Morgunblaðið - 22.06.2002, Qupperneq 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"#$#% &
Hunang
í kvöld
TOLENTINO var augljóslegalítt sofinn en samt eitt brosþegar blaðamaður hitti
hann í gærmorgun og vefst vart
fyrir mörgum hvers vegna. Jú,
auðvitað vegna sigurs landa hans
Brasilíumanna á Englendingum.
„Ég ætlaði ekki að þora að horfa á
leikinn. En Óskar dró mig fram úr
og fékk mig til þess og ég sé ekki
eftir því. Fyrir mér var þetta úr-
slitaleikurinn á HM.“
Líkt og flestir aðrir Brassar þá
er Tolentino með boltann á heil-
anum þessa dagana. „Þeir fara
örugglega alla leið en samt væri
mér sama ef einhver af „litlu“
þjóðunum sigruðu frekar. Ég er
alltaf svolítið veikur fyrir þeim.
Það yrði t.d. ekkert svekkjandi
fyrir mig ef Senegalar ynnu okkur
og hömpuðu heimsmeistaratitlin-
um. Óskar virðist enda mun harð-
ari stuðningsmaður Brasilíu en
ég.“ Óskar tekur undir það: „Þótt
ég hafi búið í Englandi undanfarin
þrjú ár þá hef ég litlar sem engar
taugar til enska liðsins. Ég get
ekki stutt lið sem hefur það að
markmiði að skora eitt mark og
pakka svo í vörn. Það er bara pen-
ingafótbolti. Ég styð aftur á móti
fallegan fótbolta, lið eins og Bras-
ilíu sem reyna alltaf að skora sem
flest mörk.“
Tolentino hefur verið búsettur í
Englandi í áratug. Þar hefur hann
leikið inn á allnokkrar djassplötur
með hinum og þessum listamönn-
um. Áður en hann fluttist til Eng-
lands bjó hann í Ríó og lék þar
með nokkrum af helstu tónlistar-
mönnum Brasilíu enda telst þeim
Óskari til að hann hafi í það heila
örugglega leikið inn á hátt á
fimmta eða sjötta tug platna.
Þeir Óskar hittust fyrir tæpu ári
í Lundúnum þar sem báðir eru bú-
settir og starfandi tónlistarmenn.
Og úr varð vinskapur við fyrstu
sýn. „Sameiginlegur vinur okkar
sagði Óskari að mæta með saxa-
fóninn sinn á tónleika þar sem ég
var að spila í félagi við aðra,“ rifjar
Tolentino upp. „Hann var að sjálf-
sögðu drifinn upp á svið og við vor-
um ekki búnir að spila margar nót-
ur er það rann upp fyrir okkur að
við næðum sérlega vel saman.“
Síðan þá hafa þeir spilað nokkr-
um sinnum saman og stefna jafn-
vel á að taka upp plötu síðar á
árinu eða því næsta. „Óskar bauð
mér í heimsókn til sín og við fórum
að spila okkur saman, tókum m.a.
upp efni á tölvuna hans,“ segir To-
lentino. „Svo þurfti ég að fara
heim til Brasilíu í nokkurn tíma en
þegar ég sneri til baka voru við
báðir æstir í að taka upp þráðinn
þar sem frá var horfið.“
Þeir Óskar leika saman hrein-
ræktaða brasilíska tónlist og unna
henni báðir mjög heitt. En er bras-
ilískur tónlistarmaður ekki tor-
trygginn í garð útlendinga sem eru
að reyna að spila brasilíska tónlist?
„Almenningur í Brasilíu hugsar
vissulega þannig að enginn geti
spilað alvöru brasilíska tónlist
nema hann sé frá Brasilíu en bras-
ilískir tónlistarmenn vita betur.
Það geta allir hæfileikaríkir tón-
listarmenn náð fullu valdi á bras-
ilískri tónlist, svo lengi sem þeir
leika með hjartanu. Og það gerir
Óskar svo sannarlega.“
Þegar Tolentino talar um bras-
ilíska tónlist þá gerir hann skýran
greinarmun á þeirri sem hann kall-
ar „gamaldags“ annars vegar og
hinni sem kennd er við bossanóva
hins vegar, en sú rómaða og seið-
mjúka tónlistarstefna gerði vart
við sig á sjötta áratug síðustu ald-
ar og var heitasta heitt á fyrri
hluta hins sjöunda, þar sem í far-
arbroddi voru nafntogaðir lista-
menn á borð við Antonio Carlos
Jobim og João Gilberto. Tolentino
segir bossanóva tónlist samtímans
enn byggja á kjölfestu þeirri sem
snillingar á borð við þá sköpuðu á
sínum tíma og að þeir Óskar sæki
sannarlega í þeirra brunn þótt
vissulega spili þeir bossanóva með
sínu höfði og séu alltaf að leika sér
með formið, gæla við gömlu stand-
ardana á borð við „The Girl From
Ipanema“ og „Desafinado“, spinna
svolítið með þá til að sjá hvort ekki
sé hægt að finna á þeim nýjar og
spennandi hliðar.
