Morgunblaðið - 20.07.2002, Side 45

Morgunblaðið - 20.07.2002, Side 45
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2002 45 PETER Leko sigraði Veselin Topalov í fyrstu einvígisskák þeirra af fjórum í úrslitum Dortmund Sparkassen áskorendamótsins. Leko stýrði hvítu mönnunum. Hann fékk þægilegri stöðu og í 29. leik fékk hann frípeð á a-línunni sem átti eftir að gera Topalov lífið leitt. Topalov gaf skákina í 81. leik. Þeir tefla fjórar skákir og lokaskákin verður tefld á sunnudag. Hvítt: Leko Svart: Topalov Sikileyjarvörn 1.e4 c5 2.Rf3 e6 3.d4 cxd4 4.Rxd4 Rf6 5.Rc3 Rc6 6.Rxc6 bxc6 7.e5 Rd5 8.Re4 Bb7 9.Be2 c5 10.0–0 Dc7 11.Rd6+ Bxd6 12.exd6 Dc6 13.f3 c4 14.Dd4 0–0 15.Bxc4 Hfc8 Kapparnir tefldu skák í þessu af- brigði, með skiptum litum, í Dubai, fyrr á þessu ári: 15...Dxd6 16.Hf2 Db6 17.Dh4 Hac8 18.b3 Re3 19.Bd3 Rf5 20.Df4 Dd4 21.Dxd4 Rxd4 22.Be3 Rc6 23.Bc5 Hfe8 24.Bd6 Re7 25.Hd2 Rf5 26.Bxf5 exf5 27.c4 a6 28.Kf2 g5 29.h4 f6 30.Bb4 Bc6 31.Hd6 He6 32.Hxe6 dxe6 33.hxg5 fxg5 34.Be7 h6 og hvíti, Topalov, tókst að svíða þessa stöðu af Leko. 16.b3 Dxd6 17.Hf2 -- Leko lék 17.Bb2 gegn Gritsjúk í Dubai. Framhaldið varð 17. -- e5 18.Df2 Rf4 19.Had1 Dg6 20.Kh1 d6 21.Hd2 Df6 22.Hfd1 d5 23.Bf1 d4 24.Hc1 h5 25.c3 dxc3 26.Bxc3 h4 27.h3 Rd5 28.Bb2 Hxc1 29.Bxc1 Hc8 30.Bb2 Df4 31.He2 f6 32.He4 Dg5 33.Bc4 Dg3 34.Dxa7 Hxc4 35.Hxc4 Rf4 36.Hxf4 exf4 37.Dd4 og hvítur vann 28 leikjum síðar. 17...Db6 18.Bb2 Dxd4 19.Bxd4 Rb4 20.c3 d5 21.Bf1 Rc6 22.Be3 – 22...Re7 Nýr leikur. Þekkt er að leika 22...a5, t.d. 23.a4 Re7 24.Hc1 f6 25.Bb5 Rf5 26.Bd2 Hc7 27.Bd3 Rd6 28.Be1 Ba6 29.Bc2 Kf7 30.Hd1 Rb7 31.b4 Bc4 32.g4 Rd6 33.b5 Rb7 34.Hfd2 Rc5, með jafntefli nokkru síðar (Kasparov-Gritsjúk, Cannes 2001). 23.Hc1 a5 24.Hfc2 e5 25.c4 f6 26.cxd5 Hxc2 27.Hxc2 Rxd5 28.Bd2 a4 Svartur losar sig við veika peðið á a-línunni, en við það fær hvítur frí- peð á línunni. Eftir 28...Kf7 29.Hc5 a4 30.Bc4 Ke6 31.Hc7 axb3 32.Bxb3 Hb8 33.Hxg7 hefur hvítur mun betra tafl. 29.bxa4 Hxa4 30.Bb5 Ha8 31.a4 Kf8 32.a5 Ba6 Svartur skorðar frípeð hvíts á a- línunni og reynir að ná mótspili með hrók og riddara. Hann á þó erfitt um vik, vegna hins sterka frípeðs hvíts á a-línunni. 33.Ba4 Hb8 34.Kf2 Hb1 Ef svartur reynir að koma með kónginn í spilið með 34. -- Ke7, þá leikur hvítur 35. Bc1, ásamt Ba3+ síðar. 35.Hc1 Hb2 36.Hc2 Hb1 Svartur getur ekki farið í hróka- kaup, vegna þess að þá ræður hann ekki við frípeð hvíts á a-línunni, stutt af biskupaparinu. 37.Kg3 Re7 38.Bd7 Kf7 39.Hc7 Hb2 40.Bc3 Ha2 41.Bh3 Ha4 42.Ha7 Bb5 43.Bf5 h5 44.h4 -- Svartur er í vanda staddur. Ridd- arinn er leppaður og ekki auðvelt að losa hann. Á meðan er yfirvofandi hætta að riddarinn falli, ef svart- reita biskup hvíts kemst að honum. 