Morgunblaðið - 22.06.2002, Page 57

Morgunblaðið - 22.06.2002, Page 57
STÆRSTA fréttin í íslenska stanga- veiðiheiminum í dag er án efa áskorun sem Veiðimálastofnun, Landssam- band veiðifélaga og Landssamband stangaveiðifélaga báru fram til stangaveiðimanna í gær þess efnis að hvetja þá til að hlífa stórlöxum í sum- ar. Áskorunin endurspeglar vaxandi áhyggjur manna af hvernig komið er fyrir hinum svokallaða „tveggja ára laxi“, en það er lax sem er tvö ár í sjó og kemur til baka sem 8 til 14 punda fiskur. Þeir ganga gjarnan undir nafninu stórlaxar og þeim hefur fækkað ískyggilega síðustu árin. Sigurður Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Veiðimálastofnunar, sagði í samtali við Morgunblaðið að í gegnum tíðina hefðu alltaf verið sveiflur í fjölda umræddra laxa frá ári til árs eða frá einu tímabili til annars, „en það eru núna tuttugu ár síðan tveggja ára laxinn fór að týna tölunni og það bólar ekkert á því að hann nái sér á strik á ný. Þvert á móti fækkar honum enn og það sem af er veiðitím- anum má segja að honum hafi fækkað fullhraustlega frá síðustu sumrum fyrir minn smekk. Það þarf eitthvað til bragðs að taka, það verður alltaf erfiðara og erfiðara fyrir þennan lax að ná sér aftur á strik og hagsmuna- aðilarnir að laxveiðinni hafa því sam- einast um þetta erindi, að hvetja veiðimenn til að hlífa stórlaxi í sumar. Í því felst að sleppa eins mörgum slík- um löxum og frekast er kostur,“ sagði Sigurður. Heimsmeistari á ferðinni Veiðibúðin Veiðihornið hefur boðið hingað til lands Hywel Morgan, heimsmethafa og fyrrverandi heims- meistara í fluguköstum með ein- hendu. Hann á fjölda meta, m.a. ríkjandi heimsmet í einhendukasti, 80,49 metra. Morgan er með nám- skeið á vegum Veiðhornsins á Mikla- túni bæði í dag og á morgun, en á morgun verður hann auk þess með sýningu á sama stað sem hefst klukk- an 15.00. Ýmsar fréttir Formlega opnunin í Haffjarðará gaf tvo laxa í viðbót við þá tvo sem veiddust á hálfum degi örlítið fyrr. Einn og hálfur dagur gaf því fjóra 10 til 11 punda laxa og fleiri tóku og sluppu, m.a. einn sem áætlaður var 16 pund. Að sögn Einars Sigfússonar er slæðingur af laxi og menn ánægðir með byrjunina sem er í meðallagi góð. Í gærmorgun voru enn aðeins fjór- ir laxar komnir í veiðibókina í Elliða- ánum og veiddust þeir 16. og 17. júní. Fyrstu laxarnir hafa veiðst í Laxá á Ásum, sá fyrsti veiddist í Dulsunum á fimmtudag og tveir í viðbót fylgdu um kvöldið. Menn hafa séð laxa á stangli, allt upp undir Langhyl. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Skorað á veiðimenn að hlífa stórlaxi Hallfreður Vilhjálmsson, eða Halli frá Hvammshól, með 15 punda hæng úr Laxá í Leirársveit. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 57 SAMTÖKIN Komið og dansið standa fyrir dansleik á Ingólfstorgi í miðbæ Reykjavíkur sunnudaginn 23. júní nk. Danstónlist verður flutt af geisla- diskum með hátalarakerfi og val tón- listar miðað við að flestir finni eitt- hvað við sitt hæfi. Létt sveifla og línudansar verða þó í fyrirrúmi, sam- kvæmt því sem segir í fréttatilkynn- Dansleikur á Ingólfstorgi KARUNA, miðstöð búddista, stend- ur fyrir fjórum námskeiðum í sumar. Fyrsta námskeiðið