Morgunblaðið - 22.06.2002, Side 46

Morgunblaðið - 22.06.2002, Side 46
MINNINGAR 46 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Okkur langar til að minnast Halla afa í nokkrum orðum. Minningarnar eru margar og af miklu að taka en við getum aðeins tæpt á því helsta hér. Eins og flestir af hans kynslóð var afi dugnaðarmaður í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem það tengdist vinnu, fjölskyldunni eða áhugamálum. Afi var sjómaður á yngri árum en við munum eftir hon- um sem netagerðarkarli og bónda. Barnabörnin og seinna barnabarna- börnin fengu sína athygli þegar þau leituðu til hans og alltaf hafði hann áhuga á þeim málefnum sem við ræddum við hann. Afi spilaði á harmoníku og var sjálf- menntaður í þeim efnum. Hann byrj- aði ungur að spila fyrir dansi hér og þar í sveitinni og var vinsæll nikkari. Hann var virkur í Félagi harmon- íkuunnenda á Norðfirði og var sjaldan að sjá að hann væri elsti félaginn þar. Einnig spilaði hann með Félagi harm- oníkuunnenda á Akureyri þegar hann var búsettur þar. Á áttræðisaldri fékk hann áhuga á að læra að skrifa og lesa nótur og gerði það! Hann samdi tónlist og skrifaði upp lögin sín sjálfur. Við systkinin vorum öll í tónlist á yngri árum og fengum ómælda hvatn- ingu og leiðbeiningar frá afa í þeim efnum. Þegar amma og afi fluttust í Eyjafjörðinn tókum við upp þann sið að senda þeim spólur þar sem við sögðum þeim frá því sem á daga okk- ar hafði drifið og svo spiluðum við fyr- ir þau á hin ýmsu hljóðfæri og sung- um. Við höfðum ómælda ánægju af undirbúningnum að þessum upptök- um því við vissum að amma og afi biðu spennt eftir spólunum. Þetta jók einn- ig áhuga okkar á tónlistarnáminu. Fyrstu minningar okkar um afa eru frá Vinaminni í Neskaupstað. Þar bjuggu þau afi og amma á meðan við vorum að vaxa úr grasi. Í Vinaminni var margt brallað. Afi kenndi okkur reikning með kasínuspili, gaf okkur soðnar lappir þegar lifur var í matinn hjá foreldrum okkar og beinakexið var alltaf til á pallsnöfinni. Hann fór með okkur í bíltúra þar sem keyrt var á 20 km hraða og aldrei munu okkur líða úr minni veislurnar sem voru haldnar ár hvert á nýársdag hjá ömmu og afa. Öll börnin þeirra komu með barnabörnin, og barnabörnin komu kannski með gest og allir fengu nóg af kökum og kakói. Allir voru velkomnir. Svo var sungið og afi spilaði með. Það var ótrú- legt að sjá þessa fingur, sem voru orðnir krepptir vegna vinnu frá barns- aldri, spila á harmoníkuna. Afi var síungur. Hann eignaðist ekki alls fyrir löngu gsm-síma og tók það hann ekki langan tíma að læra á hann. Amma og afi voru dugleg að ferðast og fóru jafnan akandi og skipti þá ekki máli hvort farið var til Reyð- arfjarðar eða Reykjavíkur. Þegar afi þurfti að læra að rata í Reykjavík lærði hann bara götukortin í síma- skránni utanbókar. Viljum við enda þessar minningar á ljóði eftir Kristján Stefánsson frá Gil- haga, Munastund, en það var í miklu uppáhaldi hjá afa. Nú sit ég hér þögull og sveipa mig hljótt í sögunnar margslungnu þræði. BJARNI HALLDÓR BJARNASON ✝ Bjarni HalldórBjarnason var fæddur á Gerðis- stekk í Norðfirði 1. október 1921. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 14. júní. Foreldrar hans voru hjónin Bjarni Sigfús- son og Halldóra Jónsdóttir. Bjarni Halldór var sjötti í röð ellefu systkina og eru fjögur enn á lífi. Árið 1943 kvænt- ist Bjarni Halldór eftirlifandi konu sinni, Svanhvíti Sigurðardóttur frá Reyðarfirði, og eignuðust þau átta börn, og er eitt þeirra látið. Útför Bjarna Halldórs verður gerð frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ég kvíði því ekki er kemur þú nótt ég kyrrðina þrái og næði. Og ljósið mitt augnaráð fangað hér fær það flöktir á kerti í stjaka af gusti frá minningu er mér færist nær sú minning ei víkur til baka. Ég greindi