Morgunblaðið - 30.07.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.07.2002, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HÓPUR starfsmanna SPRONstofnaði sl. laugardag einka-hlutafélag, StarfsmannasjóðSPRON ehf., sem gerði stofn- fjáreigendum í sparisjóðnum tilboð um kaup á stofnfé þeirra. Í tilkynningu sem félagið sendi frá sér á laugardag segir: „Starfsmannasjóður SPRON ehf., sem er einkahlutafélag í eigu starfsmanna SPRON, hefur gert stofnfjáreigendum til- boð um 4,5-falt endurmetið nafnverð fyrir hvern stofnfjárhlut. Starfsmannasjóður- inn býðst til þess að greiða fyrir stofnfjár- hlutina með reiðufé eigi síðar en tveimur vikum eftir að skilyrðum hefur verið full- nægt. Sparisjóðirnir, Sparisjóðabanki Ís- lands, Kaupþing banki hf. og ýmsir fjár- festar mynda saman fjárhagslegan bakhjarl tilboðsins. Með tilboðinu vill Starfsmannasjóður- inn tryggja að SPRON verði hér eftir sem hingað til sjálfstæð eining sem hefur það að markmiði að stuðla að framgangi og vexti sparisjóðsins. Tilgangurinn er einnig að treysta stöðu starfsmanna og veita þeim kost á að koma með beinni og nánari hætti en áður að stjórn og skipulagi spari- sjóðsins. Tilboð Starfsmannasjóðsins er sett fram með því skilyrði að kaup á a.m.k. 51% af heildarstofnfé SPRON gangi eftir og verði samþykkt af stjórn SPRON. Þá er áskilið að Fjármálaeftirlitið fallist á fyr- irætlanir bjóðanda og að Starfsmanna- sjóðurinn og fjárfestar sem vinna með honum verði samþykktir sem eigendur virks eignarhluta í SPRON. Tilboðið gildir til mánudagsins 29. júlí 2002 kl. 24. Starfsmannasjóður SPRON hf. hefur sent stofnfjáreigendum í SPRON áður- greint tilboð og óskað eftir því að þeir framselji stofnfjárhluti sína með umrædd- um fyrirvörum. Jafnframt hefur verið ósk- að eftir umboði vegna atkvæðagreiðslu á fundi stofnfjáreigenda mánudaginn 12. ágúst 2002.“ Þar kemur einnig fram að í stjórn Starfsmannasjóðs SPRON ehf. eru Ari Bergmann Einarsson útibússtjóri sem er formaður stjórnar, Harpa Gunnarsdóttir, forstöðumaður starfsmannaþjónustu, Jó- hannes Helgason fulltrúi, Sigríður Einars- dóttir þjónustustjóri og Þorvaldur F. Jónsson útibússtjóri. Stofnfjáreigendum sent bréf Í bréfi Starfsmannasjóðs SPRON ehf. til stofnfjáreigenda segir: „Starfsfólk SPRON hefur ákveðið að stofna einkahlutafélag, Starfsmannasjóð SPRON ehf., og fá hóp sparisjóða og ann- arra fjárfesta í lið með sér til þess að kaupa SPRON með það að markmiði að verja vöxt sparisjóðsins og sjálfstæði hans á komandi árum. Þess vegna sendum við þér meðfylgjandi tilboð um kaup á hlut þínum fyrir 4,5-falt framreiknað nafnverð hans, sem er talsvert hærra tilboð en þér hefur borist frá Búnaðarbanka Íslands í sam- vinnu við nokkra stofnfjáreigendur SPRON. Margir sparisjóðir hafa þegar gefið vil- yrði um að koma til liðs við okkur, ásamt Sparisjóðabanka Íslands, Kaupþingi og fjölmörgum öðrum fjárfestum úr röðum einstaklinga og fyrirtækja. Sameiginlegt markmið okkar allra er að slá skjaldborg um núverandi starfsemi SPRON og skapa um leið fordæmi fyrir því hvernig starfs- fólk og stofnfjáreigendur annarra spari- sjóða geti varist óvinveittri yfirtöku á borð við þá sem Búnaðarbankinn hefur stefnt að. Meðfylgjandi er kaupsamningur ásamt umboði fyrir þriðja aðila til að fara með at- kvæði þitt á fundi stofnfjáreigenda SPRON sem haldinn verður 12. ágúst nk. Líkur virðast vera á því að stofnfjáreig- endum sparisjóða geti verið heimilt að selja hlut sinn á hærra verði en framreikn- uðu nafnverði. Enda þótt núgildandi tilboð Búnaðarbankans hafi ekki hlotið sam- þykki Fjármálaeftirlitsins er ljóst að bankinn ætlar sér að halda yfirtökutil- raunum sínum áfram. Næsta