Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 31 VEGNA legu landsins hefur okkar fábrotna vistkerfi lítið breyst í ald- anna rás. Frá landnámi hafa aðeins tvær spendýrategundir sest hér að og getur hlutskipti þeirra tæpast verið ólíkara. Hreindýrið velkomið og vist- vænt, tignarlegt og meyrt undir tönn. Flutt inn til fegurðar og yndisauka og til að hressa upp á dýraflóruna. Mink- urinn er hins vegar réttdræpt, illþefj- andi óargadýr sem engu eirir sem hann ræður við. Étur allt sem að kjafti kemur. Fluttur inn í hagnaðar- skyni um 1930, þegar menn gerðu sér engan veginn ljóst hvílíkur vágestur var á ferð. Álitu hann jafnvel til bless- unar í náttúrunni er hann fór að sleppa úr búrum sínum sem gjarnan var hróflað upp á ódýrastan máta í ár- daga loðdýraræktunarinnar. Ekki leið á löngu uns hið gagn- stæða kom í ljós. Minnkurinn er skað- valdur hinn mesti, líkt og kemur fram í fróðlegri og fallegri heimildarmynd Magnúsar Magnússonar um þennan nýjasta, ferfætta landnema landsins. Þar er m.a. bent á að minknum tókst að gjöreyða fuglalífi í Hallbjarnar- skeri, langt úti á Breiðafirði, á aðeins örfáum vordögum fyrir 15 árum. Æð- arfugl er nýfarinn að sjást þar aftur. Þetta er saga hans hérlendis í hnot- skurn. Þar sem honum er ekki mark- visst haldið niðri fækkar fugli í björg- um og móa, það er alvarlegasti skaðinn sem hann veldur í nátt- úrunni. Maðurinn er nánast eini óvin- ur hans hérlendis, öfugt við það sem gerist allstaðar annarsstaðar þar sem aðrar rándýrategundir halda stofnin- um í skefjum. Það vekur nokkra undrun að svo virðist sem vísinda- menn hafi gefið minknum hornauga fram á síðustu ár. Úr þessu er verið að bæta með nýhöfnum rannsóknum á hegðun hans, stofnstærð, o.s.frv. Það kemur einnig fram í myndinni um minkinn og eru næsta óvæntar og nýjar fréttur, að hann er „léttur og skemmtilegur karakter“, öfugt við þá fjandsamlegu ímynd sem okkur er efst í huga. Vísindamennirnir sem rannsakað hafa atferli hans hafa á honum miklar mætur sem upplífg- andi félagsskap. Hann hefur þá eftir allt saman sínar góðu hliðar, eins og flest annað í lífríkinu! Magnús deilir nokkuð á þann ein- hliða áróður sem hafður er í frammi um þetta átvagl sem menn eru farnir að viðurkenna að vonlaust er orðið að útrýma. Það hefur þótt sjálfsagt og hið besta mál að drepa kvikindið með öllu því sem tiltækt er af hverjum sem er. Hann bendir réttilega á að mink- urinn á sama rétt og önnur dýr til þess að lífið sé ekki murkað úr honum á ómannúðlegan hátt. Slíkar veiðiað- ferðir hvorki til þess fallnar að halda stofninum í skefjum eða auka hróður veiðimannsins. Hann kaus ekki að setjast hér að, heldur var það vegna græðgi mannskepnunnar, sem gleymir því oft í gróðavoninni að kapp er best með forsjá. Vágestur í vistkerfinu SJÓNVARP Heimildarmynd Framleiðandi og stjórnandi: Magnús Magnússon. Handrit: Magnús Magn- ússon, Dúi J. Landmark, Þorgerður S. Guðmundsdóttir. Kvikmyndataka: Magn- ús Magnússon. Hljóðupptaka: Þorgerður S. Guðmundsdóttir, Dúi J. Landmark. Hljóðsetning: Lotus/Gunnar Árnason. Tónlist: Jón Bjarki Bentsson. Klipping og samsetning: Friðgeir Axfjörð. Þulur: Bjarni Árnason, Jakob Þór Einarsson. Ís- lensk heimildarmynd. Emmson Film 2002. Sjónvarpið 17. júní 2002. MINKUR Í ÍSLENSKRI NÁTTÚRU Sæbjörn Valdimarsson HRAFNHILDUR Atladóttir fiðlu- leikari er einn af hinum fjölmörgu ungu og efnilegu tónlistarmönnum Íslendinga sem gert hafa garðinn frægan erlendis. Hrafnhildur býr nú og starfar í Berlín, þar sem hún er að ljúka diploma-prófi í fiðluleik frá Universität der Künste. Í vor hefur hún tvisvar leikið með Fílharm- óníuhljómsveit Berlínar, sem er ein virtasta sinfóníuhljómsveit