Morgunblaðið - 24.07.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EINBREIÐUM brúm fækkar smátt
og smátt en í sumar verður 17 ein-
breiðum brúm skipt út auk þess sem
fjöldi þeirra verður leystur af hólmi
á annan hátt. Brúarsmíðin er mest á
Suðurlandi. Í Fljótshverfi er verið að
byggja tvíbreiðar brýr yfir Laxá og
Brúará en í fyrra var tvíbreið brú yf-
ir Djúpá tekin í notkun.
Sigurþór Guðmundsson, deildar-
stjóri framkvæmdadeildar Vega-
gerðarinnar, segir að þá verði tveim-
ur brúm við Kirkjubæjarklaustur,
yfir Skaftá og Klifanda, skipt út fyrir
tvíbreiðar. Tvíbreið brú yfir Þverá
austan við Hvolsvöll er nú að taka á
sig mynd og verður einnig hafist
handa við byggingu nýrrar brúar yf-
ir Þjórsá á síðari hluta þessa árs.
Loks verður Kálfá í Þjórsárdal brú-
uð með tvíbreiðri brú.
Á Vesturlandi er brúarsmíð yfir
Norðurá í Heiðarsporði sunnan við
Holtavörðuheiði langt komin og seg-
ir Sigurþór að brúnni yfir Bjarna-
dalsá í Bröttubrekku verði skipt út
annaðhvort í ár eða á næsta ári. Á
Vestfjörðum verður ný brú smíðuð
yfir Ós við Bolungarvík og verða
brýrnar yfir Rjúkandi og Hval-
skurðará breikkaðar.
Á Norðurlandi vestra verður m.a.
byggð ný brú yfir Vatnsdalsá.
Á Austurlandi verður byggð ný
brú yfir Hólmsá í Hornafirði og á
Upphéraðsvegi í Fljótsdal hafa tvær
nýjar brýr verið teknar í notkun, yfir
Gilsá og Jökulsá.
Færri
ein-
breiðar
brýr
Morgunblaðið/Jim Smart
Þverá, austan við Hvolsvöll, verður í framtíðinni brúuð tvíbreiðri brú.
Ný brú yfir Laxá við Kálfafell leysir af hólmi áratugagamla brú.
HEIÐRÚN Jónsdóttir, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála Landssíma Íslands hf., segir
það ekki rétt sem haft hafi verið eftir
Kjartani Steinarssyni, framkvæmda-
stjóra Heklu, söluumboðs í Njarðvík-
um, í Morgunblaðinu í gær að Síminn
væri eina fyrirtækið hér á landi sem
gæti sett upp ADSL-tengingu. „Það
er ekki rétt að Síminn sé með einok-
un á þessu sviði,“ áréttar Heiðrún.
„Íslandssími og Halló eru að byggja
upp ADSL-þjónustu á höfuðborgar-
svæðinu í harðri samkeppni við Sím-
ann. Þessi fyrirtæki hafa sömu
tæknilegu forsendur og Síminn til að
færa út þessa þjónustu til lands-
byggðarinnar með eigin tæknibún-
aði. Þau hafa kosið að gera það ekki.
Síminn er því mér vitanlega eina fjar-
skiptafyrirtækið sem er enn sem
komið er að byggja upp ADSL-þjón-
ustu fyrir landsbyggðina.“
Heiðrún tekur fram að ADSL-
þjónusta Símans nái nú til rúmlega
86% þjóðarinnar. „Eftir uppbygg-
inguna á landsbyggðinni sem Síminn
hefur nú boðað mun ADSL-þjónust-
an vera til boða í öllum þéttbýlis-
kjörnum með 500 íbúum eða fleiri.“
Heiðrún bendir á í þessu sambandi að
víða erlendis sé verið að byggja upp
ADSL-þjónustu í stórum þéttbýlis-
kjörnum en þá sé miðað við um 2000
símnotendur í símstöð að lágmarki.
