Morgunblaðið - 22.06.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Málstofa um fríverslunarsamninga
Þróun fríversl-
unar til umræðu
VERSLUNARRÁÐÍslands heldurmálstofu um frí-
verslunarsamninga í Húsi
verslunarinnar á mánu-
daginn, 24. júní, klukkan
15:30. Þar verður meðal
annars rætt um gildi frí-
verslunarsamninga fyrir
Ísland og lönd EFTA.
Málstofan er öllum opin.
Fríverslunarsamningar
gegna mikilvægu hlut-
verki í viðskiptalífinu
vegna ríkrar áherslu á út-
flutning íslenskra afurða.
Einnig hafa íslenskir
fjárfestar fært út kvíarn-
ar undanfarin ár og litið
utan til fjárfestinga.
Morgunblaðið ræddi við
Kjartan Jóhannsson,
sendiherra hjá viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins, um fríverslun og gildi samn-
inga af þessu tagi.
Hvert er tilefni málstofunnar?
„Nýlega var gerður fríversl-
unarsamningur við Singapúr, og
af því tilefni er stödd hér á landi
sendinefnd frá Singapúr. Bee
Kim, skrifstofustjóri viðskipta-
og iðnaðarráðuneytisins í Singa-
púr, mun kynna okkur sjónar-
mið þeirra í viðskiptum og frí-
verslun. Sú innsýn sem þeir geta
veitt okkur er eflaust mjög
gagnleg. Einnig er ráðherra-
fundur EFTA hér á landi í
næstu viku, og þess vegna eru
margir málsmetandi menn á
þessu sviði væntanlegir hingað
til lands. Nýi samningurinn
verður meðal annars ræddur á
málstofunni, en hann er sérstak-
ur að því leyti að EFTA varð að
þessu sinni á undan Evrópusam-
bandinu að gera fríverslunar-
samning, en oftast hefur það
verið á hinn veginn.“
Hverjir munu flytja erindi á
málstofunni?
„Á málstofunni munu koma
fram, auk Bee Kim, lykilmenn í
fríverslunarmálum, til dæmis
framkvæmdastjóri EFTA, Will-
iam Rossier, og skrifstofustjóri
samskipta við lönd utan Evrópu
hjá EFTA, Philip Metzger.
Einnig munu aðalsamningamað-
ur Norðmanna, Ole Lundby, og
Marino Baldi frá Sviss flytja er-
indi. Málstofan er í umsjá Versl-
unarráðs Íslands, sem sér alfar-
ið um framkvæmd hennar.“
Þess má geta að Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri
Verslunarráðs, mun opna mál-
stofuna, og Grétar Már Sigurðs-
son, skrifstofustjóri viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins, mun stýra umræðum í lokin.
Samskipti við Singapúr eru
mjög mikilvæg, ekki satt?
„Jú, Singapúr er mikil við-
skiptamiðstöð og lykilhöfn fyrir
Asíu. Með fríverslunarsamning-
um styrkjast tengsl Íslands við
Singapúr viðskiptalega, og von-
andi á fleiri sviðum einnig. Frí-
verslunarsamningar hafa þróast
á umliðnum árum, frá því að
vera eingöngu um
vörur, í að vera einnig
um þjónustu, fjárfest-
ingar og fleira. Þannig
hafa fríverslunar-
samningar líkst EES-
samningnum meira og meira.
Marino Baldi, aðalsamninga-
maður Sviss, mun flytja erindi á
málstofunni um þessi nýju svið
fríverslunarsamninga, og eflaust
koma inn á þróun þeirra.“
Hvert er gildi fríverslunar-
samninga fyrir Ísland?
„Gildi þeirra er ótvírætt. Sér-
stakt einkenni þessara samninga
frá íslenskum sjónarhóli er frí-
verslun með fisk. Með þeim
hætti er hag Íslendinga borgið
hvað varðar samningsstöðu við
lönd utan Evrópusambandsins,
en viðskipti við Evrópusamband-
ið voru afgreidd með EES-
samningnum og þeim tollalækk-
unum sem hann veitti. Íslend-
ingar hafa gert fjölmarga
fríverslunarsamninga og er mál-
stofan einnig haldin til að minna
á og vekja athygli á gildi þeirra.“
Hverjum gagnast málstofan
helst?
„Hún er tvímælalaust gagnleg
öllum útflytjendum, óháð því
hvað er flutt út, og reyndar líka
innflytjendum. Einnig er mál-
stofan áhugaverð fyrir fjárfesta
sem leita fjárfestinga erlendis.“
Viðskiptaskrifstofa utanríkis-
ráðuneytisins sinnir fríverslun-
arsamningum, ekki satt?
„Jú, viðskiptaskrifstofan held-
ur utan um þá viðskiptasamn-
inga sem gerðir hafa verið við
erlend ríki, og hefur á hendi
sinni hlut Íslands í þeim samn-
ingaviðræðum sem í gangi eru.
Þar má nefna Chile, Kanada,
Túnis og Egyptaland, svo ein-
hver lönd séu nefnd. Sérstaklega
reynum við að gæta þess, að ef
ESB hefur þegar náð
fríverslun fyrir sín ríki
við ákveðið land, þá
sitji Íslendingar við
sama borð. Einnig
rekur viðskiptaskrif-
stofan Viðskiptaþjónustu utan-
ríkisráðuneytisins, en þar er fyr-
irtækjum boðin aðstoð sautján
sendiskrifstofa ráðuneytisins til
bættrar samkeppnisstöðu og
aukins árangurs á alþjóðlegum
markaði.“
Nánari upplýsingar um dag-
skrá málstofunnar má finna á
vef Verslunarráðs Íslands,
www.chamber.is.
Kjartan Jóhannsson
Kjartan Jóhannsson sendi-
herra er fæddur í Reykjavík 19.
desember 1939. Hann lauk MS-
prófi í rekstrarverkfræði frá
Illinois Institute of Technology
í Bandaríkjunum 1965 og dokt-
orsprófi í aðgerðarrannsóknum
frá sama skóla 1969. Hann var
þingmaður Alþýðuflokks frá
1978–1989, formaður flokksins
um tíma, forseti neðri deildar
Alþingis og sat í ráðherraemb-
ættum. Einnig var hann dósent
við Háskóla Íslands, viðskipta-
og hagfræðideild. Kjartan var
sendiherra Íslands gagnvart SÞ
og fleiri stofnunum frá 1989–
94, framkvæmdastjóri EFTA
frá 1994–2000 og hefur gegnt
stöðu sendiherra hjá utanrík-
isráðuneyti frá árinu 2001.
Kjartan er kvæntur Irmu Karls-
dóttur og eiga þau eina dóttur.
Fríverslun er
mikilvæg fyrir
Ísland
Hvað segirðu um jeppa og síma í 2 ár, plús 15 millur og svo loforð um gott starf
fyrir að segja sjálfur upp, Theodór minn?
Upplýsingasími 5800500
Blómaverslun á netinu www.blomaval.is
Útskrift
á Jónsmessu
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð
verður í Blómavali við Sigtún
í dag kl. 13.
10 rósir: 799 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
BL
O
18
13
9
06
/2
00
2