Morgunblaðið - 30.07.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.07.2002, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2002 35 ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu atvinnuhúsnæði 1. Tvö góð skrifstofuherb. í miðbænum. Kaffiaðstaða og snyrting. 2. 400 fm skrifstofuhúsnæði í góðu húsi við Austurvöll. 3. 1.500 fm skrifstofu/þjónustuhúsnæði neðst við Borgartún. Mjög góð stað- setning. Malbikuð bílastæði. 4. 600 fm lagerhúsnæði, þar af 100 fm skrifstofur við Garðatorg, Garðabæ. 5. 500 fm húsnæði fyrir matvælaiðnað með kælum og frystum í Hagkaups- húsinu Garðatorgi, Garðabæ. Næg bílastæði, góð gámaaðstaða. 6. Til leigu 10 bílastæði við Tryggva- götu, v/Naustið. Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll ehf. Upplýsingar gefur Karl í síma 892 0160. FYRIRTÆKI Snyrtifræðingar Ein flottasta snyrtistofa í Reykjavík til sölu. Frábært tækifæri. Upplýsingar í síma 698 7277. TILBOÐ / ÚTBOÐ Útboð KAR-11A Slóðagerð við Kárahnjúkastíflu Undirbúningsverk 2002 Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í slóðagerð m.a. að fyrirhuguðu stæði bráðabirgðabrúar, borun og sprengingar á áformuðu námusvæði ásamt því að hlaða og þjappa tilraunafyllingu sem og gryfjugröft á fyrirhuguðu fram- kvæmdasvæði við Kárahnjúkastíflu. Útboðið er með fyrirvara um framkvæmdaleyfi sveitarstjórna. Helstu magntölur: Fastur gröftur fyrir vegslóða 50.000 m3 Bergboltar 200 stk. Steypustyrktarnet 500 kg Verklok eru 1. desember 2002, verkið er áfanga- skipt. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands- virkjunar, innkaupadeild, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 31. júlí nk. gegn óafturkræfu gjaldi kr. 7.000 fyrir hvert eintak. Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 21. ágúst 2002 kl. 11:00, á sama stað, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboð KAR-14a Gerð vegslóða vegna Kárahnjúkavirkjunar Undirbúningsverk 2002 Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í gerð veg- slóða og graftar að gangamunnum Aðganga 1 á Teigsbjargi og Aðganga 2 við Axará. Jafn- framt vinnu við fyllingar með hæfu efni í vinnu- búðareiti hjá viðkomandi gangamunnum ásamt gerð og frágangi á vatnsbólum og rotþróm. Útboðið er með fyrirvara um framkvæmdar- leyfi sveitarstjórna. Helstu magntölur: Laus gröftur 37.000 m3 Fastur gröftur 10.000 m3 Fyllingar í vegslóða 36.000 m3 Fyllingar í vinnubúðareiti 46.000 m3 Rotþró (10.000 l) 2 stk Skolplögn (ø 110 PVC/PEH) 100 m Vatnslögn (PN 10, PEH 50 mm) 500 m Bergboltar 200 stk. Steypustyrktarnet 500 kg Verklok á vegslóðum og búðareitum er 15. nóv- ember 2002 en frágangi að öðru leyti 1. desem- ber 2002. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands- virkjunar, innkaupadeild, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 1. ágúst nk. gegn óafturkræfu gjaldi kr. 4.000 fyrir hvert eintak. Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 21. ágúst 2002 kl. 14:00, á sama stað, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. SMÁAUGLÝSINGAR TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir, Ingibjörg Þengilsdóttir, Erla Alexandersdóttir, og Garðar Björgvinsson michael-miðill starfa hjá félaginu og bjóða fé- lagsmönnum og öðrum uppá einkatíma. Upplýsingar um félagið, einka- tíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13—18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á sím- svara félagsins. Netfang: mhs@vortex.is . Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur starfar í nánum tengslum við Sál- arrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. KENNSLA ■ www.nudd.is FÉLAGSLÍF 31. júlí miðvikudagskvöld. Sumarkvöld við Tröllafoss í Leirvogsá í Mosfellssveit. Um 3 klst. ganga. Brottför frá BSÍ kl. 19.30. Verð 1.000/1.200. Verslunarmannahelgi 2002 með FÍ: Fjölskylduhelgi í Þórsmörk 2.— 5. ágúst; göngur, leikir, grill. Hraðganga um Laugaveginn 2.—5. ágúst. Fossar í Þjórsá 3.—4. ágúst (uppselt). Lónsör- æfi 31. júlí—3. ágúst (uppselt). Þjórsárver 2.—7. ágúst (upp- selt). Trússferð um Laugaveginn 1. ágúst, 3 sæti laus. Kjalvegur hinn forni 7. ágúst, nokkur sæti laus. Norðurárdalur — Hjalta- dalur 10. ágúst, nokkur sæti laus. Þverbrekknamúli — Karlsdráttur - Hvítárnes 9.— 11. ágúst, helgarferð, ný ferð. Fimmvörðuhálsganga 9.—11. ágúst. Sími FÍ 568 2533. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619. TILBOÐ / ÚTBOÐ ✝ Jóna GuðbjörgGuðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 13. desember 1920. Hún lést á Drop- laugarstöðum sunnudaginn 21. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sesselja Stef- ánsdóttir húsfreyja í Reykjavík, dóttir Stefáns Hannesson- ar smiðs og sjó- manns frá Litla- Botni í Hvalfirði og Guðrúnar Matthías- dóttur veitingakonu í Reykjavík frá Fossá í Kjós og Guðmundur Jónsson verkstjóri í Reykjavík, sonur Jóns Jónssonar sjómanns Tjarnarkoti í Vogum og Salvar- ar Guðmundsdóttur húsfreyju og verkakonu úr Kópavogi. Systkini Guðbjargar eru: Ívar f. 1912, d. 1996, Kristín f. 1913, d. 2001, Hans f. 1914, d. 1967, Guðfinna f. 1917, d. 1994, Guð- mundur f. 1919, Magnúsína f. 1922, Arndís f. 1924, d. 2001, Jón f. 1926, d.1975 og Susie f. 1929. Guðbjörg ólst upp í Reykja- vík. Faðir hennar lést þegar hún var níu ára og var hún þá sett í fóstur til hjónanna Guð- laugar Jónsdóttur og Ólafs Eyjólfs- sonar að Saurbæ á Kjalarnesi. Hjá þeim átti hún heim- ili þar til hún fór að sjá fyrir sér sjálf. Guðbjörg giftist 24. nóvember 1941 Óskari Þóri Guð- mundssyni f. 8. júlí 1920. Þau slitu sam- vistir. Barn þeirra er Sölvi f. 15.8. 1942 eiginkona Oddný J. Eyj- ólfsdóttir og eiga þau einn son. Guðbjörg giftist 1. febrúar 1948 Guðmundi Guðmundssyni f. 19. júlí 1924, d. 12. nóvember 1972. Synir þeirra eru: 1) Páll Helgi f. 15.9. 1947 eiginkona Guðleif Guðlaugsdóttir, eiga þau tvo syni, einn fósturson og fimm barnabörn. 2) Guðmundur f. 4. 10. 