Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STURLA Einarsson, skipstjóri
Guðrúnar Gísladóttur KE-15 sem
sökk við N-Noreg snemma á mið-
vikudag, hafði samband við hafn-
sögumann áður en hann sigldi inn
til Lofoten en var ekki varaður við
skerjunum sem skipið strandaði á.
Í sjóprófum í Lofoten í gær lagði
hann fram sjókort eins og það sem
hann notaði og sýndi fram á að
skerin voru ekki merkt inn á kort-
ið.
Meðdómari í málinu sem er
reyndur sjómaður sagði Sturlu
trúverðugan og að það væri
hneyksli að ekki væru til betri sjó-
kort af svæðinu. Þá vísaði Sturla
orðum skipstjóra dráttarbátsins
Nordbever að mögulegt hefði verið
að bjarga skipinu á bug. Hann
sagði dráttarbátinn hafa verið allt
of lítinn til að geta dregið svo stórt
skip.
Blaðamaður Avisa Nordland
sem var viðstaddur sjóprófin segir
að Sturla hafi komið fram sem al-
vanur og varkár sjómaður. „Ég
hafði samband við hafnsögumann í
Lødingen áður en við sigldum inn
til Lofoten, en vorum ekki varaðir
við þessum skerjum sem ekki voru
merkt inn á kort,“ hefur Avisa
Nordland eftir Sturlu við sjópróf-
in. Fram kom í máli hans að skipið
hefði verið á 6 hnúta hraða þegar
það sigldi á skerið, áreksturinn
hafi verið kröftugur en Guðrún
Gísladóttir er 4000 tonn.
Sjókortin byggð á
mælingum frá 19. öld
„Ég hafði skoðað sjókortin í
marga daga áður en við sigldum
inn Nappstraumen. Ég vildi ekki
að togarinn færi um siglingaleið
með minna en 14 metra dýpi,“
sagði Sturla en með fulla lest risti
skipið 8 m. Meðdómari í sjópróf-
unum, Harald E. Hansen, sem er
þaulreyndur sjómaður og fyrrum
bæjarstjóri í Vågan, sagði í sam-
tali við blaðamann Avisa Nordland
að hann teldi Sturlu trúverðugan.
„Það er hneyksli að við höfum
ekki betri sjókort af ströndum
okkar.
Við seljum ný kort sem eru
byggð á mælingum með lóðum frá
19. öld sem er hreint ekki nógu
gott. Hefði ég verið ókunnur tog-
araskipstjóri að fara um þetta
svæði, með kortið sem Íslending-
arnir notuðu, hefði ég ekki hikað
við að fara þessa siglingaleið,“ seg-
ir Hansen og vísar til þess að ann-
ars staðar séu til þrívíð tölvugerð
kort þar sem hver metri af norska
landgrunninum er nákvæmlega
kortlagður.
Dráttarbáturinn allt of lítill
Sturla mótmælti harðlega gagn-
rýni skipstjóra dráttarbátsins
Nordbever sem hefur haldið því
fram að mögulegt hefði verið að
koma í veg fyrir að skipið sykki.
„Mér brá mikið þegar ég sá
hversu lítill dráttarbáturinn var,
aðeins með 2000 hestöfl. Hann
hefði ekki getað dregið togara af
þessari stærð af skerinu. Drátt-
arbáturinn reyndi í klukkustund
en náði skipinu ekki af skerinu,“
sagði Sturla. Hann gagnrýndi
einnig skipstjóra dráttarbátsins
fyrir að taka frumkvæði í björg-
unaraðgerðunum.
„Áhöfnin á dráttarbátnum gerði
ekkert af því sem við báðum hana
um,“ sagði hann.
Skipstjórinn ekki viss um
hver hefði stjórnað aðgerðum
Sturla sagði jafnframt að ljós-
mynd sem birt var í Morgun-
blaðinu í gær og sýndi að báturinn
hafði rétt sig við klukkan 22 kvöld-
ið áður en skipið sakk gæfi ekki
rétta mynd af aðstæðum.
„Togarinn rétti sig af og á
myndinni gæti manni sýnst að
hann flyti en hann stóð fastur á
skeri.“
Þá sagði Sturla að það hefði ver-
ið rétt ákvörðun að reyna að tæma
lest skipsins, sem var full af sjó.
„Við reyndum þetta en dælurnar
voru ekki nógu öflugar. Þegar við
fengum stærri dælur höfðum við
ekki lengur aðgang að rafmagni.
