Morgunblaðið - 20.07.2002, Síða 40
MINNINGAR
40 LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Óskar Sövikfæddist á Veb-
lungsnes í Raumsdal
í Noregi hinn 1. jan-
úar 1904. Hann lést
á Héraðshælinu á
Blönduósi að morgni
hins 9. júlí síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Ole Sö-
vik sem var kaup-
maður og skósmiður
og Guri Sövik, fædd
Hovde. Óskar var
fimmti í röð átta
systkina. Olav As-
björn og drengur
sem einnig hét Óskar dóu á
barnsaldri. Þau sem komust upp
voru: Peder, kona hans hét Gud-
run og eignuðust þau tvö börn;
Georg sem flutti til Seattle í
Bandaríkjunum og bjó þar alla
sína ævi, kona hans hét Naima og
eignuðust þau eina dóttur; Gud-
veig, maður hennar var Magnus
Bruaset og eignuðust þau tvo
syni; Reidar, kona hans heitir As-
laug og eiga þau tvö börn; yngst-
ur var Arnfred, fyrri kona hans
hét Ellen og eignuðust þau einn
son, seinni kona hans heitir Nora.
Hinn 5. sept. 1944 kvæntist
Óskar eftirlifandi eiginkonu
sinni, Sólveigu Kristbjörgu Bene-
diktsdóttur, f. 24. des. 1912, dótt-
ur hjónanna Benedikts Björns-
sonar, skólastjóra á Húsavík og
Margrétar Ásmundsdóttur konu
hans. Dóttir Óskars
og Sólveigar er
Ragnheiður Guð-
veig, f. 26. júlí 1953,
kennari, búsett í
Glaumbæ II í Skaga-
firði. Eiginmaður
hennar er Arnór
Gunnarsson, f. 19.
júlí 1951, bóndi.
Synir þeirra eru
Óskar, f. 30. mars
1976, tölvunarfræð-
ingur í Reykjavík,
og Atli Gunnar, f.
12. mars 1979, verk-
fræðinemi.
Óskar ólst upp á Veblungsnes
og lauk þar skyldunámi sínu. Síð-
ar stundaði hann nám við tækni-
skóla í Ósló og útskrifaðist þaðan
sem rafvirkjameistari. Árið 1929
kom Óskar til Íslands og vann
fyrst við uppsetningu rafstöðva
víða um land. Var hann ráðinn
rafveitustjóri Rafveitu A-Hún.
við stofnun hennar 1. janúar
1934. Gegndi hann því starfi til
31. des. 1959, síðustu árin í þjón-
ustu Rafveitna ríkisins. Er hann
hætti störfum þar stundaði hann
um langt árabil viðgerðir á raf-
magnstækjum hvers konar. Síð-
ustu æviárin dvaldist hann á
sjúkradeild Héraðshælisins á
Blönduósi.
Útför Óskars fer fram frá
Blönduóskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Það er erfitt að gera sér í hug-
arlund hvernig það hefur verið að
lifa nærri alla síðustu öld, og verða
vitni að þeim ótrúlegu breytingum
og þeim framförum sem hún bar í
skauti sér. Því fólki sem upplifði
þessa mestu umbrotaöld sögunnar
fer óðum fækkandi, og nú er látinn
afi okkar, Óskar Sövik, 98 ára að
aldri.
Afa okkar minnumst við sérstak-
lega fyrir það hversu hirðusamur
hann var um allt sem hann tók sér
fyrir hendur og á verkstæðinu hjá
honum, þar sem hann gerði við út-
vörp og fleiri raftæki, var reglusem-
in og snyrtimennskan í fyrirrúmi.
Þar var hver hlutur á sínum stað og
lamparnir í útvarpstækin stóðu í fal-
legum röðum uppi á hillu. Einnig
finnst okkur vert að minnast sér-
staklega á bílinn hans afa, sem var
glæsilegur Buick, árgerð 1947, en
bílinn átti hann í áratugi og hirti
hann þannig að eftir var tekið, enda
var hann ávallt eins og nýr.
Afi var ekki fyrir að trana sér
fram né að hreykja sér af verkum
sínum, í stað þess sinnti hann sínum
störfum af samviskusemi, og hefur
ætíð verið okkur bræðrum fyrir-
mynd hvað þetta varðar.
Alltaf var jafn gott að koma til
þeirra afa og ömmu, og alltaf sýndi
afi jafn mikinn áhuga á því sem við
bræðurnir tókum okkur fyrir hend-
ur, og allt fram á síðasta dag vildi
hann fylgjast náið með okkur og
okkar störfum. Samband þeirra
ömmu var einstakt og umhyggja
þeirra hvors fyrir öðru var mikil og
innileg.
Megi minningarnar um afa verða
til þess að gera okkur missinn bæri-
legri og erum við þakklátir fyrir þær
stundir sem við áttum með honum.
Atli Gunnar og Óskar
Arnórssynir.
– Gott er að eiga góða vini, kom í
hug mér er ég frétti lát Óskars Sö-
vik. Nú er hann farinn yfir móðuna
miklu. Hann var vinur vina sinna.
Þess fengum við margsinnis að
njóta. Óskar var fyrsti rafveitustjóri
hér við Laxárvatnsvirkjun. Það var
mikið og erfitt starf, sem Óskar
leysti með prýði, af sinni alkunnu
samviskusemi og dugnaði. Lét hann
þá ekki veður eða ófærð hefta för
sína, ef um bilanir var að ræða. Það
voru líka margir, sem komu til hans
með biluð raftæki og fengu þau við-
gerð. Ekki var Óskar strangur með
borgun fyrir slíkan greiða. Hann
fékkst einnig við viðgerðir á út-
varpstækjum og var mjög fróður um
sjónvörp og tækni á því sviði. Og
fyrsta sjónvarpsloftnet hér á
Blönduósi setti hann upp á húsi sínu.