Margbrotið bossanóva
„Bossanóva hefur þróast heil-
mikið síðan það kom fyrst fram á
sjónarsviðið og gjörbylti brasilískri
tónlist til frambúðar. Þótt yrkis-
efnið hafi áfram verið það sama,
ástin, ástin og ástin, þá varð bras-
ilísk tónlist mun flóknari og marg-
brotnari með tilkomu bossanóva-
bylgjunnar, jafnvel þótt laglínan
héldi áfram að vera melódísk og
um margt einföld. Bossanóva er í
raun svo flókin tónlist að það eiga
margir mjög færir hljóðfæraleik-
arar í hinu mesta basli með að ná
tökum á henni.“
Og Óskar bætir við: „Það getur
enginn, sem aldrei hefur leikið
bossanóva, gert sér í hugarlund
hversu margsnúin tónlistartegund
það er og óútreiknanleg. Þegar
maður sér það á blaði er maður
næstum fullviss að það geti hrein-
lega ekki gengið upp, að þetta
hljóti bara að vera einhver lag-
leysa. En um leið og maður fer síð-
an að spila það þá kemur allt heim
og saman á einhvern yndislega
melódískan máta.“
Tolentino segir brasilíska tónlist
þannig sumpartinn eins og bras-
ilíska boltann, láti flókna hluti líta
út sem einfaldir séu með því einu
að láta tilfinninguna ráða ferðinu,
spila með hjartanu.
Hitti keðju-
reykjandi lækninn
Og það er greinilegt að fótbolt-
inn á næstum eins vænan skerf af
hjarta þeirra Tolentinos og Ósk-
ars. „Segðu honum frá því þegar
þú hittir Socrates,“ segir Óskar
upprifinn við Tolentino og andlit
beggja taka að ljóma. „Ah, lækn-
irinn (viðurnefni þessa fræga bras-
ilíska knattspyrnumanns sem varð
heimsþekktur fyrir frammistöðu
sína á HM á Spáni 1982). Það var
mögnuð upplifun. Þegar ég bjó og
starfaði í Ríó þá hitti ég fullt af
frægu fólki sem mætti á tónleika
sem ég lék á. Eitt sinn þegar ég
var baksviðs eftir velheppnaða 30
þúsund manna tónleika þá birtist
allt í einu maðurinn sjálfur á svæð-
ið. Meðspilari minn hnykkti þá í
mig og sagði: „Sjáðu, læknirinn!“
Og þá gerðist nokkuð sem ég
gleymi aldrei. Hann gekk upp að
mér, rétti fram höndina, ávarpaði
mig með fornafni og þakkaði fyrir
tónleikana. Þá kom á daginn að
hann átti töluvert af plötum sem
ég hafði leikið inn á og þekkti mig
því vel. Og maðurinn lék þá fyrir
uppáhaldsliðið mitt, Corinthians!“
Það fer vel á því nú í miðju
boltaæðinu, og um leið Brassaæð-
inu sem jafnan virðist grípa um sig
hér á landi á fjögurra ára fresti
þegar HM er í gangi, að brasilískir
tónar skuli óma í borginni. Þeir
Tolentino og Óskar verða á lág-
stemmdum nótum í kvöld er þeir
ætla sér að leika ljúfa bossanóva
tóna fyrir gesti Apóteksins en á
morgun og á mánudagskvöldið
munu þeir kúvenda kvæði sínu í
kross, herða taktinn, fá að láni
slagverksleikara og bjóða upp á
léttleikandi sömbu að hætti þeirra
Socratesar og Zicos á Hverfisbarn-
um. „Það verður mjög forvitnilegt
að sjá hver viðbrögð Íslendinga
verða en við getum allavega lofað
því að það ætti engum að leiðast,“
segir bossanóva-fræðingurinn Ife
Tolentino að lokum og gæti hæg-
lega verið að lýsa leik með bras-
ilíska landsliðinu.
