Morgunblaðið - 12.06.2002, Blaðsíða 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss.
Fi 13. júní kl 20
ATH: Síðustu sýningar í vor
COSI FAN TUTTE - W.A. Mozart
Óperustúdíó Austurlands
Stjórnandi Keith Reed
Lau 15. júní kl 20 - Frumsýning í Rvík
Su 16. júní kl 17 - Síðasta sýning
JÓN GNARR
Fi 13. júní kl 20 - SÍÐASTA SINN
Ath. Afsláttur sé greitt með MasterCard
Stóra svið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
3. hæðin
Í HLAÐVARPANUM
Söngvaskáldið gengur
laust
Valgeir Skagfjörð leikur og syngur
fimmtudaginn 13. júní kl. 21.00
" #
$
%
&
%
%
'
%
ÞAR KOM þá að því að einhverjum
tækist að ryðja Klónunum úr topp-
sæti listans yfir tekjuhæstu myndir
kvikmyndahúsanna. Eftir að hafa
vermt efsta sæti listans síðustu þrjár
vikurnar var komið að þeim að víkja
fyrir tveimur nýjum myndum af
þeim fimm sem frumsýndar voru í
vikunni.
Í kvikmyndinni Panic Room sést
leikkonan Jodie Foster í fyrsta sinn
á hvíta tjaldinu síðan árið 1999 er
hún lék í Anna and the King. Foster
fer hér með hlutverk einstæðrar
móður sem flytur með dóttur sinni í
hús með vafasama fortíð sem fljótt
fer að ásækja mæðgurnar. Þegar
þrír þjófar brjótast inn í húsið að
næturlagi fela þær sig í „neyðarher-
berginu“, sem er eins konar leyni-
herbergi í húsinu, hannað í þeim til-
gangi að dyljast.
Leikstjóri myndarinnar er ekki
ómerkari maður en David Fincher
sem áður hefur gert garðinn frægan
með spennumyndunum Seven, The
Game og Fight Club.
Að sögn Jóns Gunnars Geirdal,
markaðsstjóra Skífunnar, sáu um
3.500 manns Panic Room síðastliðna
helgi. Þó að það teljist vissulega
ágæt aðsókn er greinilegt á öllu að
Íslendingar hafa heldur viljað njóta
veðurblíðunnar síðustu daga en að
hreiðra um sig í myrkum bíósalnum.
Það er hjartaknúsarinn Josh
Hartnett sem leikur aðalhlutverkið í
kynlífskómedíunni 40 dagar og 40
nætur sem gekk næstbest allra
mynda sem sýndar voru í kvik-
myndahúsum um helgina.
Vistarveran voðalega
"#
$ %&'
"
(
"
(
)
*
+
!,(-%! )
!" # $
%&' "(!
"
)!*"
! !++
#
! ,! -% .+ -!,,-
/
-! "!
1!2
%
%
.
/
0
%
%
1
2
%
3
4
5
./
..
.
.
0
.1
)6
/
1
0
/
4
2
1
.
..
.2
/
789:'789:;:#896 '789:89<
-66
789:;:=
89:#896!:>-?!:
!:=-
)86
789:;:#896!:$ ?:
-?@
89<
-66:6:=-
)86:A769
89
789:;:#896 A769
89
A769
89:#89@
A769
89
89<
-66:=
:6 89=
:6 89
89<
-66:=
:6:=-
)86
'789
89<
-66:=
:
:AB)86
89<
-66:=
:6:
7696
789:#896 89<
-66:=
89 :
-?@
A769
89
Jodie Foster er við öllu búin á heimili sínu í Panic Room.
FILMUNDUR er kominn í sjóðandi
sumarskap og verður á léttu nót-
unum á næstunni. Nú mun hann
sýna hina ágætu Way-
ne’s World frá 1992 sem
margir minnast eflaust
með með bros á vör.
Eins og kunnugt er
byggist Wayne’s World á
atriðum úr Saturday
Night Live-þáttunum sem njóta
mikilla vinsælda í Bandaríkjunum.
Wayne’s World skaut leikaranum
Mike Myers rækilega upp á stjörnu-
himininn, en hann er sjálfsagt ekki
síst þekktur þessa dagana fyrir
túlkun sína á Austin Powers.
Wayne’s World fjallar um vinina
Wayne Campbell og Garth Algar
sem senda út sjónvarpsþátt frá
heimili Waynes, en hann býr í kjall-
aranum hjá foreldrum sínum. Þeir
taka viðtöl við undarlegt fólk og
fjalla um áhugamál sín, en ofur-
myndarlegt kvenfólk er þar of-
arlega á blaði. Viðskiptajöfur nokk-
ur rekst á þáttinn þeirra af tilviljun
og sér að hann muni geta notfært
sér hugmyndina að honum í gróða-
skyni. Hann reynir að blekkja þá
Wayne og Garth til þess að taka
þátt í áætlunum sínum, með því að
lofa þeim gulli og grænum skógum.
Þeir eru tregir til, en láta blekkjast
um tíma, enda er draumurinn um
frægð og frama ávallt freistandi.
Um tíma lítur út fyrir að mál muni
enda með ósköpum hjá þeim fé-
lögum, en allt fer að
sjálfsögðu vel að lokum.
En söguþráður Way-
ne’s World eru auðvitað
ekki aðalatriðið, heldur
húmorinn og framsetn-
ingin á honum. Um svip-
að leyti og Wayne og Garth voru
málið komu upp fleiri myndir með
álíka áherslur sem urðu vinsælar,
til dæmis myndirnar um Bill og
Ted, sem eru álíka lúðar.
Ákveðnir síendurteknir
frasar og hegðun eru horn-
steinar þessara mynda,
ekki ólíkt því sem gerist í
myndunum um spæjarann
Austin Powers, og þegar
vegur þeirra var sem
mestur voru frasarnir á
hvers manns vörum. Það er því
ekki að ástæðulausu að mynd-
irnar um Wayne eru meðal vin-
sælli gamanmynda síðasta ára-
tugar og ekki spillir fyrir að
húmorinn hefur elst glettilega vel
og gæti allt eins verið í hávegum í
spánýrri sumarmynd.
Filmundur verður í hæga gírn-
um á næstunni og mun því sýna
Wayne’s World í tvær vikur. Hún
verður sýnd í kvöld kl. 20:00, á
morgun kl. 22:30, sunnudaginn 16.
júní kl. 18:00, mánudaginn 17. júní
kl. 22:30, miðvikudaginn 19. júní kl.
20:00, fimmtudaginn 20 júní kl.
22:30, sunnudaginn 23. júní kl.
18:00 og mánudaginn 24 júní kl.
22:30.
Filmundur í sumarskapi og sýnir Wayne’s World
Hádramatískur harmleikur
... ekki!
S
U
N
D
F
Ö
T
undirfataverslun
Síðumúla 3-5
Lyklakippur
Litir: Gyllt, silfrað
aðeins 350 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
Wayne og Garth í stuði: Þú
hlærð, þú grætur, þú gubbar.