44. -- Kf8 45.Ha8+ Kf7 46.Bc2 Hf4 Svarti hrókurinn stendur ekki glæsilega þarna, en ekki má leika 46...Hc4, vegna 47.Bb3 og hrókur- inn fellur. Enn verra er 46. -- Ha3 47. Bb4 Ha1 48. Ha7 og svarti ridd- arinn fellur. 47.a6 -- Nú rennur frípeðið á a-línunni upp í borð og svartur verður að fórna manni fyrir það. Lokin þarfn- ast ekki skýringa, en Topalov hefði getað gefist upp fyrr, með góðri samvisku. 47. -- Bc6 48.Hd8 Rf5+ 49.Bxf5 Hxf5 50.Hc8 Bd5 51.a7 Hf4 52.a8D Bxa8 53.Hxa8 -- 53...Hc4 54.Bd2 Kg6 55.Ha7 Hd4 56.Be3 Hc4 57.Hb7 Hc3 58.Bd2 Hc2 59.Ba5 Ha2 60.Bd8 Ha8 61.Bb6 Hc8 62.Hc7 Hb8 63.Bc5 Ha8 64.Kf2 Hh8 65.Ke3 Ha8 66.Kd3 Ha4 67.g3 Ha8 68.Ke4 Hh8 69.Kd5 Hd8+ 70.Ke6 Ha8 71.Bd6 He8+ 72.Be7 Ha8 73.Hb7 Ha6+ 74.Bd6 Ha8 75.f4 exf4 76.gxf4 Ha6 77.Hd7 Ha8 78.f5+ Kh7 79.Kf7 Ha4 80.Bf8 Hg4 81.Bxg7 og loksins gafst svartur upp. Eft- ir 81. -- Hxg7+ 82.Ke6 Hxd7 83.Kxd7 Kh8 84. Ke6 Kg7 85.Ke7 Kg8 86.Kxf6 vinnur hvítur létt. Stefán fjórði á First Saturday Stefán gerði jafntefli við Vasik Rajlich (2.338) í 13. og síðustu um- ferð First Saturday mótsins og end- aði í fjórða sæti með 7 vinninga af 13. Bragi Þorfinnsson gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Nikola Sedlak (2.468), hlaut 5½ vinning og lenti í 11. sæti. Frammistaða bæði Stefáns og Braga var umfram stig og auk þess náði Stefán alþjóðleg- um áfanga. Lokaröð efstu manna: 1. Lajos Seres (2.462) 9½ v., 2. Nicolai Pedersen (2.458) 8½ v., 3. Istvan Csom (2.448) 8 v., 4. Stefán Kristjánsson (2.428) 7 v. o.s.frv. Góð frammistaða Guðmundar og Dags Þeir Dagur Arngrímsson og Guð- mundur Kjartansson tefla nú á Politiken Cup skákmótinu í Kaup- mannahöfn. Frammistaða þeirra í fyrstu fjórum umferðunum hefur verið mjög góð. Guðmundur hefur 3 vinninga og er í 14.-45.sæti. Dagur hefur 2½ vinning og er í 46.-73. sæti. Dagur tapaði í fjórðu umferð gegn stórmeistaranum og Svíþjóð- armeistaranum Jonny Hector (2.562), en Guðmundur sigraði Dan- ann Kristian Hovmøller (2219). Dagur vann góðan sigur gegn arg- entínska alþjóðlega meistaranum Fernando Peralta (2.478) í fyrstu umferð: Hvítt: Dagur Arngrímsson Svart: Fernando Peralta Pircvörn 1.e4 d6 2.d4 Rf6 3.Rc3 g6 4.f3 c6 5.Be3 Rbd7 6.Dd2 b5 Uppbygging hvíts er í anda Säm- isch-afbrigðisins í Kóngsindverskri vörn. Ef hann fær næði hrókar hann langt, leikur h2-h4-h5, Bh6 og opnar sér leiðir til mátsóknar. Svartur verður þess vegna að leita gagnfæra á drottningarvæng án tafar. 7.d5!? -- Dagur sneiðir hjá algengustu leiðunum með þessum leik. Venju- lega leikur hvítur 7. h4, 7.g4, 7.Rge2 eða 7.Rh3 í þessari stöðu. 7...cxd5 8.Rxd5 a6 9.Bd4!? -- Nýr leikur, en áður hefur m.a. verið leikið 9.c4, t.d. 9.-- Rxd5 10.cxd5 Bg7 11.Re2 Re5 12.Rd4 Bd7 13.b3 0–0 14.Be2 a5 15.Hc1 a4!? 