Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 43

Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 43 EINS og sjálfsagt allflestir aðrir fylgdist ég með komu Falun Gong annars vegar og Kínaforseta hins vegar hingað til lands og verð ég því miður að segja að ég varð fyrir heldur miklum vonbrigðum. Ég var að velta því fyrir mér hvort þessi fram- kvæmd af hálfu stjórn- valda átti að vera gott innlegg í umræðuna, þ.e.a.s. hvernig tilvera hins frjálsa heims væri í framkvæmd, byggðist upp og gæti viðhaldist í framtíðinni? Og þannig gott innlegg til komandi kynslóða eða dæmi um hvernig varðveita og vernda á hinn frjálsa heim? Kannski hefur þetta allt saman átt að ganga út á að flýta fyrir komu Kína inn í hinn frjálsari heim en ég skil hins vegar ekki alfarið skilaboðin. Og burtséð frá því hvort við erum öll sammála því sem t.a.m. Falun Gong iðkendur eru að boða eður ei er grundvallarregla skoðana- og tjáningarfrelsis samt sem áður það sem meginmáli skiptir í þessu. Þeim atriðum áttum við að ganga út frá og fylgja í þessu tilfelli og þannig áttum við að sýna vilja okkar í verki sem þjóð, og á þeim grunni eiga heimsóknir til okkar að byggjast þótt slíkt sé ekki ávallt vandalaust að sjálf- sögðu. Þá vissu allir að hverju þeir gengju og mundu fremur sætta sig við þær forsendur sem við gefum ef þeim er boðið hingað á annað borð sem má síðan einnig deila um hvort sé réttmætt eða ekki. Viðkomandi aðilar verða að hlýta okkar leikreglum sem frjálsrar þjóðar svo framarlega sem allur sómi er sýndur þeim sem hingað koma að öðru leyti hvort sem um er að ræða þjóðhöfðingja eða aðra. Ég held að við viljum síst af öllu hverfa til meira heftra aðgerða á þessum svið- um sem öðrum og eflast fremur í átt til aukins frelsis og mannvirðingar. Ef við Íslendingar teljum okkur á einhvern máta útverði frelsis verðum við að koma fram með þeim hætti. Annað er aðeins tímaskekkja og gefur einungis röng skilaboð og að unnt sé að beita ófaglegum vinnubrögðum í hinum „frjálsu“ samfélögum og að ekkert sé í raun sjálfsagðara og eðli- legra. Ég er ánægður með þá sem höfðu vilja til að tjá hug sinn í þessu þótt slíkt fæli að sjálfsögðu sjálfkrafa í sér gagnrýni á stjórnvöld og hvernig þau stóðu að málum. Þessir einstaklingar sýndu nefnilega og sönnuðu að við lifum enn í heimi frjálsrar tjáningar. Það er jú ekki alveg nóg að gefa ýmislegt til kynna í orði en hopa svo þegar til á að taka. Í þessu sam- bandi viljum við t.a.m. vera virk hvað varðar ástandið um friðar- og frelsisumleitanir í Mið- austurlöndum og í því skyni hefur meðal ann- ars Halldór Ásgrímsson heimsótt þetta svæði nýlega sem var að mínu mati verulega gott framtak. Ef við viljum samt sem áður vera tekin trú- anleg eða á einhvern hátt alvarlega í slíkum málum verða gjörðir að fylgja orðum annars verður ekkert mark á innleggi okkar Íslendinga tekið á al- þjóðavettvangi. Ég held að það sé nokkuð ljóst. Við einfaldlega verðum ekki trúverðug. Hvað viðkemur öryggisatriðum og að ferðafrelsi Falun Gong hafi verið heft af þeim sökum er sú ályktun og ákvarðanataka byggð á