Morgunblaðið - 24.07.2002, Síða 46

Morgunblaðið - 24.07.2002, Síða 46
FÓLK Í FRÉTTUM 46 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ EINS OG lesendur Michaels Dibdins kannast við lauk síðustu bókinni um lögreglumanninn Aurelio Zen, Blood Rain, með því að hann var sprengdur í loft upp af mafíunni. Eða svo virtist les- anda að minnsta kosti því Aurelio Zen er víst bráðlifandi, eins og ráða má af nýjustu bókinni um hann, And then You Die. And then You Die er áttunda bókin um Zen sem hefur orðið æ ævintýralegri persóna eftir því sem líður á sagnabálkinn. Dibdin er lipur penni og hugmyndaríkur og bækurnar um Zen verið með skemmtilegustu reyfurum sem um getur. Ekki er bara að söguþráð- urinn hefur verið spennandi, glæp- irnir groddalega grimmúðlegir og framvindan æsispennandi, heldur hefur beitt kímni Dibdins hvar- vetna skinið í gegn. Með tímanum hafa bækurnar um Zen orðið æ farsakenndari og And then You Die er engin untantekning. Söguþráður bókarinnar er eitt- hvað á þá lund að Zen er í felum eftir langa dvöl á sjúkrahúsi til að jafna sig eftir sprengjuárásina. Smám saman rennur upp fyrir honum ljós að einhver sækist enn eftir lífi hans, en þrautin þyngri er að átta sig á hver, því þótt mafían sé vitanlega efst á blaði er málið ekki svo einfalt þegar á reynir. Af tillitssemi við hugsanlega les- endur skal ekki nánar greint frá sögþræðinum en í bókinni er nóg um blóðbað, ævintýralegar flug- ferðir og siglingar, leyndardóms- fullar heimsóknir og skuggalega menn. Ekki er til að auðvelda Zen lífið að hann á ekki bara á hættu að vera myrtur heldur er starfið í hættu; við blasir að hann verði settur á eftirlaun eða „sparkað upp“, enda hefur hann lengi verið yfirmönnum sínum óþægur ljár í þúfu. And then You Die er ekki með bestu bókunum um Aurelio Zen og ekki með þeim veigamestu. Hún er þó kærkomin, ekki síst fyrir það að refurinn Zen er sprelllifandi og til í tuskið, og skemmtileg aflestr- ar. Líkast til hefur Dibdin ákveðið að drepa hann á sínum tíma enda verða höfundar oft þreyttir á sköp- unarverki sínu, en síðan áttað sig á að það er ekki hlaupið að því að drepa annan eins mann og því eins gott að leyfa honum að halda áfram að hrella illvirkja og yf- irvöld enn um sinn. Aurelio Zen snýr aftur Árni Matthíasson And then You Die eftir Michael Dibdin. Faber og Faber gefa út 2002. 174 síðna kilja sem kostar um 2.000 kr. í Pennanum- Eymundsson. Forvitnilegar bækur HÉR á síðunni er getið um hinn ítalska Aurelio Zen sem Michael Dibdin hefur skrifað átta bækur um. Skoski rithöfundurinn Ian Rankin hefur einnig haldið úti sagnabálki um lögreglumann, en hans heitir John Rebus, á heima í Edinborg og er nú að birtast í þrettándu bókinni. Þeir Rebus og Zen eiga ekkert sameiginlegt nema starfann, að vera lögreglumenn. Rebus er breyskur og fer ekki leynt með breyskleika sinn. Hann á í eilífum vandræðum með konur, drekkur of mikið og á í sífelldum útistöðum við yfirmenn sína, enda kemur iðulega fyrir að hann fer á skjön við stranga lagatúlkun til að tryggja að réttlætið nái fram að ganga. Ekki má þó skilja þetta sem svo að han sé óheiðarlegur, öðru nær, en aftur á móti á hann það til að láta minni glæpinn fram hjá sér fara til að komast til botns í þeim stærri. Fyr- ir vikið virkar Rebus raunverulegri en ella en á sama tíma hefur hann ekki eins breiða skírskotun; ekki kunna allir að meta svo breyskar söguhetjur. Resurrection Men dregur nafn sitt af því að Rebus er sendur í eins konar endurhæfingu, skikkaður á námskeið fyrir vandræðagemsa innan lögreglunnar fyrir að hafa hent tekrús í yfirmann sinn. Á námskeiðinu kemst hann í kynni við aðra lögreglumenn sem hafa líka rekist illa í flokki og smám saman kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist, ekki síst þegar hluti af nám- skeiðsverkefnunum er að glíma við gamalt