Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 17

Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 17 Trjáplöntu- dagar Reykjavík sími 580 0500 • Selfossi sími 480 0800 www.blomaval.is Seljum mikið af trjáplöntum og runnum á stórlækkuðu verði Gróðurmold 10 ltr 199 kr. 50 ltr 799 kr. Tilboð Birkikvistur 399 kr. Allar fjölærar plöntur 20% afsláttur Gljámispill 299 kr. Hansarós 499 kr. Birki/Embla 50-70 sm 299 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B LO 1 81 14 06 /2 00 2 Petúnia 299 kr. Hengilóbelia 399 kr. Njótið fegurðar Þingvallasvæðisins Uppl. og pantanir í s. 894 7664 www.himbriminn.is info@himbriminn.is ÚTSÝNIS-, FRÆÐSLU- OG GÖNGUFERÐIR SÓLARLAGS- OG VEIÐIFERÐIR UM 360 erlendir gestir eru staddir á vinabæjamóti sem haldið er í Garðabæ um þessar mundir. Vina- bæir Garðabæjar sem taka þátt í mótinu eru Asker í Noregi, Birke- rød í Danmörku, Eslöv í Svíþjóð og Jakobstad í Finnlandi. Að sögn Huldu Hauksdóttur, upplýsingafulltrúa á bæjarskrif- stofum Garðabæjar, eru um 170 ungmenni í hópnum á aldrinum tíu ára til tvítugs og taka þau þátt í sér- stökum barna- og unglingamótum. Um er að ræða kóramót sem haldið er í samstarfi við skólakóra Flata- og Hofstaðaskóla, skákmót sem haldið er í samstarfi við Skátafélag- ið Vífil og fimleikamót sem haldið er í samstarfi við fimleikadeild Stjörnunnar. Vinabæirnir skiptast á að halda vinamót á tveggja ára fresti en tíu ár eru liðin frá því Garðabær hélt síðast vinamót. Þá mætti álíka fjöldi til leiks og segir Hulda að mótin séu ávallt vel sótt. Hulda segir að ungt fólk hafi ver- ið sérstaklega hvatt til að mæta á mótin en auk þess eru þau sótt af bæjarfulltrúum viðkomandi bæj- arfélaga, bæjarstarfsmönnum og félögum úr Norrænufélögunum. Segja má að íbúar Garðabæjar hafi opnað heimili sín fyrir erlendu gestunum. Margir þeirra fá gist- ingu, að sögn Huldu, og enn fleiri bjóða frændum sínum frá Norð- urlöndunum í mat svo þeir fái að kynnast íslensku borðhaldi og fjöl- skyldulífi. Nýtt tónverk, Vont og gott, samið sérstaklega fyrir mótið Í dag er meðal annars á dagskrá málþing í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ þar sem fjallað verður um þjónustu við íbúa sveitarfélaga, upplýsingatækni og þjónustu við eldri borgara. Þá verður rætt um skipulagsmál í víðu samhengi og meðal annars hlýtt á erindi um fornleifauppgröft við Hofsstaði. Farið verður í skoðuarferðir um Garðabæ og nágrenni og kl. 16 hefjast tónleikar barnakóra í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Að sögn Huldu munu kórarnir, undir stjórn Hildar Jóhannesdóttur kór- stjóra, syngja nýtt tónverk sem samið var sérstaklega fyrir mótið af Hildigunni Rúnarsdóttur tón- skáldi, Vont og gott, við texta Þór- arins Eldjárn. Allar nánari upplýsingar er að finna á slóðinni www.gardabaer.is. Um 360 erlendir gestir frá Norðurlöndunum samankomnir um þessa helgi á vinabæjamóti Morgunblaðið/Arnaldur Hildur Jóhannesdóttir kórstjóri leiðir hópinn saman í söng. Eitt hundrað börn hvaðanæva af Norðurlöndunum æfðu nýtt tónverk, Vont og gott, í glampandi sólskini í Vífilsbúð í Heiðmörk í gær. Bæjarbúar opna heimili sín fyrir gestunum Garðabær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.