Morgunblaðið - 24.07.2002, Síða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 37
Nú um hásumar er
Edda Scheving, fé-
lagsmaður okkar í KR-
konum, látin. Okkur
setur hljóðar. Missir
okkar er mikill í þeim félagsskap.
Kólumbíska nóbelsskáldið Gabriel
García Marques skrifaði eitt sinn: „Ó
Guð gefðu mér meira líf … gefðu mér
tíma til að segja þeim sem mér þykir
vænt um að ég elski þá og virði.“ Við
KR-konur hefðum viljað fá meiri tíma
með Eddu til að njóta samvista við
hana, geta sagt henni og látið hana
betur finna hve vænt okkur þótti um
hana og virtum.
Edda var ein af stofnendum KR-
kvenna, sat lengi í stjórn og var for-
maður um árabil. Í stofnskrá okkar,
sem m.a. Edda samdi, segir að hlúa
skuli að grasrót félagsins, styrkja
deildir og vinna að uppbyggingu fé-
lagsheimilisins innanhúss sem utan.
Það er hægt að segja með sanni að
Edda vann af heilindum að því sem í
stofnskránni stendur og var þar
fremst á meðal jafningja. Skemmti-
legheit og dugnaður voru áberandi í
fari Eddu og fengum við KR-konur
vel að njóta þess. Mörg skemmtileg
atvik rifjast upp í starfi okkar þar
sem Edda var fremst í skemmtileg-
heitum, með hnyttin tilsvör, hlátur og
gleði. Það voru svo sannarlega for-
réttindi að hafa hana innanborðs í
okkar félagsskap.
Við kveðjum Eddu með sárum
söknuði og þakklæti fyrir samfylgd-
ina. Okkar hlýjustu samúðarkveðjur
sendum við dætrum hennar og öðrum
aðstandendum.
F.h. KR-kvenna,
Sólveig Guðmundsdóttir,
formaður.
Kveðja frá Félagi
íslenskra listdansara
Þau eru óteljandi, börnin sem hafa
stigið fyrstu danssporin undir hand-
leiðslu Eddu Scheving, sem nú er
horfin af leiksviði lífsins. Sum þessara
barna gerðu dansinn að starfsvett-
vangi sínum, en fyrir önnur leiddu
danstímarnir til aukins skilnings á
heimi listanna.
Edda Scheving stundaði dansnám
hér heima og í Danmörku frá 11 ára
aldri. Hún byrjaði ung að koma fram í
danssýningum en tók einnig ballett-
og danskennarapróf í Danmörku. Ár-
ið 1959 stofnaði hún Ballettskóla
Eddu Scheving og rak hann samfellt
síðan, seinni ár ásamt Brynju dóttur
sinni.
Ballettskóli Eddu Scheving er með
elstu ballettskólum landsins sem enn
eru starfandi.
Auk þess að reka og kenna við ball-
ettskólann vann Edda ötullega að fé-
lagsmálum dansara. Hún sat í stjórn
Félags íslenskra listdansara í 10 ár,
fyrst sem ritari, en síðan 6 ár sem for-
maður. Hún gegndi trúnaðarstörfum
fyrir félagið, sat í stjórn Bandalags ís-
lenskra listamanna og Fulltrúaráði
Listahátíðar. Í formannstíð Eddu
rættist langþráður draumur listdans-
ara á Íslandi þegar Íslenski dans-
flokkurinn var stofnaður og var Edda
fyrsti framkvæmdastjóri dansflokks-
ins.
Edda bar hag dansins ætíð fyrir
brjósti og helgaði sitt ævistarf þessari
listgrein. Með þessum orðum vil ég
þakka Eddu fyrir óeigingjarnt ævi-
starf og ómetanlegt framlag í þágu
listdans á Íslandi.
Brynju dóttur hennar, fjölskyldu
og öðrum aðstandendum votta ég
innilega samúð.
F.h. Félags íslenskra listdansara,
Ólöf Ingólfsdóttir, formaður.
EDDA
SCHEVING
✝ Edda Schevingfæddist í Vest-
mannaeyjum 19.
febrúar 1936. Hún
lést á heimili sínu,
Stóragerði 20 í
Reykjavík, 14. júlí
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Hallgrímskirkju
23. júlí.
Haustið 1960 stofn-
uðu nokkrar ungar og
hressar stúlkur sauma-
klúbb. Þessar sömu
„stúlkur“ sitja nú sam-
an eftir 42 ár og í gegn-
um hugann fara minn-
ingarbrot um góða
vinkonu sem fallin er nú
frá, langt um aldur
fram. Það var aldrei
lognmolla í kring um
hana Eddu okkar, hún
var hreinskiptin og
sagði sína meiningu og
þá ekki síður til að
hrósa og lofa. Hún var
hrókur alls fagnaðar á góðum stund-
um, söngelsk og skemmtileg, en fljót
til að hlaupa undir bagga ef eitthvað
bjátaði á og hugga ef einhver var
sorgmæddur.