Guðný man vel árin, sem þau áttu
saman fyrst eftir að hann kom til Ís-
lands. En þá dvaldi hann í húsi for-
eldra hennar. Hún þakkar innilega
góð kynni við góðan vin.
Margt er í minninga heimi
mun þá ljósið þitt skína.
Englar hjá guði þig geymi.
Við geymum svo minningu þína.
(Ók. höf.)
Við vottum fjölskyldu Óskars inni-
lega samúð okkar.
Kristinn og Guðný.
Látinn er í hárri elli hér á Blöndu-
ósi Óskar Sövik, rafvirkjameistari
og fyrrverandi rafstöðvarstjóri.
Hann var norskur að ætt og kom
hingað í Húnavatnssýsluna til þess
að setja upp rafstöð. Af tilviljun vissi
hann um nýlega rafstöð úti í Noregi.
Hann lét vita um þessa rafstöð og
var sendur út til þess að kanna
ástand vélanna og kaupa, ef um
semdist. Það gekk og voru vélarnar
keyptar og samið við Sövik um að
setja vélarnar upp í nýrri rafstöð,
sem verið var að byggja fyrir
Blönduós.
Þetta voru fyrstu afskipti Söviks,
sem við kölluðum alltaf svo, og ætl-
aði hann svo að hverfa heim til Nor-
egs. En forlögin ætluðu honum ann-
að. Hann setti upp vélarnar og
rafstöðin tók til starfa í janúar 1934.
Við höfðum áður haft rafmagn frá
lítilli vatnsaflsstöð á Blönduósi, sem
var takmarkað og ótryggt. Nýja
stöðin var við norðurenda Laxár-
vatns og var vatninu veitt í skurði að
stöðinni. Þarna var nægilegt vatn,
en sá hængur var á að kæmi stórhríð
áður en vatnið legði var hætta á að
skurðinn fyllti og allt yrði rafmagns-
laust. Það kom sér ákaflega illa því
auk ljósa og eldunar var rafmagnið
notað til upphitunar. Þessvegna var
Sövik, sem ráðinn hafði verið sem
rafstöðvarstjóri, og menn hans
ávallt á varðbergi að haustinu og
lögðu nótt við dag til þess að „halda
ristunum“ í inntaksþrónni hreinum.
Þrátt fyrir mikla vinnu og árvekni
kom það fyrir að náttúran hafði yf-
irhöndina og tók ráðin af mann-
skapnum. Þá var ekki um annað að
ræða en moka fram rás til þess að fá
rennsli á vatnið.
Nýja rafmagnið gerbreytti öllu lífi
bæjarbúa. Ávallt full spenna á ljós-
unum og hiti nægur fyrir þá sem
vildu og gátu keypt rafmagnið sem
var í ódýrari kantinum miðað við
landið allt. Og það sem ekki var
minna um vert, við fengum góðan og
lærðan rafvirkjameistara sem hjálp-
aði við að gera við rafmagnsáhöld og
ýmislegt fleira. Sövik hjálpaði mörg-
um og gat komið tækjunum, þar með
töldum viðtækjum, aftur í gagnið.
Hann var liðlegur og sanngjarn þeg-
ar að greiðslum kom, svo margir
sögðu að hann fylgdist ekki með
verðbólgunni. Hann aðlagaðist lífinu
hjá okkur alveg og meira að segja
festi ráð sitt með því að kvænast
skólastýrunni á Kvennaskóla Hún-
vetninga. Hún er ættuð frá Húsavík
og heitir Sólveig Benediktsdóttir.
Þau eiga eina dóttur.
Austur-Húnvetningar hafa ávallt
talið það mikið lán fyrir sig að hafa
haft Sövik með í ráðum þegar raf-
stöðin var byggð og að hann skyldi
verða hér áfram hjá okkur og vinna
við þær aðstæður sem hér voru. Eig-
endur rafstöðvarinnar voru Blöndu-
óshreppur, Sýslusjóður Austur-
Húnavatnssýslu og samvinnufélög-
in. Ég leyfi mér fyrir hönd þessara
aðila að færa fram þakkir fyrir mikið
og óeigingjarnt starf sem Sövik vann
á langri og farsælli starfsævi hér á
Blönduósi.
Ég og kona mín vottum konu hans
og dóttur og öðrum niðjum, svo og
öllum aðstandendum, innilega sam-
úð okkar.
Jón Ísberg.
ÓSKAR
SÖVIK
@
,-+,-
@ 6! A
@ 46
( / "
!
"
0
" 1"
22
033
@ #4@) ##
46
46
0
# @) ##
4@) ##
* /
4@) ##
:@) ##
@ #4#@*?
B ##@*?
: @)
*4
#'##
0 @)
+) ! ##
( ("
"**("
"**("%
@
,-/-
) # 0 * ))"#C
46
4/5-
6
& "$
'
7* $
# %
DEF-@
/>-
)
# #" *
G'!"#H
( / "
!
& "$
'
'
# I#
( (" ( ( ("%
8 5
"
" "
" : $+ 7
7-
* 46AC
" 9
22033
.
/
1 //
"
/54
%)) ##
4%: ##
*/
4 %: ##
: :
I :%:
@ #4%$ ##
))J%:
4 @ #!)##
# %:
: > ##
K ("%
7
" "
" -DED-
7-
-! 46( #CC
K-! 46
:
:
, "$
" " "
* -*
"
# ("
( ("
( ( ("%
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
(
- - '
"$
5
"$
"$
"$ "
"/
DED--
7-
*# "*HL
-6 ?# %
! - 5
""
7
; "* " /5
* : / * $ 7* $
/2/ 6 (## %
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.