Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 12
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SLYS eiga ekki að gerast og við get-
um komið í veg fyrir svo gott sem öll
slys. Með því að auka menntun, bæta
forvarnir og nota umbun má draga
umtalsvert úr slysum. Þetta er álit
kanadíska læknaprófessorsins Louis
Hugo Francescutti sem fjallaði um
slysavarnir á alþjóðlegu þingi um
bráðalækningar sem staðið hefur í
Reykjavík. Þar setti hann fram þá
skoðun sína að slys væru bæði fyr-
irsjáanleg og unnt væri að koma í
veg þau.
„Slys eru líka að mínu viti sjúk-
dómur og með því að flokka þau sem
sjúkdóm verður litið öðruvísi á þau.
Viðhorf lækna og hjúkrunarfólks
hvað þetta varðar þarf líka að breyt-
ast. Slys eru nefnilega ekki sjálf-
sagður hlutur og við eigum ekki að
líta á þau sem eitthvað sem bara ger-
ist ,“ segir prófessorinn í samtali við
Morgunblaðið. „Enginn sjúkdómur
kemur eins snögglega yfir menn og
slys. Þegar menn fá hjartasjúkdóm
eða sykursýki er það af því að eitt-
hvað hefur gerst í líkamsstarfsem-
inni og sjúkdómurinn búið um sig
kannski í langan tíma. Við slys ríður
höggið af í einu vetfangi hvort sem
meiðslin eru alvarleg eða ekki.“
Bæta þarf forvarnir
með rannsóknum
Louis Hugo Francescutti minnti á
flokkun sem bandaríski læknirinn
William Haddon setti fram fyrir
rúmum þremur áratugum. Hann
segir slíkt kerfi auðvelda mönnum
mat og rannsóknir á slysum. Er þar
skoðað hvað gerðist fyrir slys, hvaða
tæki eða mannvirki koma við sögu,
hvernig slysið varð, við hvaða að-
stæður og hvað gerðist eftir slys.
„Með slysarannsóknum getum við
bætt forvarnir. Ef við lítum til dæm-
is á umferðarslys þá þarf að kanna
hvort umferðarmannvirki sem vant-
ar eða væru hönnuð á annan hátt
hefðu breytt einhverju burtséð frá
hegðun ökumanna. Við vitum til
dæmis að það kann ekki góðri lukku
að stýra að aka eftir að menn hafa
drukkið – á sama hátt og menn vita
að það er ekki hollt að reykja. En
stundum þarf aðrar aðgerðir til að
hafa vit fyrir okkur og í sambandi við
akstur og áfengi bendi ég á að til eru
bílar með búnaði sem kemur í veg
fyrir gangsetningu ef of mikið áfeng-
ismagn mælist í andrardrætti öku-
manns.“
Þá bendir læknaprófessorinn á að
slys séu þjóðfélögum dýr og minnir á
að hérlendis bíði um 50 manns bana
á ári hverju í margs konar slysum og
alls komi 55 þúsund manns á slysa-
og bráðadeild Landspítalans á ári
hverju. „Þetta kostar þjóðina um-
talsverða fjármuni eins og þið vitið
og þess vegna er áríðandi að efla
slysavarnir á öllum sviðum og með
öllum ráðum. Þáttur í því er hin nýja
slysaskráning og ég fullyrði að Ís-
land er eitt fyrsta landið í heimi til að
taka upp slíka samræmda skrán-
ingu. Aðrar þjóðir munu fara að for-
dæmi ykkar.“
Prófessorinn segir að fyrir um 10
árum hafi verið um 65 dauðsföll á
hverja 100 þúsund íbúa í Kanada en í
ár séu þau komin niður í 52 á 100
þúsund íbúa. Takmarkið segir hann
vera að ná þeim niður í að minnsta
kosti 26 eftir 15-20 ár. Hann þakkar
árangurinn sem þegar er orðinn ein-
földum aðgerðum eins og að skylda
börn og fullorðna til að nota reið-
hjólahjálma og að banna fólki að sitja
aftan á pallbílum. „Svona aðgerðir
skila sér en þær taka langan tíma.
Með góðri skráningu og rannsókn-
um, t.d. á umferðarslysum, fæst
nauðsynleg þekking og reynsla sem
slysavarnir eru byggðar á.“
Starfsemi slysa- og
bráðadeilda að breytast
Alþjóðlega þingið um bráðalækn-
ingar var haldin á vegum Félags
slysa- og bráðalækna, Landspítala –
háskólasjúkrahúss og læknadeildar
Háskóla Íslands. „Markmiðið er að
bæta bráðalækningar og Ísland er
fyrst Norðurlandanna og eitt af
fyrstu ríkjum Evrópu til að líta á
bráðalækningar sem sérgrein,“ seg-
ir Curtis P. Snook, formaður vísinda-
nefndar þingsins, í inngangi að dag-
skrá þingsins.