heims. Morgunblaðið hafði samband við Hrafnhildi í Þýskalandi og forvitn- aðist um störf hennar um þessar mundir. „Undanfarin tvö ár hef ég leikið með hljómsveitinni í Deutsche Oper, þar sem ég var á samningi hjá 1. fiðlu í eitt og hálft ár. Síðan þá hef ég verið frjáls aðstoð- armanneskja hjá bæði 1. og 2. fiðlu,“ segir Hrafnhildur. „Um dag- inn var ég svo að leika með Berliner Phil- harmoniker í annað skiptið á ævinni og það var bara rosalega gam- an,“ bætir hún við og hlær. Fiðlukennari Hrafnhildar í Berlín leikur með hljómsveit- inni og mælti hann með henni við aðstand- endur hljómsveit- arinnar, en fátítt er að ungir tónlistarmenn sem enn eru í námi fái tækifæri til að spreyta sig með Fílharmoníuhljómsveit Berlínar. „Það var náttúrulega mik- ill heiður fyrir mig að kennarinn minn skyldi mæla með mér og að hljómsveitin tæki mig inn. Það er ómetanlegt tækifæri. Ég spilaði með hljómsveitinni í fyrsta skipti í janúar undir stjórn Harnons Courts, sem sérhæfir sig í flutningi gamallar tónlistar. Þá fluttum við óperuna Jephta eftir Händel. Þessi stjórnandi er mjög frægur og gaman að kynnast störfum hans persónulega,“ segir Hrafnhild- ur og bætir við að það að fá að leika aftur með hljómsveitinni síðar í vor hafi ekki síður verið skemmtileg og gefandi reynsla, en þá stjórnaði Bernard Haitink hljómsveitinni í fimmtu sinfóníu Brückners. Hrafnhildur undirbýr um þessar mundir seinni hluta lokaprófs síns við Universität der Künste, ásamt því að kenna nokkrum ungum nem- endum fiðluleik. „Auk þess er ég að spila í söngleiknum um Hringjarann frá Notre Dame í söngleikhúsi á Potsdamer Platz og hef gert síðan í vetur. Ég mun koma heim til Íslands seinni hluta sumars og til dæmis spila á UNM-hátíðinni. Svo er aldrei að vita nema maður haldi tónleika líka,“ segir hún. Aðspurð hvort að með því sé hún alkomin heim svarar Hrafnhildur að það eigi eftir að koma í ljós. „Mig langar til þess að reyna fyrir mér hérna úti, fara í nokkur prufuspil og athuga hvað kemur út úr því. Hér eru nátt- úrulega mjög margar og ólíkar hljómsveitir og þannig meiri mögu- leikar.“ Hún segir að reynsla sín í Deutsche Oper og í Fílharmóníu- hljómsveitinni geti opnað fyrir henni dyr. „Til dæmis spilaði ég líka með Deutsche Symphoniorchester undir stjórn Kents Nagano í kjölfar- ið á vinnu minni í óperunni. Það er oft þannig að starf hjá einni hljóm- sveit leiðir til annars. Ég hef haft nóg að gera og vona það besta.“ Íslenskur fiðluleikari leikur með Fílharmóníuhljómsveit Berlínar Morgunblaðið/Auðunn Arnórsson Fílharmóníuhljómsveit Berlínar á tónleikunum undir stjórn Bernard Haitink. „Tækifærið er ómetanlegt“ Hrafnhildur Atladóttir FORSETI Íslands opnar form- lega í dag, laugardag, Kjarvals- stofu á Borgarfirði eystra. Kjarvalsstofu er ætlað það hlutverk að heiðra minningu Jóhannesar Sveinssonar Kjar- vals (1885–1972) sem var alinn upp á Borgar- firði eystra frá 5 ára aldri. Í Kjar- valsstofu er fjallað um ævi og störf lista- mannsins og tengsl hans við Borgar- fjörð. Þar eru tvær sögu- sýningar, hannaðar af Jóni Þórissyni leik- myndahönnuði, auk þess sem aðstaða er fyrir börn til að spreyta sig á málaralistinni og setja sig í spor meistara Kjar- vals. Ævibrot á spjöldum Sögusýningin „Kjarval, ævi og list“, fjallar um ævi Kjarvals og feril hans. Þar eru ýmis ævi- brot meistarans sett fram á myndrænan hátt á veggspjöld- um með texta og ljósmyndum, í bland við ýmsa muni sem til- heyrðu Kjarval. Sögusýning sem nefnist „Jói í Geitavík“ fjallar um tengsl Kjarvals við borgfirskt mannlíf og styðst við heimildir sem til eru um æsku Kjarvals á Borgarfirði og sögur af veru hans þar sem lista- manns. Til