Það er margt sem getur skýrt
hvers vega togarinn sökk. Skipið
var fullt af vatni og var með mikla
slagsíðu. Þegar flæddi að í annað
sinn var of seint að bjarga togar-
anum,“ sagði Sturla.
Þegar skipstjórinn var spurður
um hver hefði stjórnað björgunar-
aðgerðum á staðnum sagðist
Sturla ekki vera viss um það.
Sjóprófin hófust í dómshúsinu í
Svolvær í Lofoten í gærmorgun og
lauk þeim um eftirmiðdaginn í
gær. Sjópróf eru eitt af þeim tækj-
um sem stjórnvöld hafa til að leita
skýringa á sjóslysum sem verða og
fá fram staðreyndir um það sem
gerðist.
Trond Eilertsen, lögmaður hjá
Wikborg, Rein og Co, sem fara
með mál útgerðarinnar, segir að
norsk yfirvöld muni síðan hafa sjó-
prófin til hliðsjónar t.d. verði gerð-
ar kröfur um bætur.
Meðdómari í sjóprófum Guðrúnar Gísladóttur KE-15 segir íslenska skipstjórann trúverðugan
Hafði grandskoðað
sjókortin en skerin
voru ekki merkt
Ljósmynd/Avisa Nordland, Lars Antonsen
Sturla Einarsson (t.h.), skipstjóri Guðrúnar Gísladóttur KE-15, ræðir
við Ásbjörn Helga Árnason, framkvæmdastjóra Festi hf., og Henrik
Hagberg, lögmann útgerðarinnar, áður en sjóprófin hófust í gær.
SJÚKRAHÚS sem hafa á að skipa
mörgum vel menntuðum og hæfum
hjúkrunarfræðingum eru öruggari
fyrir sjúklingana og meiri gæði
eru þar á hjúkrunarþjónustunni en
þar sem fáir menntaðir hjúkrunar-
fræðingar starfa.
Þetta eru niðurstöður stórrar
rannsóknar sem Harvard-háskól-
inn í Bandaríkjunum stóð fyrir. Í
rannsókninni voru sjúkraskrár 6,2
milljóna sjúklinga af 799 banda-
rískum sjúkrahúsum skoðaðar.
Niðurstöður rannsóknarinnar
voru nýlega birtar í New England
Journal of Medicine.
„Þessi mikilvæga rannsókn stað-
festir það sem hjúkrunarfræðing-
ar, sjúkrahús og sjúklingar hafa
lengi vitað, að því fleiri vel mennt-
aðir og hæfir hjúkrunarfræðingar
sem starfa við spítalann, því betri
og öruggari verður þjónustan fyrir
sjúklingana,“ segir Judith Oulton,
framkvæmdastjóri Alþjóðlega
hjúkrunarfræðingaráðsins, en það
eru regnhlífasamtök hjúkrunar-
fræðingafélaga í 124 löndum.
„Þessar niðurstöður eru mjög
gagnlegar fyrir sjúkrahús út um
allan heim og ættu að stuðla að
viðeigandi stefnu varðandi það að
fá fólk til starfa við hjúkrun og að-
hlynningu.
Þetta gildir einnig um stefnu-
mörkun varðandi það hversu hátt
hlutfall hjúkrunarfræðinga skuli
vera við aðhlynningu á sjúkrahús-
um,“ segir Oulton.
Minna um fylgikvilla
meðal sjúklinga
Dr. Jack Needleman, hagfræð-
ingurinn sem stýrði rannsókninni,
segir hjúkrunarfræðinga vera
„eyru og augu“ sjúkrahúsa. „Oft
og tíðum fá þeir vísbendingar um
að eitthvað sé að fara úrskeiðis áð-
ur en vandamálið magnast upp.“
Hann bendir á að ekki sé hægt að
koma auga á vandamál ef hjúkr-
unarfræðingar hafa ekki tíma til
að fylgjast með sjúklingum. „Ég
áætla að rekja megi hundruð eða
jafnvel þúsundir andláta árlega til
undirmönnunar á sjúkrahúsum.“
Rannsóknin sýndi að á sjúkra-
húsum þar sem hátt hlutfall var af
menntuðum hjúkrunarfræðingum
við störf væri sjúkrahúsvist sjúk-
linganna allt að 5% styttri en ann-
ars staðar. Sömuleiðis voru fylgi-
kvillar allt að 9% sjaldgæfari
meðal sjúklinga á þessum sjúkra-
húsum. Þá sýndi rannsóknin að
þar sem menntaðir hjúkrunar-
fræðingar gáfu sér meiri tíma til
umönnunar hvers sjúklings var
minna um þvagfærasýkingar,
blæðingar í meltingarvegi, lungna-
bólgu og hjartaáföll meðal sjúk-
linganna.
