Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 30
NEYTENDUR
30 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SIGRÍÐUR Einarsdóttir og Daðey
Steinunn Daðadóttir hófu fram-
leiðslu á náttúrusmyrslum heima í
eldhúsi fyrir sjö árum og eru nú
komnar á markað í Þýskalandi
með fulltingi Útflutningsráðs.
Framleiðsla þeirra hét upphaflega
SD sjávar- og jurtasmyrsl en heitir
nú SDS-smyrsl og segir Sigríður að
nýtt nafn og nýjar umbúðir hafi
villt fyrir mörgum. „Þótt þessar
breytingar hafi verið gerðar er
innihaldið hið sama, græðandi
áburður úr hreinum náttúru-
afurðum, og jafnvel betra, því mik-
il vinna hefur verið lögð í að bæta
framleiðsluna,“ segir hún.
Húðvörur fyrir hesta og menn
Um er að ræða húðvörur fyrir
bæði hesta og mannfólk. Í hestalín-
unni eru sex mismunandi tegundir,
til að mynda krem fyrir sum-
arexem, skordýrabit, skallabletti
og kláða, næring fyrir fax og tagl
sem leysir flóka, kælir og dregur
úr kláða, svo og hófasmyrsl og
hnjóskaleysir gegn nöbbum á
hrygg hesta, sem komið geta í um-
hleypingum. Einnig búa þær til
balsam, sem leysir flóka og kemur í
veg fyrir flösu, og milt sjampó.
Fyrir mannfólkið framleiðir
SDS-smyrsl hárvökva fyrir þurran
hársvörð og smyrsl fyrir þurra
húð, psoriasis, barnaexem og hvers
konar húðútbrot, segir Sigríður.
Hráefnið í smyrslunum er ís-
lenskar lækningajurtir, jurtaolíur,
þorskalýsi og ullarfita og segir Sig-
ríður að fyrirtækið noti jurtaseyði í
vörur sínar, ekki jurtir leystar upp
í spíra. Upphaf framleiðslunnar
var leit að áburði fyrir slæmt psori-
asis dóttur Sigríðar og segir hún
framhaldið hafa komið af sjálfu
sér. „Við Daðey erum báðar mikið
fyrir dýr og hugsuðum með okkur
að fyrst mannfólkið glímdi við húð-
kvilla væri kannski svo um skepn-
urnar líka,“ segir hún.
Fyrirtæki Daðeyjar og Sigríðar
hét upphaflega SD-sjávar- og
jurtasmyrsl sf. en nefnist í dag SDS
ehf. þar sem aðrir hluthafar komu
inn í reksturinn í ársbyrjun. SDS
ehf. er komið í samstarf með hesta-
vörurnar við þýskt fyrirtæki, SDS
Vertrieb Deutschland í Hamborg,
auk þess sem þær eru seldar í Krä-
mer-vörulistanum í Þýskalandi, að
Sigríðar sögn.
Bjartsýnar húsmæður
„Við erum tvær húsmæður sem
fórum út í þetta af bjartsýni og
með aðstoð frá Útflutningsráði er-
um við komnar í samband við þýskt
dreifingarfyrirtæki og hafa Þjóð-
verjar sýnt þessum vörum mikinn
áhuga,“ segir hún.
Einnig fengu Daðey og Sigríður
þá hugmynd að leita eftir sam-
þykki Bandaríska matvæla- og
lyfjaeftirlitsins, FDA, á framleiðsl-
unni og segir Sigríður marga hafa
hlegið þegar hún var til umræðu.
Ferlið tók á þriðja ár og lauk með
samþykki stofnunarinnar á síðasta
ári. Hafa þær undir höndum skjal
því til staðfestingar.
Framleiðslan hófst í eldhúsi, var
síðan flutt í húsnæði Lýsis og er nú
við Esjumel í Mosfellsbæ og segir
Sigríður frekari stækkun ekki úti-
lokaða. „Núverandi húsnæði er að
springa utan af okkur. Aðilar í
Danmörku hafa líka sýnt fram-
leiðslunni áhuga, svo hver veit,“
segir Sigríður Einarsdóttir loks.
Nýjar umbúðir og
vottun frá Bandaríska
lyfjaeftirlitinu
Morgunblaðið/Arnaldur
Sigríður Einarsdóttir og Daðey Steinunn Daðadóttir.
SDS-smyrsl, áður SD-sjávar-
og jurtasmyrsl, með nýju sniði.