skref í þeim efnum er að fá stofnfjáreigendur í lið með sér til þess að fella núverandi stjórn og velja sparisjóðnum nýja forystu. Starfs- fólk SPRON hefur ítrekað lýst yfir fyllsta trausti á stjórn fyrirtækisins og í orrahríð undanfarinna daga hefur sú afstaða ekkert breyst. Fundur stofnfjáreigenda ræður úrslitum um framtíð stjórnar og um leið framtíð SPRON og von okkar er sú að nið- urstaða hans verði afgerandi stuðningur við það farsæla starf sem unnið hefur verið á vegum Sparisjóðs Reykjavíkur og ná- grennis. Starfsfólk SPRON hefur með margvís- legum hætti fundið fyrir hlýjum hug og öflugum stuðningi stofnfjáreigenda. Þess vegna væntum við þess að þú sért fús til að taka meðfylgjandi tilboði og standa með okkur í baráttunni fyrir áframhaldandi starfsemi SPRON og um leið sparisjóð- anna í landinu. Við heitum á samstöðu þína í þeim efn- um og munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda þér upplýstum um framvindu baráttu okkar á næstu dögum. Með bestu kveðju og von um öflugan stuðning, fyrir hönd starfsmannasjóðs SPRON ehf.,“ segir í lok bréfsins, sem undirritað er af stjórnendum félagsins. Bréfinu fylgir einnig tafla með svohljóð- andi texta: „Í töflunni hér að neðan getur þú séð upphæð tilboðsins eftir því hversu marga stofnfjárhluti þú átt. Ef t.d. hjón eiga bæði hámarkshlut þá eiga þau 40 hluti sem gefur kr. 6.251.400,00 kr.“ (Tafla 1) Kauptilboð Starfsmannasjóðs SPRON ehf. Samhliða þessu var stofnfjáreigendum sent eftirfarandi kauptilboð: „Starfsmannasjóður SPRON ehf., sem er einkahlutafélag í eigu starfsmanna SPRON, gerir hér með tilboð í stofnfjár- eign yðar í SPRON. Bakhjarlar félagsins í þessum viðskiptum eru sparisjóðir, Kaup- þing banki hf. og Sparisjóðabanki Íslands. Starfsmannasjóður SPRON ehf. býðst til að kaupa hvern 25.000 króna stofnfjár- hlut yðar á genginu 4,5. Endurmetið nafn- verð hvers stofnfjárhlutar miðað við árs- byrjun 2002 er 34.730 kr., sem þýðir að boðnar eru 156.285 kr. fyrir hvern stofn- fjárhlut. Með tilboði þessu hyggst bjóðandi tryggja að SPRON verði eftir sem áður sjálfstæð rekstrareining með það að mark- miði að stuðla að framgangi og vexti spari- sjóðsins. Tilgangur bjóðanda er jafnframt að treysta stöðu starfsmanna og veita þeim kost á að koma að stjórn og skipulagi vinnuveitanda síns. Tilboð þetta er sett fram með því skil- yrði að kaupin verði samþykkt af stjórn SPRON, að fundur stofnfjáreigenda af- nemi hámarkseignarhlut hvers stofnfjár- eiganda skv. 5. gr. samþykkta SPRON og að Fjármálaeftirlitið fallist á fyrirætlanir bjóðanda og að bjóðandi og nefndir bak- hjarlar þess verði samþykktir sem eigend- ur virks eignarhluta í SPRON, skv. 10., sbr. 14. gr. laga nr. 113/1996 um viðskipta- banka og sparisjóði. Jafnframt áskilur bjóðandi sér rétt til að falla frá tilboðinu samþykki ekki eigendur að a.m.k. 51% af heildarstofnfé tilboð Starfsmannasjóðs SPRON ehf. Bjóðandi mun greiða fyrir stofnfjárhlutina með reiðufé eigi síðar en tveimur vikum eftir að skilyrðum þessum hefur verið fullnægt, gegn framsali stofn- fjárbréfa. Tilboð þetta gildir til mánudagsins 29. júlí 2002 kl. 24. Þeir sem samþykkja til- boðið skulu skila því undirrituðu og vott- festu á skrifstofu Starfsmannasjóðs SPRON ehf., Ármúla 13A, Reykjavík, eigi síðar en á miðnætti mánudaginn 29. júlí nk. Samhliða er þess óskað að [...], eða þeim stofnfjáreiganda, sem hann felur að koma fram, verði veitt umboð til að fara með at- kvæði yðar á fundi stofnfjáreigenda í SPRON, sem haldinn verður á Grand hót- eli, Reykjavík, mánudaginn 12. ágúst 2002, kl. 17. Með vinsemd og virðingu. F.h. Starfsmannasjóðs SPRON ehf.