öll djásnin sem gæfan svo mörg í götuna mína þá lagði. Ég sá margan gimstein, ég sá marga björg en sagði engum frá því og þagði. Mér finnst að ég ætti mér fjársjóði þar og færi mín samviska að þjaka, þá gaf ég að jafnaði í gáska það svar: Ég gríp þetta er kem ég til baka. En genginni vegferð nú get ekki breytt þó gimsteina vænti þarf fundar. Að stefna til baka það stoðar ei neitt mót straumfalli líðandi stundar. Og ennþá fram tími minn tifar hér ótt svo tæmist hver stund til að vaka ég kyrrðina þrái er kemur þú nótt. Nú kertið er brunnið að stjaka. Daníel, Svanhvít og Stefán. Mig langar að kveðja hann Halla með örfáum orðum, hann var mágur hennar mömmu en ég leit alltaf á hann eins og góðan frænda. Ein af mínum fyrstu minningum um frænda minn er að við fjölskyldan komum í heimsókn í Vinaminni en svo hét heimili hans, og sat hann og var að borða svið, sem ekki er kannski merkilegt, en ég barnið dáðist að því hvað hann hreinsaði vel kjammann og tók hverja einustu örðu og borðaði. En þetta er góð lýsing á hans per- sónuleika, hann passaði vel upp á sitt og kom alltaf heiðarlega fram hvar sem hann kom. Halli sagði aldrei mik- ið en spilaði þeim mun meira á nikk- una og voru það ógleymanlegar stundir, þegar hann tók upp hljóðfær- ið og það var spilað og sungið. Eitt var það þó sem Halli hafði mikinn ímugust á, það var leti og sagði hann oft við mig að iðjusemi væri góður kostur, og það að sitja að- gerðarlaus væri ekki til annars en bölvunar. Oft hef ég hugsað um þessi orð hans þegar mér hefur liðið illa og hef ég þá tekið mér verk í hönd, og viti menn, öll vanlíðan er rokin út í veður og vind. Mig langar að þakka frænda mín- um góð kynni og votta frænku minni, henni Svönu, og fjölskyldu hennar samúð mína. Ingibjörg R. Þengilsdóttir. Elsku afi, mig langar að kveðja þig með nokkrum góðum minningum. Mér er svo margt minnisstætt frá því ég var lítil stelpa og kom í Vina- minni. Sérstaklega eftir nýársveislun- um þar sem dansað var í stofunni, þó lítil væri, og þú spilaðir á harmonik- una af mikilli snilld. Þær voru líka frábærar allar veiði- ferðirnar í Vesturdalsá í Vopnafirði. Ég man svo vel eftir flagginu sem þið amma settuð við gatnamótin þegar þið bjugguð í Búlandi, þá vissum við að þið voruð lögð af stað á Vopna- fjarðarheiðina. Þetta voru svo skemmtilegar ferðir. Það var líka alltaf svo yndislegt að koma í hádeginu þegar ég var ung- lingur og vann í frystihúsinu og fá afa hafragraut, hann var alltaf bestur. Svo var það yndislegt að fá öll blá- berin og krækiberin send suður þegar Stella Hafdís var nýfædd. Og ekki stóð á svörum þegar ég hringdi í þig og bað þig um uppskriftir af sultu. Svona gæti ég lengi haldið áfram, en ég ætla að geyma þær minningar í huga mér. Kær kveðja frá Jóa Steina, Alfreð Þráni og Stellu Hafdísi. Algóður Guð geymi þig og umvefji, elsku afi minn. Þín Svanhvít Alfreðsdóttir. ✝ Daníel Guð-mundur Eyjólfur Sigmundsson fædd- ist á Ísafirði 1. apríl 1916. Hann lést á Sjúkrahúsi Ísafjarð- ar 12. júní síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Júlíana Óla- dóttir og Sigmund- ur Brandsson járn- smiður. Alsystkini hans eru: Þorbjörg, f. 19. sept. 1913, d. 5. okt. 1913; tví- burabróðirinn Óli Jóhannes, d. 7. júní 1998; og Ásta Sigurrós, f. 22. ágúst 1917. Fóstursystir hans var Anna Kristín Björnsdóttir, f. 23. sept. 1908, d. 25. des. 1993. Daníel var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Petrína Þorvarð- ardóttir hjúkrunarkona. Þau slitu samvistir. Seinni kona hans var Gudrun Rigmor Sigmunds- son (fædd Ljungberg), ljósmynd- ari frá Álaborg, f. 18. mars 1920, d. 15. okt. 1971. Daníel lærði húsasmíði hjá Ólafi Gestssyni, húsa- smíðameistara á Ísafirði. Hann starf- aði fyrst við iðn sína en vann síðan lengst af ýmis störf hjá Ísafjarðarbæ, m.a. sem