Morgunblaðið - 22.06.2002, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 35
sríkar og
nndar og
ir sem
aðeins til
t þarf sí-
meta ár-
ðningsað-
um tíma í
aðstæður
byggðar-
ðastefna á
nna hlut-
ipuleggja
f á þróun
orgarana.
nbera hafi
ndinu má
fernt og
ingu auð-
na og að-
n.
rðar
stofnunar
nunarinn-
r. á árinu
námu um
m áramót
mild 1.100
st yfir á
ár munu
400 millj-
lán munu
m króna í
megi ráð
fseminnar
m og að
rreikning
nauðsyn-
tapi. 276
nlega af-
voru það
t lán, sem
r lánveit-
00, að því
lunni. 509
l gjalda á
ramlaga í
afskriftarreikning og 64 milljónir
kr. vegna niðurfæslu á hlutafjár-
eign. Hlutfall afskriftarsjóðs af
heildarútlánum nam 12% í árslok.
Þá kemur fram að ríkisframlag
til Byggðastofnunar nam tæpum
622 milljónum kr. á árinu 2001 og
þar af nam framlag til fjárfestinga
í eignarhaldsfélögum á lands-
byggðinni 300 milljónum kr., sér-
stakt framlag í afskriftarreikning
50 milljónum kr. og framlag til átta
atvinnuþróunarfélaga á lands-
byggðinni 103 milljónum kr. Þetta
er í þriðja skipti sem stofnunin fær
300 millj. kr. ríkisframlag til að
leggja fram sem hlutafé í svæð-
isbundnum eignarhaldsfélögum, en
í ár er gert ráð fyrir að framlagið
verði 200 milljónir kr. Fram kemur
að ekki tókst að ráðstafa öllu fram-
laginu vegna þess að mótframlög
fengust ekki. Sérstaklega hafi ver-
ið erfitt að afla mótframlaga á
Austurlandi og Vestfjörðum en um
síðustu áramót hafi 516 millj. kr.
verið óráðstafað af fjármunum sem
ætaðir séu til eignarhaldsfélaga.
Sameina á Byggðastofnun
og Nýsköpunarsjóð
Kristinn H. Gunnarsson, fráfar-
andi stjórnarformaður Byggða-
stofnunar, sagði í ávarpi sínu með-
al annars að hann teldi að sameina
ætti Byggðastofnun og Nýsköpun-
arsjóð atvinnulífsins. Við það feng-
ist sjóður með mikla útlánagetu
sem fjárfesti einnig í atvinnulífinu
með beinum hætti og þannig væri
hægt að samhæfa aðgerðir til upp-
byggingar í atvinnulífi og beita lán-
veitingum, hlutafjárkaupum og
styrkveitingum með samræmdum
hætti.
Í ávarpi hans kom einnig fram
að á stjórnarfundi stofnunarinnar
á fimmtudag var ákveðið að stofn-
unin eignaðist sjónvarpssenda sem
hún átti veð í vegna lána til fyr-
irtækis sem úrskurðað hefði verið
gjaldþrota og myndi hún beita sér
fyrir uppbyggingu dreifikerfis
Sýnar, Skjás eins og Aksjón á Ak-
ureyri í samráði við þessi fyrir-
tæki. Hefði starfsmönnum
Byggðastofnunar verið falið að
undirbúa tillögur um uppsetningu
sendanna á stöðum í dreifbýlinu í
samráði við fyrirtækin. Stefnt væri
að því að útsendingarsvæði Aksjón
geti náð yfir stærri hluta Eyja-
fjarðar en nú er, auk Skagafjarðar
og Þingeyjarsýslna og Húsavíkur.
Norðurljós hefðu lýst áhuga á sam-
starfi um stækkun útsendingar-
svæðis Sýnar þannig að það nái til
Reykhóla, Tálknafjarðar, Bíldu-
dals, Flateyrar, Suðureyrar, Súða-
víkur, Hólmavíkur, Raufarhafnar,
Mývatnssveitar, Stöðvarfjarðar,
Breiðdalsvíkur, Víkur, Kirkjubæj-
arklausturs, auk uppsveita Borg-
arfjarðarsýslu og Árnessýslu.