Við og fjölskyldur okkar sendum
dætrum hennar Hörpu og Brynju og
Margréti móður hennar og fjölskyld-
um þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Megi góður guð vaka yfir þeim og
styrkja í sorginni.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast,
þau bera mesta birtu,
þau brenna líka hraðast.
Og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur,
en dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
(Friðrik Guðni Þórleifsson.)
Saumaklúbburinn.
Kveðja frá Lionsklúbbnum Eir
Í dag kveðjum við góðan vin og fé-
laga, við í okkar litla félagi þurfum nú
á stuttum tíma að sjá á eftir öðrum
góðum félaga því stutt er síðan Hall-
dóra Jónsdóttir kvaddi þennan heim.
Í vor kvöddumst við hressar og
kátar til að safna orku fyrir komandi
vetur, hver félagi er mikilvægur og er
söknuður okkar mikill, við svo skyndi-
legt fráfall Eddu, hver og ein kemur
með sinn ferska blæ og þekkingu í fé-
lagið, hún var þar engin undantekn-
ing, við nutum þess í starfi, en ekki
síður þegar brugðið var á leik.
Ljúft er að minnast og þakka allar
góðar samverustundir.
Við sendum hugheilar samúðar-
kveðjur til fjölskyldunnar.
Guð blessi minningu Eddu Schev-
ing.
F.h. Lionsklúbbsins Eir,
Stella María
Kæra vinkona, þá er komið að
kveðjustundinni og mikið er hún erf-
ið. Það var fyrir tæpum aldarfjórð-
ungi að ég var svo lánsöm að kynnast
Eddu Scheving og fjölskyldu hennar.
Þessi ár hefur aldrei borið skugga á
vinskap okkar, við hryggðumst sam-
an í sorg og glöddumst í gleði, hún
miðlaði mér af reynslu sinni og lífs-
speki. Edda var ákveðin kona, hörku-
dugleg og stjórnsöm, skemmtileg en
umfram allt var hún einhver gjafmild-
asti eintaklingur sem ég hef kynnst,
hún hafði yndi af að gefa og gleðja
aðra og fór fjölskylda mín ekki var-
hluta af því. Að minnast allra góðu
stundanna er auðvelt, þær voru svo
margar, en samt er það sárt, því þær
verða ekki fleiri. Með Eddu er gengin
góð vinkona og bið ég henni farar-
heilla á nýrri vegferð. Votta ég móður
hennar, dætrum, tengdabörnum,
ömmustelpu, systkinum og fjölskyldu
allri innilega samúð.
Ég kveð þig kæra vinkona, með
kveðjunni sem þú ávallt sendir mér.
Hafðu þökk fyrir allt.
Ingibjörg Bergrós.
Það var furðuleg líðan þegar ég
frétti af andláti Eddu frænku. Það var
svo stutt síðan við vorum öll fjölskyld-
an á ættarmóti í Vík í Mýrdal þar sem
Edda var í ættarmótsnefnd. Öll
skipulagning var mjög góð og stóð
Edda sig með prýði, ekki síst þegar
hún fékk sjálfboðaliða til að taka þátt í
skipulagningu næsta ættarmóts. Þar
dugði ekki að segja nei! Edda rak
balletskóla og er mér minnisstætt
einn vetur þegar ég þurfti nokkrum
sinnum að fara niður í skóla hvað hún
hafði einstaklega gott lag á börnun-
um.
Eddu mun verða sárt saknað. Ég
votta ömmu Margréti, Hörpu,
Brynju, Eddu litlu og öðrum ástvin-
um mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Minningin um Eddu Scheving mun
lifa.
Davíð Scheving
Enginn veit hvað átt hefur, fyrr en
misst hefur. Með þessum fáu línum vil
ég kveðja þig kæra Edda, en kallið
kom óvænt og allt of fljótt.
Einhvern tíma í viðtali sagði Edda
að sem lítil stelpa hefði hún séð sýn-
ingu hjá dönskum ballettflokki í Vest-
mannaeyjum. Eftir það hefði hana
dreymt um að dansa uppi á sviði í tá-
skóm og hvítum kjól. Óhætt er að
segja að draumurinn hafi ræst og það
heldur betur. Ekki er þó meiningin
hér að rekja starfsferil Eddu heldur
staldra við fáeinar minningar.
Edda kom víða við og lágu leiðir
okkar fyrst saman upp úr 1970. Þá
var hún formaður Félags íslenskra
listdansara en ég nýr ritari. Þetta var
upphafið að samstarfi okkar og vin-
áttu í gegnum árin. Edda, sem þekkt
var fyrir að koma hreint og beint
fram, sagði mér síðar að sér hefði
langt frá því litist of vel á nýja stjórn-
armeðliminn. Allt of ólíkar skoðanir
myndu ekki hjálpa til í samstarfi.
