Morgunblaðið - 02.07.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isGuðmundur Ingvi og Herborg
meistarar í holukeppni / B8–B9
HM-hetjunum var vel fagnað
við heimkomuna / B1–B5
12 SÍÐUR40 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Í DÓMSMÁLARÁÐUNEYTINU
eru til skoðunar hugmyndir um að
flytja yfirstjórn almannavarna í
landinu frá Almannavörnum ríkis-
ins til embættis Ríkislögreglustjóra.
Engar breytingar verða þó á skipu-
lagi almannavarna hér á landi.
Ingvi Hrafn Óskarsson, aðstoðar-
maður Sólveigar Pétursdóttur
dómsmálaráðherra, staðfestir að
breytingar á yfirstjórn Almanna-
varna séu til umfjöllunar í ráðu-
neytinu en útfærsla þeirra liggi
ekki fyrir. Hann segir tillögurnar
snúast um hagræðingu. Þær taki
einnig mið af breytingum sem
framundan séu á þessu sviði en á
næstu misserum verði leitar- og
björgunarmiðstöð komið á fót þar
sem allir þeir aðilar sem koma að
leit og björgun á Íslandi munu
starfa saman.
Sex starfsmenn starfa í dag hjá
Almannavörnum ríkisins. Aðspurð-
ur hvort stöðugildin verði flutt yfir
til Ríkislögreglustjórans samhliða
þessum breytingum segir Ingvi
Hrafn ekki tímabært að fjalla op-
inberlega um hugmyndirnar, þar
sem ákvörðun liggi ekki fyrir. Hann
segist ekki geta sagt til um hversu
miklir fjármunir muni sparast með
breytingunum.
Aðspurður hvort til standi að
leggja almannavarnaráð einnig nið-
ur segir Ingvi Hrafn að starfsemi
ráðsins sé til skoðunar. Í sveitar-
félögum starfa almannavarnanefnd-
ir og segir hann að ekki standi til
að umbylta almannavarnakerfinu á
nokkurn hátt heldur beinist hug-
myndirnar einungis að yfirstjórn
starfseminnar.
Tillögurnar muni liggja fyrir með
haustinu og þá verði breytingarnar
kynntar ef þörf krefur en athug-
unin tengist undirbúningi fjárlaga
fyrir næsta ár.
Yfirstjórn almanna-
varna færð til
Ríkislögreglustjóra
MAÐURINN sem lenti í um-
ferðarslysi á Hlíðarbraut á Ak-
ureyri aðfaranótt laugardags
lést á sunnudagsmorgun af
völdum áverka sem hann hlaut í
slysinu.
Hann hét Kjartan Einar Haf-
steinsson, til heimilis á Hríseyj-
arbraut 18 á Akureyri. Hann
var 27 ára, fæddur 8. ágúst árið
1974, ókvæntur og barnlaus.
Kjartan Einar missti stjórn á
bifreið sinni á Hlíðarbraut með
þeim afleiðingum að hún skall á
ljósastaur. Hann var fluttur
með sjúkraflugi til Reykjavíkur
á laugardagsmorgun og gekkst
undir aðgerð á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi í Fossvogi
þar sem hann lést um sólar-
hring síðar.
Kjartan Einar
Hafsteinsson
Lést eftir
bílslys á
Akureyri
Hjálmar
Björnsson
Lést af
slysförum í
Rotterdam
SEXTÁN ára íslenskur piltur,
Hjálmar Björnsson, fannst lát-
inn í Rotterdam í Hollandi um
helgina, en talið er að hann hafi
látist af slysförum. Hans hafði
verið saknað frá því á fimmtu-
dag. Pilturinn hafði verið bú-
settur í Hollandi í nokkur ár
ásamt foreldrum sínum.
Að sögn Ronalds Pfeiffer,
ræðismanns Íslands í Rotter-
dam, er lögreglan í Rotterdam
að rannsaka lát piltsins. Ekki
er vitað nákvæmlega hvað
gerðist frá því hann sást síðast
og þar til hann fannst látinn.
FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur
samþykkti samhljóða á fundi sín-
um í gær að bæta við einni
kennslustund á dag í stundaskrá
barna í öðrum, þriðja og fjórða
bekk í grunnskólum Reykjavíkur.
Þar með á börnum að standa til
boða að vera í skólanum til u.þ.b.
14.30 í stað til u.þ.b. 13.30. Stefán
Jón Hafstein, formaður Fræðslu-
ráðs Reykjavíkur, segir að koma
eigi þessu fyrirkomulagi á í áföng-
um. Næsta haust komi það til
framkvæmda í Breiðholti og í
Vesturbæ, síðan bætist við fleiri
hverfi haustið 2003 og árið 2004
verði búið að koma þessari skipan
á í öllum grunnskólum Reykjavík-
ur.
Stefán Jón segir að í fyrstu
verði ekki um aukna kennslu-
skyldu að ræða, þ.e. börnum verði
ekki skylt að mæta í þennan auka-
kennslutíma, þar sem ekki verði
hægt að bjóða öllum börnum í
Reykjavík upp á jafn langan skóla-
dag. Hins vegar vonast hann til
þess að foreldrar og forráðamenn
barna nýti sér þessa auknu þjón-
ustu. Þegar aukatímanum hafi síð-
an verið bætt við í öllum skólum
Reykjavíkur, verði reynslan af
þessu metin og tekin afstaða til
þess hvort ástæða sé til að gera
þennan aukatíma að skólaskyldu
barna í fyrrgreindum bekkjum.
Stefán Jón segir að markmiðið
með þessum breytingum sé að
auka þjónustu við börn og bæta
menntun þeirra. Þær séu í sam-
ræmi við kosningaloforð R-listans
í borgarstjórnarkosningunum.
Hafa breytingarnar þegar verið
kynntar skólastjórum í Reykjavík.
Málið verður tekið fyrir á fundi
borgarráðs í dag.
Frístundaheimili
í boði til kl. 17
Stefán Jón segir að á fundi
Fræðsluráðs í gær hafi jafnframt
verið ákveðið að taka upp samstarf
við Íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur, um að það sjái um
svonefnt frístundaheimili í grunn-
skólum Reykjavíkur, þar sem í
boði verði margs konar tóm-
stundastarf að loknum skóladegi
og fram til kl. 17 á virkum dögum.
Slík frístundaheimili hafi þegar
verið í boði í Breiðholtinu í vetur,
með góðum árangri, en næsta
haust taki þau til starfa í Vest-
urbænum. Þar með leggist af svo-
kölluð skóladagvist. Stefán Jón
segir að frístundaheimilin taki síð-
an til starfa í áföngum í öllum
grunnskólum Reykjavíkur sam-
hliða því sem bætt verði við auka
kennslutíma.
Skólabörn á aldrinum sjö til níu ára
Kennslutími
lengdur um
einn tíma á dag
DÖNSKU systurskipin Thetis og
Vædderen böðuðu sig í kvöldsólinni
í Reykjavíkurhöfn í liðinni viku og
tóku á sig bleikan lit eins og borgin
öll. Skipin eru bæði nýleg og afar vel
búin. Þau eru sérstaklega hönnuð til
siglinga í norðurhöfum. Skips-
skrokkurinn er styrktur og eiga þau
að geta að siglt í gegnum metra-
þykkan hafís. Vædderen er tíður
gestur hér við land og hafa skipverj-
ar oftar en einu sinni aðstoðað Ís-
lendinga við björgunarstörf.
Skipin tóku þátt í æfingunni Sam-
verði 2002 sem lauk nú um helgina.
Hjá Veðurstofunni er gert ráð fyr-
ir björtu veðri norðvestantil en ann-
ars verður skýjað með köflum og
austan og norðaustan 3-8 m/s næsta
sólarhring sunnan- og vestanlands.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skip böðuð í kvöldsólinni