Morgunblaðið - 22.06.2002, Page 22
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KAUPMENN og þjónustuaðilar á
Selfossi finna fyrir verulegri hreyf-
ingu í viðskiptalífinu strax þegar fer
að vora og með sumarkomunni
myndast hreinlega bylgja af fólki
sem streymir á staðinn. Verslun
dafnar vel á þessum tíma og yfir
sumarið er hver einasta helgi mikil
verslunarhelgi og viðskiptasveiflan
ámóta og um jólin. Hin þétta byggð
sumarbústaða í uppsveitum Árnes-
sýslu og í næsta nágrenni við Selfoss
gerir að verkum að umferðin er mik-
il og fer stöðugt vaxandi. Við þessa
miklu umferð innlendra ferðamanna
bætist síðan vaxandi fjöldi erlendra
ferðamanna sem fara um hlöðin í
hópum. Nýjasta viðbótin kemur frá
nýjasta Flugleiðahótelinu, Hótel
Selfoss, en eftir opnun þess í byrjun
júní hefur verið þar góð umferð og
yfir 100 gestir á hverjum degi. Þá
hefur verulegur vöxtur verið í versl-
un á Selfossi með tilkomu stórra að-
ila eins og Húsasmiðjunnar og lág-
vöruverðsverslananna Bónuss og
Krónunnar en tilkoma þeirra jók
verslunarumferðina verulega á
staðnum. Hjá bensínstöðinni í Foss-
nesti á Selfossi hafa menn á orði að
þar sé mikið að gera enda séu „béin
þrjú,“ Bónus, bensín og brennivín, í
næsta nágrenni, en þá er átt við
verslun ÁTVR í næsta nágrenni.
Fólk sækir í
afslappað umhverfi
„Við erum búin að vera hér í 28
ár, alltaf á sama stað, þar sem fólk
gengur að okkur,“ sagði Kristín
Hafsteinsdóttir, kaupmaður í Lind-
inni á Selfossi sem verslar með
kvenfatnað. „Okkar hugsun er að
veita persónulega þjónustu og flytja
vörurnar inn sjálf, losna við milliliði
og geta þannig boðið gott verð. Við
erum hér í þröngu húsnæði en á
móti kemur að búðin er full af
vörum og það vita okkar föstu við-
skiptavinir. Ég held að Selfoss eigi
eftir að verða enn öflugri verslunar-
bær, fólk vill koma hingað og versla
í rólegheitum og njóta þess að vera í
afslöppuðu umhverfi. Maður verður
mjög var við þessa hugsun hjá fólki
og það er gaman að geta þess að
sumarbústaðafólkið okkar hér í ná-
grenninu er vaxandi viðskiptahópur.
Markaðurinn hér fer því stækkandi
með aukinni sumarhúsabyggð, sem
er auðvitað mjög ánægjulegt og gott
fyrir samfélagið hérna,“ sagði Krist-
ín Hafsteinsdóttir.
Hentugt að koma
hingað og versla
„Stærstu tímabilin hjá okkur eins
og öðrum eru helgarnar í kringum
hvítasunnuna og páskana og svo all-
ar helgar yfir sumartímann en þá
hreinlega tvöfaldast umferðin
hérna. Það eru allar helgar mjög
stórar og mikil hreyfing alveg fram
á haust,“ sagði Sigrún Jónsdóttir,
verslunarstjóri í Nóatúni á Selfossi.
„Við fáum mikið af sumarbústaða-
fólki en því finnst mjög hentugt að
koma austur á Selfoss og versla inn
fyrir dvölina í sumarbústaðnum. Svo
nota margir tækifærið að fara í sund
og veita sér og fjölskyldunni eitt-
hvað gott ásamt því að koma við í
öðrum verslunum, bæði hér í Kjarn-
anum og annars staðar. Fólkið sæk-
ir í gott vöruval og samkeppnisfært
verð ásamt því að flestir leita eftir
þægilegu viðmóti sem er hér í versl-
unum á Selfossi og rólegu andrúms-
lofti. Það er mjög mikilvægt í þessu
sambandi að það fer gott orð af
svæðinu varðandi aðstæður og hjá
okkur erum við stolt af kjötborðinu
sem fólkið sækist eftir,“ sagði Sig-
rún en hjá Nóatúni á Selfossi starfa
um 100 manns.
Sumarbylgjan er mjög sterk
„Við búum við þannig samfélag
hérna að það eru ekki miklar sveifl-
ur en gegnumstreymi fólks vex
mjög hér yfir vor- og sumartímann
og ég hygg að allir finni fyrir þessari
bylgju,“ sagði Gunnar Guðmunds-
son, kaupmaður í Horninu á Sel-
fossi, en verslun hans er staðsett
nokkuð frá miðbænum. „Ég finn vel
fyrir þessari bylgju þó hún sé
kannski ekki eins sterk hér og í mið-
bænum en það má geta þess að síð-
asti mánuður hjá okkur var sá
stærsti í 17 ár, frá því við opnuðum.
Pizza 67 er hér í húsinu og þar hefur
mikið verið að gera í kringum HM í
knattspyrnu en menn koma þangað
eldsnemma á morgnana til þess að
horfa á boltann í beinni útsendingu,“
sagði Gunnar. Undir þessi orð hans
tekur Elvar sonur hans, sem rekur
Pizza 67. Hann sagði að sund og
pítsa væri mikil sumarafþreying ef
svo mætti að orði komast. Hann
sagði mikinn uppgang í pítsunum og
frá honum eins og öðrum væru píts-
ur sendar um langan veg til við-
skiptavina.
