Morgunblaðið - 20.07.2002, Blaðsíða 42
MINNINGAR
42 LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Jóhann Lúðvíks-son fæddist í
Hjörnungarvog í
Noregi 18. júní 1914.
Hann lést á sjúkra-
húsi Skagfirðinga á
Sauðárkróki 9. júlí
síðastliðinn. Foreldr-
ar Jóhanns hétu Lud-
vik og Sina Asen.
Hann átti tvo bræð-
ur, Alf og Lárus, sem
báðir eru látnir. Jó-
hann kom til Íslands
árið 1931.
Jóhann kvæntist 7.
ágúst 1937 Sigurlínu
Magnúsdóttir, f. 3.7. 1916, d. 22.
12. 1998. Þau bjuggu allan sinn
búskap á Kúskerpi í
Skagafirði. Jóhann
og Sigurlína eignuð-
ust fimm börn; Ás-
björgu, Magnús (lát-
inn), Sigrúnu, Maríu
og Lúðvík. Afkom-
endur eru 31.
Jóhann vann við
vegagerð frá 1940 til
1989, þar af verk-
stjóri meiri hluta
tímans, ásamt því að
stunda búskap á Kú-
skerpi.
Útför Jóhanns fer
fram frá Sauðár-
krókskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Gamla klukkan í holinu er hætt
að slá og afi niðurfrá hefur kvatt
þennan heim.
Það er margt sem kemur upp í
hugann á slíkri stund og hugsunin
um þegar hann lá á sjúkrahúsinu
með lokuð augun og friðurinn og
róin voru allt í kringum hann, en
það var það sem hann vildi, að fá
að kveðja okkur í friði og ró.
Það var tómleg tilfinning að
ganga inn í húsið eftir að afi dó og
heyra ekki í neinum bjóða góðan
dag eða spyrja mann frétta. Afi og
amma, sem alltaf hafa verið í hús-
inu sínu niðurfrá og okkur systk-
inunum hefur þótt sjálfsagður hlut-
ur að hlaupa niður brekkuna
hvenær sem okkur sýndist að fá
eitthvað í gogginn, spjalla eða bara
finna frið og ró fyrir svefninn. Þeg-
ar maður hugsar til þessara stunda
veit maður hve lánsamur maður
hefur verið að hafa alltaf haft þau
til staðar í uppvextinum, því ótrú-
legustu mál voru leyst í ömmu- og
afabæ. Afi var stór maður sem
maður bar mikla virðingu fyrir,
hann var rólegur og alltaf eins og
hann væri mikið að hugsa, hann
var vandvirkur og fór sérstaklega
vel með alla hluti og vildi hafa allt í
röð og reglu í kringum sig og það
áttu þau amma sameiginlegt að
vera alveg sérstök snyrtimenni.
Eitt af því sem maður tók sér-
staklega eftir þegar afi aðhafðist
eitthvað var að ekki fylgdu hávaði
eða læti neinum af hans verkum.
Afi var mikill húmoristi og alltaf
svolítið stríðni í orðum hans um
aðra en hann hló sjaldan að því
sjálfur heldur þurfti maður að sjá
grínið í orðum hans. Með fyrstu
minningum mínum um afa var þeg-
ar við fórum að gefa kúnum um
miðjan daginn, þá var ég tiltölu-
lega nýbúin að læra listina að
blístra og lét nú heldur betur heyr-
ast í mér. Þá sagði afi með sinni
rólegu rödd, að maður þyrfti ekki
að blístra svona hátt. Eftir þetta
fór ég að leggja eyrun við blístrinu
afa, sem var svo ótrúlega yfirvegað
og róandi og virkaði eins og hálf-
gert raul, alla tíð síðan hef ég notið
þess að hlusta á þetta blístur.
Afi hafði mikinn áhuga á veiði-
skap alla tíð, enda ólst hann upp
við að hafa sjóinn sem sinn næsta
nágranna í uppvexti sínum í Nor-
egi. Okkur krökkunum fannst allt-
af jafn skemmtileg sagan þegar
hann fór þriggja ára með afa sín-
um, sem var að fara á veiðar, og
var bundinn í bátinn svo hann félli
ekki útbyrðis. Afi átti alltaf bát og
skrapp stundum á sjóinn og veiddi
og kom oft heim með mikinn afla
og þá var nú handagangur í verk-
uninni hjá þeim ömmu. Hann
gladdist samt sjaldan eins mikið og
þegar vel veiddist í Héraðsvötn-
unum, – þegar við tíndum nokkra í
röð úr netunum færðist bros yfir
andlitið. Hann fór oft á dag að at-
huga með netin og þegar Maggi
frændi kom í heimsókn gátu þeir
eytt heilu dögunum niðri í Vötnum.
