Morgunblaðið - 02.07.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SVARS Fjármálaeftirlitsins við fyr-
irspurn um lögmæti yfirtökutilboðs
Búnaðarbankans og fimm stofnfjár-
eigenda í stofnfé Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis (SPRON) er ekki
að vænta í þessari viku.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, tekur fram að
stofnunin muni þó flýta afgreiðslu
málsins svo sem kostur er. Fjármála-
eftirlitið hefur fjórar vikur til að af-
greiða málið frá því umbeðin gögn
hafa borist því.
Hvetja stofnfjáreigendur
til þess að veita ekki umboð
Stjórn SPRON sendi stofnfjáreig-
endum símskeyti á laugardaginn þar
sem hún áréttar að fundi stofnfjáreig-
enda hafi verið frestað vegna laga-
legrar óvissu yfirtökutilboðs Búnað-
arbankans en tekur jafnframt fram
að til fundar verði boðað þegar rétt-
aróvissu hefur verið eytt. Þá hvetur
stjórnin stofnfjáreigendur til þess að
veita engin umboð vegna fyrirætlana
hóps stofnfjáreigenda um að knýja
fram fund á meðan núverandi óvissu-
ástand ríkir.
Pétur H. Blöndal, einn úr hópi
stofnfjáreigenda, segir að nú sé verið
að opna sérstaka skrifstofu á Túngötu
6 þar sem stofnfjáreigendur geti
komið saman og aðstoðað við að
hringja út. Það sé heilmikið verkefni
að ná til þriðjungs stofnfjáreigenda til
þess að knýja fram fund og þess
vegna hafi menn ákveðið að opna sér-
staka skrifstofu.
Pétur segir þær áætlanir ekki hafa
breyst þótt stjórn SPRON telji rétt
að bíða úrskurðar Fjármálaeftirlits-
ins. Tilboðið sem gert sé í nafni stofn-
fjáreigenda af hálfu Búnaðarbankans
sé óháð því fundarefni sem hafi verið
á dagskrá og engin efni séu til að
fresta fundinum vegna þess. Hópur
stofnfjáreigenda leggi til að menn
undirbúi jarðveginn, þ.e. verði niður-
staða eftirlitsins jákvæð verði menn
búnir eða tilbúnir til þess að halda
fund og taka á þeim atriðum sem
skipta máli, þ.e. afnámi á takmörkun
á fjölda hluta sem hver má eiga og að
ekki verði lagst gegn breytingum á
eigendum stofnfjárins.
Viðskiptabankarnir
eins og hrægammar yfir
sparisjóðunum
Guðmundur Hauksson sparisjóðs-
stjóri segir að kjarni málsins sé að
verði farið inn á þessa braut muni
starfsemi allra sparisjóðanna lognast
út af.
„Ég er ekki hissa á því að viðskipta-
bankarnir raði sér upp í biðröð núna.
Sparisjóðirnir hafa styrkt mjög stöðu
sína mörg undanfarin ár og þeir sem
ein heild eru með sterkustu eiginfjár-
stöðu að Íslandsbanka einum undan-
skildum. Í skoðanakönnunum hefur
einnig komið fram að viðskiptavinir
þeirra eru ánægðari en viðskiptavinir
viðskiptabankanna. Þannig að það
skal engan undra,“ segir Guðmundur,
„þótt viðskiptabankarnir sveimi yfir
okkur eins og hrægammar til þess að
reyna að koma okkur út af markaðin-
um. En er þetta æskilegt fyrir þjóðfé-
lagið og vill almenningur þetta eða
neytendur? Í ljósi velgengni spari-
sjóðanna fullyrði ég að þeir eiga enn
heilmikið erindi við þjóðina.“
Hópur fimm stofnfjáreigenda í SPRON opnar skrifstofu
Svars Fjármálaeftirlitsins
ekki að vænta í vikunni
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra hefur ákveðið að senda for-
svarsmönnum Landspítala – há-
skólasjúkrahúss erindi um að fara
yfir vaktafyrirkomulag ungra lækna
á spítalanum. Einnig verður sett af
stað vinna við að skilgreina hugtakið
„læknir í starfsnámi“, en það hefur
verið óljóst hingað til.
Oddur Steinarsson, formaður Fé-
lags ungra lækna, segir að þarna sé
ekki töfralausn á ferðinni. Hann
segir að ráðherra vilji ekki beita sér
fyrir því að unglæknar fái hvíldar-
tímaákvæði samþykkt, eða skil-
greind viðeigandi réttindi. Forystu-
menn félagsins íhuga nú málssókn á
hendur ríkinu.
Ráðherra tilkynnti fulltrúum Fé-
lags ungra lækna þetta á fundi í
gær, en eins og kom fram í Morg-
unblaðinu kynntu unglæknar ráð-
herra málstað sinn á föstudaginn
sem leið. Hann segist þegar hafa
rætt við forráðamenn LSH um
vaktafyrirkomulag unglækna, en
honum hafa borist bréf frá Vinnueft-
irlitinu og landlækni þar að lútandi.