“ Búnaðarbanki lýsir sig reiðubúinn að hækka tilboð sitt Bankaráð Búnaðarbanka Íslands hf. sendi á sunnudag frá sér yfirlýsingu vegna tilboðs hins nýja einkahlutafélags starfs- manna SPRON í stofnfé í sparisjóðnum. Yfirlýsing bankaráðsins fer hér á eftir: „Vegna tilboðs nýs einkahlutafélags starfsmanna SPRON í stofnfé í spari- sjóðnum vill bankaráð Búnaðarbanka Ís- lands hf. taka fram eftirfarandi: Búnaðarbank samkomulag við SPRON um ka stofnfjár á geng um það gengi óheimilt væri að til að greiða fyri Nú hefur n stuðningi Kaup og annarra spar gert stofnfjáre þeirra á gengin sparisjóða er í stofnfé SPRON sem að þessu ti endurteknar yf SPRON á unda mæti tilboðs Bú Bankaráð hyggst ekki ta stæðulausra yf SPRON og ste sitt á genginu 4 á sínum tíma va um samkvæmt. málaeftirlitið te sparisjóða til ka boð hins nýja skapast aðrar Búnaðarbankan að Fjármálaefti lega mun Búna sitt í 5,5.“ Segja til sjóðsin Stofnfjáreige tilboð í allt stof Búnaðarbankan um bréf á sunn Starfsmannasjó svohljóðandi: „Okkur stofn hefur nú borist t á genginu 4,5 fr ehf., sem sagt er starfsfólk SPRO tilboðinu er sag gerðina séu sp hf. og Sparisjó liggur, að þetta stjórnenda SPR Við blasir a þessu útspili er stofnfjáreigendu hluti sína á hær stofnverði, eins Ástæðan er sú, sá fyrirvari, að 51% af stofnfén að gera þetta ti ar til að nægileg ur falli frá sölu t lágmark náist e af neinum kaup en nafnverðinu. Á undanförnu irritaðir staðið u stjórnendum SP um að kaupa genginu 4. Hafa um að brjóta g banka og sparisj ar sjálfir ákveði sem eigið fé s kaupa út stofn Annars vegar e SPRON, sem f Kaupþingi bank Íslands hf., og h sparisjóða, sem heilagt og eigið málflutning stjó ur. Í deilunum verið sammála enda er skýrum lögum. Kaup sa munu því aldrei greindur fjöld þykkti það. Ef það á ann hinir nýju tilbo eigið fé sparisjó eigendur í öðru en stofnverði, g unum stjórna, k sig við stofnfjár því að láta spari Þeir sem takast á um stofnfjárhluti í Spari ÁtÁtök um yfirráð yfir Spari-sjóði Reykjavíkur og ná-grennis hörðnuðu enn um helgina þegar hópur starfs- manna SPRON stofnaði einkahlutafélag og gerði stofnfjáreigendum tilboð. Þeir sem takast á sendu frá sér yfirlýsingar í gær og um helgina.ALÞINGI TAKI Í TAUMANA Þau átök sem staðið hafa yfirum Sparisjóð Reykjavíkurog nágrennis undanfarnar vikur eru komin út yfir öll skyn- samleg mörk. Fólk þarf ekki ann- að en lesa þann fjölda yfirlýsinga, bréfa, samþykkta og álitsgerða, sem berast frá deiluaðilum og birt eru m.a. í Morgunblaðinu í dag, til viðbótar við það mikla magn af efni, sem birzt hefur í blaðinu að undanförnu, til þess að sjá út í hvers konar vitleysu þetta mál er komið. Kjarni málsins er þessi: Alþingi gerir ákveðnar breytingar á lögum um viðskiptabanka og sparisjóði til þess að gera þeim sparisjóðum sem vilja mögulegt að stofna hlutafélög um rekstur sparisjóð- anna. Með þeim hætti átti að auð- velda sparisjóðunum að ná í aukið starfsfé og verða samkeppnisfær- ari við bankana. Ljóst var og er að innan sparisjóðahópsins hafa menn alls ekki verið á einu máli um það hvort það væri líklegt til árangurs en það er allt önnur saga. Áhrifamiklir forystumenn meðal sparisjóðamanna hafa þvert á móti verið þeirrar skoðunar að hlutafélagavæðing sparisjóðanna mundi leiða til ófarnaðar. Grundvallarmarkmið Alþingis var að opna möguleika fyrir hluta- félagavæðingu sparisjóðanna án þess að til yrði nýtt gjafakvóta- kerfi. Um það markmið sagði Morgunblaðið í forystugrein um þetta mál hinn 27. júní sl.: „Þegar umræður hófust um hugsanlega hlutafélagavæðingu sparisjóðanna fyrir nokkrum árum efndi Morgunblaðið til töluverðra umræðna á síðum blaðsins um þetta mál. Þá voru deilur um kvótakerfið í sjávarútvegi