 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 41
Verð kr. 39.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 26. júní, viku-
ferð. Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.860.
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í íbúð, 26. júní, vikuferð.
Flug og gisting, skattar.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.450.
Verð kr. 49.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 26. júní, 2 vikur.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.360.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til
Benidorm þann 26. júní í eina eða tvær vikur. Sumarið er komið og
yndislegt veður á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga. Þú bókar
núna, og tryggir þér síðustu sætin, og fjórum dögum fyrir brottför
hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu
nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Síðustu sætin
Stökktu til
Benidorm
26. júní
frá 39.865
NÝVERIÐ var gengið formlega frá
samkomulagi milli Fróðskaparset-
urs Færeyja, annars vegar og laga-
deildar Háskóla Íslands hins vegar
um samstarf og aðstoð við uppbygg-
ingu og þróun kennslu í lögfræði við
Fróðskaparsetrið.
Af hálfu Fróðskaparseturs er
áformað að bjóða upp á grunnnám-
skeið í lögfræði, sem samsvari hálfu
ársverki fyrir nemendur og jafn-
framt að taka upp meistaranám í
sérfæreyskri lögfræði. Gert er ráð
fyrir að meistaranámið verði árs-
nám, sem fullt nám, fyrir þá sem lok-
ið hafa kandídatsprófi í lögfræði og
jafnframt fyrir aðra, er lokið hafa há-
skólanámi. Lögfræðikennslan mun
fara fram innan sögu- og samfélags-
deildar Fróðskaparsetursins.
Lögfræði hefur ekki verið kennd í
Færeyjum en allmargir Færeyingar
hafa lokið laganámi í Kaupmanna-
hafnarháskóla. Er hinni nýju náms-
leið ekki ætlað að koma í stað reglu-
legs háskólanáms í lögfræði til
kandídatsprófs.
Lagadeild Háskóla Íslands leggur
fram aðstoð við að skipuleggja
grunnnámskeið og meistaranám í
færeyskri lögfræði og veitir ráðgjöf
um kennslu og prófkröfur eftir nán-
ara samkomulagi. Líklegt er að ein-
hverjir kennarar frá lagadeild muni
taka þátt í kennslu við Fróðskapar-
setrið, eftir að lögfræðináminu hefur
verið komið á. Þá mun lagadeild ein-
ig taka við færeyskum nemendum í
meistaranámi í lögum, er kjósa að
ljúka hluta þess á Íslandi, en sam-
starfið er einnig gagnkvæmt eftir því
sem við getur átt.
„Lagadeild væntir góðs af þessu
samstarfi, en ætla verður að kennsla
í færeyskum lögum og öðrum sviðum
lögfræðinnar, sem Færeyingar
leggja sérstaka áherslu á, verði til
mikils gagns fyrir færeyska menn-
ingu og þjóðlíf á komandi árum,“
segir í fréttatilkynningu frá laga-
deild HÍ.
Samstarf lagadeildar HÍ og
Fróðskaparseturs Færeyja
NÝLEGA var opnuð tísku-
vöruverslunin Feminin Fashion í
Bæjarlind 12 í Kópavogi. Af-
greiðslutími er mánudaga til
fimmtudaga kl. 10–18.30 og föstu-
daga til kl. 19.30. Á laugardögum
er opið frá 10–16.30.
Í versluninni er að finna almenn-
an kvenfatnað í stærðum 36 til 60
frá m.a. Cappuccino, Simply og
Dominique. Hópar og einstaklingar
geta pantað sér kvöld- og/eða
morguntíma utan venjulegs af-
greiðslutíma.
Fastur hundraðshluti af veltu
fyrtækisins rennur til rannsókna á
krabbameinum kvenna hjá Krabba-
meinsfélagi Íslands. Einnig eru
seldir á vægu verði brúnir papp-
írsburðarpokar og rennur allt and-
virði þeirrar sölu óskipt til Krabba-
meinsfélagsins.
Feminindekur er nýjung – þang-
að fara nöfn þeirra sem skrá sig á
netfangalistann hjá feminin@fem-
inin.is.
Úr Feminindekurnöfnunum
verður í fyrsta sinn dregið mánu-
daginn 1. júlí og eftir það alla
mánudaga og miðvikudaga og mun
listinn yfir hina heppnu hanga uppi
í versluninni. Meðal vinninga eru
utanlandsferðir, ljósakort og lík-
amsræktarkort og úttektarmiðar í
versluninni og/eða kaffihúsinu.
Meðal annars er boðið upp á létt-
an morgunverð, kvöldverð og
brauð- og pastarétti.
Samhliða opnun tískuverslunar-
innar hefur verið opnað kaffihúsið
Café Fashion-Gallerí. Þar er meðal
annars í boði léttur hádegisverður
og allar almennar veitingar auk
þess sem staðurinn hefur vínveit-
ingaleyfi. Í kaffihúsinu er listgallerí
þar sem listamenn geta sýnt og selt
list sína.
Myndlistarkonan Kristín Þor-
kelsdóttir sýnir þar vatns-
litamyndir sem hún hefur málað úti
í náttúrunni á síðustu tveimur ár-
um. Hún lætur einnig ákveðinn
hundraðshluta af verkunum sem
seljast á sýningunni renna til
Krabbameinsfélagsins og það gera
sömuleiðis eigendur Iess járngall-
erís, sem smíðaði allar innrétting-
arnar í verslunina og kaffihúsið,
segir í fréttatilkynningu.