Brynjólfur Mogensen, sviðstjóri á
slysa- og bráðamóttöku LSH, for-
maður þingsins ásamt Mary Palmer,
segir að um 350 manns frá 27 löndum
hafi sótt ráðstefnuna. Hann segir
bráðalækningar unga sérgrein, ekki
síst á Íslandi. „Starfsemi slysa- og
bráðadeilda er að breytast þannig að
þar starfa ekki lengur bæklunar-
læknar, skurðlæknar, lyflæknar og
barnalæknar í fremstu víglínu, held-
ur bráðalæknar sem taka á móti
veiku og slösuðu fólki, greina og
leysa vandann og kalla til sérfræð-
inga í öðrum greinum eftir því sem
þörf krefur. Bráðalækninum er fyrst
og fremst kennt að leysa öll bráða-
vandamál og það má benda á að til-
tölulega lítill hluti sjúklinga sem
kemur á bráðamóttöku þarf að leggj-
ast inn á sjúkradeild.“
Tveir íslenskir læknar hafa þegar
aflað sér réttinda sem bráðalæknar
og einn er að ljúka slíku námi í Bret-
landi. Brynjólfur telur að fleiri slíkir
bætist í hópinn á næstunni þar sem
þetta sé orðin ný sérgrein sem þyki
áhugaverð og sé ein allra vinsælasta
sérgreinin í Bandaríkjunum.
Aðrir geta lært af Íslendingum
Þá var einn fyrirlesara á þinginu
bandaríski læknirinn William K.
Mallon, sem stjórnar námi bráða-
lækna við Los Angeles háskólann í
Kaliforníu. Hann hefur dvalið hér-
lendis í nokkrar vikur til að setja
fram tillögur um skipulag bráða-
lækninga hérlendis og er verkefnið
styrkt af Fulbright-stofnuninni.
Þegar tillögur hans liggja fyrir síðar
í sumar munu sjúkrahúsyfirvöld
meta þær.
„Þið hafið góða bráðadeild hér
meðal annars vegna þess að þar
starfar fólk með ólíkan bakgrunn og
fjölþætta reynslu,“ segir Willian K.
Mallone í samtali við Morgunblaðið.
Hann hefur um árabil starfað við
bráðadeild stórs sjúkrahúss í Los
Angeles þar sem hann segir koma
um 500 manns á dag, marga vegna
ofbeldisáverka, svo sem skot- og
stungusára. Á deildinni eru 18 ung-
læknar þjálfaðir og segir hann að alls
hafi um 460 læknar fengið menntun
sína sem bráðalæknar á deildinni
síðustu áratugina. Hann segir ís-
lenska lækna hafa ýmsa möguleika á
að sækja sér menntun í bráðalækn-
ingum, t.d. í Bandaríkjunum, Bret-
landi og Svíþjóð en hann segir Ís-
lendinga líka geta kennt öðrum eitt
og annað.
„Þið hafið mjög gott skipulag á
neyðarþjónustu og bráðaþjónustu á
vettvangi og þar gætu aðrir lært af
ykkur,“ segir hann. Þá bendir hann á
að lítið land eins og Ísland eigi
sterka möguleika í forvörnum og
rannsóknum. „Þegar kemur að því
að fylgja sjúklingum eftir að lokinni
fyrstu meðferð eða sjúkrahúslegu
eða til að afla upplýsinga í þágu
rannsókna þá náum við yfirleitt ekki
nema til um 60% sjúklinga í Los
Angeles en þið getið yfirleitt náð til
um 98% sjúklinga ykkar. Þetta gefur
margfalt verðmætari upplýsingar
um gang mála varðandi endurhæf-
ingu og meðferð og ég tel að þið eigið
að leggja mikla áherslu á þessa þætti
í forvarnaskyni.“
Louis Hugo Francescutti kanadískur læknaprófessor á málþingi um bráðalækningar
Getum
komið í veg
fyrir næst-
um öll slys
Bráðalækningar eru nýleg sérgrein og
skipulag slysa- og bráðadeilda er að taka
ýmsum breytingum. Jóhannes Tómasson
hleraði ýmis atriði um slysavarnir hjá
þátttakendum í nýlegri ráðstefnu um
bráðalækningar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá vinstri: Louis Hugo Francescutti, Brynjólfur Mogensen og William K. Mallon.
joto@mbl.is
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, segist ekki gera
neinar athugasemdir við skoðanir
Jóhönnu Sigurðardóttur um Evr-
ópusambandið, en hún hefur hvatt til
mikillar varfærni í Evrópumálum á
heimasíðu sinni.
