Morgunblaðið - 22.06.2002, Side 25
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 25
Fáðu þér nýjan bíl
fyrir sumarleyfið
FERÐADAGAR hjá Betri notuðum bílum
Láttu ekki bílinn valda þér áhyggjum í sumarfríinu. Á FERÐADÖGUM bjóðum við fjölbreytt og gott úrval af bílum
af öllum gerðum á hagstæðu verði. Strangt skoðunarferli er trygging fyrir að vélar- og öryggisbúnaður er í góðu
lagi. Nákvæm ókeypis skoðun á bíl eftir þúsund kílómetra akstur eða einn mánuð. 14 daga skiptiréttur á bíl ef
kaupandi er ekki ánægður. Í boði allt að eins árs ábyrgð á mikilvægum búnaði í bílnum.
Komdu á Ferðadaga á Nýbýlaveginum eða til umboðsmanna okkar á Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum og í
Reykjanesbæ. Það er óþarfi að hafa líka áhyggjur af bílaviðskiptum. Sími 570 5070. www.toyota.is
Hvað skyldi hafa
orðið af pústinu? Það
var örugglega undir uppi
á Steingrímsfjarðar-
heiði!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
17
98
4
06
/2
00
2/
KO
RT
:
LA
N
D
M
Æ
LI
N
G
A
R
ÍS
LA
N
D
S
Vestur Suður Norður Austur
4x4 Fólksbílar Jeppar Tilboðsbílar
Mikið úrval!
COLDWATER Seafood í Bretlandi, dótt-
urfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, hlaut verðlaun sem framleiðandi ársins
2001 í öllum vöruflokkum á árlegu fram-
leiðsluþingi McDonald’s. Í fréttatilkynningu
frá SH er vitnað í ræðu Ian Martins, fram-
kvæmdastjóra framleiðslu hjá McDonald’s. Í
máli hans kom fram að grunnurinn að ár-
angri Coldwater sé mikill stöðugleiki sem
ríkt hafi hjá Coldwater í gæða- og fram-
leiðslumálum á undanförnum þremur árum.
„Á þessu tímabili hefur fyrirtækið ávallt verið
í fremstu röð framleiðenda varðandi hrein-
lætis-, gæða- og framleiðslustjórnun.“
„Þetta er mjög stór áfangi fyrir Coldwater
þar sem verðlaunin njóta mikillar virðingar
meðal stjórnenda framleiðslufyrirtækja í
matvælaiðnaði hér í Bretlandi,“ að því er haft
er eftir Agnari Friðrikssyni, forstjóra
Coldwater í Bretlandi, í fréttatilkynningu.
Við val McDonald’s á framleiðanda ársins eru
lögð til grundvallar samskipti milli frameið-
enda og McDonald’s á árinu og koma flestir af
lykilstarfsmönnum McDonald’s að ákvörð-
uninni. Meðal annars er tekið tillit til stöð-
ugleika í gæðum, viðbragðstíma við kvört-
unum, rekjanleika og tæknilegrar þekkingar.
Auk þess gerir McDonald’s nákvæmar úttekt-
ir á framleiðsluferlum, gæðastöðlum og flutn-
ingamálum. Til greina koma allir mat-
vælaframleiðendur og birgjar McDonald’s.
McDonald’s rekur nú 1.184 veitingastaði í
Bretlandi sem velta um 1,5 milljarði punda.
Coldwater hefur verið í samstarfi við McDon-
ald’s í 18 ár og á því tímabili m.a. framleitt
Filet o Fish sem unnir eru úr þorski og fiski-
fingur sem ætlaðir eru börnum, auk þess er
stöðugt verið að gera tilraunir með nýjar
vörur.
„Það að skáka mörgum af stærstu og öfl-
ugustu framleiðslufyrirtækjum heims er okk-
ur að sjálfsögðu mikil hvatning til að gera enn
betur í framtíðinni. Ein af undirstöðum þess-
ara verðlauna er sá mikli árangur í gæða-
málum sem íslenskir samstarfsaðilar okkar
hafa náð. Ásamt því að framleiða vörur fyrir
veitingamarkað framleiðum við einnig vörur
fyrir margar af stærstu verslanakeðjum Bret-
lands sem gera miklar kröfur til okkar á sviði
gæða- og vöruþróunarmála. Til þess að þókn-
ast breskum neytendum, sem eru mjög kröfu-
harðir þegar kemur að fiski, er nauðsynlegt
að halda stöðugt áfram að þróa og endurbæta
vörurnar með þarfir markaðarins í huga,“
sagði Agnar að lokum í fréttatilkynningunni.
