Morgunblaðið - 22.06.2002, Page 1
144. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 22. JÚNÍ 2002
LÖGREGLUMENN skoða verks-
ummerki eftir sprengjutilræði
fyrir utan hótel í ferðamannabæn-
um Fuengirola á Costa del Sol í
gærmorgun. Sex manns særðust í
sprengingunni, þeirra á meðal 33
ára breskur ferðamaður sem
þurfti að fara í skurðaðgerð
vegna alvarlegra áverka á lung-
um, kviðarholi og mjaðmagrind.
Hinir voru ekki í lífshættu.
Sex klukkustundum síðar
sprakk önnur sprengja í bíl við
hótel í Marbella á Costa del Sol.
Enginn særðist en sex byggingar
og sextán bílar skemmdust. Talið
er að aðskilnaðarhreyfing Baska,
ETA, hafi staðið fyrir tilræð-
unum.
Seinni sprengjan sprakk tæpum
tveimur klukkustundum eftir að
leiðtogafundur Evrópusambands-
ins hófst í spænsku borginni
Sevilla. Nær 10.000 lögreglumenn
voru á götum borgarinnar vegna
hættu á fleiri hryðjuverkum.
Í gærkvöld sprakk síðan þriðja
sprengjan á bílastæði verslunar-
miðstöðvar í borginni Zaragoza.
Einn maður særðist lítillega.
Reuters
Þrjár sprengjuárásir á Spáni
Reynt að leysa deilu/26
MYNDBANDSSPÓLAN á nú
undir högg að sækja vestur í
Bandaríkjunum og má ætla að
þróunin verði á sömu leið annars
staðar. Hefur raftækjaverslun-
arkeðjan Circuit City, sem er sú
næststærsta á sínu sviði í
Bandaríkjunum, tilkynnt að hún
hyggist hætta sölu myndbanda
en ákvörðunin er sögð ótvíræð
sönnun þess, að óhjákvæmilegt
sé að DVD-tækni taki við hlut-
verki myndbandstækjanna.
Myndbandstæki, sem komu á
markaðinn fyrir rúmum tuttugu
árum, eru nú til á flestum heim-
ilum. Stafræn tækni, þ.e. DVD-
tæki og DVD-diskar, hefur hins
vegar verið að ryðja sér til rúms
enda þykir hún tryggja bæði
betri hljóð- og myndgæði. Þá
hafa DVD-diskar gjarnan að
geyma aukakonfektmola, s.s.
viðtöl við aðstandendur kvik-
myndarinnar sem horfa skal á.
Segja forsvarsmenn Block-
buster-myndbandaleigunnar að
útleiga á DVD-diskum hafi
numið 18,5% allra viðskipta í
fyrra og spá því að hlutfallið fari
í 40% í ár.
Þá seldust 16,7 milljón mynd-
bandstæki í Bandaríkjunum ár-
ið 1997, árið sem DVD-tæki
komu á markaðinn, en ekki er
áætlað að seljist nema 13,3 millj-
ónir tækja í ár. Á sama tíma hef-
ur sala á DVD-tækjum tekið
kipp; 349 þúsund tæki voru seld
árið 1997 en áætlað er að 15,5
milljónir tækja verði seldar í ár.
Spólan
búin
Washington. The Washington Post.
ÍSRAELSHER skaut í gær að
fólki í bænum Jenín á Vesturbakk-
anum og biðu fjórir Palestínumenn
bana, þar af þrjú börn. Sögðu tals-
menn hersins að um mistök hefði
verið að ræða og hefur verið til-
kynnt að fram muni fara rannsókn
á atburðinum. Alls féllu tíu Palest-
ínumenn í gær er Ísraelar héldu
áfram aðgerðum sínum á Vestur-
bakkanum en yfirlýst markmið
þeirra er að ráða niðurlögum pal-
estínskra hryðjuverkamanna.
Haft var eftir Binyamin Ben El-
iezer, varnarmálaráðherra Ísraels,
að ástæða þess að fjöldi Palest-
ínumanna hefði reynst reiðubúinn
til að fórna lífi sínu í sjálfsmorð-
árásum eins og þeim, sem kostuðu
20 Ísraela lífið á þriðjudag og átta
á miðvikudag, væri sú að aðstæður
palestínsku þjóðarinnar væru
slæmar.
„Vissulega hafa Palestínumenn
það slæmt. Vissulega ríkir mikil
gremja í þeirra röðum. Vissulega
þjást þeir af vonleysi,“ sagði Ben
Eliezer í samtali við dagblaðið
Haaretz en ráðherrar ísraelsku
stjórnarinnar hafa ekki áður viljað
viðurkenna, að árásir Palestínu-
manna ættu rætur að rekja til að-
stæðna á heimastjórnarsvæðunum.