DANSKA neytendastofnunin og
danska Umhverfisstofnunin hafa gert
rannsókn á umhverfisáhrifum
danskra heimila þar sem matvæli,
heimili og bíll er sagt valda mestu
álagi. Um er að ræða framhald af
svipaðri rannsókn frá 1996 þar sem
niðurstaðan var á sömu lund, nema
hvað áhrif húsgagna, innanstokks-
muna, leikjatölva, myndbandstækja
og annarra rafeindatækja til afþrey-
ingar, hafa aukist á umhverfið, að því
er fram kemur í fréttabréfi Dönsku
neytendastofnunarinnar.
„Á dönskum heimilum er stuðst við
fjöldann allan af kemískum efnum til
þess að halda húsi, fötum og heim-
ilisfólkinu hreinu og þó að skaðleg
áhrif þvottaefnis á umhverfið séu
vissulega minni en áður leiðir mikil
notkun þess til meiri áhrifa á um-
hverfið en af völdum annarra efna
sem notuð eru á heimilum,“ segir þar.
Efni með umhverfismerkingum
betri fyrir náttúruna
Hermt er að ekki sé hægt að búa til
þvottaefni sem þvær flíkur almenni-
lega án þess að það hafi áhrif á um-
hverfið. „Notendur geta hins vegar
lagt sitt af mörkum til umhverfismála
með því að kaupa efni með umhverf-
ismerkingum (norræna umhverfis-
merkinu svaninum eða evrópska
blóminu), sleppa mýkingarefni, þvo
við lágt hitastig og velja þvottavélar
sem sparneytnar eru á rafmagn.
Einnig má minnka í óhreinataus-
bunkanum með því að hætta að þvo
flíkur sem lítil sem engin óhreinindi
eru á,“ segir ennfremur.
Umsjón með verkefninu hafði
Claus Egeris Nielsen og segir hann
ekki ætlast til að fólk hætti að neyta
matar, selji bílinn eða hafist við í
köldu húsnæði. „En með því að átta
sig á því hvað það er sem hefur mest
áhrif á umhverfið er auðveldara fyrir
Neytendastofnunina að mæla með
sjálfbærari lífsháttum fyrir fjölskyld-
una,“ segir hann.
Stofnunin hyggst gefa út handbók
um sjálfbærari lífshætti fyrir dönsk
heimili síðar á árinu.
Hægt er að sækja eintak af skýrsl-
unni á heimasíðu Umhverfisstofnun-
arinnar í Danmörku, www.mst.dk.
Umhverfisálag
vegna heimila
hefur aukist
Reuters
Prenthylki á ruslahaug í Kína.
KATLA er að
setja á markað
nýja tegund af
brauði í sam-
starfi við flest
bakarí landsins,
að því er fram
kemur í frétta-
tilkynningu.
Um er að ræða
kryddað og
matarmikið Tex-Mex-brauð í ýmsum
útfærslum. Bökurum er í sjálfsvald
sett að útfæra brauðin og munu þau
fást á næstu dögum í flestum bak-
aríum. Brauðin verða auðkennd með
sérstöku merki sem hengt verður
upp í bakaríum sem þáttt taka í sam-
starfinu.
NÝTT
Tex-Mex-
brauð í ýms-
um útfærslum
LISTAKONAN Elitsa G. Georg-
ieva frá Rousse í Búlgaríu hefur
opnað stuttsýningu sína í Gallerí
Reykjavík.
Á sýningunni gefur að líta olíu-
málverk sem öll eru unnin á þessu
ári.
Elitsa er 21 árs og hefur haft
áhuga á list, málun, teikningu,
skúlptúrgerð og hönnun síðan hún
var 7 ára. Elitsa lauk námi frá
listaháskóla í Búlgaríu með fram-
úrskarandi árangri. Hún hefur
verið búsett hér á Íslandi frá 2001.
Sýningin stendur til 3. júlí.
Gallerí Reykjavík, Skólavörðu-
stíg 16, er opið frá kl 12.00 til
18.00 virka daga og 11.00 til 16.00
laugardaga. Eitt af verkum Elitsu Georgieva.
Georgieva sýnir
olíumálverk
YFIRSKRIFT sýningar Tryggva
Árnasonar, sem opnuð verður í Ráð-
húsi Reykjavíkur í dag, er Kæra
Reykjavík. Sækir hann myndefni
málverkanna til Þingholtanna og
Skólavörðuholtsins. „Þessi hluti
borgarinnar hefur í raun verið aðal-
yrkisefni mitt í myndlist,“ segir
hann. „Ég er þar fæddur og uppal-
inn, átti í raun þrjú heimili þar, við
Sóleyjargötu, á Njálsgötu og á Berg-
staðastræti. Þessi borgarhluti hefur
því verið samofinn mér síðan ég man
eftir mér.“
Tryggvi útskrifaðist frá grafík-
deild Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands árið 1983 og eru verk hans í
eigu margra stærstu stofnana og
listasafna Íslands, meðal annars
Listasafns Íslands og Listasafns
Reykjavíkur, en Tryggvi hætti störf-
um hjá Verslunarbanka Íslands og
sneri sér alfarið að myndlistariðkun
fyrir rúmum tveimur áratugum.
