Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 53
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 53
Evrópustemning
í Sumarbrids
Mikill áhugi er á gengi landsliða
okkar á Evrópumótinu á Ítalíu og
hefur í BSÍ tvisvar verið hægt að
sýna leiki Íslands í beinni útsend-
ingu á Netinu.
Beinar útsendingar eru í hús-
næði BSÍ daglega frá klukkan 8:30
til 18:00, aðgangur ókeypis, allir
velkomnir og kaffi á könnunni.
Átján pör mættu til keppni sl.
fimmtudagskvöld og var spilaður
Mitchell-tvímenningur.
Efstu pör (meðalskor 216):
NS
Soffía Daníelsd. - Jörundur Þórðars. 262
María Haraldsd. - Erla Sigurjónsd. 249
Sigfús Þórðars. - Guðni Ingvarss. 230
Guðrún Jóhannesd. - Haraldur Ingas. 218
Helga Sturlaugsd. - Stefán Jónss. 213
AV
Jón Stefánss. - Guðlaugur Sveinss. 243
Árni Hanness. - Bragi Bjarnas. 239
Sveinn Þorvaldss. - Vilhj. Sigurðss. jr 230
Guðm. Grétarss. - Óli B. Gunnarss. 225
Valdimar Elíass. - Jón Hákon Jónss. 205
Í Sumarbrids er spilað alla virka
daga kl. 19.00 í Síðumúla 37. Allir
eru velkomnir og keppnisstjóri að-
stoðar við að mynda pör, mæti
spilarar stakir. Reynt er að taka
vel á móti byrjendum og óvönum
spilurum. Mætið því hress til leiks
í afslöppuðu andrúmslofti. Á
föstudagskvöldum er auk þess
boðið upp á stutta Monrad-
sveitakeppni að loknum tvímenn-
ingi, frá kl 22:45 til 00:45. Nánari
upplýsingar fást hjá BSÍ (s: 587-
9360) eða hjá Matthíasi (s: 860-
1003).
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
KARÍBAHAF - sept. uppselt
Hópferð á hálfvirði - næst 7. feb. 03
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA
Morgunblaðið/Jim Smart
Grafarvogskirkja
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar, manneskjur af
holdi og blóði. Þess vegna er hægt
að fara út úr kirkjubyggingum
með helgihald og fagnaðarerindið
og mæta fólki í dagsins önn.
Í tilefni af því bjóðum við til
messu í Kolaportinu sunnudaginn
23. júní kl. 14:00. Jóna Hrönn
Bolladóttir miðborgarprestur pré-
dikar og þjónar ásamt Bolla Pétri
Bollasyni guðfræðingi. Þorvaldur
Halldórsson leiðir lofgjörðina.
Áður en Kolaportsmessan hefst
kl. 13:40 mun Þorvaldur Hall-
dórsson flytja þekktar dæg-
urperlur. Þá er hægt að leggja inn
fyrirbænarefni til þeirra sem
þjóna í messunni.
Í lok messunnar verður sum-
arleg söngstund sem Þorvaldur
stjórnar.
Messan fer fram í kaffistofunni
hennar Jónu í Kolaportinu sem ber
heitið Kaffi port, þar er hægt að
kaupa sér kaffi og dýrindis með-
læti og eiga gott samfélag við Guð
og menn. Allir eru velkomnir.
Miðborgarstarf KFUM og K.
Æðruleysismessa
Dómkirkjunnar
ÆÐRULEYSISMESSA Dómkirkj-
unnar tileinkuð fólki í leit að bata
eftir tólfsporakerfinu verður í
Dómkirkjunni í Reykjavík sunnu-
dagskvöldið 23. júní kl. 20:30. Þar
eru allir velkomnir til tilbeiðslu og
æðruleysis.
Lofgjörðina leiðir söngkonan
lífsglaða Anna Sigríður Helga-
dóttir við undirleik bræðrana
Birgis og Harðar Bragasona.
Einnig mun Hjörleifur Valsson
leika á fiðlu.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
predikar, sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir leiðir stundina og sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir leiðir fyrirbæn.
Jafnframt verður reynslusögu
deilt með viðstöddum. Í lok stund-
arinnar verður fólki boðið fram til
fyrirbæna við altari Dómkirkj-
unnar.
Æðruleysismessur eru einstakar
og helgar stundir þar sem fólk
kemur og leitar af heiðarleika og
einlægni eftir samfélagi við Guð.
Það sem einkennir messurnar er
létt sveifla í helgri alvöru. Allir
eru velkomnir.
Eftir messuna verður Ömmu-
kaffi í Austurstræti 20 (gamli
Hressingarskálinn) sérstaklega
opið fyrir þau sem koma til mess-
unnar, en það er bjart og reyklaust
kaffihús í hjarta borgarinnar.