grundvallar- misskilningi. Þó að ég sé ekki með- limur í Falun Gong eða tali fyrir munn þeirra á einn eða neinn hátt þá býður hugmyndafræði þessara ein- staklinga ekki upp á valdbeitingu eða ofbeldi. Þetta hefur sýnt sig og hefði verið unnt að ganga betur úr skugga um ef íslensk stjórnvöld hefðu ekki verið svona upptekin við að fara að óskum Kínaforseta og athafnað sig að því er ég best fæ séð í skjóli öryggis- sjónarmiða til að ná fram gefnum markmiðum. Það sem átti að hafa í huga öðru fremur var hvað í raun stæði að baki þeirra umleitana að Fal- un Gong-meðlimir yrðu ekki á svæð- inu. Ég held að flestir geri sér grein fyrir að aðgerðir voru ekki gerðar af öryggisástæðum heldur fremur í skjóli þeirra og notað sem afsökun fyrir aðgerðum. Ég geri mér hins vegar grein fyrir að gæta þarf örygg- isatriða í einu og öllu en slíkar aðgerð- ir eiga að taka mið af hverju einstöku máli fyrir sig en ekki byggjast á fljót- færnis- og að því er virðist allt að því geðþóttaákvörðunum af hálfu þeirra sem með þau mál fara. Ég vil ítreka það að ég tala ekki fyrir hönd Falun Gong. Ég vil einnig taka það fram að eftir að hafa kynnt mér örlítið hugmyndafræði þeirra er ég ekki endilega sammála því sem ég hef séð þó að ég hafi komið auga á ýmsa jákvæða þætti. En í því felast eiginleikar hins frjálsa samfélags og ólíkra skoðanaskipta. Málið snýst nefnilega ekki um í þessu tilfelli hvort ég er sammála eða ósammála. Málið snýst fyrst og fremst um að frjáls tjáning og skoðanaskipti séu í heiðri höfð svo framarlega sem slík sjónar- mið skaða ekki aðra að sjálfsögðu. Og því opnara sem samfélag er að þessu leyti þó að menn deili á, því heilbrigð- ara er það. Slík hefur ávallt verið raunin þegar allt kemur til alls vegna þess að hvers kyns höft og skoðana- þvinganir eru þeir þættir sem valda hinni raunverulegu hættu. Ég tel þannig að opnar umræður og samskipti byggi síður upp sam- félög ofbeldis og þröngt afmarkaðrar hugmyndafræði þó að slík samfélög séu síður en svo alveg gallalaus að sjálfsögðu og verði örugglega seint. En af tveimur kostum eru frjáls tján- ing og frjáls samskipti það sem mestu máli skiptir í þessum efnum og fær okkur allavega til að eiga möguleika á skárri kostinum. Þorsteinn Ólafsson Tjáning Málið snýst um að frjáls tjáning og skoðanaskipti, segir Þorsteinn Ólafs- son, séu í heiðri höfð. Höfundur vinnur við nýsköpun. Falun Gong og frelsi GETUM við ekki verið sammála um að mikið áfall sé að eign- ast fatlað barn? Vonum við ekki öll að litli eng- illinn sem bætast mun við fjölskylduna okkar sé „heill“ bæði andlega og líkamlega? Við mun- um öll svara þessum spurningum játandi, það er víst. Allt annað mál er svo ástin, gleðin, þroskinn og breyttu viðhorfin sem samvistir við fatl- aðan einstakling færa okkur. Slíkt þarf að upplifa til að skilja fylli- lega. Er ekki stórkostlegt að til sé staður á Íslandi, „samfélag“, þar sem fatlaðir njóta fullra mannréttinda á við hina sem voru við fæðingu „þeir heilu“? Staður, þar sem fólk er ekki flokkað sem „þroskaheft“ eða „heil- brigt“. Þar sem fólk er saman að störfum. Hver og einn hefur vinnu