Myndir Tryggva á sýningunni nú
eru stórir, skýrir strigar, sem sýna
ólík sjónarhorn víðs vegar úr Þing-
holtunum. „Í minningunni er alltaf
sól, aldrei rigning,“ segir Tryggvi.
„Með þessum myndum vil ég sýna
fólki hvernig Þingholtin líta út fyrir
mér. Þá aðferð sem ég nota á sýning-
unni núna tel ég henta best til að ná
fram þeim hughrifum sem tengjast
þessum stað, nákvæmni að vissu
marki og litasamsetning í aðalatrið-
um samkvæmt raunveruleikanum.
Annað væri fölsun.“
Hann segir Þingholtin bera merki
ákveðinnar virðingar fólks fyrir sér
og umhverfi sínu. „Fólk hefur ekki
látið sér nægja að tjasla saman kof-
um, eins og maður sér oft erlendis.
Það var ákveðinn virðuleiki yfir fá-
tæktinni hér í Reykjavík, viss tign
sem fylgdi hófsemd fólks sem barð-
ist í bökkum. Ég reyni að draga
þennan virðuleika fram í málverkum
mínum,“ segir hann. Verkin hefur
Tryggvi unnið á vinnustofu sinni eft-
ir gönguferðir um svæðið. „Það að
mála á staðnum er rómantík sem
gengur ekki á Íslandi,“ segir hann.
Aðspurður segist Tryggvi ekki
verða var við áhrif einstakra málara í
myndlist sinni og segist fylgja sann-
færingu sinni þegar kemur að stíl-
brögðum. „Ég vil vera sáttur við
sjálfan mig,“ segir hann. „Jón Ás-
geirsson tónskáld lýsti því í nýlegu
viðtali í Morgunblaðinu hvernig
hann ákvað að fylgja eigin tilfinn-
ingu í tónsmíðum sínum, í stað þess
að semja tónlist sem hann vissi að
yrði viðurkennd. Hans orð eru eins
og töluð úr mínu hjarta.“
Fegurð Þingholtanna
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Tryggvi notar svipmyndir úr Þing-
holtunum í verkum sínum. Árið 1985
hélt hann sýningu á Kjarvalsstöðum
undir sömu yfirskrift, Kæra Reykja-
vík, sem einnig var sýnd í Kaup-
mannahöfn ári seinna í tilefni af 200
ára afmæli Reykjavíkurborgar. Þar
sýndi hann grafíkmyndir af sömu
slóðum og birtast nú á olíustrigum
hans. „Með þeirri sýningu virtist ég
vera að opna fegurð Þingholtanna og
Skólavörðuholtsins fyrir mörgum,“
segir Tryggvi. „Fólk fór gönguferðir
um Þingholtin og skoðaði það sem
birtist í myndunum mínum; húsa-
sund, bakgarða og gamlar rusla-
tunnur, sem mynda þá stemningu
sem þessum borgarhluta fylgir. Ég
vona að málverkin á sýningunni
núna muni einnig birta fólki þessa
stemningu.“
Sýningin Kæra Reykjavík í Ráð-
húsi Reykjavíkur verður opnuð í dag
kl. 15. Hún er opin virka daga kl. 10–
19 og um helgar kl. 12–18 og stendur
til 7. júlí.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tryggvi Árnason við eitt af málverkunum sem hann sýnir um þessar
mundir í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýningin stendur til 7. júlí næstkomandi.
Sjónarhorn
úr miðbænum
Tryggvi Árnason opnar
sýningu á átján olíu-
málverkum í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag.
Inga María Leifsdóttir
skoðaði verkin og ræddi
við Tryggva um töfra
Þingholtanna.
ingamaria@mbl.is
OSTA- og smjörsalan sf. hefur byrj-
að dreifingu á nýju viðbiti, Alpa-
smjöri, sem
nú er komið í
flestar versl-
anir, sam-
kvæmt til-
kynningu.
Alpa smjör er unnið úr sýrðum
rjóma, salti og mjólkursýrugerlum,
eftir vinnsluaðferð sem löng hefð er
fyrir meðal smjörmeistara í Evrópu.
Alpa smjör er framleitt hjá Mjólk-
urbúi Flóamanna, Selfossi, og pakk-
að í 300 g umbúðir.
Alpasmjör
♦ ♦ ♦