Unglæknar hafa verið óánægðir
með vinnutíma sinn og kjör, en Fé-
lagsdómur felldi nýlega dóm um að
boðaðar verkfallsaðgerðir Félags
ungra lækna væru ólögmætar.
Óttast að sagan sé
að endurtaka sig
Oddur Steinarsson segir að þessi
leið með vaktafyrirkomulagið hafi
verið farin fyrir tveimur árum. „Þá
voru vaktir styttar, en fjölgað um
leið. Því var heildarvinnutíminn jafn
langur og áður,“ segir hann.
Hann segir að unglæknar óttist að
nú sé sagan að endurtaka sig. „Spít-
alinn virðist ekki fá nein úrræði til
að bæta mönnun. Staðan versnar ár
frá ári og ríkið fer mjög halloka í
samkeppninni,“ segir hann.
Varðandi hitt atriðið, að skil-
greina hugtakið „læknir í starfs-
námi“, segir Oddur það litlu skipta
fyrir unga lækna. „Þetta er aðeins
til að spítalinn geti notað undan-
þáguákvæðið fyrir lækna í starfs-
námi. Þetta er eitthvað sem ríkið
hefði fyrir löngu átt að vera búið að
gera,“ segir hann.
Lögsókn skoðuð í vikunni
Oddur segir að félagsfundur fjalli
um þetta mál í næstu viku. „Við er-
um að skoða hvort við eigum að fara
í mál við ríkið á grundvelli þessa
undanþáguákvæðis í samningi
Læknafélagsins og ríkisins. Þar er
reyndar talað um „lækna í starfs-
námi“, en í framkvæmdinni er því
beitt á alla unga lækna. Flestir í
okkar röðum eru svokallaðir deild-
arlæknar, sem eru með fullgilt
lækningaleyfi og stunda ekki skipu-
lagt sérnám hér á Íslandi. Það er
ekki víst að spítalinn geti beitt þessu
ákvæði á þá,“ segir hann. Hann seg-
ir að þetta verði skoðað með lög-
fræðingi í vikunni.
Heilbrigðisráðherra segir að
kjaramál unglækna heyri undir fjár-
málaráðuneytið og því hafi hann
ekki lögsögu í þeim efnum. „En ef
ráðstafanir hafa í för með sér aukin
útgjöld fyrir sjúkrahúsið verður að
huga sérstaklega að því, m.a. með
tilliti til fjárveitinga,“ segir hann.
Heilbrigðisráðherra sendir
LSH erindi vegna unglækna
Formaður Félags
ungra lækna ótt-
ast að aðgerðir
hafi lítið að segja
STOFNUÐ voru samtök um jarð-
gangagerð á Mið-Austurlandi á fundi
í Sólbrekku á Mjóafirði um síðustu
helgi. Tilgangur fundarins og samtak-
anna, að sögn Guðrúnar Katrínar
Árnadóttur á Seyðisfirði, er að vekja
athygli á hugmyndinni um svokölluð
T-göng, sem myndu tengja Seyðis-
fjörð, Mjóafjörð, Norðfjörð, Eskifjörð
og Hérað. Ekki er búið að ákveða
nafn á samtökin.
Guðrún Katrín segir að hugmyndin
sé yfir 20 ára gömul. „Framkvæmdin
er afar mikilvæg fyrir Mið-Austur-
land; eflingu atvinnulífs og almennt
betri búsetuskilyrði. Hún er sérstak-
lega fýsileg með tilliti til væntanlegra
álversframkvæmda,“ segir hún og
bætir við að göngin myndu draga
mjög úr vetrareinangrun staðanna.
Hún leggur áherslu á að stefna fé-
lagsmanna sé ekki að koma í veg fyrir
gangagerð annars staðar.
Mikilvægt fyrir sterkan
byggðarkjarna
Guðrún segir að stefnan sé að
mynda sterkan byggðarkjarna á Mið-
Austurlandi. „Þess vegna er mjög
mikilvægt að við fáum þessi göng og
þurfum ekki að bíða í önnur 20 ár,“
segir hún. Hún segist gera sér grein
fyrir að um mjög dýra framkvæmd sé
að ræða, „en hún er peninganna
virði“.
Framkvæmdin myndi hafa í för
með sér verulega styttingu á vega-
lengdum milli staða. Sem dæmi nefnir
Guðrún að vegalengd milli Norðfjarð-
ar og Seyðisfjarðar yrði 26 kílómetr-
ar, í stað 100 kílómetra eins og raunin
er nú. Á milli Eskifjarðar og Seyð-
isfjarðar eru nú 75 kílómetrar, en
göng myndu stytta leiðina niður í 26
kílómetra.