viðbótar við sögusýning- arnar er sérstök sýning á mál- verkum sem Kjarval vann á Borgarfirði og tengjast firðin- um á einn eða annan hátt. Sú sýning er í Vinaminni, félags- heimili eldri borgara. Einnig hefur eftirprentunum af þrem- ur þekktum verkum Kjarvals verið komið fyrir á jafn mörg- um stöðum úti undir berum himni, en verkin málaði Kjarval á þessum stöðum. Þannig er hægt að upplifa stemninguna sem ríkti hjá listamanninum við málun þess- ara verka. Að kvöldi opnunardags Kjar- valsstofu frumsýnir Leikfélag- ið Vaka leikverkið „Gilligogg“, sem fjallar um tímann sem Kjarval dvaldi á Borgarfirði og málaði altaristöfluna sem prýð- ir Bakkagerðiskirkju. Leik- verkið sömdu þeir Ásgrímur Ingi Arngrímsson og Andrés Sigurvinsson. Kjar- valsstofa opnuð Jóhannes Sveins- son Kjarval listmálari. Jómfrúin: Á fjórðu tónleikum sum- artónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu, kemur fram kvartett trommuleik- arans Kára Árnasonar. Auk Kára skipa kvartettinn þeir Sigurður Flosason saxófónleikari, Ómar Guð- jónsson gítarleikari og Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari. Tónleikarnir hefjast kl. 16 og standa til kl. 18. Leikið verður utan dyra á Jómfrúartorginu ef veður leyfir, en annars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis. Stúdentakjallarinn: Trio Fleece, eða Flís upp á íslensku, sam- anstendur af þremur ungum jazz- leikurum sem fyrir tveimur árum léku fyrir Íslands hönd í sam- norrænni keppni jazzungliða á Jazzhátíð Reykjavíkur. Tríóið skipa: Davíð Þór Jónsson á píanó, Valdi- mar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa og Helgi Svavar Helgason á tromm- ur. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Í LAXÁRSTÖÐ verður opnuð í dag, laugardag, sýning á verk- um Hallsteins Sigurðssonar myndhöggvara. Sýningin nefnist „Hvað er með Ásum?“ og byggist á nor- rænum goðsögum. Sýningin verður opnuð kl. 14. Höggmyndum Hallsteins er komið fyrir í göngum og hvelf- ingum Laxárstöðvar, og segir í fréttatilkynningu að þessu megi líkja við ferð úr mannheimum í goðheima og til baka aftur. Árni Björnsson þjóðhátta- fræðingur hefur útbúið rit um goðin og heim þeirra sem gestir geta kynnt sér á sýningunni. Sýningin er útbúin þannig að upplýsingar eru aðgengilegar bæði á íslensku og ensku. Að- gangur er ókeypis og öllum heimill. Sýningin verður opin síðdegis alla daga í sumar. Á virkum dögum frá klukkan 13 til 17 og frá klukkan 13 til 18 um helgar. Ein af höggmyndum Hall- steins Sigurðssonar sem sýnir í Laxárstöð. List við Laxá NÝR geisladiskur Guðnýjar Guð- mundsdóttur konsertmeistara er kominn út hjá Polarfonia Classics útgáfunni. Á diskinum leikur Guðný einleiks- verk fyrir fiðlu, að stórum hluta ís- lenska tónlist en auk þess eitt verka J. S. Bachs. Fyrst flytur Guðný Prelúdíu og tvö- falda fúgu við stafina B-A-C-H eftir Þórarin Jónsson. Um er að ræða frumflutning verksins á geisladiski. Þá leikur Guðný einleikssónötu Bach í g-moll. Næst kemur Sónata Hallgríms Helgasonar og að lokum Offerto eftir Hafliða Hallgrímsson. Í fréttatilkynningu segir að með því að leika með íslensku verkunum einnig verk Bachs sé gefin for- vitnileg sýn á tengsl íslenskrar tónlistar við verk eldri og þekktari höfunda Útgáfuna til- einkar Guðný minningu læriföður síns, forvera í starfi konsertmeistara og góðs vin- ar, Björns Ólafssonar fiðluleikara, en hann hefði orðið 85 ára á þessu ári. Upptaka var gerð af Ríkisútvarp- inu og diskurinn gefinn út í sam- vinnu RÚV og Polarfonia Classics ehf. Upptökustaður var Seltjarnar- neskirkja árið 1999 og tónmeistari Bjarni Rúnar Bjarnason. Geisladiskur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.