Annað kom þó á daginn, lærðum við
fljótt hvor á aðra og sterk tilfinninga-
tengsl mynduðust. Margt lærði ég af
Eddu á þessu tímabili. Hún var
ákveðin og hnitmiðuð í vinnubrögðum
og hafði óbilandi áhuga á að efla dans-
listina á Íslandi. Beinskeytt lagði hún
efnið á borðið og vék ekki frá tak-
markinu. Kom það sér einkar vel þeg-
ar baráttan stóð sem hæst um stofn-
un Íslenska dansflokksins. Mikið var
þá unnið kvöldin löng og símtölin
mörg. Kom þó að uppskerutíma. Eftir
endalausar bréfaskriftir, heimsóknir
á Alþingi svo og með hjálp og áhuga
góðra manna var takmarkinu lang-
þráða loks náð. Fæðing Íslenska
dansflokksins varð að veruleika.
Fyrsta þrepinu af mörgum var náð.
Af ýmsu öðru er að taka. Nú að leið-
arlokum er mér efst í huga þakklæti
fyrir samfylgdina, allar góðu og eft-
irminnilegu stundirnar sem við áttum
saman.
Dætrunum Hörpu og Brynju svo
og öðrum aðstandendum votta ég
hlýjustu samúð.
Kveð þig með söknuði. Far þú í
friði kæra vinkona.
Helga Magnúsdóttir.
Edda Scheving, stjarnan okkar er
horfin.
Þvílík fregn. Hvernig getum við
komist af án hennar.
Edda var sterkur persónuleiki,
dugleg og einstaklega skipulögð í öllu
sem hún tók sér fyrir hendur.
Fyrir um það bil einum mánuði,
komum við saman, „Kabarettgirls“
eins og við köllum okkur. Edda mætti
fyrst og færði mér, undirritaðri, eina
stóra rós, sjálf var hún brún og sæl-
leg, nýkomin frá Spáni. Hún leit ein-
staklega frísklega út og lék á als oddi.
Því kemur þetta dauðsfall á óvart og
erum við vinkonurnar mjög slegnar.
Við höfum haldið vináttunni í 30 ár en
þá tókum við þátt í söngleiknum Ka-
barett sem sýndur var í Þjóðleikhús-
inu. Að vísu kynntumst við Edda mun
fyrr á lífsleiðinni, en það var í revíunni
Frjálsir fiskar, þar sem við dönsuðum
og lékum.
En það sem mig langar að minnast
er ferðalagið til Parísar, sem við tók-
umst á hendur, fyrir um það bil einu
ári. Tilefnið var að sjá sýningu San
Fransisko ballettsins, sem Helgi
Tómasson stjórnar, en sýningin átti
að fara fram í Parísaróperunni. Edda
var búin að hafa samband við Helga
og segja honum, að við værum vænt-
anlegar. Þegar við vorum komnar til
Parísar og ætluðum að ná sambandi
við Helga var það ekki nokkur leið.
En þar sem við vorum staddar á „res-
tauranti“ rétt hjá óperunni að fá okk-
ur rauðvínstár heyrum við sagt á
SJÁ SÍÐU 38
&
A2,
B- ( *(% #"
3% 0
, *4*
'$6 !"
&C $&!
6 ,
&C $&! 2$ $7 #&%&
5&&
&C $&! "&&$:$ 6 &$!"
$ !" 1,
&C $&! '$>&#$*&%&
&&$
&C $&! 7 &7 (!"
%$($ ) &,
%
0
%
% D -;
C5$ $&!3E
#$5
" 0
1
)
0
5#
0
1 44*
&%& 1,
5$5$ %&
&$"&%& !" #)
* $%&
'$>#) &%& !"
> $1" &%& %&
&%&
* #$ $ %&
$$F #$ $ !"
$(&8 ! :$ $#$ $ !"
& ' &$!"
:$ %&,
&
%
0
%
:A.:
; > 5$&GH
$(&$ (
'
(
6
7
)
1 1**
8
"
%
$( $ !" %&
>#) $(!"
2, &I" %&
$ !" :, $(%& . "#$ $!"
#) $(!" # *$ # *$ %&
$ &$ ) &% $ &$ $ &$ ) &,
&
0
/
-
8# &$ 8* & .
$ 8 *J
#$5
9
0
3% 5#
, 44*
$ !" $%& - $&2$ !K*%
> $ $!" 6 2$ $(%&
$!" $&$ $ !" $
$ &$ ) &% $ &$ $ &$ ) &,
)
%
%
-/ .0 .
;
8)( &!
( -$L$*+
"
" :"
%(
2
0
%(
1 1**
>, $%&
"8$&& $%& &&$$ *!"
-& $!" * &! - 5%&
$ &$ ) &% $ &$ $ &$ ) &,