1956, eiginkona Sigríður Arna Kristmundsdóttir, eiga þau þrjú börn. Fyrir átti Guð- mundur eina dóttur. Útför Guðbjargar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 15. Afrekskona er látin. Guðbjörg móðursystir mín er í mínum huga stærri og meiri forkur en kvenhetjur fornsagnanna til samans. Gugga, eins og hún var ætíð nefnd af frændgarðinum, hefir staðist þá raun að berjast áfram, án þess að líta um öxl, með þeirri fötlun sem á hana var lögð fyrir naumlega hálfri öld. Heilablóðfall, sem olli bæði lömun og málleysi, laust hana er hún gekk með yngsta son sinn. Gugga lá máttvana alla meðgönguna og aðeins augun voru virk. Sonur hennar fæddist heill á húfi og baráttan hófst við að koma sér á fæturna. Þrotlausar æfingar og talkennsla til fleiri ára gerðu henni fært að bjarga sér til flestra verka og sjá um sitt heimili. Það var stór missir þegar Guðmundur, maður hennar, lést fyrir um það bil þrjátíu árum. Guðmundur var dugnaðarforkur þrátt fyrir að hann var einnig mikill sjúklingur. Eftir lát hans hélt Gugga heimili ein. Gugga frænka átti jafnt bjart- sýni, stórt skap og óbilandi kjark að ættarfylgju. Gugga gat allt og þáði ógjarnan aðstoð frá öðrum: Fólk á förnum vegi hljóp gjarnan til og rétti henni hönd yfir snjó- skafl eða upp í strætó; þá reisti hún höfuðið með votta af þótta og viðkvæðið var jafnan stutt og lag- gott; ég get sjálf! Gugga var afkastamikil hann- yrðakona, hún hafði unnið við saumaskap uns hún veiktist. Gugga hafði verið rétthent en nú var hægri höndin alveg ónýt. Ekki var látið þar við sitja̧vinstri höndin var burðugri og nú tók hún við hlut- verki þeirrar hægri og afrakstur- inn lét ekki á sér standa. Postulíns- málun, fínasta bróderí og hvers kyns saumaskapur streymdi frá henni. Það var ótrúlegt að sjá hana þetta mikið fatlaða við hannyrð- irnar og liggja einhver firn af lista- verkum eftir hana hjá ættingjum og vinum. Gugga var víðsigld eins og sagt var í denn. Hún ferðaðist mikið með Guðmundi, manni sínum, á meðan hans naut við og eins fór hún árlega, oftast til sólarlanda, meðan kraftar leyfðu. Gugga reykti til fleiri ára (það er líka ættar- fylgja). Hún lét þó af þeim ósið fyr- ir mörgum árum; sagðist frekar vilja ferðast fyrir andvirði tóbaks- ins. Ég spurði hana nokkrum árum eftir að hún hætti að reykja hvort hana langaði aldrei í sígarettu. Alltaf var svarið sem ég fékk: En ég vel að fara til útlanda fyrir aur- ana. Gugga var laus við alla vellu, hún var afar viljug líkt og systkini hennar öll og orðskrípið að nenna var ekki til í orðaforða þeirra: Það gátu verið ótal ástæður fyrir því að hlutirnir voru ekki gerðir, en þau nenntu öllu. Gugga hafði yndi af börnum og sýndi sínar mýkstu hliðar þegar hún var að passa barnabörnin og hjalaði við þau. Synirnir þrír, sem allir hafa verið boðnir og búnir til þess að hjálpa mömmu sinni, hafa oft orðið fyrir vonbrigðum með það hve Gugga var mikill sjálfbirging- ur; þeir hefðu gjarnan viljað fá að dekra svolítið meira við mömmu sína og samkvæmt öllum kokka- bókum hefði hún átt að veita sér þann munað að rella svolítið í þeim. Guggu frænku mun ég minnast sem hetju og einsog áður er sagt hef ég ekki heyrt um þær konur að þær hafi skákað frænku minni; Gugga hefði ekki séð eftir hárkoll- unni allri hefði hún verið beðinn um streng í boga. Kæra frænka! Ég bið þér góðrar ferðar í hinsta sinn. Anna Agnars. JÓNA GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR <0 )0  0;; 5% % FG 5%(  %-(   ;     #    )=% % +     0     -%  % -.%//% " % # *$  0;;   .%(3 % % "       4    -5% % +       & &% '& . !#

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.