Þá hefði Íslenska sjónavarps-
félagið óskað eftir viðræðum við
Byggðastofnun vegna stækkunar á
dreifikerfi Skjás eins.
„Þessi ákvörðun stjórnarinnar
markar tímamót að mínu viti.
Ákveðið er að stofnunin beiti sér
með beinum hætti að uppbyggingu
dreifikerfis í dreifbýli og bæti bú-
setuskilyrði fólks á þeim svæðum
sem uppbyggingin nær til, bæði
með því að stækka útsendingar-
svæði stöðva frá Reykjavík og líka
hinu að efla sérstaka sjónarvarps-
stöð á landsbyggðinni. Hinn val-
kosturinn í stöðunni var að selja
tækin og fá greitt inn á lánin sem
hvíla á þeim. Ég er í engum vafa
um að þessi ákvörðun samræmist
fyllilega því hlutverki Byggða-
stofnunar að efla byggð í landinu
og verður íbúum landsbyggðarinn-
ar fagnaðarefni,“ sagði Kristinn.
Hann greindi einnig frá því að
stjórn Byggðastofnunar hefði
fjallað um úthlutun 500 tonna
byggðakvóta þessa árs og verði
stuðst við þær reglur sem stofn-
unin hefði lagt til grundvallar fyrir
þremur árum með nokkrum breyt-
ingum, einkum að því leyti að
meira verði horft til breytinga á
lönduðum eða unnum afla en
breytinga á kvótastöðu „Önnur at-
riði sem athuguð eru eru hlutur
fiskvinnslu og fiskveiða í atvinnu-
lífi byggðarlagsins og breyting á
ársverkum í þessum atvinnugrein-
um, meðaltekjur, fólksfækkun og
íbúafjöldi. Var þróunarsviði stofn-
unarinnar falið að móta reglur í
samráði við sjávarútvegsráðuneyt-
ið og stjórn Byggðastofnunar og
lögð rík áhersla á að hraða málinu
og horft verði til þess að nokkrir
staðir búa við sérstakan vanda í at-
vinnumálum vegna samdráttar í
sjávarútvegi og að þörf er á að
bregðast skjótt við. Þar eru helstir
Patreksfjörður, Þingeyri, Hrísey,
Raufarhöfn, Breiðdalsvík og Sand-
gerði,“ sagði Kristinn.
Átti ekki frumkvæði
að opinberri umræðu
Hann gerði einnig að umtalsefni
ástæður þess að hann hefði ákveðið
að gefa ekki kost á sér til setu í
stjórn stofnunarinnar og sagðist
vilja láta það koma rækilega fram
að hann hefði ekki átt frumkvæði
að opinberri umræðu um málefni
stofnunarinnar undanfarnar vikur
og hefði leitast við að gæta hófs í
ummælum, lagt ríka áherslu á að
ágreiningsefni eigi að leysa innan
stofnunar og með því að menn virði
hlutverk hvers annars og hefði
aldrei útilokað möguleika á lausn
mála eða samstarfi við nokkurn
mann.
„Ég hef lagt áherslu á eðli stofn-
unarinnar, lögboðið hlutverk
stjórnar og að hún eigi að taka
ákvarðanir sem embættismenn
eigi að framfylgja hvað sem líður
þeirra skoðun á ákvörðun stjórnar.
Öðru vísi getur þessi stofnun ekki
starfað.
Í minn garð hefur margt verið
sagt sem er meiðandi, ósæmilegt
og ósatt og til þess fallið að rýra
traust á mér sem stjórnmála-
manni. Ég vænti þess að fólk muni
að virtum atvikum hvers máls
komast að sanngjarnri niðurstöðu
um störf mín.
