Morgunblaðið - 22.06.2002, Page 54
LANDIÐ
54 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BORGFIRÐINGAHÁTÍÐ, sem er
fjölskylduhátíð, var haldin í Borg-
arbyggð síðastliðna helgi og bar yf-
irskriftina „Fljúgum hærra“. Dag-
skráin var fjölbreytt og allir gátu
fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin
hófst á föstudeginum 14. júní með
opnun sýningarinnar „Milli fjalls og
fjöru“ í nýjum sal Safnahússins. Í
Óðali var frumsýnd myndin
„Þjóðhátíðardagar í Borgarnesi
1962–1976“ eftir Einar Ingimund-
arson og Ingimund Einarsson. Um
kvöldið var svo baðstofukvöld í
Reykholti þar sem margir lista-
menn komu fram. Á laugardags-
morgninum var árbítur fyrir alla í
Skallagrímsgarði og klukkan 11
hófst þar útimessa en prestur var
séra Þorbjörn Hlynur Árnason pró-
fastur. Veðrið lék sannarlega við
gesti því sólin skein og ekki blakti
strá í vindi. Eftir hádegi var mark-
aðstorg í Borgarnesi þar sem m.a.
var skiptimarkaður fyrir staka
sokka. Karamellum rigndi af himn-
um ofan, leiktæki voru fyrir börnin
og götuleikhús lék listir sínar svo
eitthvað sé nefnt. Opið hús var hjá
Orkuveitu Reykjavíkur þennan dag,
árgangamót í körfubolta og Spid-
erman-keppni fyrir alla krakka. Um
kvöldið hélt stórhljómsveitin Geir-
fuglarnir uppi fjörinu í íþróttahús-
inu á fjölskyldudansleik. Á sunnu-
deginum var hægt að fara sögu-
hringinn í Borgarnesi með leiðsögn,
fara á kajak í Brákarsundi, í Hafn-
arfjallsgöngu og kvennahlaup. Í
Reykholti var menningardagskrá í
Snorrastofu og skoðunarferð í boði
um fornleifauppgröft á svæðinu.
Dagskráin á þjóðhátíðardeginum
hófst með leikjum og sprelli á
Skallagrímsvelli og var í umsjón
frjálsíþróttadeildar Skallagríms.
Hátíðarguðsþjónusta var í Borgar-
neskirkju kl. 13:00 og skrúðganga
að henni lokinni. Fjölbreytt hátíð-
ardagskrá var í Skallagrímsgarði og
síðdegis keppti nýkjörin bæjar-
stjórn við stjórn knattspyrnudeildar
Skallagríms, og vann 2–1. Reyndar
átti hlutkesti að ráða úrslitum. Um
kvöldið var svo útidansleikur við
Íþróttamiðstöðina þar sem hljóm-
sveitin Úlrik lék fyrir dansi. Má
telja víst að Borgfirðingar og þeirra
gestir hafi verið ánægðir með hátíð-
ina í ár enda tókst vel til ásamt frá-
bæru veðri.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Útimessa í Skallagrímsgarði.
Borgfirðingahátíð hald-
in í blíðskaparveðri
Borgarnes
FYRSTA skemmtiferðaskip
sumarsins kom til Húsavíkur á
dögunum, þar var á ferð ms.
Explorer, 2.400 tonna skip með
heimahöfn í Afríkuríkinu Líb-
eríu, gert út af þýskum aðilum.
Áður en til Húsavíkur kom hafði
skipið haft viðkomu á Horna-
firði og í Grímsey og með því-
voru rúmlega 50 farþegar, að-
allega Bandaríkjamenn.
Skipið kom að kveldi til og
litu farþegarnir á mannlífið á
Húsavík áður en gengið var til
náða. Snemma morguns daginn
eftir voru þeir svo drifnir upp í
hópferðabíla og ekið var með þá
í skoðunarferðir í Mývatnssveit
og nágrenni. Þaðan var svo ekið
með farþegana til Akureyrar
þar sem þeir stigu aftur um
borð í Explorer sem siglt hafði
þangað meðan á útsýnisferðinni
stóð.
Stefán Stefánsson hafnar-
vörður á Húsavík færði skip-
stjóra skipsins ljósmynd af skip-
inu í Húsavíkurhöfn að gjöf frá
höfninni. Skipstjórinn, kapteinn
Uli Demel, þakkaði fyrir gjöfina
og færði Stefáni að gjöf bókina
Ship in the Wilderness.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Ms. Explorer kemur til hafnar á Húsavík.
Fyrsta skemmti-
ferðaskip sumarsins
Húsavík
SÍÐUSTU skóladagarnir hafa víða
verið nýttir til útiveru og hreyf-
ingar. Nemendur í 7-A og 7-B í
Grunnskólanum í Borgarnesi fengu
sinn skerf á dögunum þegar þeir
hjóluðu ,,Hvanneyrarhringinn“ sem
er 36 kílómetrar. Lagt var af stað
klukkan 9 frá skólanum, en áður
hafði lögreglan skoðað hjól hvers
og eins og gengið úr skugga um að
þau væru í lagi.
Lögreglan fylgdi svo börnunum
af stað eða þar til þjóðvegurinn end-
aði. Tveir kennarar og einn stuðn-
ingsfulltrúi voru með í ferðinni. All-
ir nemendur voru með nesti með sér
og á leiðinni var eitt nestisstopp en
mörg hvíldarstopp. Þegar komið
var að Hvanneyri fóru krakkarnir
m.a. í heimsókn á búvélasafnið og
fengu leiðsögn um Landbúnaðarhá-
skólann og búskapinn.
Eftir það var lagt af stað heim á
leið en þegar komið var að Borg-
arfjarðarbrúnni kom lögreglan og
fylgdi þeim yfir brúna. Heimkoma
var um klukkan 16.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Nemendur
hjóluðu
Hvanneyr-
arhringinn
Borgarnes
ÞAÐ vekur athygli í Stykkishólmi
þegar Fokker-flugvél Flugleiða
lendir á Stykkishólmsflugvelli,
enda gerast slíkir atburðir ekki oft.
Um síðustu helgi kom Fokker-vél
Flugleiða með ferðamenn. Var um
að ræða starfsfólk Flugleiða sem
var boðið í óvissuferð. Starfsfólkið
vinnur við flugrekstrarsvið og
leiguflug Flugleiða hf. Um var að
ræða 30 manna hóp. Hópurinn
lagði af stað frá Reykjavík kl 19.30
og var aftur kominn til Reykjavík-
ur um miðnætti. Á þeim tíma var
búið að fara í rúmlega tveggja tíma
skemmtisiglingu um Breiðafjörð
með Sæferðum, sem segir að alltaf
styttist leiðin í Hólminn. Sigþór
Einarsson, sem var í forsvari fyrir
hópinn, var mjög ánægður með
ferðina og heppnaðist hún eins og
best verður á kosið. Þetta er góður
kostur fyrir erlenda ferðahópa eða
ráðstefnugesti að fara slíka ferð
sem ekki tekur lengri tíma, en býð-
ur upp á fjölbreytta skemmtun í
sérstöku umhverfi.
Í óvissu-
ferð með
flugvél
Stykkishólmur
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Hópurinn fyrir framan flugvélina.