bygginga- fulltrúi. Hann átti um nokkurra ára skeið sæti í stjórn Kaupfélags Ísfirð- inga. Hann var mikill hugsjónamaður á sviði slysavarna og sá, ásamt félögum sínum, um byggingar og viðhald björgunarskýla á norðanverðum Vestfjörðum um árabil. Fyrir störf sín í þágu slysavarna var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Útför Daníels fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Daníel vinur minn Sigmundsson er horfinn á vit feðra sinna. Hann fékk hægt andlát miðvikudaginn 12. júní sl. og hefur eflaust kvatt saddur lífdaga enda voru síðustu árin hon- um á margan hátt erfið. Segja má að með honum hverfi á braut síðasta nána tenging tengdafjölskyldu minnar við „gamla“ Ísafjörð en Daníel var síðasti hlekkurinn í þeirri fjölskyldu sem Ásta tengdamóðir mín átti á Ísafirði, og myndaði ávallt sérstök tengsl við hennar gömlu heimabyggð. Hugurinn reikar aftur til sumars- ins 1977. Ég hafði þá ekki löngu áð- ur kynnst Önnu minni, við vorum á leið á Hornstrandir og var dvalar- staðurinn á Ísafirði að sjálfsögðu Eyrargata 3, þar sem þau bjuggu systkinin Daníel, Anna og Óli, auk Halldóru, konu Óla. Þetta voru mín fyrstu kynni af þessu fólki og mót- tökurnar voru slíkar, að seint gleymist. Þá var ekki ónýtt að eiga Daníel að þegar Hornstrandir voru annars vegar því þar þekkti hann nánast hvern blett og þúfu og hafði varið þar ófáum stundum í þágu slysavarna við viðgerðir og bygg- ingar á björgunarskýlum. Árin liðu og telpurnar okkar þrjár komu í heiminn. Ferðirnar á Ísa- fjörð urðu býsna margar; það var einhvern veginn svo sjálfsagt að skreppa vestur í nokkra daga og heimsækja Önnu frænku og Dadda frænda og dvelja hjá þeim í nokkra daga. Þau „gömlu“ höfðu augljós- lega mjög gaman af samvistum við ungviðið og mér er minnisstætt, að Daddi frændi taldi ekki eftir sér að þeysast með barnakerru um bæinn til að skemmta telpunum og sýna þeim bæjarlífið. Áhugi Dadda á við- fangsefnum telpnanna hélst og allt fram undir það síðasta fylgdist hann af áhuga með því, sem þær voru að fást við, ekki síst ef þær voru á er- lendri grundu. En allt á sín tímamörk og það átti Daníel svo sannarlega eftir að reyna. Óli bróðir hans og Halldóra fluttu alfarin suður og Anna systir hans fékk alvarlega heilablæðingu og átti ekki afturkvæmt af spítala eftir það. Var eftir því tekið hversu vel Daníel sinnti henni í veikindum hennar allt þar til yfir lauk. Þessir atburðir virtust öðru fremur leiða til þess, að Daníel, sem áður hafði verið mannblendinn mjög og gjarnan hrókur alls fagnaðar þegar við átti, gerðist nú sífellt einrænni og virtist helst forðast of náin samskipti við fólk. Við, sem næst honum stóðum, gerðum ítrekaðar tilraunir til að hafa áhrif á þessa þróun en allt kom fyrir ekki, þessi vandi reyndist óvið- ráðanlegur. Daníel flutti í notalega íbúð á Hlíf á Ísafirði þar sem hann bjó í nálægð við fólk af hans kyn- slóð, en slíkt virtist litlu breyta í þeim vanda, sem fyrr var nefndur. Atvikin höguðu því svo, að ég, sem þessar línur rita, átti, um tutt- ugu ára skeið, erindi til norðan- verðra Vestfjarða mörgum sinnum á hverju ári, atvinnu minnar vegna. Það varð einhvern veginn sjálfsagt í þessum ferðum að koma við hjá Dadda frænda, hvenær sem því varð við komið, og helst að staldra við yf- ir nótt, væri það mögulegt, og það lék enginn vafi á, að þessar heim- sóknir voru vel þegnar. Á þessum stundum kynntist ég manninum Daníel mun betur en áður og ég er ekki í minnsta vafa um, að þrátt fyr- ir hrjúft yfirbragð, stjórnsemi og á stundum óbilgjarna afstöðu til manna og málefna, bjó í manninum meyrt og gott hjarta, sem öllum vildi vel. Komið er að kveðjustund. Ég vil að leiðarlokum þakka fyrir góðar stundir og velvilja í minn garð og minna. Megi góður Guð geyma minningu Daníels Sigmundssonar um ókomna tíð. Guðmundur Jóelsson. Kær vinur og samstarfsfélagi, Daníel Sigmundsson, er látinn. DANÍEL G. E. SIGMUNDSSON ✝ Þórarinn Eiðs-son fæddist á Blönduósi 18. júlí 1962. Hann lést er hann fór útbyrðis af frystitogaranum Arnari HU 1 14. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hans eru Selma Þórarinsdóttir, f. 22. nóvember 1942, d. 14. september 1990, og Eiður Hilmars- son, f. 8. júlí 1937. Systir Þórarins er Sólveig, f. 19. janúar 1964. Þegar Þórar- inn var um tvítugt hóf hann sam- búð með Dóru Kristínu Jónas- dóttur, f. 23. maí 1964, en þau gengu í hjónaband 22. janúar 1993. Foreldrar hennar eru Jón- as Jónasson, f. 18. ágúst 1945, og Erla L. Theodórsdóttir, f. 12. júlí 1946. Börn þeirra Þórarins og Dóru Kristínar eru Kolbrún Freyja, f. 6. júlí 1983, Eiður Bjarki, f. 5. mars 1986, og Ólína Selma, f. 4. desem- ber 1993. Þórarinn fór ung- ur til sjós og var bú- inn að vera í rúm 20 ár á togurum Skag- strendings, fyrst Arnari, þá Örvari og nú síðustu árin á Arnari HU 1. Útför Þórarins verður gerð frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ég er orðlaus, svo gjörsamlega orðlaus, reið og sár. Það er skammt stórra högga á milli. Það er búið að taka bróður minn frá mér, bróður sem er sá besti í heimi, bróður sem ég elska út af lífinu. Ég get ekki ímynd- að mér lífið án þín. Hafðu ástarþakk- ir fyrir allt í minn garð og ég er yfir mig stolt að eiga þig sem bróður. Sofðu rótt, elskan mín. Þín systir, Sólveig. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (B. Jónsson.) Snemma á föstudagsmorguninn vakti pabbi mig, og sagðist hafa slæmar fréttir að færa, hann Tóti væri dáinn, hann hefði dáið þá um nóttina. Hörmulegar fréttir, mér varð hugsað til Dóru systur minnar, Kollu, Bjarka og Selmu, barna þeirra sem fáum dögum áður höfðu hvatt pabba sinn eins og svo oft áður þegar hann fór á sjóinn. Þær kveðjur verða ekki fleiri. Tóti var mikill tölvukarl, það kom fyrir að hann hringdi í mig, sagðist hafa keypt sér forrit, hvort ég hefði áhuga, eða að hann var staddur í verslun, sá eitthvað sem mig vantaði og bauðst til að kaupa fyrir mig. Það var ekkert mál að snúast svolítið í bænum, sagði sig ekkert muna um það. Ég minnist þess er ég var gest- komandi hjá þeim á síðastliðinn sjó- mannadag og var eins og oft áður þegar Tóti var í landi dreginn að tölv- unni og mér sýnt það nýjasta sem þar var komið og alltaf kenndi hann mér eitthvað nýtt í hvert skipti, enda var Tóti nokkuð vel sjóaður í þeim mál- um. Mér datt ekki í hug þegar ég þakk- aði þeim Dóru og Tóta fyrir veittar veitingar í lok dags og hélt heim á leið að það yrði í síðasta sinn sem ég sæi Tóta mág við hlaðið veisluborð á sjómannadaginn á Sunnuveginum, Fjölskyldan hefur mætt margri þrautinni síðastliðið ár og loks þegar birta fer til dynur á enn eitt áfallið, Tóti er dáinn, langt um aldur fram, og skilur eftir stórt skarð. Húsbónd- inn er horfinn en minningin lifir. Góður drengur er genginn, góður maður er dáinn. Minnir hann oft á máttinn maðurinn slyngi með ljáinn. Allra okkar kynna er ánægjulegt að minnast. Mér finnst slíkum mönnum, mannbætandi að kynnast. (Kristján Árnason frá Skálá.) Ég þakka honum fyrir ánægjulega samfylgd og sendi konu hans, börn- um, systur, föður og öðrum aðstand- endum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Sveinn I. Jónasson. Elsku Þórarinn frændi. Ég bara spyr, af hverju þarf lífið að vera svona ósanngjarnt? Það eru bara níu mánuðir síðan hann pabbi minn var tekinn frá mér og svo núna ert þú tekinn frá mér líka. Þú sem gerðir allt sem ég bað þig um að gera eða hjálpa mér með. Þegar ég þurfti að fara eitthvað með eða ná í einhvern af hestunum mínum, þá varst þú alltaf tilbúinn til að hjálpa mér og líka ef ÞÓRARINN EIÐSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.