Ég mun halda áfram að hafa af-
skipti af byggðamálum og vinna að
hagsmunamálum fólks á lands-
byggðinni. Ósanngirni og óréttlæti
eru enn til staðar í ríkum mæli og
tækifæri og möguleikar blasa víða
við og á þessum akri er mikið verk
að vinna ekki hvað síst fyrir mann
sem grundvallar skoðun sína á
stefnu samvinnu og jafnaðar,“
sagði Kristinn.
stofnunar sem haldinn var í Hnífsdal í gær
valdmörkum
kvæmdastjóra
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
H. Gunnarsson, fráfarandi formaður stjórnar,
einsdóttir og Orri Hlöðversson stjórnarmenn.
aði árs-
.
Ragnheiður Kristjánsdóttir
sagnfræðingur fór snemma
í námi sínu að velta fyrir sér
þjóðerni. Í kjölfarið fylgdi svo kommúnisminn,
þar sem hún segir kenningar hans í eðli sínu and-
stæðar þjóðerni. Hún skrifaði ritgerð til meistara-
gráðu við Cambridge um skoska kommúnista og
þjóðerni, en nú er hún að vinna að doktorsritgerð
um kommúnisma og íslenskt þjóðerni frá byrjun
síðustu aldar fram til 1944.
Ragnheiður hélt fyrirlestur í mars, sem bar
heitið „(Ó)þjóðlegt fólk“, en titillinn vísaði til þess
álits margra andstæðinga kommúnista, að mál-
staður þeirra væri í raun svik við þjóð þeirra og
ættland.
Hér á landi var veikburða jafnaðarhreyfing allt
frá um 1900, þegar verkalýðsfélög létu á sér
kræla. Alþýðuflokkurinn var stofnaður 1916, en
eftir byltinguna í Rússlandi 1917 skerptust línur í
umræðunni hér á landi. „Þá fóru ýmsir að trúa því
að sósíalísk bylting væri leiðin til framfara fyrir
íslenska alþýðu og reyndar mannkynið allt. Ég
hef skoðað hvers konar andstöðu þessi hópur
mætti, en þar er áberandi að kommún-
istar voru sagðir óþjóðlegir.
Það var ekki síst með þessum hætti
sem andstæðingar þeirra reyndu að
koma í veg fyrir að hópurinn næði að
festa rætur sem sannfærandi kostur í ís-
lenskum stjórnmálum, og það þarf ekki
að koma á óvart því mikilvægasta við-
miðið í stjórnmálunum á þessum tíma
var sjálfstæði Íslendinga.“
Frá sjónarhóli andstæðinga sinna
voru kommúnistar óþjóðlegir í þrenns
konar skilningi. Í fyrsta lagi voru þeir
boðberar sósíalískrar byltingar. Þeir
stefndu að því að hrifsa til sín ríkisvaldið
og afnema einkaeignarréttinn og ógn-
uðu sem slíkir tilvist íslenska ríkisins. Í
öðru lagi var svo reynt að sýna fram á að
stéttahugsun í íslenskum stjórnmálum
ógnaði þjóðerninu. Um leið og fór að
votta fyrir sósíalískum hugmyndum í ís-
lenskum stjórnmálum, fyrir fyrri heims-
styrjöld, var þessum rökum haldið á lofti,
að á Íslandi væri ekki jarðvegur fyrir
sósíalisma vegna þess að hér væri svo lít-
ill munur á fátækum og ríkum.