Með því síðasta sem hann gerði
var að fara yfir netin, sem voru
klár fyrir þetta sumarið með
mömmu. Hann afi hafði óendanleg-
an áhuga á vegagerð og öllu sem
því kom við, enda var hann vega-
vinnuverkstjóri í nær 40 ár. Þegar
sagðar voru ferðasögur spurði
hann alltaf út í hvernig vegirnir
væru og mér fannst stundum eins
og hann hefði unnið við flesta vegi
sem ég hef farið. Ég sat stundum
hjá afa og spjallaði og oftar en ekki
barst talið að æskuslóðum hans í
Noregi. Þá þurfti hann stundum að
draga upp landabréfabókina þegar
honum fannst ég ekki alveg með á
nótunum til að sýna réttar stað-
setningar og hvar það var sem
hann synti í sjónum í Hjörung-
arvogi og lék sér sem krakki. Þess-
ar sögur var alveg sérstaklega
gaman að hlusta á og sárt til þess
að hugsa að þær verða ekki fleiri.
Ég er þakklát fyrir allar þessar
stundir með afa mínum og þessi
fjögur ár sem sonur minn hefur
notið nærveru hans og þótt langt
væri á milli þeirra spjölluðu þeir
stundum eins og tveir gamlir karl-
ar um daginn og veginn. Nú er
gamli afi kominn með vængi og
floginn til ömmu upp í himininn
segir sá stutti og saknar hans sárt.
Elsku afi minn takk fyrir allt,
guð geymi þig og styrki systkinin í
söknuði sínum.
Sigurlína Hrönn.
Elsku afi, takk fyrir árin okkar
saman.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesú, að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu,
hald mér fast að spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
ljúfi Jesú, að mér gáðu.
(Ásmundur Eir.)
Sigurður og Ásbjörg
Elsku afi, takk fyrir allar stund-
irnar okkar.
Nú legg ég augun aftur,
ó Guð þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ virst mér að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson.)
Einar Örn
Elsku langafi, loksins ertu kom-
inn þangað sem þig var farið að
lengja eftir svo mjög. Þessi veik-
indi voru farin að verða þreytandi
og Guð kom loksins og sótti þig,
langamma tekur á móti þér og
langafi Geir. Við kveðjum þig með
harm í hjarta en vitum þó að þarna
líður þér vel í himnaríki með þeim
sem þú elskar svo mikið.
Vertu sæll, elsku langafi, og
takk fyrir allar stundirnar.
Sofðu vært, sofðu rótt
hina síðustu nótt.
Burt úr þjáning og þraut
þú ert svifinn á braut.
Vakir vinur þér hjá,
hann mun vel fyrir sjá.
Sofðu vært, sofðu rótt
hina síðustu nótt.
Sofðu vært, sofðu rótt
hina síðustu nótt.
Fyrir frelsara þinn
fer þú vinurinn minn.
Vafinn kærleika Krists
átt í komandi vist.
Sofðu vært, sofðu rótt,
hina síðustu nótt.
(Sigurður Helgi Guðm.)
Guð geymi þig.
Gréta María og Sylvía Sif,
Úlfsstöðum.
Að kveðja vin er aldrei einfalt mál
hve ótal margt er lifnar þá á ný
og gefur yl í anda minn og sál
um okkar samstarf ríkir minning hlý.
Við áttum saman áratuga leið
í öryggi þess manns er hvergi brást.
Og eftir vakir birta björt og heið
hann batt við land mitt hina sönnu ást.
Ég þakka allt á þeirri kveðjustund
er þreytu vinnudagsins lokið er
og aldinn maður fær hinn blíða blund
við brjóst þess lands til starfs er valdi
hann sér.
(G.B.)
Gunnar Baldvinsson, Hofsósi.
Íslendingar hafa löngum haft
þann sið, að gera menn að þjóð-
sagnapersónum, og með því móti
eignum við okkur afrek þeirra og
festum minningu þeirra í þjóðar-
sálinni. Jóhann Lúðvíksson var
einn þessara manna, hann var af-
reksmaður í störfum sínum og
vegna þeirra og hins stórbrotna
persónuleika síns var hann orðinn
þjóðsagnapersóna löngu fyrir
starfslok. Hann var í eigin huga
fyrst og fremst vegagerðarmaður
og átti langa starfsævi á þeim vett-
vangi. Mörg þrekvirki vann hann í
samgöngumálum, sem þjóna veg-
farendum enn í dag á ferð um
landið.
