Morgunblaðið - 02.07.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 02.07.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 41 Sími 562 0200 Erfisdrykkjur www.solsteinar.is sími 564 4566 Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning Ný legsteinagerð Einstakir legsteinar Legsteinar og englastyttur Helluhrauni 10 220 Hf., s. 565 2566 Englasteinar ✝ Jórunn Sig-tryggsdóttir fæddist á Jórunnar- stöðum í Saurbæjar- hreppi í Eyjafirði 11. ágúst 1950. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 25. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sig- tryggur Guðbrandur Símonarson, bóndi og mjólkurbílstjóri á Jórunnarstöðum, f. 16. jan. 1915, d. 4. ágúst 1997, og Hrafnhildur Aðalsteinsdóttir, húsfreyja á Jórunnarstöðum, nú búsett á Akureyri, f. 5. sept. 1920. Systkini Jórunnar eru Torfi, f. 26. febrúar 1947, búsett- ur í Vestmannaeyjum, Svanhild- ur húsfreyja á Engi í Bárðardal, f. 12. júní 1948, og Kolfinna hús- freyja á Akureyri, f. 11. ágúst 1950, tvíburi við Jórunni. Eftirlif- andi eiginmaður Jórunnar er Kristján Ingi Hermannsson, f. á Ytri-Bægisá í Hörgárdal 18. des- ember 1939. Þau gengu í hjóna- band 24. október 1970. Foreldrar Kristjáns Inga voru hjónin Her- mann Valgeirsson, f. 16. október 1912, d. 15. apríl 1990, og Þur- íður Pétursdóttir, f. 4. janúar 1912, d. 2. júní 1983, sem bjuggu í Lönguhlíð og víðar í Hörgárdal. Börn Jórunnar og Kristjáns eru fjögur: 1) María Björk fram- haldsskólakennari, f. 3. júlí 1970, sam- býlismaður Ágúst Ólafsson íþrótta- kennari, f. 30. maí 1971, dóttir þeirra er Íris Björk, f. 7. september 2001. 2) Sigurður Hörður stýrimaður, f. 5. júlí 1971, dóttir hans og Karenar Bjarkar Óskarsdóttur nema, f. 29. sept. 1974, er Andrea Ósk, f. 10. maí 2000. 3) Heiðdís Harpa hjúkrunar- fræðingur, f. 5. október 1976. 4) Sólveig Halla guðfræðinemi, f. 14. desember 1977, sambýlismað- ur Eiður Guðni Matthíasson verslunarmaður, f. 27. apríl 1972. Jórunn ólst upp hjá foreldrum sínum á Jórunnarstöðum. Hún var í kaupavinnu á sumrum, vann í verslun á Akureyri, stundaði nám við Húsmæðraskólann á Laugalandi 1967-1868 og vann á Hótel Reykjahlíð í Mývatnssveit. Jórunn og Kristján stofnuðu fyrst heimili á Akureyri, en í maí 1971 reistu þau bú að Staðar- tungu í Hörgárdal, sem þá hafði verið eyðibýli í fimm ár. Þau tóku við búi í Lönguhlíð af foreldrum Kristjáns í júní 1974 og hafa rek- ið þar bú síðan. Útför Jórunnar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Það var feiminn ungur maður sem kom í sína fyrstu heimsókn í Löngu- hlíð fallegt síðsumarskvöld fyrir tæpum sex árum. Við María Björk, elsta dóttir Jórunnar og Kristjáns, vorum nýfarin að slá okkur upp og það var ekki laust við að hjartað slæi aðeins örar þegar við nálguðust bæ- inn. Nú myndi ég hitta foreldra Maríu í fyrsta sinn og ýmsar hugs- anir flugu um hugann eins og gjarn- an vill verða á slíkum stundum. En allar áhyggjur voru fljótar að hverfa því viðtökurnar voru slíkar að það var eins og maður hefði þekkt heim- ilisfólkið í langan tíma. Jórunn var einmitt ein af þeim sem manni leið strax vel í návist við og hún tók öllum, stórum sem smáum, opnum örmum. Þessari ein- stöku hlýju og