Morgunblaðið - 24.07.2002, Side 11

Morgunblaðið - 24.07.2002, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 11 Glæsileg... Baðkar og sturta 336.900 kr. 180x90x213 cm, með nuddi verð áður: 449.323 kr. Stelleria hornbakar 285.900 kr. 145x145x58 cm, með nuddi Ver› á›ur: 381.227 kr. Gufusturtuklefi 295.900 kr. 80x80x219 cm, með útvarpi Ver› á›ur: 393.648 kr. ...hreinlætistæki Handy C. hornbaðkar 149.900 kr. 135x135x58 cm, með nuddi Ver› á›ur: 197.202 kr. 180x90x58 cm, með nuddi verð áður: 208.778 kr. Baðkar með nuddi 156.900 kr. ● HINN 15. mars sl. varði Ingiríður Skírn- isdóttir læknir doktorsritgerð sína „Prognostic Factors in Early Stages (FIGO I- II ) of Epithelial Ovarian Carc- inoma“ við Há- skólann í Upp- sölum í Svíþjóð. Andmælandi var Seija Grenman, dósent við Háskól- ann í Åbo í Finnlandi. Dokt- orsverkefnið var að stærstum hluta unnið við Kliniken för Gynekolog- isk onkologi við Háskólasjúkra- húsið í Örebro, í samvinnu við sér- fræðingana Bengt Sorbe sem var leiðbeinandi verkefnisins og Tomas Seidal meinafræðing. „Talið er að mismunandi líf- fræðilegir eiginleikar æxla í eggja- stokkum skýri það hvers vegna sumar konur ná fullum bata, en aðrar látast, þrátt fyrir sambæri- lega meðferð sem felst í skurð- aðgerð og síðan lyfjameðferð, og að þennan mun megi að hluta til skýra út frá gerð æxlisgenanna (oncogen- es) sem ollu æxlismynduninni í hverju tilviki. Markmið rannsókn- anna var að finna áhrif hinna ýmsu æxlisgena á batahorfur kvenna í þeim tilvikum þar sem illkynja æxli í eggjastokkum hafði ekki náð að dreifa sér til kviðarhols. Fylgst var með ferli 226 sjúklinga. Á grund- velli onkógenagerðar var unnt að skipta sjúklingunum í þrjá hópa þar sem batahorfur voru allt frá því að vera mjög góðar yfir í að vera afleitar og nýtast niðurstöð- urnar meðal annars við ákvörðun á því hvaða meðferð er best talin eiga við í hverju tilviki. Nið- urstöður rannsóknanna voru birtar í fimm greinum í vísindatímaritum á sviði krabbameinslækninga.“ Ingiríður fæddist að Borgum í Hornafirði 1951, dóttir hjónanna Margotar Gamm og Skírnis Há- konarsonar. Hún lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri 1971 og kandídatsprófi frá læknadeild Háskóla Íslands 1978. Árið 1985 lauk hún sérfræðings- prófi í kvensjúkdómafræðum og fæðingarhjálp í Svíþjóð og hefur starfað þar síðan sem kven- sjúkdómalæknir og einkum sér- hæft sig í krabbameins- og skurð- lækningum. Síðustu þrjú árin hefur Ingiríður starfað á kven- sjúkdómadeild Háskólasjúkrahúss- ins í Uppsölum en þar áður vann hún um árabil á kvensjúkdóma- deild sjúkrahússins í Karlstad. Einnig hefur hún meðal annars starfað við krabbameinlækningar á kvennadeildum Háskólasjúkra- hússins í Örebro og Radiumhospit- aliet í Osló. Maður Ingiríðar er Krister Gust- avsson, rithöfundur og bókasafns- fræðingur. Eiga þau tvö börn; Jó- hann Skírni, stúdent (f. 1983) og Önnu Vigdísi (f. 1991) og er fjöl- skyldan búsett í Uppsölum. Doktor í læknisfræði Ingiríður Skírnisdóttir ÝMSAR furðumyndir má sjá í jökl- um landsins, sem veður og vindar hafa mótað í gegnum árin. Þessi goðsagnakennda vera varð á vegi ljósmyndara Morgunblaðsins þegar hann átti leið um Skeiðarárjökul á dögunum. Jökullinn er mjög skít- ugur við jökulröndina og er engu líkara en Svarthöfði sjálfur úr Stjörnustríðsmyndunum rísi upp úr jöklinum og fylgist með því sem gerist á Skeiðarársandinum við rætur jökulsins. Morgunblaðið/Jim Smart Svarthöfði horfir yfir sandinn MAÐUR ók bifreið út af veg- inum á aðrein Miklubrautar að Reykjanesbraut rétt fyrir klukkan tvö í fyrrinótt, sam- kvæmt upplýsingum lögregl- unnar í Reykjavík. Maðurinn fór til síns heima eftir óhappið og var handtek- inn á heimili sínu síðar um nóttina, grunaður um ölvun við akstur. Grunaður um ölvunar- akstur á Miklubraut TILKYNNT var um ölvaðan ökumann til lögreglunnar á Ísafirði rétt fyrir klukkan fimm í gærmorgun. Maðurinn var á húsbíl og ók framhjá tjöldum á tjaldstæði á Þingeyri og bein- ustu leið út af tjaldstæðinu. Ferð mannsins endaði á steypustöpli við íþróttahúsið en þar var maðurinn að reyna að losa bílinn þegar lögregla kom á vettvang. Að sögn lögreglu var maður- inn mjög ölvaður og var hann handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Hann gisti fanga- geymslur á Ísafirði. Keyrði um tjaldstæði ölvaður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.