hefst mánudag- inn 24. júní og er kennt þrjú kvöld í röð, frá klukkan 20–21. Nefnist fyrsta námskeiðið „streitulaust líf“, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Karuna. Kennari er búddanunnan Gen Ny- ingpo og kennir hún á ensku. Þátttökugjald er 800 krónur fyrir hvert skipti eða 2.000 krónur fyrir öll þrjú. Kennslan fer fram í húsnæði Karuna, Bankastræti 6, 4. hæð, og eru allir velkomnir. Nánari upplýsingar fást á www.karuna.is. Námskeið um streitulaust líf Hlaut alþjóð- lega viðurkenn- ingu Missouri- háskólans MISSOURI-HÁSKÓLINN í Col- umbia í Bandaríkjunum hefur veitt Helga Gunnlaugssyni dósent í fé- lagsfræði við Háskóla Íslands við- urkenninguna Arts and Science Distinguished Alumni Award sem skólinn úthlutar árlega eftir til- nefningar frá einstökum deildum. Helgi lauk doktorsprófi frá skól- anum fyrir 10 árum. Verðlaunahaf- ar eru valdir úr hópi útskrifaðra nemenda og bauð skólinn Helga sérstaklega út af þessu tilefni. Aðr- ir verðlaunahafar voru t.d. Kit Bond öldungadeildarþingmaður og fyrrum fylkisstjóri í Missouri og flutti hann þakkarávarp á hátíðinni. „Í umsögn dómnefndar var eink- um lögð áhersla á þrennt í rök- stuðningi fyrir þessu vali. Í fyrsta lagi fræðilegar birtingar ritverka og rannsóknavirkni en Helgi hefur einn eða í samstarfi við aðra skrif- að alls þrjár bækur fyrir utan próf- ritgerðir og yfir 40 bókakafla, rit- rýndar greinar eða aðrar fræðilegar greinar. Í öðru lagi var alþjóðleg reynsla tiltekin en Helgi hefur verið virkur í fræðasamfélag- inu bæði vestan hafs og austan, set- ið í fagráðum og stjórn fagfélaga og m.a. komið að undirbúningi al- þjóðlegra ráðstefna og haldið fjöl- mörg erindi á alþjóðlegum vett- vangi. Í þriðja lagi var nefnt að Helgi hafi verið virkur í að kynna sjónarhorn félagsvísinda á vett- vangi samfélagsins með greina- skrifum í blöð og tímarit fyrir al- menning en Helgi hefur skrifað yfir 30 greinar af því tagi. Greinaskrif fyrir almenning eru ekki metin til stiga eða vinnumats í starfi há- skólakennara og því óvænt að fá viðurkenningu af þessu tagi frá há- skólasamfélaginu. Helgi var fyrst lektor í fé- lagsfræði í hálfu starfi 1990 og gegndi því starfi til 1994 þegar hann var settur í fullt lektorsstarf. Árið 1997 fékk hann framgang í stöðu dósents. Helgi hefur einkum kennt afbrotafræði og kenningar í félagsfræði og er skorarformaður félagsfræðiskorar á þessu misseri,“ segir í fréttatilkynningu. ingu. Dansinn hefst kl. 14.00 og stendur til kl. 16.00. Jónsmessa með Ferðafélagi Íslands ÞAÐ verður mikið um að vera hjá Ferðafélagi Íslands um helgina. Laugardaginn 22. júní efnir félagið til næturgöngu á Heklu. Brottför er úr Reykjavík kl. 18, frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6 og ekið sem leið liggur að Heklurótum og tind- urinn klifinn. Að lokinni göngu er stefnt að sundferð í Þjórsárdal og áætluð heimkoma er svo í morguns- árið. Þessi ferð kostar 2.400 fyrir fé- lagsmenn en annars 2.700. Sunnudaginn 23. júní verður boð- ið upp á ferð um austursveitir Rangárþings. Þetta er rútuferð, blönduð stuttum gönguferðum á áhugaverðum stöðum, með sérstaka áherslu á sögu. Fararstjóri er Leif- ur Þorsteinsson, brottför frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6 og verð 2.500/2.800 kr. Á sunnudagskvöldið 23. júní verð- ur efnt til göngu um um Keilisnes á Vatnsleysuströnd og lýkur göngu við Kálfatjarnarkirkju. Þetta er um 3–4 klst. ganga. Fararstjóri verður Eiríkur Þormóðsson. Brottför frá BSÍ kl 19.30 með viðkomu í Mörk- inni 6. Verð 1.400/1.700 kr., sam- kvæmt því sem segir í fréttatilkynn- ingu. Skátar fjölmenna í Viðey „VIÐEY er óðum að vakna úr vetr- ardvala, sem sést hvað best á dýra- lífinu þar sem kindur eru þar með lömbin sín og hestar og skoppandi folöld. Ekki má gleyma fuglunum og ungum þeirra, en friðað æðarvarp er í eynni,“ segir í frétt frá Viðey. „Um helgina mun mannfólkið einnig setja mikinn svip á eyjuna, þar sem skátar fjölmenna á Land- nemamót. Auk þess verður messa á vegum Viðeyingafélagsins sunnu- daginn 23. júní kl. 14:00 þar sem sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Viðeyjarferja fer sérstaka ferð með messugesti kl. 13:30. Eftir messuna heldur Viðeyingafélagið kaffisölu fyrir gesti og gangandi á austur- hluta eyjunnar þar sem þeir hafa aðstöðu sína og eru allir velkomnir. Í ferjuna kostar kr. 500 fyrir full- orðna og kr. 250 fyrir börn. Þeir sem eru fótlúnir er bent á hjólin sem eru lánuð endurgjaldslaust í Viðey, háð því skilyrði að þeim sé skilað á sama stað eftir notkun,“ segir þar enn fremur. Dýrafjarðardagar 28.–30. júní DÝRAFJARÐARDAGAR verða settir á Þingeyri föstudaginn 28. júní og standa þeir til sunnudags- ins 30. júní. Á föstudag fer fram hluti af kraftakeppninni Vest- fjarðavíkingurinn. Á laugardag og sunnudag verður útimarkaður opinn, þar sem m.a. handverkshópar á Vestfjörðum bjóða varning sinn. Þá verður mar- hnútakeppni fyrir 12 ára börn og yngri á laugardag og dansleikur um kvöldið þar sem Hinir glað- beittu hálfbræður spila fyrir dansi. Á sunnudag verður m.a. boðið upp á leiðsögn um söguslóðir Gísla Súrssonar og ratleik fyrir börn og fullorðna. Víkingar frá Víkingahá- tíðinni í Hafnarfirði munu skylm- ast og sýna listir sínar á svæðinu. Merki verða seld á svæðinu sem veita aðgang að allri dagskránni, að kajakleigu, eldsmiðju og dans- leiknum undanskildum. Verð fyrir fullorðna er 700 kr. og 500 kr. fyrir börn. Kílóverð á eggjum var bakkaverð BORIST hefur leiðrétting frá ASÍ vegna útreikninga í verðkönnun samtakanna og Morgunblaðsins í heilsuvöruverslunum í Reykjavík og Kaupmannahöfn, sem birt var síð- astliðinn fimmtudag. Í töflu sem birtist með könnuninni var tilgreint lægsta verð á eggjum varphæna í lausagöngu, 120 krónur án virðis- aukaskatts, í versluninni ISO í Kaupmannahöfn. „Kílóverðið í versl- uninni ISO í Danmörku er kr. 354,3 án vsk. en gefið var upp bakkaverð sem er 120 kr. Munur á hæsta og lægsta eggjaverði er því 27,7%,“ seg- ir ASÍ. Í frétt Morgunblaðsins sagði að munur á hæsta og lægsta verði væri 277%, líkt og fram kom í töflunni. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðing- ar á þessum mistökum.Síðasta sýningarhelgi Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU er að ljúka þremur þeirra sýninga sem staðið hafa frá opnun hússins í apríl 2000. Síðasta sýningarhelgi er núna 22. og 23. júní. Þær sýningar sem nú eru á förum eru: „Ísland á gömlum landakortum“, „Ríkistákn“ og „Ís- lenskur gjaldmiðill.