við sitt hæfi og fær þóknun fyrir störf sín. Staður, þar sem allir íbúar hefja daginn saman með morgun- söng og vöðvateygjum áður en tekið er til starfa, fara svo öll saman til há- degisverðar og snæða sama mat og sama drykk í sömu borðstofu. Stað- ur, þar sem vináttan ríkir og bros eru engin munaðarvara. Allir eru jafnir, því hlutverkin sem fólkið gegnir eru öll jafnmikilvæg fyrir samfélagið sem það er hluti af. Þegar Bergmálsfélagar komu til Sólheima í Grímsnesi vorið 1998 þeirra erinda að bjóða langveiku fólki í orlofsdvöl þangað, því að kostnaðarlausu, fund- um við þennan stað. Þennan undra- stað sem tók okkur opnum örmum. Þá tilfinningu höfðum við þegar ekið var niður brekkuna heim að Sól- heimum og þá fullvissu eigum við í dag. Níu sinnum á fimm árum hefur Bergmál, líknar- og vinafélag, leigt gistiheimilið Brekkukot og Veghús til starfsemi sinnar og kynni okkar og íbúa Sólheima eru bæði mikil og góð. Á þessum fimm árum sem við höfum verið meira og minna á staðn- um, hefur virðing okkar fyrir sam- félaginu á Sólheimum aukist mikið. Var hún þó ærin fyrir. Staðreyndin er bara sú að fyrst þarf að afla sér þekkingar á málefninu áður en skoðun er full- mótuð. Ég get ekki annað séð en vinir mín- ir á Sólheimum séu hamingjusamir og að þeim líði vel. Nokkrir eiga við veikindi að stríða sem ekki finnst lækning við, en ég get fullyrt að lyf sam- kvæmt læknisráði og umhyggja eru veitt jöfnum höndum svo ekki væri betur gert annars staðar. Sól- heimar veita sínu fólki ánægjulega lífsum- gjörð. Það býr á sínum heimilum með sína eigin muni í kringum sig og það getur allt sinnt sínum áhugamálum. Það ferðast, meira að segja til útlanda, og margs- konar þjónusta og aðstaða til afþrey- ingar er á staðnum. Það nýjasta í þá veru er hin glæsilega heilsuræktar- stöð sem Lionsklúbburinn Ægir gaf svo rausnarlega til, enda eru þeir sem hann skipa einstakir velgjörð- armenn Sólheima. Íþróttakennari er þarna í fullu starfi og kennir hann og þjálfar alla þá er það kjósa. Keppn- isferðir eru farnar út á land og eru þá leigðir áætlunarbílar fyrir hópinn. Mig minnir að einhver hafi nýlega í blaðagrein haft áhyggjur af að heim- ilisfólk Sólheima væri félagslega ein- angrað vegna skorts ökutækja á staðnum. Ég get upplýst að marg- sinnis hef ég séð Sólheimafólk á far- aldsfæti, hinna ýmsu erinda, og áreiðanlega er heppilegra að leigja rútu til hópferða en fjárfesta í einni slíkri, enda er hagsýni í heiðri höfð á Sólheimum. Sundlaug og heitur pottur eru á staðnum og hvort tveggja mikið notað. Heimilisfólk getur líka komist reglulega til fót- snyrta, nuddara og hárgreiðslufólks og þarf ekki að fara af staðnum til þess. Sólheimar eiga leikhús. Þar hafa færustu manneskjur lagt hönd á plóg við uppfræðslu margvíslegra verkefna og íbúar Sólheima í sam- einingu skapað listaverk. Nú síðast eftirminnilega sýningu á „Hárinu“ með gleðigjafann góða Eddu Björg- vinsdóttur við stjórnvölinn. Og síðast en ekki síst er félagsmiðstöð og kaffihús komið á Sólheima. Gamla gróðurhúsið hefur fengið nýtt hlut- verk og er aðlaðandi vistarvera fyrir íbúana, gesti