Jónsmessuhátíð
Víðistaðakirkju
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ verður
haldin á Víðistaðatúni á sunnu-
dagskvöld. Hefst hátíð kl. 20 á úti-
guðsþjónustu sem fram fer á
túninu. Karlakórinn Þrestir syng-
ur af sinni alkunnu snilld undir
stjórn Jóns Kristins Cortes, Guð-
mundur Hafsteinsson leikur á
trompet og einnig mun barna-
starfsfólk kirkjunnar virkja börn á
öllum aldri í söng.
Eftir messu verður börnunum
boðið að fara á hestbak, farið verð-
ur í leiki á túninu og þá verður
einnig hægt að kaupa grillaðar
pylsur við vægu verði.
Það er óskandi að sem flestir
leggi leið sína á Víðistaðatún á
Jónsmessuhátíð Víðistaðakirkju.
Dagskrá hátíðarinnar er miðuð við
að fjölskyldan geti tekið þátt og
notið þess sem fram fer á þeim
tíma þegar dagur og nótt renna
saman í eina birtuveröld.
Messa og
bænaganga á
Þingvöllum
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Þing-
vallakirkju sunnudaginn 23. júní
kl. 14. Prestur er sr. Ingólfur Guð-
mundsson, settur sóknarprestur í
Þingvallaprestakalli. Að lokinni
athöfn í kirkju verður gengin
bænaganga að Lögbergi, í Al-
mannagjá og síðan aftur að kirkj-
unni. Í göngunni sameinum við
hugi okkar í þakkargjörð og bæn
fyrir landi og lýð, stjórnvöldum,
kirkju, kristni og menningu þjóðar
okkar og allra þjóða og friði í
heiminum.
Á MORGUN, sunnudaginn 23.
júní, verður haldin útiguðsþjón-
usta að Nónkoti við Grafarvog.
Nónkot er staðsett í grennd
við sjúkrastöðina Vog. Þar stóð
áður sumarbústaðurinn Brekka.
Þar byggðu hjónin Ágúst, sem
var kenndur við kexverksmiðj-
una Frón, og kona hans Ísafold
sumarbústað. Hófu þau hjónin
þar gróðurrækt þar sem áður
voru örfoka melar. Þar voru
margar gróðurtegundir rækt-
aðar á sinni tíð. Flóran þar er tal-
in afar fjölbreytt og gróskan
mikil. Fyrir nokkrum árum
gerðu borgaryfirvöld svæðið að
almenningsgarði.
Í útiguðsþjónustunni mun séra
Vigfús Þór Árnason prédika og
þjóna fyrir altari. Hörður Braga-
son organisti mun leiða kirkju-
kórinn með harmónikkuspili.
Sighvatur Jónasson mun leika á
harmónikku frá kl. 10:30.
Grillað verður og boðið upp á
veitingar. Stólar verða fyrir
eldri borgara. Bifreiðastæði eru
rétt við svæðið. Allir velkomnir í
skógarmessu mitt í borginni.
Vigfús Þór Árnason,
sóknarprestur.
Útiguðsþjónusta í Grafarvogi
Kirkjustarf
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks
Áskirkju er bent á guðsþjónustur í ná-
grannakirkjunum.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Jak-
ob Ág. Hjálmarsson prédikar. Dómkórinn
syngur. Organisti Marteinn H. Frið-
riksson. Æðruleysismessa kl. 20:30.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syngur.
Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Ólafur
Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Messa kl. 10:15. Altarisganga. Hrönn
Sigurðardóttir prédikar. Prestur Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Organisti Örn
Falkner.
HALLGRÍMSKIRKJA: Jónsmessuhátíð.
Messa kl. 11:00. Sr. Jón Bjarman prédik-
ar og þjónar ásamt sr. Jóni Dalbú Hró-
bjartssyni. Félagar úr Mótettukór syngja.
Organisti Hörður Áskelsson. Fjöl-
skylduhátíð kl. 16:30 fyrir framan kirkju.
Klukknaspil. Ávarp sr. Sigurður Pálsson.
Lúðrasveit, ratleikur, hoppukastali o.fl.
Mótettukórinn grillar og selur veitingar.
Málstofa kl. 18:00 um Jóhannes skírara.
Dr. theol Sigurbjörn Einarsson heldur fyr-
irlestur. Stjórnandi dr. Sigurður Árni Þórð-
arson. Dagskrá frá kl. 17-23. Orgelleikur,
einsöngur, píanóleikur, kórsöngur, ljóða-
lestur. Miðnæturmessa kl. 23:00. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson flytur hugvekju
og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði
Pálssyni, sr. Guðnýju Hallgrímsdóttur og
leikmönnum. Mótettukór Hallgrímskirkju
syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór
frá Normandale Lutheran Church í Edina,
Minnesota, tekur þátt í messunni. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI Hringbraut: Guðsþjónusta
kl. 10:30. Bragi Skúlason.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11:00. Prestur sr.
