Morgunblaðið - 30.07.2002, Side 31

Morgunblaðið - 30.07.2002, Side 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2002 31 ✝ Soffía Ármanns-dóttir fæddist á Urðum í Svarfaðar- dal 15. mars 1928. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 20. júlí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Elín Sigur- hjartardóttir hús- freyja, f. 22. júní 1886, d. 11. janúar 1936, og Ármann Sig- urðsson bóndi á Urð- um í Svarfaðardal, f. 13. ágúst 1883, d. 2. ágúst 1969. Soffía var yngst sjö systkina. Þau voru: Frið- rikka Sigríður, f. 23. sept. 1913, d. 30. des. 1992, Anton Vilhelm, f. 2. júní 1915, Marta, f. 18. júlí 1916, Sigurður Hjörtur, f. 23. jan. 1918, d. 17. jan. 1992, Sigurður Kristinn, f. 20. jan. 1919, d. 9. mars 1999, Soffía, f. 1. ágúst 1920, d. 9. ágúst 1924. Soffía ólst upp á Urðum. Hún var aðeins sjö ára gömul er hún missti móður sína. Hún gekk í barnaskóla í sveitinni og varð gagnfræðingur frá gagnfræða- skólanum á Siglufirði. Átján ára gömul fluttist hún til Reykjavíkur og hóf störf hjá Pósti og síma. Soffía giftist hinn 1. des. 1951 Eyjólfi Teitssyni húsasmið frá Eyvind- artungu í Laugardal, f. 30. júlí 1925, d. 4. sept. 1993. Hann var sonur hjónanna Sig- ríðar Jónsdóttur og Teits Eyjólfssonar. Börn Soffíu og Eyj- ólfs eru: 1) Elín, fulltrúi sýslumanns í Garðabæ, f. 12. mars 1951, gift Magnúsi Stefánssyni. Börn þeirra eru Elvar og Birkir. Fyrir átti Elín Soffíu og Magnús átti Arndísi. 2) Teitur, húsgagnasmið- ur, starfandi sjómaður, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Lovísu Við- arsdóttur. Börn þeirra eru Anna Bára, Eyjólfur og Viðar. Lang- ömmubörn Soffíu eru alls sex. Soffía starfaði lengst af við skrifstofustörf hjá Pósti og síma eða til ársins 1989 er hún hóf störf hjá Reykjavíkurborg. Soffía og Eyjólfur bjuggu lengst af í Hlíð- unum, fyrst í Eskihlíð og síðan í Barmahlíð. Eftir að Eyjólfur lést keypti Soffía sér íbúð á Skúlagötu 40A. Útför Soffíu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar að minnast tengda- móður minnar Soffíu Ármannsdótt- ur með örfáum orðum. Hún lést hinn 20. júlí síðastliðinn eftir langa og erf- iða baráttu við sjúkdóm sem hún varð fyrst vör við fyrir u.þ.b. 18 ár- um. Ég kynntist Soffíu fyrst fyrir u.þ.b. 28 árum er leiðir okkar Elínar dóttur hennar lágu saman. Ég fann strax að þarna var á ferðinni ákaf- lega góð og vönduð kona. Soffía varð fyrir þeirri lífsreynslu að missa móður sína aðeins sjö ára gömul, sem eflaust hefur orðið til þess að breyta lífsviðhorfi hennar. Sem ung kona varð Soffía hins vegar lánsöm að kynnast miklum heiðurs- manni, Eyjólfi Teitssyni, sem hún giftist. Svo vill til að útfarardagur Soffíu 30. júlí er afmælisdagur Eyj- ólfs, en hann hefði orðið 77 ára gam- all. Nú á þessari stundu rifjast upp í huga mér minning um það þegar við Elín vorum að byggja, búin að selja eldra hús okkar. Þá fluttum við í Barmahlíðina til þeirra hjóna Soffíu og Eyjólfs, með þrjú börn, og bjugg- um hjá þeim um nokkurra mánaða skeið. Það þótti þeim hjónum alveg sjálfsagt. Þau hjón voru mikið fyrir barna- börnin. Ég man að stuttu eftir að við höfðum flutt frá þeim liðu nokkrir dagar sem við höfðum ekki komið í Barmahlíðina. Þá var haft á orði hversu langt væri síðan börnin hefðu komið. Ég vil með þessum fátæklegu orð- um þakka Soffíu fyrir allt. Ég veit að söknuður barnabarnanna er mikill, en nú tekur Eyjólfur á móti henni. Ég vil biðja Guð að blessa minn- ingu hennar og styrkja ástvini á þessari sorgarstundu. Magnús Stefánsson. Elsku amma mín er látin. Með fá- einun orðum langar mig til að minn- ast ömmu Soffíu. Manneskju sem skipti mig miklu. Hún átti stóran þátt í mínum uppvexti og hefur ávallt verið órjúfanlegur hluti af lífi mínu. Það er því með sorg í hjarta sem ég kveð hana nú. Þær eru ófáar minningarnar sem koma upp í hugann þegar litið er til baka, við áttum svo margar góðar stundir saman. Ég var alltaf svo hjartanlega velkomin til ömmu og afa enda voru þau með eindæmum barngóð. Þær voru ófáar helgarnar sem ég gisti hjá þeim. Amma var ein- staklega greiðvikin og umhyggju- söm. Þolinmæðin þraut aldrei þrátt fyrir ærslalætin í okkur barnabörn- unum. Fjölskyldan skipti ömmu mína miklu máli. Það var mikið dekrað við okkur barnabörnin en við vorum sjö og fór stundum mikið fyrir okkur. Hjá ömmu og afa var iðulega búið að kaupa ís og annað góðgæti handa okkur þegar við komum. Þá fór afi oft fyrir allar aldir út í bakarí um helgar og amma færði okkur morg- unmatinn í rúmið. Amma var einstaklega