og gangandi. Þar hef ég átt ánægjustundir með vinum mínum úr hópi heimamanna og veit að þeir eru harla glaðir með þetta framtak. Er ekki gott að sam- félagið þarna er ein stór fjölskylda þar sem hver einasti er hlekkur í sömu keðju og allir jafnmikilvægir? Þar sem hlýja og vinátta er ríkjandi. Og mér er spurn: vitið þið um mann- vænna og betra samfélag sinnar teg- undar en er á Sólheimum? Erum við ekki gæfusöm að Sesselja, sú stór- merka hugsjónakona, sem varð fyrir hverskonar aðkasti og aðfinnslum stjórnvalda, skuli hafa borið gæfu til að stofnsetja og starfa að hugsjón sinni á Íslandi. Sólheimar eru fjör- eggið hennar. Og af hverju spyr eng- inn heimilisfólk Sólheima hvað því finnst? Þeim sem þar búa er treyst til að kjósa bæði til sveitarstjórnar og Alþingis. Er ekki líka hægt að treysta þeim til að segja frá því hvernig þeim líður á Sólheimum? Er það ekki það sem öll þessi umræða snýst um. Ættum við ekki að þakka forráðamönnum og starfsfólki Sól- heima þau frábæru störf sem þar eru unnin, fremur en að gagnrýna í tíma og ótíma og jafnvel væna fólk um óheiðarleika? Vilduð þið vera í þeirra sporum nú? Við skulum ekki gera öðrum það sem við sjálf viljum ekki að okkur sé gert. Og ættum við ekki að hjálpast að við að varðveita fjör- eggið á Sólheimum og verja það brestum? Eiga ekki Sesselja og allir íbúar Sólheima það skilið af okkur öllum? Sláum skjaldborg um Sólheima í Grímsnesi Kolbrún Karlsdóttir Höfundur er formaður Líknar- og vinafélagsins Bergmáls. Sólheimar Ættum við ekki að hjálpast að við að varð- veita fjöreggið, segir Kolbrún Karlsdóttir, og verja það brestum? Í VOR var sýndur í Sjónvarpinu þáttur um mannréttindabaráttu í Malasíu. Inntak þáttar- ins var að alþjóðlegir auðhringir í landinu svifust einskis til að kreista aukinn hagnað úr vinnandi fólki. Jafn- vel kæmi fyrir þar í landi að fólk væri þving- að til að vinna lengur en sólarhring samfellt. Hneykslast var á því að slík mannréttindabrot skyldu líðast í þróunar- löndum. Árið 1921 voru vöku- lögin samþykkt á Al- þingi Íslendinga. Ástæða þeirrar lagasetningar var að íslensku þjóðinni misbauð vinnuálag sjómanna, sem látnir voru sinna erfiðum störfum án þess að lágmarkshvíld væri tryggð. Í dag, rúmum 80 árum síðar, hljómar það hálf undarlega í okkar eyrum að setja hafi þurft lög til að tryggja vinn- andi fólki jafn sjálfsögð mannréttindi og að fá að hvílast. Á síðari árum hef- ur öllum vinnandi stéttum landsins verið tryggð lágmarkshvíld sam- kvæmt kjarasamningum og innan EES er í gildi vinnutímatilskipun sem kveður á um 48 klst. hámarksvinnu- viku. Hinn 2. maí sl. undirrituðu ríkis- valdið og Læknafélags Íslands (LÍ) nýjan kjarasamning sem felur í sér tímamót hvað hvíldarákvæði varðar hér á landi. Samninga- nefnd LÍ hafði gengið til viðræðna við fulltrúa ríkisins fyrir hönd allra sjúkrahúslækna, bæði lækna með sérfræðivið- urkenningu, sem og unglækna án sérfræði- viðurkenningar. Helsta nýjungin við kjarasamninginn er að öll vinnutímaákvæði fyrri kjarasamninga voru felld út hvað varð- ar unglækna. Áður var reynt að tryggja lág- markshvíld með