16.Rxb5 axb3 17.axb3 Bxb5 18.Bxb5 Db8 19.Ba4 f5 20.exf5 Hxf5 21.0–0 Df8 o.s.frv. (Janak-Novak, Prag 1981). 9...Bg7 10.Bc3! -- Hvítur hótar nú óþægilega 11. Ba5 o.s.frv. 10...b4 11.Rxb4 Bb7 12.g4 Rc5 13.Bg2 -- Hvítur verður að gæta sín, t.d. 13.Rd3? Rfxe4! 14.fxe4 Rxe4 15.Dg2 Bxc3+ 16.bxc3 Dc7 17.Hb1 Dxc3+ 18.Kd1 Bd5 19.Rf3 Dc6 20.Kc1 Rc3 21.Rde1 Rxb1 22.Kxb1 Hb8+ og svartur á vinningsstöðu. 13...0–0 14.Re2 Hc8 15.h4 Db6 16.h5 Ra4 17.Bd4 Dc7 18.hxg6 fxg6 19.Rf4? -- Afleikur, sem hefði getað kostað skákina. Eftir 19.g5!, ásamt 20.Bh3 og 21.Be6+ hefði hvítur átt yfir- burðastöðu. 19. -- Rc5? Svartur kvittar strax fyrir með því að missa af 19...Rxe4!, t.d. 20.fxe4 Bxd4 21.Rbd5 Bxd5 22.Rxd5 Da7 23.Rxe7+ Dxe7 24.Dxd4 Hxc2 og svartur á mun betra tafl. 20.Rfd5 Dd8 21.g5 Rxd5 22.Bxg7 Kxg7 23.Rxd5 Bxd5 24.exd5 Rd7 25.0–0–0 Hc4 26.Bf1! Hcf4 27.Dh2 h5 28.gxh6+ Kh7 29.Bd3 Re5 30.Be4 Db6 Ekki gengur fyrir svart að leika 30...Rxf3 31.Bxg6+! Kxg6 32.Hdg1+ Kh7 33.Hg7+ Kh8 34.Dg2 Rg5 (34...H4f7 35.Dg6 Rg5 36.Hxf7 Hxf7 37.Dxg5) 35.Hxg5 Db6 36.Hf5 Hf7 37.Hxf4 De3+ 38.Kb1 Dxf4 39.Hg1 og svartur er varnarlaus. 31.De2 a5 32.Hdg1 H8f6 33.Hg3 a4 34.a3 Dc5 35.Hhg1 Db6 36.Kb1 Dc5 37.H1g2 Hh4 38.Hg1 Db6 39.Ka1 Dd4 40.c3 Db6 41.Bc2 Dc5 42.Dg2 De3 43.f4! -- Betra en 43.Bxg6+ Rxg6 44.Hxg6 Dxg1+ 45.Dxg1 Hxg6 46.De3, þótt hvítur eigi einnig vinn- ingsstöðu í því tilviki. 43...Dxf4 44.Bxg6+ Rxg6 45.Hxg6 Hh2 46.Hg7+ Kxh6 47.Hh7+ og svartur gafst upp, því að hann verður mát, eftir 47. --Kxh7 48.Dg7+. SKÁK Dortmund DORTMUND SPARKASSEN CHESS MEETING 2002 6. – 21. júlí 2002 Leko vann fyrstu skákina gegn Topalov Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi yfirlýsing frá Hauki Holm, vaktstjóra á frétta- stofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar: „Hafið er yfir allan vafa að DV fékk nákvæmar upplýsingar um dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yf- ir Árna Johnsen áður en hann var upp kveðinn. Yfirlýsing Friðgeirs Björnssonar dómstjóra í Morgun- blaðinu, laugardaginn 13. júlí sl., breytir engu um það. Hún er ekki aðeins í hrópandi mótsögn við traustar heimildir fréttastofu Stöðvar 2 heldur einnig í andstöðu við almenna skynsemi. Tímasetn- ingar, sem ekki hafa verið ve- fengdar, um hvenær hin langa og ítarlega frétt DV var send í prent- un, staðfesta það. Stöð 2 stendur við fréttir sínar af málinu – og gildir einu hvort DV hafi fengið aðgang að „afriti“ dómsins eða ná- kvæmar upplýsingar úr honum með öðrum hætti. Hvort tveggja er brot á starfsreglum Héraðs- dóms Reykjavíkur og óvirðing við hina ákærðu. Ef allt hefði verið með felldu hefði DV ekki beðið fréttastofu Stöðvar 2 að sleppa því að flytja frétt af þessu máli í því skyni að vernda „sinn mann hjá dómstóln- um“. Ekki var orðið við þeirri bón enda málið aðkallandi og því ekki forgangsatriði hjá Stöð 2 eins og málum var háttað að vernda heim- ildarmenn annarra fjölmiðla.