„Í blöðum, sem komu út á þriðja áratug
síðustu aldar, er svo að finna greinar, þar
sem því er ekki eingöngu haldið fram að
Íslendingar hafi ekkert með sósíalismann
að gera, heldur sé hann beinlínis hættulegur þjóð-
inni. Í því sambandi var stundum vísað til land-
námsmannanna. Gott dæmi um þetta er grein eft-
ir Jón Þorláksson í Eimreiðinni árið 1926. Hann
sagði forfeður Íslendinga hafa verið frjálslynda
íhaldsmenn, sem hafi flúið ofríki Haralds hár-
fagra. Haraldur hafi verið eins og íslenskir jafn-
aðarmenn, umrótsamur stjórnlyndismaður sem
vildi auka ríkisvaldið og takmarka einstaklings-
frelsið undir því yfirskini að það þjónaði hags-
munum heildarinnar. Það er ekki laust við að
Haraldur taki á sig mynd Leníns. Jón heldur því
fram að landnámsmennirnir hafi flúið undan þess-
um stjórnarháttum og stofnað hér ríki til að varð-
veita einstaklingsfrelsið. Með því að boða sósíal-
isma væri því grafið undan þjóðerninu.“
Ragnheiður segir að þessi gagnrýni hafi ekki
eingöngu beinst að kommúnistum eða þeim sem
fylgjandi voru bolsévískri byltingu, heldur al-
mennt að vinstri stefnu á Íslandi. Oft sé erfitt að
greina viðhorfin í sundur framan af öldinni, þegar
aðeins einn vinstri flokkur hafi verið hér á landi.
Þriðju rökin fyrir því að íslenskir kommúnistar
væru óþjóðlegir áttu hins vegar eingöngu við um
þá. Þau snertu umdeild tengsl kommúnista við
Moskvu. „Þeir áttu sér í vissum skilningi annað
föðurland. Í hugum kommúnista voru Sovétríkin
bæði lykill byltingarinnar og almennra framfara
og þótt tilraunin til að byggja stéttlaust samfélag
gengi ekki alltaf snurðulaust litu þeir svo á að til-
vist Sovétríkjanna væri forsenda fyrir útbreiðslu
byltingarinnar og því fannst þeim mikilvægt að
halda tryggðinni. Á þessum forsendum gat, svo
dæmi sé tekið, Jónas frá Hriflu kallað kommún-
ista ættjarðarlausa menn sem lytu erlendu valdi
og hvatt sanna Íslendinga til að fylkja liði gegn
þeim.“
-----
Róttækir vinstri menn þessa tíma glímdu við
þann vanda að þýða stefnuna frá Moskvu yfir í ís-
lenskt samhengi, sem gat reynst þrautin þyngri.
„Árið 1930 urðu vatnaskil þegar Kommúnista-
flokkurinn var stofnaður. Þá þurfti flokkurinn að
finna leiðir til þess að verða sannfærandi kostur í
íslenskum stjórnmálum og glíma, meðal annars,
við þau gagnrýnu viðhorf sem fram voru komin.
Hann þurfti að finna sér traustvekjandi tón og
það einkenndi málflutning flokksins á fjórða ára-
tugnum. Þetta var væntanlega það sem allir
flokkar á Íslandi glímdu við, en fyrir kommúnista
var þetta sérstaklega snúið, því þeir höfðu sett sér
það vandasama verkefni að berjast á tvennum
vígstöðvum. Kommúnistaflokkurinn var deild í al-
þjóðlegum samtökum og hafði sem slíkur skyld-
um að gegna, en vildi samt ekki vera álitinn mál-
pípa erlendrar hreyfingar. Það skipti máli fyrir
gengi flokksins að hann gæti sett fram stefnu sem
var skiljanleg í heimalandinu, og flestum komm-
únistaflokkum í nágrannalöndum okkar mistókst
þetta. Þeir töluðu tungumál sem þeim var kennt í
Moskvu og hljómaði oft framandi í innlendu sam-
hengi. Í málflutningi íslenskra kommúnista má
finna dæmi sem sýna misvelheppnaða glímu
flokksmanna við þetta vandamál og með nokkurri
einföldun get ég fullyrt að kommúnistar hafi verið
stirðastir í þessu fyrst, en liðkast þegar á leið.