gestrisni hef ég síðar notið í hverri heimsókn í Lönguhlíð og bæði fjölskylda mín og vinir, sem hafa komið þangað til lengri eða skemmri dvalar, hafa öll haft sömu sögu að segja. Eftir því sem ég kynntist Jórunni betur komu mannkostir hennar enn frekar í ljós. Hún var harðdugleg og svo afkastamikil að ég furðaði mig oft á hvernig henni dygði sólarhring- urinn til koma öllu því sem hún gerði í verk. Hún var risinn upp til verka snemma á morgnana, gekk í öll störf utanhúss en tókst á sama tíma að vera með glæsilegar veitingar á borðum bæði fyrir heimilisfólk og þá fjölmörgu gesti sem litu inn. Ekki var spurt að því hve margir yrðu í mat eða kaffi heldur var alltaf nóg til og bara bætt við diskum ef þurfti. Jórunni var margt fleira til lista lagt. Hún var mikil hannyrðakona, hafði gaman af lestri bóka og fór létt með að setja saman vísur þótt ekki sé ég viss um að það hafi farið hátt. Eitt var þó það hlutverk sem Jórunn hafði líklega mest yndi af en það var ömmuhlutverkið. Barnabörnin eru tvö og hún bar þvílíka umhyggju og ástúð fyrir þeim að ekki fór fram hjá neinum. Það er mikill missir fyrir þau að Jórunn skyldi vera kölluð frá okkur alltof snemma því hún átti sannar- lega skilið að fá að sjá þau vaxa úr grasi. Þar sem við María Björk og dóttir okkar Íris Björk, sem nú er tæplega tíu mánaða, erum búsett í Reykjavík voru samverustundirnar ekki eins margar og við hefðum kos- ið. Jórunn var hins vegar stöðugt að lauma gjöfum til Írisar Bjarkar sem hún hafði saumað eða prjónað og báru smekkvísi hennar og vand- virkni glöggt merki. Þegar hún hitti barnabörnin var svo myndbands- upptökuvélin ekki langt undan og síðan yljaði hún sér við myndirnar fram að næstu heimsókn. Jórunn hringdi reglulega suður og ef ég varð til svara var viðkvæðið gjarnan: Hvað segirðu mér af Björkunum mínum? Síðan vildi hún fá að vita allt sem litla daman hafði afrekað frá síð- asta samtali. Ég á eftir að sakna þessara símtala en ég get lofað því, að ég mun gera mitt besta til að passa upp á Bjarkirnar hennar. Ótímabært fráfall þitt er okkur öllum mikið áfall. Mestur er þó miss- ir Kristjáns, barna ykkar og Hrafn- hildar, sem sjá á bak ástkærri eig- inkonu, móður og dóttur. Samheldni fjölskyldunnar er hinsvegar mikil eins og komið hefur í ljós á síðustu vikum og þar finnur fjölskyldan styrk á þessum erfiðu tímum. Ég veit að þú munt eftir sem áður vaka yfir velferð fólksins þíns og fylgjast með úr fjarlægð. Blessuð sé minning þín. Ágúst Ólafsson. JÓRUNN SIGTRYGGSDÓTTIR ✝ Ásdís Jónsdóttirfæddist í Hafn- arfirði 3. febrúar 1938. Hún lést á heimili sínu mánu- daginn 24. júní síð- astliðinn. Hún var dóttir hjónanna Jóns Pálssonar, vélstjóra og pípulagninga- meistara, f. 1. des- ember 1912, d. 10. júní 1997, og Guð- rúnar Stefánsdóttur húsmóður, f. 12. nóvember 1915, d. 5. ágúst 1978. Systkini Ásdísar eru Stefán Jóhann, f. 1934, Guðrún Helga, f. 1935, d. 1990, Dóra, f. 1936, d. 1938, Páll, f. 1939, Dóra, f. 1940, Gunnlaug- ur Leo, f. 1941, Auður Hafdís, f. 1944, Vigdís Ástríður, f. 1947, og Hrafnhildur, f. 1949. Hinn 25. maí 1963 giftist Ásdís eftirlifandi eiginmanni sínum Jó- hanni Þórarinssyni kennara, f. 10. maí 1942. Foreldrar hans voru Þórarinn Vigfússon, f. 25. júlí 1902, d. 2. janúar 1985, og Klara Hallgrímsdóttir húsmóðir, f. 26. nóvember 1916, d. 9. ágúst 1987. Börn Ásdísar og Jóhanns eru: 1) Þórarinn landfræð- ingur, f. 21. ágúst 1963, maki Auður Pálsdóttir, land- fræðingur og kenn- ari, f. 21. febrúar 1965. Börn þeirra eru Páll Ágúst, f. 29. janúar 1995, og Bjargey Þóra, f. 7. október 1998. 