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Einsöngur.
Organisti Jón Stefánsson. Félagar úr Kór
Langholtskirkju syngja. Kaffisopi eftir
messu.
LAUGARNESKIRKJA: Fullorðinsfræðsla
kl. 19:00. Sumarmessa kl. 20:00, þar
sem gert er ráð fyrir öllum aldri. Geirlaug-
ur Sigurbjörnsson annast barnagæslu
meðan á prédikun og altarisgöngu stend-
ur. Kór Laugarneskirkju leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar. Sr. Bjarni Karlsson þjónar og
meðhjálpari er Sigurbjörn Þorkelsson.
Messukaffi Sigríðar Finnbogadóttur
kirkjuvarðar bíður svo allra í safn-
aðarheimilinu.
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór Nes-
kirkju syngur. Organisti Reynir Jónasson.
Prestur sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11:00. Ferming. Kvartett Seltjarnar-
neskirkju syngur. Organisti Viera Man-
asek. Prestur sr. Sigurður Grétar Helga-
son.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Gúllasguðsþjón-
usta kl. 11:00
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Kvöldmessa
verður í Fríkirkjunni sunnudagskvöld kl.
20:30. Barn borið til skírnar. Tónlist: Carl
Möller. Allir hjartanlega velkomnir. Safn-
aðarstarf Fríkirkjunnar. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Organisti: Pavel Manásek. Kirkju-
kórinn syngur.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Kirkjan verður lok-
uð vegna sumarleyfa starfsfólks til 10.
ágúst. Bent er á guðsþjónustur í öðrum
kirkjum prófastsdæmisins.
DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20:30. Prestur sr. Magnús B. Björnsson.
Organisti: Kjartan Sigurjónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 20:00. Umsjón hefur Elín Elísabet Jó-
hannsdóttir. Organisti: Guðný Ein-
arsdóttir. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir
söng.
GRAFARVOGSKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónustan kl.11:00 í lundinum við sjúkra-
húsið Vog. Staðurinn þar heitir Brekka,
en þar hefur verið gert fallegt útivist-
arsvæði. Frá kl.10:30 leikur Sighvatur
Jónasson á harmonikku. Séra Vigfús Þór
Árnason prédikar og þjónar fyrir altari.
Hörður Bragason organisti og kórstjóri
leikur á harmonikku. Kór Grafarvogskirkju
syngur. Grillað verður að lokinni guðs-
þjónustu. Stólar verða fyrir eldri borgara.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónustur falla nið-
ur í júnímánuði vegna sumarleyfa starfs-
fólks safnaðarins. Við bendum á guðs-
þjónustur í öðrum kirkjum í Kópavogi. Sr.
Íris Kristjánsdóttir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Sr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur
prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr
kór Kópavogskirkju syngja og leiða safn-
aðarsöng. Organisti: Julian Hewlett. Sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20:00.
Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Organisti
er Gróa Hreinsdóttir. Altarisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma
kl. 20:00 í umsjá Ingunnar Björnsdóttur
og Jósefs Kristjánssonar. Lofgjörð og fyr-
irbænir. Allir velkomnir. Næsti sjónvarps-
þáttur „Um trúna og tilveruna“ verður
sendur út í beinni útsendingu á Omega
þriðjud. kl. 11:00. Efni: „Hvernig get ég
fundið vilja Guðs með líf mitt?“ Þættirnir
eru endursýndir á sunnudag kl. 13:30 og
mánudag kl. 20:00. Heimasíða kirkj-
unnar: www.kristur.is Þar er margt fróð-
legt efni að finna.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Opið hús kl.
20:00 Farið verður í Efesusbréfið og eru
allir velkomnir í spjall. Minnum á að í
sumar eru samkomur Vegarins á fimmtu-
dögum kl. 20:00
FÍLADELFÍA: Sunnudagur 23. júní. Al-
menn samkoma kl. 20:00. Ræðumaður
Erling Magnússon. Lofgjörðarhópur Fíla-
delfíu syngur. Allir hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Kl.
19:30 bænastund. Kl. 20:00 hjálpræð-
issamkoma. Inger Dahl, Elsabet Daníels-
dóttir og Aslaug Langaard stjórna og
tala.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma
sunnudag kl. 14. Ármann J. Pálsson tal-
ar. Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30.
Lofgjörð og fyrirbænir. Barnagæsla fyrir
1-7 ára börn. Þriðjud: Bænastund kl.