“ Haukur Holm Yfirlýsing VEIÐIMENN hafa verið að setja í væna fiska í Heiðarvatni í Mýrdal að undanförnu. Einn hópur sem gisti veiðihús SVFK á dögunum fékk t.d. tvo laxa, 9 og 6 punda, og auk þess sjö sjóbirtinga á bilinu 4 til 6 pund. Var notaður maðkur og makríll við veiðiskapinn. Talsvert virðist vera af vænum birtingi í vatninu, því fyrir skömmu skruppu tveir Selfyssingar kvöld- stund í vatnið, hvor sinn daginn. Fékk annar einn 7,5 punda birting, en hinn þrjá sem allir vógu 5 pund. Reykjadalsá byrjar vel Reykjadalsá í Reykjadal byrjar vel og veiðin glæddist einmitt á svip- uðum tíma og í fyrra, eða um miðjan mánuðinn. Hafa veiðst allt að 3–4 laxar á stöng og milli 20 og 30 laxar hafa veiðst. Allar stangir hafa þó ekki verið nýttar allan tímann, en alls má veiða á fjórar stangir. Þetta er á sem hefur verið í öldudal síðustu ár, þar er nú aðeins veitt á flugu og öllum laxi sleppt aftur. 12 punda urriði Stærsti urriðinn í Veiðivötnum á þessu sumri veiddist fyrir skemmstu samkvæmt upplýsingum frá SVFK. Var þar 12 punda fiskur sem veiddist á makríl í Hraunvötnum. Litlaá gefur vel Alls eru skráðir fiskar úr Litluá á þessari vertíð um 700 talsins sam- kvæmt upplýsingum frá Íslensku fluguveiðiþjónustunni sem hefur ána á leigu, a.m.k. að hluta til. Veiði hófst 1. maí og var veiðin lengst af sjóbirt- ingur með góða meðalþyngd. Að undanförnu hefur bleikja verið með vaxandi vægi í aflanum, en þegar líð- ur að hausti mun birtingur aftur skipa hærri sess. Hafa veiðst allt að 10 punda fiskar í sumar og enn stærri hafa sloppið. Stór- fiskar í Heiðar- vatni Morgunblaðið/Einar Falur Veiðimenn sötra kaffið sitt við Lindarfossa í Brunná. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? „ÁRLEG garðaskoðun Garðyrkju- félags Íslands fer fram í Kópavogi sunnudaginn 21. júlí milli kl. 13 og 17. Fimm einkagarðar verða opnir félagsmönnum til skoðunar, leikskóli og útivistarsvæði kynnt. Hundruð manna koma til að njóta dagsins og skoða plöntur, girðingar, palla, gosbrunna og til að hitta annað gott fólk og spjalla. Þeir sem áhuga hafa á að skoða garðana getað byrjað á að skoða hvaða garð sem er, svo þann næsta og næsta. Á sunnudag- inn verða eftirtaldir garðar opnir til skoðunar í Kópavogi: Hvannhólmi 8, Starhólmi 16, Þinghólsbraut 18, Fífuhvammur 39, Hlíðarvegur 45, Rjúpnasalir 3 (Leikskólinn Rjúpna- hæð) og útivistarsvæðið í Kópavogs- dalnum, en upplýsingar um svæðið liggja frammi í görðunum,“ segir í fréttatilkynningu. Garðaskoðun í Kópavogi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.