„Það eru margfalt stærri kjarnar en
Síminn hyggst þjónusta,“ útskýrir
hún. Hún segir að uppbygging hverr-
ar ADSL-stöðvar sé umtalsverð og
kostnaðarsöm. Það séu rök hinna er-
lendu aðila fyrir því að byggja ekki
ADSL-stöðvar fyrir minni hóp en þar
sem 2000 símnotendur eru tengdir.
Stofnkostnaður mikill
Í frétt Morgunblaðsins í gær sagði
að ekki hefði verið tekin ákvörðun um
það hjá Landssíma Íslands hf. hvort
og þá hvenær farið yrði í uppbygg-
ingu á ADSL-þjónustu á svæðum þar
sem íbúar eru færri en 500. Um þetta
segir Heiðrún: „Ástæðan fyrir því að
við erum ekki að byggja upp þjónustu
fyrir staði sem hafa færri en 500 íbúa
er einkum tvíþætt.“ Kvað hún ástæð-
una annars vegar snúast hún um
tækni og hins vegar um hagkvæmni.
„En eðli málsins samkvæmt eru
gerðar hagkvæmniskröfur til Símans
rétt eins og til annarra fyrirtækja.“
Heiðrún segir að tæknilega sé það ill-
mögulegt að byggja upp ADSL-
gagnaflutning í dreifbýli vegna þess
að koparlínan sem ADSL-þjónustan
byggist á megi ekki vera lengri en
þrír til fimm kílómetrar til að þola
gagnaflutninginn. „M.a. þess vegna
hefur Síminn verið að byggja ISDN-
þjónustu á þessum svæðum. Sú þjón-
usta nær nú til 98% þjóðarinnar.
Áætlað er að í lok þess árs muni þessi
þjónusta ná til allra.“
Heiðrún segir ljóst að hagkvæm-
ara sé fyrir þá netnotendur sem ekki
séu mikið á Netinu að vera með
ISDN-tengingu. Heiðrún ítrekar að
vegna stofnkostnaðar við að koma
upp ADSL-tengingu, svo og vegna
rekstrarkostnaðar, leggi Síminn
áherslu á að byggja upp ADSL-þjón-
ustu á svæðum sem hafi fleiri en 500
íbúa.
Fleiri en Síminn
geta byggt upp
ADSL-þjónustu
FALUN Gong-iðkendur segjast minnast
þess um þessar mundir að það séu 3 ár síð-
an ofsóknir á hendur iðkendum Falun Gong
í Kína hófust en í júlí 1999 var Falun Dafa
bannað í landinu.
Hópur iðkenda á Norðurlöndum kallar
sig SOS-hópinn og hefur ferðast að und-
anförnu um Þýskaland og Norðurlönd til að
beina augum fólks að ofsóknunum í Kína.
Hópurinn var staddur í Reykjavík í gær og
með þeim í för var Jane Dai, en eiginmaður
hennar var, samkvæmt upplýsingum hóps-
ins, tekinn af lífi í Beijing fyrir rúmu ári
síðan.
Peter Jauhal frá Bretlandi sagði að á
þessum þremur árum hefðu 450 iðkendur
verið pyntaðir til dauða, 150 þúsund verið
handteknir og 20 þúsund verið sendir í
vinnubúðir en þetta væru aðeins staðfestar
tölur. Hann benti á að raunverulegar tölur
væru án efa mun hærri og til dæmis hefði
því verið haldið fram í nýútgefinni bók að
yfir 7 þúsund iðkendur hefðu verið líflátnir.
Jauhal lýsti því að yfir hundrað mismun-
andi pyntingaraðferðir væru notaðar, þar á
meðal hópnauðganir, fólk væri svipt svefni,
það væri haft í óþægilegum stellingum í
langan tíma og fleira. Hann sagði ástæðuna
fyrir þessum pyntingum þá að fólk neitaði
að hætta iðkun Falun Gong, auk þess sem
það tileinkaði sér sannleiksiðkun, sam-
kennd og umburðarlyndi, en þessi þrjú at-
riði eru grunnur Falun Dafa.