20.30. Miðvikud: Samverustund unga
fólksins kl. 20.30. Mikil lofgjörð og orð
Guðs rætt. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma í
húsi KFUM og KFUK sunnudag kl. 17.
Upphafsorð: Kristín Bjarnadóttir. Ragnar
Gunnarsson talar. Allir velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík - Kristskirkja í Landakoti:
Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30. Messa
á ensku kl. 18.00. Alla virka daga:
Messa kl. 18.00. Mánudaginn 24. júní:
Jónsmessa, hátíðarmessa kl. 18. Laug-
ardaginn 29. júní: Pétursmessa og Páls,
hátíðarmessa kl. 18.00
Reykjavík - Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug-
ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka
daga í júní: Messa kl. 18.30 aðeins
mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Skriftir
kl. 17.30. Messa kl. 18.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.00.
Keflavík - Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Fimmtu-
daga: Skriftir kl. 19.30. Bænastund kl.
20.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Sunnudaga
kl. 10. Alla virka daga: Messa kl. 18.30.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00 á
pólsku.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
VÍDALÍNSKIRKJA: Hátíðarguðsþjónusta í
Vídalínskirkju sunnudaginn 23. júní,
kl.10:30. Ath. breytta tímasetningu þar
sem guðsþjónustan markar lok vinabæj-
armóts Garðabæjar og hinna norrænu
bæja, Asker í Noregi, Birkeröd í Dan-
mörku, Eslöv í Svíþjóð og Jakobsstad í
Finnlandi. Alls sækja um 360 manns frá
vinabæjunum mótið. Að auki taka fjöl-
margir Garðbæingar þátt í mótinu. Að
mótinu standa Garðabær og Norræna fé-
lagið í Garðabæ. Garðbæingar eru hvattir
til að taka þátt í dagskrá mótsins. Við
guðsþjónustuna er gert ráð fyrir að hinir
norrænu kórar sem eru með í för muni
koma fram. Kór Vídalínskirkju leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Organisti er Jó-
hann Baldvinsson. Við athöfnina þjóna
sr.Friðrik J. Hjartar og sr.Hans Markús
Hafsteinsson. Mætum vel og gleðjumst
með hinum norrænu vinum okkar. Prest-
arnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
klukkan 11. Organisti: Natalia Chow.
Prestur: Séra Þórhildur Ólafs.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Jóns-
messuhátíð á Víðistaðatúni sunnudags-
kvöldið 23. júní sem hefst með guðs-
þjónustu kl. 20.00 Karlakórinn Þrestir
syngur undir stjórn Jóns Kristins Cortes.
Guðmundur Hafsteinsson leikur á tromp-
et. Eftir messu: Grill, hestar og leikir. All-
ir velkomnir. Sóknarprestur.
NJARÐVÍKURKIRKJA: (Innri-Njarðvík)
Guðsþjónusta sunnudag kl. 20.30. Sr.
Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðs-
prestur, prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Stein-
ars Guðmundssonar, organista. Sókn-
arprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl.
11. Léttur hádegisverður að messu lok-
inni. Morguntíð sungin þriðjudag til föstu-
dags kl. 10. Kaffisopi að henni lokinni.
Foreldrasamvera miðvikudag kl. 11.
Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagur: Kl. 19.30 bæn, kl. 20 almenn
samkoma. Allir velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Laug-
ardagur: Bænastund kl. 20. Sunnudagur:
Samkoma kl. 20. Gunnar Rúnar Guðna-
son prédikar. Lofgjörð og fyrirbænaþjón-
usta. Allir hjartanlega velkomnir.
AKUREYRARKIRKJA: Guðþjónusta á Seli
kl 14:30. Prestur Sr. Guðmundur Guð-
mundsson. Kvöldmessa í Akureyrarkirkju
kl. 20:30. Prestur Sr. Guðmundur Guð-
mundsson. Sigrún Arna Arngrímsdóttir
syngur, organisti Björn Steinar Sólbergs-
son.
HOFTEIGSKIRKJA: Fermingarmessa
sunnudaginn 23. júní kl. 14: Fermdir
verða: Bergvin Stefánsson, Hnefilsdal á
Jökuldal, og Haukur Guðmundsson,
Hrólfsstöðum á Jökuldal. Sóknarprest-
urinn, Lára G. Oddsdóttir, prédikar og
þjónar fyrir altari. Organist er Julian E.
Isaacs. Allir velkomnir. Sóknarprestur.
HJALTASTAÐAKIRKJA: Messa kl. 14.
Fermd verður: María Guðbjörg Guð-
mundsdóttir. Allir velkomnir. Sókn-
arprestur.
Guðspjall dagsins:
Verið miskunnsamir.
(Lúk. 6).
Morgunblaðið/Golli