Tískuverslun – kaffihús – listgallerí
NOTENDUR GSM síma hjá Ís-
landssíma, Rautt og BT GSM geta
nú sótt sér hreyfimyndir í síma sína.
Hreyfimyndir eru því einskonar
„önnur kynslóð“ skjámynda.
Það er margmiðlunarfyrirtækið
Zoom sem sér um efni og tækni þjón-
ustunnar. Hreyfimyndirnar eru sótt-
ar á þjónustusíður Íslandssíma –
Kjarnann - á www.islandssimi.is.
Þar eru að finna merki íþróttafélaga,
rómantískar myndir, myndir sem
kitla hláturtaugarnar og allt þar á
milli.
Notandinn fær sent til sín bóka-
merki, en myndirnar eru sóttar í
gegnum WAP. Hver sótt mynd kost-
ar 149 kr. og gjaldfærast þær á síma-
reikning, segir í frétt frá Íslands-
síma.
Ný þjónusta hjá
Íslandssíma
SKÓGRÆKTARFERÐ Bandalags
kvenna í Hafnarfirði verður fimmtu-
daginn 13. júní kl. 19. Gróðursett
verður í landi bandalagsins ofan við
Sléttuhlíð. Á eftir verður boðið upp á
kaffi og meðlæti, segir í fréttatil-
kynningu.
Skógræktarferð
Í BOÐI Miðstöðvar heilsuverndar
barna og Héraðslæknisins í Reykja-
vík verður málstofa um heilsu barna
í Evrópu miðvikudaginn 19. júní kl. 9
– 12 að Hlíðarsmára 8 í Kópavogi og
er opin öllu áhugafólki um málefnið.
Gestafyrirlesarar eru Michael Rigby
frá háskólanum í Keele í Bretlandi,
prófessor Lennart Köhler frá Nor-
ræna heilsuháskólanum í Svíþjóð,
Giorgio Tamburlini frá Rannsóknar-
stofnun Burlo Garofolo um heilsu
barna í Trieste á Ítalíu og Aidan
Macfarlane frá Oxford í Bretlandi og
forseti Evrópusamtaka barnalækna
um heilsuvernd barna. Á málstof-
unni verður gerð grein fyrir starfi
Evrópusambandsins og EES til að
ná fram marktækum samanburði á
heilsu barna í aðildarlöndunum auk
Noregs og Íslands, segir í fréttatil-
kynningu.
Þátttaka er ókeypis en þeir sem
vilja taka þátt eru vinsamlegast
beðnir um að skrá þátttöku eða
senda tölvupóst til barnapostur-
@hr.is. Fundurinn verður á ensku.
Málstofa um
heilsu barna
í Evrópu
NÝLEGA var stofnað Félag
frönskumælenda á Íslandi eða
„Association des Francophones en
Islande“.
Tilgangur félagsins er að sameina
frönskumælendur búsetta á Íslandi
og veita upplýsingar til þeirra sem
hingað flytja.
Félagið er opið öllum frá frönsku-
mælandi löndum. Velkomið er að
hafa samband og gerast félagi; „Fé-
lag frönskumælenda á Íslandi“ –
Skipholti 34 – 105 Reykjavík – Net-
fang: francophones_isl@hotmail.-
com.
Félag frönsku-
mælandi stofnað
HLÍFÐU þér – er öryggisbækling-
ur um línuskauta, hjólabretti og
hlaupahjól sem Slysavarnafélagið
Landsbjörg og Umferðarráð gefa út
í tengslum við hjólreiðar. Ekkert
fræðsluefni hefur verið til um línu-
skauta, hlaupahjól og hjólabretti.
Því fór Slysavarnafélagið Landa-
björg út í það að gera bækling um
það efni í samstarfi við slysavarna-
deildirnar í Reykjavík, Hafnarfirði,
á Akranesi og Seltjarnarnesi. Bækl-
ingurinn hefur verið sendur í alla
grunnskóla, til barna í þriðja, fjórða,
fimmta og sjötta bekk og á allar
heilsugæslustöðvar en jafnframt er
hægt að nálgast hann hjá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg, Stangar-
hyl 1 í Reykjavík, segir í fréttatil-
kynningu.
Öryggisbæklingur
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
PÁLL Valsson, rithöfundur og ís-
lenskufræðingur, fjallar um Jónas
Hallgrímsson og Þingvelli í fyrstu
fimmtudagskvöldgöngu sumarsins.
Páll Valsson fékk Íslensku bók-
mentaverðlaunin árið 1999 í flokki
fræðirita fyrir ritið Jónas Hallgríms-
son, ævisaga.
Í gönguferðinni mun Páll meðal
annars ræða um náttúrusýn Jónasar
og hugmyndir hans og Fjölnismanna
um endurreisn Alþingis. Gangan
hefst við útsýnisskífuna á Hakinu
klukkan 20 og lýkur við leiði Jónasar
fyrir aftan Þingvallakirkju, segir í
fréttatilkynningu.
Kvöldganga
á Þingvöllum