mál sem Rebus tengist á óþægilegan hátt. Inn í allt saman blandast síðan gamli fjandi Rebus, Gerald „Big Ger“ Cafferty og lögreglukonan Sibhan Clarke, sem er reyndar sjálf að rannsaka morð á listaverkasala. Rankin er seinn í gang að vanda, skapar baksvið sögunnar af mikilli natni, en smám saman eykst spennan og lýkur svo með krassandi blóð- baði í lokin. Aðal Rankins er hve hann hefur næmt auga fyrir mannlífinu; Edin- borg stendur manni ljóslifandi fyrir sjónum, þótt ekki séu það falleg- ustu hliðar borgarinnar sem sagt er frá, og einnig er hann naskur við að draga upp mynd- ir af venjulegu fólki í óvenjulegum aðstæðum. Breysk söguhetja Árni Matthíasson Resurrection Men eftir Ian Rankin. 440 síðna kilja. Orion gefur út 2002. Kostar rúmar 2.000 kr. í Penn- anum-Eymundsson. Forvitnilegar bækur DAGANA 9. og 10. ágúst næst-komandi verða Hinsegindagarnir árlegu haldnir há- tíðlegir í þriðja sinn með pomp og prakt. Af því tilefni stendur Skífan fyrir útgáfu á safndiskinum Pottþétt hinsegin, en hann kom út í vikunni. „Hátíðinni hefur vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum og hún er núna orðin stærðarinnar bákn. Þeir hjá Skífunni komu að máli við mig að fyrra bragði og vildu leggja eitthvað af mörkum til Hinsegin daga í ár. Sú hugmynd kom upp að gera Pottþétt hinsegin og eftir það varð ekki aftur snúið,“ segir Páll Óskar. Diskurinn inniheldur 21 lag og er þar, að sögn Páls Óskars, sam- ankomin mannkynssaga samkyn- hneigðra, sögð í tónlist. „Þessi saga er mjög mikilvæg í réttindabaráttunni. Flestum þeim sem koma út úr skápnum líður eins og þeir séu einir í heiminum, eins og þeir eigi sér enga sögu. Þessi diskur er liður í því að leiðrétta þann mis- skilning. Samkynhneigðir eiga sér sína eigin mannkynssögu, sem hefur alla tíð verið mjög lituð af tónlist,“ áréttar Páll Óskar. Lagalistinn samanstendur af lög- um frá mismunandi tímabilum í flutningi ólíkra tónlistarmanna sem eiga það þó allir sameiginlegt að vera annaðhvort samkynhneigðir eða hafa alla tíð verið dáðir af samkyn- hneigðum af einhverjum ástæðum. En hvað er það sem gerir tónlist að hinsegin-tónlist? „Það eru ekki til nein vísindaleg rök fyrir því af hverju einhver ákveð- in tegund af tónlist fær hjörtu sam- kynhneigðra til að slá örar. Það sem öll þessi lög eiga þó sameiginlegt er að þau hafa af einhverjum orsökum lifað lengur á grammófóninum hjá samkynhneigðum,“ svarar Páll Ósk- ar. Hann segir dragdrottningar einn- ig leika mikilvæg hlutverk í þessu samhengi en þær hafa að sögn Páls Óskars verið „iðnar við að halda lífi í gömlum lummum sem ellegar myndu bíða dauðadags“. Lífsgleðin einkennandi „Það sem einkennir alla tónlistina á diskinum er ákveðin lífsgleði, bæði í textum og lögum. Mitt lag er bara ágætis dæmi um það. „Stanslaust stuð“ er óður til diskósins og ég held að mér hafi tekist ágætlega að koma því í orð, án þess að taka sjálfan mig neitt of hátíðlega. Öll lögin eiga það sameiginlegt að það eru einhverjir tímalausir töfrar yfir þeim.“ Páll Óskar segir það staðreynd að ákveðnir listamenn hafi alla tíð getað treyst á samkynhneigða aðdáendur sína af einhverjum ástæðum. „Á diskinum erum við með skvísur eins og Díönu Ross, Donnu Summer og Shirley Bassey. Þessar dívur voru meðvitað eða ómeðvitað leiðandi afl í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar hún stóð sem hæst. Þær syngja kannski einhverja texta sem eru eins og klæðskerasniðnir að því sem hommarnir gengu í gegnum,“ segir hann. „Meðal laga sem hafa komið eins og af himnum ofan í réttindabarátt- unni er til dæmis „Strákarnir á Borginni“ með Bubba Morthens. Bubbi er auðvitað algjörlega gagn- kynhneigður maður en semur þenn- an texta árið 1981, á þeim tíma sem samkynhneigðir voru lamdir úti á götu og reknir út úr íbúðum og vinnu og það bara var allt í lagi. Bubbi kemur svo í rauninni sem fyrsti gagnkynhneigði einstaklingurinn með viti,“ segir Páll Óskar. „Það er það sama með réttindabaráttu samkynhneigðra og réttindabar- áttu allra minnihlutahópa að það gerist ekkert í baráttunni fyrr en hinn póllinn fer að skilja út á hvað málið gengur.