2) Margrét kennari, f. 23. febrúar 1968. 3) Jóhann Ágúst tölvu- ður, f. 5. ágúst 1971, unnusta hans er Lilja Guð- rún Sæþórsdóttir bankastarfs- maður, f. 5. desember 1979. Ásdís ólst upp í Hafnarfirði. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskóla og stundaði nám við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Ásdís vann við skrif- stofu- og verslunarstörf ásamt því að vera húsmóðir og annast uppeldi barna sinna. Hún vann ekki utan heimilis síðustu árin. Útför Ásdísar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú er rúmlega fjögurra ára þrautagöngu þinni lokið. Sjúkdómur- inn sem hreiðraði um sig í líkama þín- um hefur haft yfirhöndina og sigrað líkama þinn. Ég hef smátt og smátt verið að átta mig á hversu alvarlega veik þú varst því þú barst þig alla jafna svo vel, miklu betur en efni stóðu til. Síðustu vikur lífs þíns kom svo berlega í ljós úr hverju þú varst gerð því þú gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Því þú varst baráttukona. Það er misjafnlega gefið úr spila- stokknum í upphafi ævi hvers manns. Flestir fá góð spil en gengur misvel að spila úr þeim. Stundum eru betri spilin slegin úr hendi spilarans og þá gildir að nota vel þau sem eftir eru. Og það gerðir þú. Þú hafðir sterka réttlætiskennd og þoldir illa að horfa upp á hvers kyns misrétti eða mis- notkun. Þú vannst öll þín verk af alúð og gríðarlegri vandvirkni. Ég verð þér ævinlega þakklát fyrir að hafa al- ið mig upp í þessum anda og þannig lifir þú áfram í mér. Ég á afskaplega erfitt með að sætta mig við að þú skulir vera farin frá mér en ég veit að úr því sem kom- ið var þá var það þér fyrir bestu. Lík- ami þinn, sem var orðinn svo veikur, hefur nú verið losaður undan allri þjáningu. Nú ertu komin til Guðs og hittir þar fyrir margt góðra manna og kvenna sem taka vel á móti þér. Líkast til ertu nú á rölti um garða skaparans að skoða trén og blómin. Og fuglarnir syngja, sólin skín og vindurinn bærist í laufi trjánna. Elsku mamma mín, ég veit þú lítur til með mér. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Ég kveð þig að sinni. Þín dóttir, Margrét. Það er eitt sem er alveg öruggt í þessu lífi. Við fæðumst, lifum og deyj- um. Þrátt fyrir að vita það og hafa svo vitað það síðustu fjögur árin að móðir mín væri með illvígan sjúkdóm, sem gat bara leitt til eins, fær ekkert mann búið undir það þegar að kallinu kemur. Ekki einu sinni þegar fór að halla verulega undan fæti hjá mömmu. Minningarnar um móður mína hrannast upp í huganum þessa dagana. Ég minnist móður minnar sem ákaflegrar sterkrar og ákveð- innar konu en líka mjög sanngjarnr- ar. Konu sem tók ekki að sér neitt verk án þess að skila því af sér eins vel unnu og kostur var. Ef búist var við gesti á heimilið var hrært í skál- um, form sett inn í bakaraofn