Ben Eliezer sagði hins vegar
einnig að illvirkjar úr röðum Pal-
estínumanna misnotuðu sér þessar
tilfinningar er þeir fengju unga
menn og konur til liðs við sig.
Arafat nú tilbúinn til að sam-
þykkja Clinton-tillögurnar
Haaretz birti einnig viðtal við
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna, og sagði hann þar að „nú
væri nóg komið“, hefja yrði frið-
arviðræður. Sagðist hann nú vel
geta sætt sig við ákvæði tillagna að
friðarsamkomulagi sem Bill Clint-
on Bandaríkjaforseti hafði milli-
göngu um í Camp David síðla árs
2000. Arafat hafnaði samnings-
drögunum á sínum tíma og hófst
núverandi alda ofbeldis í Mið-Aust-
urlöndum um það leyti sem slitnaði
upp úr samningaviðræðunum í
Camp David í Bandaríkjunum.
Fjórir Palest-
ínumenn felld-
ir fyrir mistök
Jerúsalem. AFP.
Dauða seli
rekur á land
Stokkhólmi. AP.
VÍSINDAMENN sögðust í gær
leggja allt kapp á að leita skýringa á
því hvers vegna banvænn veirusjúk-
dómur, sem fyrir fjórtán árum ógn-
aði selastofninum í Norður-Evrópu,
hefði nú gert vart við sig á nýjan leik.
Vírusinn er ekki hættulegur
mönnum en staðfest er að 461 dauð-
an sel hafi rekið á land í Danmörku
og 150 í Svíþjóð undanfarnar vikur.
Þá hefur a.m.k. eitt selshræ fundist
við strendur Hollands. Óttast menn
að enn fleiri séu í hættu en átján þús-
und selir drápust þegar veirusjúk-
dómurinn gerði vart við sig 1988.
Vírusinn, sem smitast við snert-
ingu, veldur sjóntruflunum, nef-
rennsli og lungnabólgu og leiðir sel-
ina síðan til dauða. Er talið að árið
1988 hafi hann borist til Danmerkur
með grænlenskum selum, sem
ónæmir voru fyrir honum. Þaðan
barst hann til nærliggjandi landa.
Um fimmtán þúsund selir lifa í
Kattegat, sundinu sem aðskilur Dan-
mörk og Svíþjóð, en útilokað er talið
að hægt yrði að bólusetja þá alla fyr-
ir vírusnum. Fimm þúsund selir til
viðbótar lifa við strendur Hollands.
Rússneskt
herskip til
Svalbarða
Ósló. AFP.
RÚSSNESKT herskip er nú á
leið til Svalbarða, að því er virð-
ist í því skyni að veita rússneska
fiskveiðiflotanum vernd. Þetta
kom fram í máli talsmanns
norska varnarmálaráðuneytis-
ins, Johns Espen Lien, í gær.
Á fréttasíðu Aftenposten er
vitnað til rússnesku fréttastof-
unnar Interfax um að Jevgení
Nazdratenko sjávarútvegsráð-
herra hafi skipað rússneska flot-
anum í Múrmansk að senda af
stað herskip til fiskimiðanna við
Svalbarða. Segir Aftenposten
hugsanlegt að Nazdratenko,
sem er mikill þjóðernissinni,
hafi gefið fyrirskipunina án
samráðs við rússneska utanrík-
isráðuneytið en Nazdratenko
hótaði Norðmönnum hernaðar-
aðgerðum í fyrra eftir að norska
strandgæslan stöðvaði rúss-
neska togarann Tsjernigov.
Victor Rønneberg, fulltrúi
norskra stjórnvalda, dregur
hins vegar í land í Aftenposten
og segir ekki óvanalegt að rúss-
nesk herskip séu á þessum slóð-
um. Þá kvaðst talsmanni rúss-
neska sjávarútvegsráðuneytis-
ins ekki vera kunnugt um að
herskip væri á leið til Svalbarða.
STUÐNINGSMAÐUR enska knatt-
spyrnulandsliðsins harmar nið-
urstöðu leiks Englendinga og Bras-
ilíumanna á Trafalgar-torgi í
London í gærmorgun. Brasilía vann
England 2-1 í 8-liða úrslitum heims-
meistaramótsins í knattspyrnu, sem
haldið er í Suður-Kóreu og Japan,
og eru Englendingar þar með úr
leik. Þúsundir manna fylgdust með
leiknum á risavöxnum sjónvarps-
skjá sem komið hafði verið fyrir á
Trafalgar-torgi.
Þá vann Þýskaland Bandaríkin
1-0 og því eru bæði Þjóðverjar og
Brasilíumenn búnir að tryggja sér
sæti í undanúrslitum.
Reuters
Úti er
ævintýri
Sjá umfjöllun í B-blaði