Rúmlega 20 ára gömul
hugmynd
Guðrún segir að hugmyndin hafi
verið rannsökuð fyrst árin 1983–84 og
svo aftur 1989 og 1993. Á tímabili hafi
hún verið komin inn á langtímaáætlun
Vegagerðarinnar, en með þingsálykt-
un um jarðgangaáætlun árið 1999 hafi
aðrar framkvæmdir verið settar í for-
gang.
Samkvæmt fyrrnefndri þingsálykt-
un, sem samþykkt var 13. maí árið
2000, skal leggja jarðgöng milli Reyð-
arfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Auk
þess skal sérstaklega rannsökuð göng
milli Eskifjarðar og Norðfjarðar ann-
ars vegar og Héraðs og Vopnafjarðar
hins vegar.
#$
%
&'(%)*%
+' ,%
# )*%
!"#
$%
&'""
()
&!! *+
-
,
-
!"
-
-
- . -
,
-
-
-
-
Samkvæmt þingsályktun frá 2000 skal huga að gerð ganga undir Hellis-
heiði, frá Vopnafirði til Héraðsflóa. Tillagan gerir líka ráð fyrir að haf-
ist verði handa við gerð ganga milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Hugmyndin sem hin nýstofnuðu samtök vilja koma á framfæri felur í
sér göng frá Egilsstöðum til Seyðisfjarðar, Seyðisfirði til Mjóafjarðar,
Mjóafirði til Norðfjarðar og Norðfirði til Eskifjarðar. Önnur útfærsla
gerir ráð fyrir göngum frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar, Mjóafirði upp á
Hérað, Mjóafirði til Norðfjarðar og Norðfirði til Eskifjarðar. Tveir
möguleikar þykja koma til greina á síðastnefndu leiðinni; 6 kílómetra
og 4,2 kílómetra göng.
Ný samtök um
jarðgangagerð
á Austurlandi
SMITHSONIAN-
safnið í Washington
D.C. í Bandaríkjunum
hefur fengið til varð-
veislu afrakstur ævi-
starfs Höllu Linker og
manns hennar, sjón-
varpsmannsins Hals
Linker, en hann lést
árið 1980. Um er að
ræða allt filmusafn
hjónanna, sjónvarps-
þætti, myndir, hljóð-
upptökur, auglýs-
ingaefni, ritdóma og
viðtöl við Linker-
fjölskylduna.
Að sögn Höllu verð-
ur efnið varðveitt í mann- og forn-
leifafræði Smithsonian-safnsins sem
ein heild, undir nafninu The Linker
Family Collection. Halla segir að
samningurinn við Smithsonian-
safnið hafi þróast undanfarið ár. Að-
dragandi málsins er sá að fyrir
nokkrum árum gaf Halla hluta af
filmusafni sínu til California State
University í North-
ridge og átti háskólinn
síðar frumkvæði að því
að haft var samband
við Smithsonian-safnið
vegna málsins, og hafði
safnið mikinn áhuga á
þessu.
Í fyrrasumar hafi svo
forstjóri mann-
fræðideildar Smith-
sonian-safnsins, John
Homiak, komið til
fundar við sig, en í ljós
kom að það efni sem
Halla hafði í fórum sín-
um var mun umfangs-
meira en hann bjóst
við. Ákveðið var því að funda um
málið með ábyrgðarnefnd safnsins
og átti fundurinn að eiga sér stað 11.
september, en vegna hryðjuverk-
anna í Bandaríkjunum þann dag í
fyrra frestaðist hann. Nú er hins
vegar búið að ganga frá samningum
milli safnsins og Linker-fjölskyld-
unnar. Mun safnið veita efninu mót-
töku nú í júlí og flytja það til Wash-
ington D.C.
Þar verður það aðgengilegt vís-
indamönnum eða öðrum í heim-
ildaleit, til dæmis á sviði arkitekt-
úrs, en Halla segist mjög ánægð með
að safnið geti nýst á þennan hátt.
Gæti ekki hugsað
mér neitt betra
Aðspurð um merkingu þessa fyrir
sig segir Halla að hún gæti ekki
hugsað sér neitt betra en að ævi-
starf hennar og Hals Linker fari til
varðveislu um ókomna tíð á einu
merkasta safni í heimi, og verði
varðveitt og nýtt þar. Hún segir að
sama gildi um son hennar sem ferð-
aðist í æsku vítt og breitt um heim-
inn með foreldrum sínum vegna
starfa þeirra, en er nú læknir í
Bandaríkjunum. Hann sé einnig af-
ar ánægður með þessa niðurstöðu.
Allt efni sem Halla og Hal Linker
tóku upp á Íslandi gaf Halla Kvik-
myndasjóði Íslands til varðveislu ár-
ið 1992.
Ævistarf Linker-hjónanna
á Smithsonian-safnið
Halla Linker