Á fjórða áratugnum varð Kommúnistaflokkur-
inn smám saman liðugri í því að þýða Moskvulín-
una yfir á skiljanlega íslensku. „Einar Olgeirsson
setti kommúnismann alltaf í samhengi við ís-
lenska sögu, allt frá því að hann hóf að skrifa sem
kommúnisti á þriðja áratugnum. Sumir flokks-
bræður hans voru hins vegar lengur að tileinka
sér þá aðferð til að koma stefnunni á
framfæri, en eftir því sem á leið varð
framandi orðfæri og málflutningur
minna áberandi. Þetta kom reyndar ekki
bara til af því að þeir hefðu batnað með
æfingunni því stefna alþjóðahreyfingarinnar
breyttist á sama tíma í sömu átt. Upp úr 1935 lét
Moskva þau boð út ganga að kommúnistar ættu
að vera þjóðlegri í málflutningi sínum. Sú stefnu-
breyting átti meðal annars rætur að rekja til upp-
gangs Hitlers í Þýskalandi og þess stuðnings sem
hann naut hjá alþýðu.“
En voru kommúnistar óþjóðlegir upp til hópa?
Ragnheiður segir að það megi finna dæmi um að
íslenskir vinstri menn hafi haft ýmsar hugmyndir
sem voru á skjön við þjóðernisumræðuna, og
kannski ekki síst á upphafsárum Alþýðuflokksins,
en að erfitt sé að halda því fram að þetta hafi ein-
kennt alla í hreyfingunni. Dæmi eru um að menn
hafi velt fyrir sér hvort varðveita ætti íslenska
tungu, þegar þróunin hlyti að verða sú að allir töl-
uðu eitt tungumál, enda væri það hagkvæmast.
„Einstaka sinnum var vegið markvisst að öðrum
helgum gildum, eins og t.d. þegar kommúnistar
lýstu því yfir að þjóðveldið hefði verið stórhættu-
legt stjórnarfyrirkomulag. Þegar á heildina er lit-
ið og sérstaklega þegar maður ber íslenska
kommúnista saman við félaga þeirra erlendis,
voru þeir hins vegar langt frá því að vera óþjóð-
legir. Þeir drógu dám af því þjóðernissinnaða and-
rúmslofti sem þeir höfðu alist upp í.“
Ragnheiður segir að myndun Nýsköpunar-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins, Sósíalistaflokksins
og Alþýðuflokksins árið 1944 hafi falið í sér við-
urkenningu á því að róttæk vinstri hreyfing væri
alvöru stjórnmálaafl sem skipti máli á Íslandi, en
ekki einungis málpípa óþjóðlegra hugmynda. Hér
skipti reyndar máli að hreyfingin hafði myndað
nýjan flokk með broti úr Alþýðuflokknum, en líka
að á þessum tíma var Stalín í liði með Banda-
mönnum gegn Hitler. Með myndun Nýsköpunar-
stjórnarinnar hafði róttæk vinstri hreyfing því
komist inn á miðju íslenskra stjórnmála og þar við
sat. „Á kaldastríðsárunum breyttist afstaðan til
flokksins aftur. Í átökunum um NATO stillti Sós-
íalistaflokkurinn sér beinlínis upp sem þjóðern-
issinnaður flokkur, sem stæði vörð um sjálfstæði
landsins og þótt gera megi ráð fyrir að kjósendum
hans hafi fundist hann sannfærandi í því hlutverki
sökuðu andstæðingarnir flokkinn sem fyrr um
Moskvuhollustu. Þetta varð mjög eldfimt atriði í
stjórnmálaumræðunni og enn eru menn ekki á
eitt sáttir um sannleikann í því máli.“
Eftir Ragnhildi
Sverrisdóttur
RAGNHEIÐUR Kristjánsdóttir: Íslenskir
kommúnistar lærðu smám saman að
þýða Moskvulínuna yfir á skiljanlega ís-
lensku.
Ljósmynd/Sigurður Tómasson, Þjóðminjasafn Íslands
rsv@mbl.is
(Ó)þjóðlegir komm-
únistar á Íslandi