“ Þjóðmenningarhúsið er opið frá 11–17 og er ókeypis aðgangur að því á sunnudögum. Auk þessara sýninga eru nú í gangi tvær sumarsýningar: Ljósmyndir úr Fox-leiðangrinum 1860 (á vegum Þjóðminjasafns), Vestur-Íslenskar bókmenntir (á veg- um Landsbókasafns Íslands – Há- skólabókasafns). Einnig eru sýning- arnar um Landnám og Vínlands- ferðir og sýning á fundargerðabók Þjóðfundarins opnar. SPK afhenti námsstyrki til félaga í Námsmannaþjónustu SPK 18. júní sl. SPK veitir ár hvert tvo náms- styrki að upphæð 100.000 kr. hvorn, einn til útskriftarnema í framhaldsskóla og einn til nema í framhaldsnámi. Allir sem eru í Námsmannaþjónustu SPK áttu kost á að sækja um námsstyrk. Jenný Ruth Hrafnsdóttir og Matthías Birgir Nardeau hlutu styrkina í ár. Á myndinni eru Matthías Birgir Nardeau styrkþegi og Elín fulltrúi Jennýjar Ruthar Hrafnsdóttur ásamt Carli H. Erlingssyni spari- sjóðsstjóra (t.v.) og Ingólfi V. Guð- mundssyni aðstoðarsparisjóðs- stjóra (t.h). Jenný Ruth Hrafnsdóttir stundar nám í vélaverkfræði í Universität Karlsruhe í Þýskalandi. Matthías Birgir Nardeau var að ljúka stúdentsprófi í Mennta- skólanum í Kópavogi og stefnir á að ljúka burtfarar- eða einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík næsta vor. Eftir það hyggur hann á háskólanám erlendis. SPK af- hendir námsstyrki Ræðir um þróun á vínmarkaði ÍTALSK íslenska verslunarráðið heldur fund fimmtudaginn 27. júní þar sem Piero Antinori greifi heldur fyrirlestur um hina öru þróun sem nú er á alþjóðlegum vínmarkaði. Enn- fremur munu Eiríkur Ingi Friðgeirs- son, hótelstjóri, og Ólafur Sveinsson, útsölustjóri, gefa álit sitt á breyting- um á neyslumynstri og vínmarkaði hér á landi. „Piero Antinori er frá Toskana á Ítalíu og er einn af viðurkenndari vín- framleiðendum heimsins. Meðal þekktra vína hans má nefna Solaia, Tignanello, Villa Antinori og Santa Cristina. Fyrirtæki hans er með framleiðslu víðsvegar um heiminn en megináherslan er á framleiðsluna í Toskana, á Chianti-svæðinu. Þar hef- ur Antinori-fjölskyldan framleitt vín óslitið í rúmar 6 aldir og er Piero Ant- inori 26. ættliður í langri sögu. Tíma- ritið Winespectator valdi Antinori vínið, Solaia 1997, besta vín ársins 2000,“ segir í fréttatilkynningu. Fundurinn verður haldinn í Sunnu- sal Hótels Sögu og hefst kl. 15:30. Að fundinum loknum býður Glóbus hf. upp á smökkun á vínum frá Antinori. JÓN PÁLL Vilhelmsson opnaði ný- lega ljósmyndasýningu í kjallara Kjörgarðs á Laugavegi 59, þar sem hann rekur ljósmyndastofu. Þar eru sýndar brúðarmyndir sem hafa verið teknar á síðastliðnum þremur árum. Myndirnar eru óvenjulegar að því leyti að þær eru teknar úti í náttúrunni eða í kirkjunni sem at- höfnin fór fram í. „Sýningin er hvatning til vænt- anlegra brúðhjóna til að skoða hvað er í boði á einfaldan og þægi- legan hátt. Til dæmis er tilvalið að skoða hana á sama tíma og Lauga- vegurinn er skoðaður fyrir „óska- listann“. Sýningin er opin virka daga frá kl. 8–19 og laugardaga frá kl. 9–17,“ segir í fréttatilkynningu. Ljósmynda- sýning – brúð- arljósmyndir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.