„Jóhanna hefur alltaf verið var-
færinn stjórnmálamaður og skoðar
hvert skref vel áður en hún tekur
það. Ég hlýt þó að vekja athygli á því
að í pistli Jóhönnu kemur ekki fram
andstaða við það að Ísland sæki um
aðild að Evrópusambandinu. Hún
eins og margir þungavigtarmenn í
forystusveit Samfylkingarinnar er
að skoða þetta mál, enda er flokk-
urinn í miðjum klíðum með sína Evr-
ópukynningu,“ sagði Össur í samtali
við Morgunblaðið.
Hann sagði að innan Samfylking-
arinnar ríkti fullt lýðræði og hann
gengi þess ekki dulinn að það væru
skiptar skoðanir innan Samfylking-
arinnar um Evrópumálin eins og í
öðrum flokkum. Hann hefði ekki dul-
ið sína afstöðu í þessu máli og það
hefði verið honum nokkurt gleðiefni
að þegar menn kynntu sér málin og
brytu tengsl Íslands og Evrópu til
mergjar virtist þeim fjölga sem væru
ekki víðs fjarri þeim sjónarmiðum
sem hann hefði kynnt.
„Það er hins vegar rétt að taka
undir með Jóhönnu að það á að nálg-
ast þessi mál á varfærinn hátt, en
ekki hrapa að ályktunum eins og til
dæmis forsætisráðherra virðist gera
í hvert einasta skipti sem hann tjáir
sig um Evrópusambandið,“ sagði
Össur enn fremur.
Kostirnir fleiri en gallarnir
Hann sagðist sjálfur hafa komist
að þeirri niðurstöðu eftir að hafa
skoðað málið mjög vel, meðal annars
sjávarútvegsstefnu ESB, að kostir
við aðild væru fleiri en gallarnir. Það
væri hins vegar alveg ljóst að það
væru skiptar skoðanir um hver nið-
urstaðan yrði ef gengið yrði til samn-
inga. Hann tæki þess vegna undir
með Jóhönnu að það ætti að ganga
að þessu máli af fullri varfærni og sú
varfærni væri tryggð með því í
fyrsta lagi að ganga til þess fordóma-
laust og í fullri alvöru að skilgreina
þau markmið sem Íslendingar ættu
að hafa að leiðarljósi þegar til samn-
inga kæmi út frá hagsmunum þjóð-
arinnar, ekki síst hvað varði fullveldi
og fiskveiðar. Í öðru lagi að fara í að-
ildarviðræður með þessi skilgreindu
samningsmarkmið að leiðarljósi og í
þriðja lagi þegar aðildarviðræðum
væri lokið og ljóst hver samningsnið-
urstaðan væri að taka þá afstöðu í
þjóðaratkvæðagreiðslu, en það væri
ljóst að þjóðir hefðu hafnað slíkum
samningum í þjóðaratkvæðagreiðslu
eins og Norðmenn hefðu gert á sín-
um tíma.
Formaður Samfylkingarinnar
Engar athugasemdir
við afstöðu Jóhönnu
TILLÖGU Ólafs F. Magnússonar,
borgarfulltrúa F-lista, um að borg-
arstjórn lýsti yfir andstöðu sinni við
þátttöku borgarinnar í Kárahnjúka-
virkjun var vísað til frekari máls-
meðferðar borgarráðs á borgar-
stjórnarfundi í fyrradag með það að
markmiði að hún færi inn í stefnu-
mótun borgarinnar í orkumálum
sem unnið er nú að.
Í tillögunni vísaði Ólafur til sam-
þykktar borgarstjórnar frá 21. júní
2001 um arðsemismat Kárahnjúka-
virkjunnar, „þeirrar leyndar og und-
anbragða sem hafa verið uppi í
tengslum við virkjunina og áforma
um að halda áfram framkvæmdum
við hana í sumar“, líkt og segir orð-
rétt í tillögunni.
Borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, og Stefán Jón Hafstein,
borgarfulltrúi R-lista, bentu á að slík
yfirlýsing myndi ekki hafa áhrif á
byggingu Kárahnjúkavirkjunar þar
sem ákvörðun um virkjunina lægi
hjá ríkisvaldinu.
Ólafur lagði fram breytingartil-
lögu í lok fundarins sem var einnig
vísað til borgarráðs að tillögu borg-
arstjóra.
Vill að borgarstjórn
lýsi andstöðu við
Kárahnjúkavirkjun
KARLMAÐUR um fertugt hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdur í 30 daga fangelsi,
sviptur ökurétti ævilangt og gert að
greiða skaðabætur að upphæð 2 þús-
und krónur. Maðurinn var ákærður
fyrir að hafa gefið út og notað tékka í
viðskiptum við veitingahúsið Café
Amour á Akureyri að upphæð 2 þús-
und krónur, en tékkinn var úr hefti
eiginkonu hans.
Notaði hefti
eiginkonunnar
♦ ♦ ♦