Brasilísk tónlist
er eins og bras-
ilíski boltinn
Hér á landi er staddur brasilíski söngvarinn
og gítarleikarinn Ife Tolentino í þeim til-
gangi að gefa Íslendingum tækifæri til að
upplifa alvöru bossanóva- og samba-
stemmningu. Skarphéðinn Guðmundsson
ræddi við Tolentino og meðspilara hans,
Óskar Guðjónsson saxófónleikara.
Brasilíski tónlistarmaðurinn Ife Tolentino leikur fyrir Íslendinga um helgina
Morgunblaðið/Arnaldur
„Ole-oleoleole-ole-ole“: Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson.
skarpi@mbl.is
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi
Dansleikur með surf-sveitinni
Titty-Twisters.
CAFÉ AMSTERDAM Gleðisveitin
Buff.
CAFÉ CATALÍNA Trúbadorinn
Kjartan Hlöðversson.
CLUB 22 Dj Benni.
GAUKUR Á STÖNG Hljómsveitin
Ber.
GULLÖLDIN Ásgeir Páls sér um
dúndrandi dansmúsík.
HÓTEL STYKKISHÓLMUR Stefán
Hilmarsson og Eyjólfur Krist-
jánsson.
HÖLLIN, Vestmannaeyjum
Bylgjuball með Írafári.
INGHÓLL, Selfossi Á móti sól, DJ
Þröstur 3000 og sunnlenska stór-
sveitin Tommi rótari.
JÓMFRÚIN Kvartett Kára Árna-
sonar klukkan 16 til 18.
KRINGLUKRÁIN Hljómsveit Rún-
ars Júlíussonar.
KRISTJÁN IX, Grundarfirði Spútn-
ik með Jónsmessudansleik.
ODD-VITINN, Akureyri Stuð-
bandalagið frá Borgarnesi.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópavogi
Paparnir
RABBABARINN Skugga-Baldur.
SJALLINN, Akureyri Hljómar frá
Keflavík.
SJALLINN, Ísafirði Sixties.
STÚDÍÓ SÝRLAND: Þýski trommu-
leikarinn Wolfgang Haffner heldur
fyrirlestur klukkan 13. Wolfgang
leikur trommutengda tónlist af
ýmsum toga og svarar spurningum
viðstaddra um tónlist, trommuleik
og hljóðfæri. Hann hefur áður leik-
ið með hljómsveitum á borð við
Chaka Chan, Passport, Macoy
Tyner og Stórsveitinni í Köln.
VÍDALÍN Moonboots.
VÍÐIHLÍÐ Lúdó og Stefán.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
NÚ STANDA yfir viðræður
um hver muni taka að sér að
leikstýra þriðju kvikmynd-
inni um galdrastrákinn
Harry Potter og félaga hans
í Hogwarts-skólanum. Leik-
stjórinn Chris Columbus sat
við stjórnvölinn í fyrstu
tveimur myndunum en hefur
ákveðið að gefa ekki kost á
sér í þá þriðju þar sem hann
vill eyða meiri tíma með
fjölskyldu sinni í Bandaríkj-
unum.
Eitt nafn hefur verið nefnt
oftar en önnur sem arftaki
Columbus en það er nafn
mexíkóska leikstjórans Alf-
onso Cuarón. Sá hefur þó
helst unnið sér það til
frægðar á sviði kvikmynda
að leikstýra erótískum bíó-
myndum.
Síðasta mynd leikstjórans
Cuarón heitir Y tu mamá
también og fjallaði um tvo
unglingsstráka sem lenda í
tygjum við eldri konu.
Myndin, sem sýnd var hér á
landi á síðustu Kvik-
myndahátíð í Reykjavík og má
nálgast á betri myndbandaleigum,
inniheldur kynlífsatriði sem þykja
heldur í djarfari kantinum enda
hafa kvikmyndaeftirlit í heim-
inum tekið strangt á henni og
sett á hana hæstu aldurstakmörk.
Cuarón er að sögn áfjáður í að
taka að sér að leikstýra mynd eft-
ir sögunni af Harry Potter og
fanganum frá Azkaban. Allavega
væri spennandi að sjá hvernig
hann tæki á henni en þó vonandi,
ungra unnenda galdrastráksins
vegna, að sú mynd yrði leyfð til
sýninga fyrir alla aldurshópa!
Djarfur Potter?
Það er vonandi að hinn 13 ára gamli
Daniel Radcliffe geti mætt á frumsýn-
inguna á þriðju Harry Potter-mynd-
inni en hann fer með hlutverk galdra-
stráksins frækna.