ákvæð- um um að minnsta kosti 8 klst. hvíld á milli vakta, auk þess sem réttur til frítöku vannst inn færi yfirvinna yfir ákveðin mörk. Þessi sjálfsögðu ákvæði er hins vegar ekki að finna í nýgerðum kjara- samningi. Undirriti unglæknir ráðn- ingasamning við sjúkrahús í dag, samkvæmt samningnum, hefur stofn- unin fullt vald til þess að krefjast þess að viðkomandi vinni 12 sólarhringa samfellt, án einnar mínútu í hvíld. Að morgni nýs dags eftir samfellda 24 klst. vinnu er unglækni þar að auki gert að þiggja laun samkvæmt dag- vinnutaxta, ekki er lengur greitt yf- irvinnukaup þar sem kominn er nýr dagur. Sérfræðilæknar greiddu atkvæði um samninginn og samþykktu hann, enda er þeim áfram tryggður hvíld- arréttur í samræmi við EES, auk þess sem þeir fengu hlutfallslega mun meiri launahækkun en unglæknar. Hinn nýgerði kjarasamningur er í hróplegu ósamræmi við þá þróun sem átt hefur sér stað á Vesturlöndum undanfarin ár. Læknar hafa krafist þess að vinnutími þeirra sé innan skynsemismarka, auk þess sem sjúk- lingar neita í vaxandi mæli að vanda- málum þeirra sé sinnt af útkeyrðum lækni í lok sólarhringsvaktar. Vegna langrar hefðar fyrir vinnuálagi ung- lækna hefur víða verið veittur frestur á gildistöku vinnutímatilskipunar EES til að unnt væri að aðlaga starf- semi sjúkrahúsanna í smærri skref- um. Hér hefur hins vegar verið tekið stórt skref aftur á bak og afnumin öll fyrri ákvæði í kjarasamningi um hversu lengi megi gera lækni að vinna samfellt. Það er til skammar fyrir læknastéttina, sem ætti að vita best hver takmörk líkama og sálar eru, að LÍ skuli hafa tekið þátt í gerð slíks samnings sem varpar lágmarks- mannréttindum sinna félagsmanna fyrir róða. Þar sem ljóst var að samningurinn var algerlega óviðunandi fyrir ung- lækna neitaði fulltrúi okkar að sam- þykkja hann fyrir hönd Félags ungra lækna (FUL) og hinn 10. maí sam- þykkti félagsfundur FUL úrsögn úr LÍ. Á grundvelli þess að FUL er ekki aðili að samningnum höfum við óskað eftir viðræðum við ríkið sem sjálfstæð- ur samningsaðili. Krafist verður sam- bærilegrar launahækkunar á við aðra lækna, en mikilvægast er þó, að ákvæði um lágmarkshvíld séu virt. Þetta mál er fremur farið að snúast um mannréttindabaráttu en kjarabaráttu. Þar sem engin merki eru um að komið verði til móts við kröfur okkar hafa unglæknar neyðst til þess að boða til aðgerða. Þótt Íslendingar vilji ekki telja sig til þróunarlanda verður að teljast ótrúlegt að í dag þurfi að boða til verkfalla til að tryggja vinn- andi fólki mannréttindi hér á landi, líkt og í þriðja heims ríki. Þjóðin varð nýverið vitni að stefnu stjórnvalda gagnvart mannréttindabaráttu í Kína og sú spurning vaknar hversu langt ríkisvaldið ætlar sér að ganga til þess að neita unglæknum um mannrétt- indi. Læknar þurfa líka að sofa. Mannréttindabrot á sjúkrahúsum Hjalti Már Björnsson Unglæknar Þar sem engin merki eru um að komið verði til móts við kröfur okk- ar, segir Hjalti Már Björnsson, neyðast unglæknar til þess að boða aðgerðir. Höfundur er umsjónarlæknir neyðarbíls Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.