Ný rannsókn Harvard-háskóla á gildi góðrar hjúkrunar
Rekja má fjölda dauðs-
falla til undirmönnunar
BREYTING á fyrirkomulagi
staðlaðra prófa hérlendis, sem
nauðsynleg eru til inngöngu í há-
skólum í Bandaríkunum og öðr-
um enskumælandi löndum, mun
hafa í för með sér aukinn kostn-
að fyrir próftakendur. Þetta er
mat Láru Jónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Fulbright-stofn-
unarinnar, en prófamiðstöð
stofnunarinnar verður lokað í
haust samkvæmt ákvörðun er-
lendra rekstraraðila prófanna.
Um er að ræða próf á borð við
TOEFL, GRE og GMAT. Eins
og Morgunblaðið greindi frá í
gær hafa námsmenn sem hyggja
á nám erlendis getað tekið þessi
próf nánast hvenær sem er árs-
ins á þeim fimm árum sem próf-
amiðstöðin hefur verið rekin. Í
stað prófamiðstöðvarinnar hyggj-
ast rekstraraðilar prófanna koma
aftur á fót skriflegum gerðum
prófanna sem verða þá í boði
mun sjaldnar, TOEFL-prófin
fimm sinnum á ári og GRE og
GMAT-prófin tvisvar.
Lára bendir á að þetta geti
haft mikinn kostnað í för með sér
fyrir þá námsmenn sem ná ekki
prófunum í fyrstu tilraun. „Ef
fólk er að fara í nám og nær ekki
akkúrat einu af þessum fimm
TOEFL-prófum eða GRE eða
GMAT-prófunum, sem verða
bara tvisvar á ári, þá verður það
að fara til útlanda til að taka
prófin upp.“
Læknar sem hyggjast á fram-
haldsnám í Bandaríkjunum þurfa
einnig að taka á sig slíkan ferða-
kostnað þar sem próf sem þeir
þurfa að gangast undir verða
ekki lengur í boði hérlendis eftir
að prófamiðstöðin verður lögð
niður þann 1. september næst-
komandi.
Prófamiðstöð Fulbright-stofn-
unarinnar verður lokað í haust
Aukinn kostnaður
fyrir námsmenn
ÁSBJÖRN Helgi Árnason, fram-
kvæmdastjóri útgerðarfélagsins
Festar hf., segir sjóprófin sem fram
fóru í Svolvær á Lofoten í gær hafa
staðfest að skipstjórinn hafi staðið
sig með einstakri prýði. „Ég er
mjög stoltur af okkar fólki eftir
þessi sjópróf, þar kom fram að
mennirnir gerðu allt sem í þeirra
valdi stóð,“ segir Ásbjörn Helgi í
samtali við Morgunblaðið skömmu
eftir að sjóprófunum lauk í gær.
Hann segir að fram hafi komið að
gagnrýni skipstjóra dráttarbátsins
Nordbever hafi ekki verið á rökum
reist. Hann hefur látið hafa eftir
sér í fjölmiðlum að hægt hefði verið
að koma í veg fyrir að togarinn
sykki. Seinagangi íslenska skip-
stjórans hefði verið um að kenna að
togarinn sökk. „Þetta var augljós-
lega óábyrgt tal og yfirlýsingarnar
sem hann gaf voru ótímabærar,“
segir Ásbjörn Helgi. Hann segir að
þeim, sem báru vitni, hafi borið
saman um að íslenski skipstjórinn,
Sturla Einarsson, hafi tekið réttar
ákvarðanir.
Bar saman um að
skipstjórinn tók
réttar ákvarðanir
FRYSTISKIPIÐ Guðrún Gísla-
dóttir KE-15 við það að sökkva,
eftir að hafa strandað á skeri í
sundinu Nappstraumen við Lófót-
eyjar í Norður-Noregi á þriðju-
dag. Skipið var á leið til löndunar
í bænum Leksnes þegar atburð-
urinn átti sér stað. Áhöfnin sá sér
ekki annað fært en að yfirgefa
skipið og komust skipverjar, alls
20 manns, í björgunarbáta. Ljósmynd/Willy Hauge, Fiskaren
Guðrún
Gísladóttir
við það að
sökkva