“ Stjörnustælar Páll Óskar segir það sögu út af fyrir sig hvernig útgáfa á safn- plötum af þessu tagi fer fram: „Þetta virkar þannig að þú sæk- ir um kannski sextíu lög til rétt- hafa en af því færðu kannski fjörutíu neitanir. Það var mjög áhugavert í þetta sinn að sjá hverjir sögðu nei,“ segir Páll Ósk- ar og nefnir nöfn á borð við George Michael, Elton John, Ru Paul, Barböru Streisand og Mad- onnu, sem öll neituðu að eiga lag á diskinum. „Ég upplifi þetta bara sem stæla í þeim. Við erum að telja hér upp stærstu súperstjörnur í heim- inum en það er eins og það sé ein- hver lenska hjá þessu fólki að vilja ekki koma út á safnplötum. Það er alveg sama hvert tilefnið er. Þetta eru því bara stælar, sem þessir ágætu einstaklingar fá tækifæri til að leiðrétta á næsta ári,“ segir Páll Óskar og upplýsir að gangi útgáfa og sala Pottþétt hinsegin vel verði út- gáfan árleg. „Það er að minnsta kosti af nógu að taka en upphaflegi lagalistinn var 150 lög.“ Páll Óskar segist mjög ánægður með samsetningu disksins og segir vel við hæfi að enda á lagi Judy Gar- land. „Lagið hennar var kveikjan að mannréttindabaráttunni eins og við þekkjum hana í dag. Garland var jörðuð 27. júní 1969, sama dag og Stonewall-uppþotin byrjuðu í New York, en þau eru upphafið að Gay Pride-hátíðinni,“ segir Páll Óskar og fræðir okkur um þennan sögufræga dag í sögu samkynhneigðra: „Sam- kynhneigðir aðdáendur Garland voru að syrgja hana þegar lögreglan gerði aðsúg að þeim. Þeir voru ekki í stuði fyrir að láta stinga sér í stein- inn eina ferðina enn að ástæðulausu og létu hart mæta hörðu. Lagið var sungið hástöfum, fyrir og eftir óeirð- irnar, og samkynhneigðir höfðu eignast sinn fyrsta þjóðsöng. Þetta var í fyrsta sinn sem samkyn- hneigðir komust í heimsfréttirnar og urðu allt í einu ekki bara fólk úti í bæ heldur fólk niðri í bæ og það er það sem er svo mikilvægt.“ Páll Óskar segir þetta ástæðuna fyrir árlegri hátíð samkynhneigðra, að minna á sig, þar sem sýnileikinn sé svo mikilvægur. „Ég hvet því fólk til að byrja að undirbúa sig núna. Þegar diskurinn er kominn út eru tæpar þrjár vikur í gönguna svo það er eins gott að taka fram saumavélina, penslana, ham- arinn og naglana og búa til spjöld eða taka fram gömlu hárkollurnar og greiða þær upp á nýtt og mæta svo niður í bæ og samgleðjast 10. ágúst,“ segir Páll Óskar og hvetur alla til að hlusta á Pottþétt hinsegin til upphit- unar eða einfaldlega sér til skemmt- unar þar sem þetta er að hans mati „einfaldlega partídiskur aldarinnar“. Hvert lag inniheldur töfra Morgunblaðið/Þorkell Páll Óskar Hjálmtýsson birta@mbl.is Skífan gefur út Pottþétt hinsegin NÝJASTI laukurinn í Pottþétt-garðinum ber heitið Pottþétt hinsegin. Það er Páll Óskar Hjálmtýsson sem hefur haft veg og vanda af lagavali á diskinum. Birta Björnsdóttir ræddi við hann. Freddy Mercury/ Living On My Own. Páll Óskar/ Stanslaust stuð. Kylie Minogue/ Can’t Get You Out Of My Head. Soft Cell/ Tainted Love. Bubbi Morthens/ Strákarnir á Borginni. Bronski Beat/ Smalltown Boy. Stjórnin/ Nei eða já. Dana International/ Diva. Pet Shop Boys/ Absolutely Fabulous. Þuríður Sigurðardóttir/ Ég á mig sjálf. Grýlurnar/ Sísí. The Weather Girls/ It’s Raining Men. Frankie Goes To Hollywood/ Relax. Diana Ross/ I’m Coming Out. Jón Kr. Ólafsson og Facon/ Ég er frjáls. Shirley Bassey/ Light My Fire. Eartha Kitt/ Where Is My Man? Village People/ Macho Man. Donna Summar/ I Feel Love. Sister Sledge/ We Are Family. Judy Garland/ Over The Rainbow. Pottþétt hinsegin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.