og út kom hvert meistaraverkið á eftir öðru. Allur matur var borinn fram eins og á fínustu veitingastöðum en samt var þetta alltaf maturinn henn- ar mömmu sem enginn á eftir að slá út. Ekki einu sinni fínustu veitinga- staðir. Allt var hreint og fínt á heimili móður minnar og mér finnst stund- um eins og mamma hafi alltaf verið að þrífa og snurfusa á heimilinu. Einnig minnist ég sterklega hversu vel hún stóð með mér í því sem ég tók mér fyrir hendur og ef einhver gerði á minn hlut steig hún fram og varði mig heilshugar. Svo sterk var rétt- lætiskennd hennar. Ef ég gerði hins vegar eitthvað rangt benti hún mér á það og þannig lærði ég muninn á réttu og röngu. Að launum fékk ég sömu réttlætiskennd og mamma mín hafði. Á laugardaginn fyrir Jónsmessu, þegar mamma mín lá og barðist fyrir lífi sínu, vorum við nánasta fjölskylda hennar hjá henni. Ég fór út í garð og sló garðinn svona til að dreifa hug- anum. Ég rakaði saman grasið og vökvaði trén sem mamma hafði rækt- að. Á meðan ég var að því flugu þrest- irnir úr einu tré yfir í annað og flugu fram hjá mér rétt eins og þeir væru að athuga hvað ég væri að gera eða til að heilsa mér. Mamma hafði oft sagt mér hvað henni þótti gaman að vera í garðinum innan um fuglana. Og pabbi bjó til fuglahús og setti upp í garðinum fyrir mömmu. Á sínum tíma áttaði ég mig ekki á því hvað hún var meina með því að fá sér allskonar plöntur og gróðursetja þær út um allt í garðinum. Ég skil það núna. Í dag er garðurinn þakin fallegum og stórum plöntum sem keppast við að breiða úr sér og sumar blómstra til að ná sér í bónus. Garðurinn var hennar yndi. Hann er lýsandi fyrir hennar hugsun, að sá, að rækta og njóta. Vegna þess að mamma var svo sterk kona var það afskaplega erfitt að sjá líf hennar fjara út um Jóns- messuhelgina. Styrkurinn og þolið hvarf en eftir stóð stórt og gott hjarta sem neitaði að gefast upp. Núna er hún hins vegar búin að fá sinn frið og þarf ekki lengur að berjast við sjúk- dóm sem enginn ræður við. Mamma mín er dáin. Þegar ég hugsa fram í tímann finnst mér sárt að hugsa til þess að mamma verði ekki hjá okkur. Ég og unnusta mín höfum nýlega flutt inn í íbúðina okkar og stefnum á að stofna fjölskyldu. Ef Guð gefur okkur gæfu til tekst það, en það er sárt að hugsa til þess að sú fjölskylda muni ekki hafa hana mömmu mína til að sinna ömmuhlut- verkinu. Ég hugga mig þó við það að það verður gott að eiga góðan að hinum megin. Einhvern sem lítur eftir mínu fólki. Æ, elsku pabbi. Síðustu dagar og vikur hafa verið okkur afskaplega erfiðar. Þú hefur staðið þig eins og hetja og stutt hana mömmu alla leið, öll skref- in. Ég er afskaplega stoltur af þér. Mér finnst þú hafa verið mjög lán- samur maður að hafa hitt hana mömmu og verið eiginmaður hennar í 39 ár. Ást hennar á okkur kemur henni nú á góðan stað og ást okkar á henni mun fylgja henni alla leið. Jóhann Ágúst Jóhannsson. ÁSDÍS JÓNSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Ás- dísi Jónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. S. 555 4477  555 4424 Erfisdrykkjur ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minningar- greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.