Þakklæti til Íslendinga
„Ríkisstjórnir um allan heim hafa for-
dæmt Kína vegna þessa. Svíþjóð hefur for-
dæmt ofsóknirnar, Evrópusambandið,
Bandaríkin, Ástralía, Evrópulönd, Kanada
og svo framvegis,“ sagði hann og höfðaði
jafnframt til íslensku ríkisstjórnarinnar að
gera slíkt hið sama. Jauhal vildi koma á
framfæri þakklæti til Íslendinga fyrir þann
stuðning sem þeir hafa sýnt málefninu.
„Við vonumst til að Íslendingar haldi áfram
að styðja málstað okkar og haldi áfram að
hvetja þingmenn til að efla mannréttindi
Falun Gong-iðkenda,“ lagði hann áherslu á.
Jane Dai kemur frá Ástralíu en eigin-
maður hennar var líflátinn fyrir um ári síð-
an í Kína. Að sögn hennar var hann 34 ára
gamall og áttu þau saman litla dóttur,
Fudu, sem nú er orðin tveggja ára.
Dai sagði að eiginmaður sinn hefði verið
tekinn af lífi í Beijing en þangað fór hann
til að afhenda kínverskum stjórnvöldum
bréf, þar sem óskað var eftir að réttur fólks
til að stunda Falung Gong væri virtur.
„Hann var handtekinn og pyntaður í fang-
elsi þangað til hann dó. Systir mannsins
míns var sett í vinnubúðir í tvö ár af því að
hún iðkaði líka Falun Gong,“ bætti hún við.
Hélt lífi vegna ástralsks vegabréfs
Hún benti á að þessir atburðir gerðust
eingöngu vegna þess að þau gerðu Falun
Gong-æfingar og sýndu manngæsku. Hún
taldi að ástæða þess að hún hefði haldið lífi
væri sú að hún hefði ástralskt vegabréf.
„Kínverska landamæraeftirlitið hindraði
mig næstum í að fara úr landi síðast, þeir
héldu eftir vegabréfi mínu. Ég var svo
hrædd um dóttur mína og hugsaði með mér
að ef við hefðum kínverskt vegabréf þá
hefðum við báðar dáið. Í Kína eru þúsundir
kvenna í þeirri aðstöðu að þær geta ekki
komið fram og sagt frá því sem er að ger-
ast,“ undirstrikaði Dai.
Hún sagði það verst að vita ekki hvað
hún gæti sagt dóttur sinni þegar hún færi
að spyrja um föður sinn. Hún lýsti því að
þegar eiginmaður hennar dó hefði hún vilj-
að snúa aftur til Kína til að sækja ösku hans
en hún hefði ekki getað fengið vegabréfs-
áritun frá kínverska sendiráðinu þar sem
hún væri á svörtum lista. Askan hefði
þremur mánuðum síðar komist til Ástralíu
fyrir milligöngu ástralska utanríkisráðu-
neytisins.
Að sögn Dai hóf hún að koma fram op-
inberlega og tala opinskátt um þessa hluti.
Í kjölfar þess hefði mágkona hennar verið
ofsótt enn frekar. „Ég iðrast þess samt ekki
að hafa kvatt mér hljóðs opinberlega því
það er eina leiðin til að stöðva ofsóknirnar
og drápin,“ sagði hún.
SOS-hópur iðkenda Falun Gong kynnti baráttumál sín í Norræna húsinu í gær
Segja þrjú ár
síðan ofsóknir
hófust í Kína
Morgunblaðið/Sverrir
Jane Dai, ásamt dóttur sinni Fudu, en Dai heldur á mynd af fjölskyldunni sem tekin var
stuttu áður en eiginmaður hennar lést. Við hlið Dai sitja Þórdís Hauksdóttir, fulltrúi
íslenskra Falun Gong-iðkenda, Peter Jauhal frá Bretlandi og Man Yan Ng frá Þýskalandi.