í há- marki og Morgunblaðið benti á, að menn gætu ekki selt það sem þeir ættu ekki. Augljóst var að ef ekki væri rétt staðið að hlutafélaga- væðingu sparisjóðanna væri hætta á að þar gæti orðið til nýr gjafa- kvóti. Stofnfjáreigendur í spari- sjóðum gætu eignast hlutdeild í eigin fé sparisjóðanna án þess að hafa nokkru sinni lagt fram fjár- muni til þess að eignast þá hlut- deild. Eigið fé sparisjóðanna á Ís- landi nemur á annan tug milljarða króna. Fyrirsjáanlegt var að sú gífurlega eignatilfærsla, sem varð í skjóli kvótakerfisins, gæti end- urtekið sig við hlutafélagavæðingu sparisjóðanna. Af þessum sökum var lögð á það rík áherzla við laga- setningu á Alþingi að koma í veg fyrir að nýtt gjafakvótakerfi yrði til við áformaða hlutafélagavæð- ingu sparisjóðanna.“ Í greinargerð þeirri sem Fjár- málaeftirlitið sendi frá sér 19. júlí sl. kom í ljós, að sú stofnun taldi Alþingi ekki hafa tryggt þetta markmið nægilega vel í þeirri lög- gjöf sem sett var um þetta efni. Fjármálaeftirlitið staðfesti í greinargerð sinni það sem hér hef- ur verið sagt um markmið löggjaf- ans. Í greinargerðinni segir: „Með öðrum orðum gera lögin ekki ráð fyrir því, að stofnfjáreigandi fái hlutdeild í uppsöfnuðu eigin fé sjóðsins nema hugsanlega í gegn- um arðgreiðslu, enda eru stofn- fjáreigendur ekki eigendur spari- sjóðs með líkum hætti og hluthafar eru eigendur að hluta- félagi.“ Hins vegar kemur í ljós að Fjármálaeftirlitið telur að löggjaf- anum hafi ekki tekizt að tryggja þetta markmið því að í greinar- gerðinni segir: „Verður ekki séð að í viðskiptum stofnfjáreigenda við þriðja aðila um kaup á stofn- fjárhlut setji löggjöf bann við því, að viðskipti þeirra fari fram á hærra verði en nafnverði endur- metnu.“ Þetta er gatið í löggjöfinni. Við- brögðin við því geta ekki verið þau að hundsa vilja og markmið Al- þingis, sem Fjármálaeftirlitið seg- ir raunar að megi rekja allt aftur til ársins 1915 og gefa færi á að nýta smugu í löggjöfinni, sem út- sjónarsamir menn hafa komið auga á. Viðbrögðin hljóta þvert á móti að verða þau að bæta úr þeim galla, sem er á löggjöfinni, úr því að hún megnar ekki að tryggja að markmið og vilji Alþingis nái fram að ganga. Almenningur í þessu landi stendur agndofa frammi fyrir því sjónarspili sem nú stendur yfir um SPRON með yfirlýsingum og gagnyfirlýsingum frá deiluaðilum. Fólk furðar sig á að mistök af því tagi, sem hér hafa augljóslega orð- ið við löggjafarstarfið, geti yfir- leitt orðið á hinu háa Alþingi. Ekki verður ástandið betra þegar landsmenn standa frammi fyrir þeim darraðardansi nokkurra stórra viðskiptablokka í kringum bankana sem hefst ef ekkert verð- ur að gert. Alþingi verður að taka í taum- ana. Þingmenn allra flokka hafa lýst vilja til að þingið taki löggjöf- ina um sparisjóðina til skoðunar á ný í ljósi þess, sem gerzt hefur, strax í upphafi þings. Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hefur gefið áþekkar yfirlýsingar. Alþingi verður að taka í taum- ana. Það er skylda þess og hlut- verk. Skýr yfirlýsing frá ríkis- stjórn eða þingflokkum um að slíkt verði gert mundi hugsanlega verða til þess að draga úr þeim óvenjulega illvígu og stóryrtu deil- um, sem staðið hafa yfir og munu að óbreyttu halda áfram um völdin yfir SPRON. Það er mikið umhugsunarefni fyrir deiluaðila og stjórnmála- mennina hvort það sé sjálfsagt að fólkinu í landinu sé misboðið með þeim hætti sem nú er gert vegna þessa máls. Það er óhætt að full- yrða, að fólkinu sem sín á milli kallar sig venjulegt fólk og lætur að jafnaði ekki að sér kveða nema í kjörklefanum á fjögurra ára fresti þyki nóg komið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.