Coldwater framleiðandi
ársins hjá McDonald’s
Keith Kenny, yfirmaður innkaupa og gæða-
mála hjá McDonald’s, Steve Crossland, tækni-
stjóri Coldwater, Ian Martin frá McDonald’s,
Helgi Anton Eiríksson, Coldwater, og David
Vagg, McDonald’s.
● BRESKA fjölmiðlunarfyrirtækið
Reuters hefur ákveðið að segja upp
650 yfirmönnum og millistjórnendum
í þeim tilgangi að hagræða í rekstr-
inum en uppsagnirnar eiga að spara
fyrirtækinu um 150 milljónir dollara á
ári. Jafnframt segir fyrirtækið að með
því að fjarlægja lag millistjórnenda
verði ákvarðanataka skjótari auk
þess sem rúm myndist fyrir nýja kyn-
slóð hæfileikraríkra stjórnenda.
Á síðustu 12 mánuðum hefur fyr-
irtækið sagt upp 1800 starfs-
mönnum og því hefur starfsfólki fyr-
irtækisins fækkað um 2.450 á
tímabilinu. Alls starfa um 19.000
manns hjá Reuters á heimsvísu.
Aðgerðir fyrirtækisins eru viðbrögð
við niðursveiflu í efnahagslífi heims-
ins en bæði Reuters og margir helstu
viðskiptavinir þess hafa orðið fyrir
barðinu á niðursveiflunni. Atburðirnir
11. september höfðu einnig mikil
áhrif á félagið, en félagið tapaði 24
milljónum dollara vegna þeirra.
Gengið á hlutabréfum Reuters er
nú í sögulegu lágmarki sé litið til síð-
ustu 5 ára og er um 36 dollarar á
hlut, hefur fallið jafnt og þétt síðustu
tvö ár frá því gengið var um og yfir
100 dollarar á hlut.
Að því er haft er eftir Tom Glocer,
forstjóra fyrirtækisins, styðja aðgerð-
irnar markmið félagisins um 12%
framlegð á næsta ári, umfram al-
mennan viðsnúning á markaðnum.
Reuters seg-
ir upp stjórn-
endum
● NORSKA krónan hefur styrkst
verulega á þessu ári og norskur út-
flutningur beðið skaða af. Verðmæti
þess sem flutt var út frá Noregi frá
janúar til maí í ár er 11,4% minna en
verðmæti útflutningsins var á sama
tíma í fyrra, að því er m.a. kemur
fram á fréttavef Dagens Næringsliv.
Um þessar mundir er norska krónan
sterkari en hún hefur verið nokkru
sinni frá árinu 1986.
Mestir eru erfiðleikarnir hjá fisk-
útflutningsfyrirtækjum en þau fá
færri norskar krónur fyrir útflutning-
inn þegar gengi norsku krónunnar er
hátt. Norskir síldarútflytjendur hafa
til dæmis beðið lægri hlut í sam-
keppni við íslenska útflytjendur um
kaupendur í Póllandi, að því er fram
kemur á fréttavef Sunnmørsposten,
og bent er á að veikari íslensk króna
og sterkari norsk króna hafi þar
áhrif.
Samtök atvinnulífsins í Noregi
hafa varað við gengisþróuninni í Nor-
egi og segja ástæður til að hafa
áhyggjur af að hún haldi áfram.
Styrking krónunnar og launaskrið
hefur þau áhrif að Seðlabanki Nor-
egs mun ekki lækka vexti í bráð og
seðlabankastjórinn hefur lýst því yfir
að jafnvel sé ástæða til vaxtahækk-
unar.
Norsk króna kostaði í gær 11,6 ís-
lenskar krónur.
Styrking
norsku
krónunnar