Verslun og þjónusta
við ferðafólk ein af
meginstoðunum
Selfoss
Sigrún Jónsdóttir, verslunar-
stjóri Nóatúns, greip innkaupa-
kerru þegar hún átti leið um.
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Gunnar B. Guðmundsson kaupmaður og Elvar Gunnarsson á Pizza 67.
Kristín Hafsteinsdóttir með Elínborgu Jónsdóttur í Lindinni.
ROTARYKLÚBBUR Selfoss hefur
það sem árlegt verkefni á hverju
vori að gróðursetja plöntur í skóg-
ræktarsvæðið í Hellisskógi vestan
Ölfusár. Hellisskógur er í landi
Hellis og Einholts og er víðáttu-
mikið útivistarsvæði sem íbúar á
Selfossi nota mikið. Margir klúbbar
og félög eiga þar reiti sem gróð-
ursett er í árlega. Plönturnar dafna
vel og hefur ásýnd landsins breyst
verulega á síðustu tíu árum.
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Nokkrir félagar í Rotaryklúbbi Selfoss að lokinni gróðursetningu.
Gróðursett í
Hellisskógi
Selfoss
SELFOSSBÚAR bjóða gest-
um og gangandi til morgun-
verðar í dag með harmónikku-
undirleik og morgunleikfimi
en það er fyrsti liður á dag-
skrá fjölskylduhátíðarinnar
Sumar á Selfossi. Að þessu
sinni verður hátíðin haldin á
planinu á bak við Austurveg 4
á Selfossi og á Sigtúni þar
skammt frá. Bíla- og mótor-
hjólasýning verður allan dag-
inn en mótorhjólamenn eru
mjög virkir og viljugir að sýna
tæki sín. Leiktæki verða á
staðnum og leikir verða á Sig-
túni frá hádegi til kl 14.00, allt
ókeypis. Golfarar verða með
leiðbeiningar fyrir byrjendur á
Golfvelli Selfoss kl. 12–14.
Bókasafnið verður opið með
risaeðlusýningu kl. 11–14 og
rannsóknarmiðstöð í jarð-
skjálftaverkfræði verður einn-
ig opin. Útvarpsstöðin FM957
verður á staðnum með dag-
skrá síðdegis, meðal annars í
Sundhöll Selfoss sem býður
ókeypis aðgang klukkan 17–
18. Klukkan 15–17 mun hljóm-
sveitin Á móti sól leika nokkur
lög. Hátíðin Sumar á Selfossi
er orðin að árvissum viðburði
hjá Selfossbúun og gestum
þeirra, en hún er sameiginlegt
framtak fyrirtækja í bænum
og sveitarfélagsins.
Boðið til
morgun-
verðar og
leikja á
Selfossi
Selfoss
IB-innflutnings-
miðlun á Selfossi
afgreiddi nýlega
frá sér þrjá glæsi-
lega bíla sem
breytt hefur verið
og gengið frá af
samstarfsaðilum
fyrirtækisins,
Jeppasmiðjunni á
Ljónsstöðum,
Radíóþjónustu
Sigga Harðar og
Gunnari Egilssyni,
Ice Cool. Að sögn
Ingimars Baldvinssonar hjá IB er
um að ræða einn glæsilegasta
dráttarbíl landsins, sjúkrabíl og
stærsta fjöldaframleidda jeppa í
heimi af gerðinni Ford Excursion
Limited. Jeppinn var settur á 44
tommu dekk og var frumraun í
breytingum á bíl af þessari stærð.
„Þetta verður lúxus-taxinn á fjöll-
um, kóngurinn í flotanum,“ sagði
Ingimar Baldvinsson. Sjúkrabíllinn
er síðan einn af mjög mörgum
sjúkrabílum sem IB-innflutnings-
miðlun hefur afgreitt frá sér eftir
breytingar og útfærslu eftir að-
stæðum.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Þrír glæsibílar afhent-
ir eftir breytingar
Selfoss
NÝIR söluaðilar, Grundir ehf., hafa
tekið við Hekluumboðinu á Suður-
landi og rekstri Bílasölu Selfoss.
Hekluumboðið nær frá Hellisheiði að
Kirkjubæjarklaustri og mun Bílasala
Selfoss þjónusta þetta svæði. Nýir
forsvarsmenn Bílasölunnar eru Sæv-
ar Sverrisson og Rögnvaldur Jó-
hannsson.
„Við munum kappkosta að þjón-
usta svæðið eins vel og kostur er hér
eftir sem hingað til. Við erum með
nýja og notaða bíla frá Heklu ásamt
því að vera með almenna bílasölu
hérna. Þá er þjónustuumboð Heklu
hér á hlaðinu hjá okkur og því í heil-
miklu að snúast,“ sagði Sævar Sverr-
isson.
Eitt öflugasta svæðið í bílasölu
Hekluumboðið er við Hrísmýri á
Selfossi en í næsta nágrenni eru tvær
stórar bílasölur. Samanlagt er þetta
svæði eitt það öflugasta á landinu í
bílasölu og viðskiptavinir eiga hægt
um vik að nálgast bíl við sitt hæfi.
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Sverrir Sigfússon, Heklu, Rögnvaldur Jóhannsson, Bílasölu Selfoss,
Marinó Björnsson, Heklu, og Sævar Sverrisson, Bílasölu Selfoss.
Nýir aðilar með Heklu-
umboðið á Suðurlandi
Selfoss