gestrisin og hlý kona, hún var rólynd og hrað- inn í þessu nútíma þjóðfélagi hafði ekki mikil áhrif á hana. Tímunum saman sat ég hjá henni og teiknaði myndir. Hún hvatti mig áfram og hrósaði mér stöðugt. Það þótti held- ur ekki mikið mál að fá að gera til- raunir í eldhúsinu hennar og með því sýndi hún mér umhyggju og þolin- mæði sem ég bý að alla tíð. Amma vildi einnig rækta áhuga- mál sem voru ekki endilega það sem bar hæst í minni unglingamenningu en ég var þó tilbúin að vera með henni í því það gaf mér mikið. Amma fór með mig á listasöfn og sýningar og naut ég þessara samverustunda út í æsar. Ferðalög voru ömmu hugleikin og áttum við yndislegan tíma saman þegar við fórum til Ítalíu 1986. Ég var 13 ára þá og þetta var mikið æv- intýri fyrir mig. Á Ítalíu sáum við svo margt fallegt og framandi sem víkk- aði sjóndeildarhring minn mikið. Þegar ég eignaðist mín börn tók amma mikinn þátt í lífi þeirra. Hún sýndi þeim sömu umhyggju og þol- inmæði og hún hafði gefið mér á mín- um uppvaxtarárum. Þrátt fyrir hrakandi heilsu á síðustu árum var hún ávallt reiðubúin að hjálpa mér með börnin og skipaði hún stóran sess í lífi þeirra og minnar fjölskyldu. Að fá að vaxa úr grasi með slíka ömmu er mér ómetanlegt og ég vona að ég fái ræktað vel það sem hún gaf mér í veganesti í þessu lífi. „Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorg- mæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.) Soffía Hreinsdóttir. Á hverjum vinnustað skiptir miklu máli að vel sé tekið á móti nýjum starfsmönnum. Það sannaðist mjög vel þegar tvær okkar hófu störf á Droplaugarstöðum í byrjun tíunda áratugarins. Þá tóku á móti okkur tvær elskulegar konur, og var önnur þeirra Soffía, en þær höfðu þá starf- að saman um árabil og voru nokkurs konar miðpunktur staðarins. Nú kveðjum við Soffíu, aðra þessara góðu kvenna. Hún lést því miður langt um aldur fram, því hún átti margt eftir sem hún gat gefið, bæði sínum nánustu og vinum sínum. Soffía var heilsteypt manneskja og leysti öll sín störf vel af hendi. Á stað eins og Droplaugarstöðum er mikils virði að kunna að umgangast heim- ilisfólkið með þeirri virðingu sem hún sýndi ungum sem öldnum. Soffía var skemmtilegur félagi. Hún hafði ríka réttlætiskennd, hún var vel greind og hreinskiptin í sam- skiptum sínum við annað fólk. Hún hagaði jafnan orðum sínum á þann veg að þau særðu ekki aðra, enda hafði hún einstaklega gott vald á ís- lensku máli. Var gott að leita til hennar í þeim efnum sem og öðrum. Hún var glaðlynd og hafði einstakan húmor. Öll hennar framkoma var fáguð og smekkvís, og það sýndi sig jafnt á henni sjálfri og heimili henn- ar, sem var einstaklega hlýlegt. Þar nutu sín einnig hæfileikar hennar í matargerð en hún hafði unun af að taka á móti gestum. Þegar Soffía lét af störfum hafði hún meiri tíma til að sinna hugðar- efnum sínum. Þá komu í ljós listræn- ir hæfileikar hennar þar sem hún reyndist mjög fjölhæf. Hún hafði ekki hátt um hæfileika sína en verkin tala sínu máli. Við fjórar ræktuðum vináttu okk- ar áfram þótt störfum lyki og höfum við haft mikla ánægju af. Soffíu er nú sárt saknað í okkar hópi. Við munum halda áfram að hittast og gleðjast og minnast hennar um leið, það væri í hennar anda. Við þökkum Soffíu fyr- ir vináttu hennar sem gefur okkur dýrmætar minningar. Við kveðjum hana með virðingu og biðjum henni blessunar á nýjum leiðum. Eftirlif- andi systkinum hennar, börnum hennar og fjölskyldum þeirra send- um við innilegustu samúðarkveðjur. Dóróthea, Sæunn og Jenný. SOFFÍA ÁRMANNSDÓTTIR www.solsteinar.is sími 564 4566 Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar                                              !  "#                     !  "! #$  %  & &   $  %       &   "   " !      "    '&   "( )  "  % )# !   & # '     *+   ,%-(   % ". %//    (    (    )*% % +           ,  )%  % -.%./%   & %      0 1  !  2   "3 4  % "     '% (      )  $   5      "6         7 $-1   &     & # '          '$5$ '$8)7*+  4 &9: %-     0 1   #   )*% % +     "       )%  % -2%//% ' - '% %  ;.%  "(    " '% %  % '! "   +! '% %  "( "  ( '% %  " 4  8 %- '% %  "   < =!   &     & # "       $ 5   3  (> %-             ,  )%  % -.%./% 3!               #  ( &        0( <#    % ).   $     ).   4  )#    =% '    0&1    0 1 ).   "  "        7 +%1      <#    ). 5.!(   &     & # 4 $    !   &     3+$+=?; 0;;    )5%        36! +        +=%@  %  %   %1  =2 "1  0&1  =2   ). % 1& "   =2 +%1 =2   %=%-  $   =2     % 7 ) #

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.