Góðir vegir þykja sjálfsagðir í
JÓHANN
LÚÐVÍKSSON
RAÐAUGLÝSINGAR
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Skúlabraut 15, Blönduósi, þingl. eig. Hekla Birgisdóttir, gerðar-
beiðendur Íbúðalánasjóður og Blönduósbær, fimmtudaginn
25. júlí 2002 kl. 10:00.
Skagavegur 16, Skagaströnd, 1. hæð ásamt bílgeymslu, þingl.
eig. Kristín Björk Leifsdóttir og Ragnar Haukur Högnason, gerðarbeið-
endur Íbúðalánasjóður, Frjáls fjölmiðlun ehf., Höfðahreppur og Leifur
Árnason hdl., fimmtudaginn 25. júlí 2002 kl. 11:00.
Snæringsstaðir, Svínavatnshreppi, þingl. eig. Benedikt Stein-
grímsson, gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Blönduósi, Sigurður
Árnason og Iðunn ehf., bókaútgáfa, fimmtudaginn 25. júlí 2002
kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
19. júlí 2002.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
21. júlí, sunnud: Dyravegur
— forn þjóðleið vestan Heng-
ils, afmælisferð, munið stimpl-
ana. Um 200 m hækkun, 4—5
klst. ganga. Fararstjóri Sigrún
Huld Þorgrímsdóttir. Þátttöku-
gjald 1.500/1.800. Brottför frá
BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í
Mörkinni 6.
24. júlí miðvikud.: Drauga-
tjörn á Hellisheiði, um 3 klst.
Brottför frá BSÍ kl. 19.30 með
viðkomu í Mörkinni 6. Verð
1.200/1.500.
Enn hægt að komast í Héðins-
fjörð og Hvanndali 24.—27.
júlí og í þjóðlendugöngur í
ágúst.
Sími FÍ 568 2533. www.fi.is, text-
avarp RUV bls. 619.
21. júlí. Leggjabrjótur frá
Þingvöllum
Leiðin er 16—18 km og áætlaður
göngutími 6—7 tímar. Brottför kl.
10:30 frá BSÍ. Verð kr. 1.800 fyrir
félaga, 2.100 fyrir aðra. Farar-
stjóri: Gunnar Hólm Hjálmars-
son.
21. júlí. Glymur
Brottför kl. 10:30 frá BSÍ. Verð kr.
1.800 fyrir félaga, 2.100 fyrir
aðra. Fararstjóri: Anna Soffía
Óskarsdóttir.
23.—30. júlí. Hesteyri —
Veiðileysufjörður
Verð kr. 14.900/17.100. Brottför
frá Ísafirði kl. 10:00. Fararstjóri:
Gunnar Hólm Hjálmarsson.
24. júlí. Í kringum Elliðavatn
Brottför á eigin bílum kl. 18:30
frá skrifstofu Útivistar. Ekkert
þátttökugjald.
24.—28. júlí. Laugavegurinn
Trússferð. Verð kr. 20.900/23.800.
Fararstjóri: Sigurður Jóhanns-
son.
25.—28. júlí. Strútsstígur
Trússferð. Verð kr. 16.900/19.500.
Fararstjóri: Hákon Gunnarsson.
25.—28. júlí. Sveinstindur —
Skælingar
Trússferð. Verð kr. 19.400/
22.600. Fararstjóri: Emilía Magn-
úsdóttir.
26.—30. júlí. Hornvík
Brottför frá Ísafirði kl. 8:30. Verð
14.900/17.100. Ein máltíð innifal-
in. Fararstjóri: Reynir Sigurðs-
son.
26.—28. júlí. Fimmvörðuháls
(Næturganga). Verð 8.700/
10.200 (í skála í Básum), 8.200/
9.700 (í tjaldi í Básum).
26.—28. júlí. Básar á Goða-
landi Helgarferð í Bása.
27.—28. júlí. Fimmvörðuháls-
ganga. Verð kr. 7.700/9.200.
mbl.is
ÍÞRÓTTIR
<
- '
'
5
$
$
*
+D+
D
):0"%
! - "*
$
" "
? :
>4*##
#2
5@%>4*##
/ /
@ #!)>4*
2)>4*
5 ##
>4*
Q #0'/ ?
>4*##
4 )
9#+ >4*##
5 >5#/
@) >4*
# ##
$ 0!)*
( (" ( ( ("%
<
- "* '
'
"$
$
$
;--D+G
D
#6 #
0?? %
># ##
+) @ #!)##
9#
( (" "**("%
.$
$
-
'
"$
D+DG EG --
D
#
'6! 46%
7* $
>4 5## %