Morgunblaðið - 30.07.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.07.2002, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ '         8 +=?;  1 !-" ,'A ! 3  (>               ./%  % -.%./% 3!                 #  ##  % % (    "    8     8    < 1 8     11 "(  <   8   ; 1  ; 1  8      8     " '   3 4  8    ! 5 6   &     & # 4 $          +; ;08$  $- . B 5%(  %-(    (    7 &   ,  )8%       0     5%  % -*%//%    '&     "    .% -"     4"     1% < "    < < &    &     & # 4 $ &      ;$  8 *=?; 0;; .4  1 A"   / .&( (C9 %-      0 1   #   ,  )8%               .-%  % -.%./% 9         % #=2   " 4")  )%6  =2   5%  ! '     =2   D /%   - & # 4 $         < ;$ 3E+ ! ("  2    &FC %-       0 1    )*% % &1%  % < %  & ' '&     < %    % "(    < %  (1 "  !  3 A< %    %   &     & # 4 $          )0   4 &G:   0 1   0    )*%  +         " 3 4 "(   '  ).   "5  (     ).    14(! 5   "( ! ).      3 4      5  ).   $1 &    1 &    1 & # :         ,          )0 'H )0+8 2 % 1 A"  '!  &9:# ' -1 )   " "(  ) $1 )   2 ; -      )  )  ' -1   0 2     ' -1  );(  2      ' -1 # :              !    ! ;* $+* ;$0 0 0;;  % C %1  # "&      !   $    $   ;.%  %!   $ !   ( ' )   1!   < !     %(/  I %(/  < " !   (1 "   -   ;.%  !   +! '   #         ,          !   !       )07    0;;   9F  1 1 "# (       ! ( % 9!  1 "( <    "  &  < %    " %   % %  3 A #3 A  $  + J    " ). 3 A  $  '&      &     & # ✝ Finnlaugur Pét-ur Snorrason fæddist á Syðri-Bæg- isá í Öxnadal 11. apr- íl 1916. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð 23. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Snorri Þórðarson og Þórlaug Þorfinns- dóttir. Systkini Finn- laugs eru Guðlaug, Hulda, Halldóra og Steinn Dalmar sem er látinn. Hinn 5. maí 1945 kvæntist Finn- laugur Hermínu Sigurðardóttur. Börn þeirra eru: 1) Helgi, f. 16.5. 1946, d. 12.1. 1988, og eru börn hans og Hildar Gunnarsdóttur: a) Þuríður, b) Gunnlaugur, c) Finn- laugur Pétur, d) Sigurlaug, dóttir Helga og Ragnhildur Benedikts- dóttur, e) Hermína Íris. Einnig gekk Helgi syni Ragnhildar, Hall- grími, Geir í föðurstað. 2) Gunnar, f. 3.6. 1947, kvæntur Gunillu Stjernfeldt, synir Gunnars eru: a) Freyr og b) Jóhannes Gunnar. Gunnar gekk einnig dóttur Gunillu, Eriku í föðurstað. 3) Þorfinnur, f. 25.9. 1948, kvæntur Soffíu Guð- yfirbyggingar. Hann keypti jörðina Arnarstaði í Hraungerðishreppi árið 1952 og hóf þar búskap árið 1953. Fyrstu árin stundaði hann hefðbundinn kúa- og fjárbúskap, en seinni búskaparárin varð kart- öflurækt hans aðalbúgrein. Á vet- urna vann Finnlaugur m.a. hjá Tré- smiðju KÁ á Selfossi. Hann fór í Iðnskólann á Selfossi og tók sveins- próf í húsasmíði árið 1964. Finn- laugur lét af búskap árið 1970 og gerðist húsvörður í Grænmetis- verslun landbúnaðarins en þar starfaði hann til ársins 1982. Á þeim tíma fann hann upp nýja gerð flokkunarvéla fyrir kartöflur og smíðaði um tuttugu slíkar. Eftir að Finnlaugur lét af störfum kom hann sér upp litlu trésmíðaverk- stæði þar sem hann framleiddi ýmsa samlímda og rennda muni. Hann hélt sýningar og var hann þekktur víða um land af listilega gerðum smíðisgripum sínum. Árið 1998 tilnefndi félag Trérennismiða á Íslandi hann sem fyrsta heiðurs- félaga fyrir brautryðjandastarf á sviði trérennismíði á Íslandi. Eftir að heilsu hans hrakaði naut hann umönnunar eiginkonu sinnar auk þess sem hann dvaldi á hjúkrunar- heimilum í styttri tíma. Í janúar ár- ið 2000 fluttist Finnlaugur í hjúkr- unarheimilið Holtsbúð í Garðabæ og bjó þar til dauðadags. Útför Finnlaugs verður gerð frá Grensáskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. mundsdóttur, börn Þorfinns eru: a) Þór- laug, b) Einar Árni, c) Guðný Rut sem Þor- finnur ættleiddi, en einnig gekk hann í föð- urstað börnum Soffíu, þeim Kristínu, Pétri og Hermanni Bauer. 4) Þórlaug, f. 25.9. 1950, gift Kai Toft, sonur Þórlaugar og Gests Karlssonar er Finn- laugur Pétur. 5) Hulda, f. 4.4. 1953, börn hennar og Héðins Sverrissonar eru: a) Tryggvi, d. 1993, b) Erna, c) Jóhannes Pétur, d) Helgi og e) Einar. 6) Snorri, f. 21.2. 1960, kvæntur Sigríði Birgisdóttur og dætur þeirra eru: a) Linda Björk og b) Helga Dögg. 7) Ágústa Rósa, f. 28.10. 1962, gift Hákoni Valtýs- syni, synir hennar eru a) Ingvar Andri og b) Valtýr Már. Finnlaugur ólst upp á Syðri- Bægisá. Hann stundaði nám m.a. í Laugaskóla í Reykjadal, vann við bú foreldra sinna m.a. við bygging- ar, og var mjólkurbílstjóri í Öxna- dal og Glæsibæjarhreppi. Finn- laugur flutti til Selfoss árið 1945 og vann þar við húsbyggingar og bíla- Elsku pabbi minn, þreyttur á lík- ama og sál, hefur nú kvatt þessa jarðvist. Minntist oft góðra stunda í fögrum dal norður í landi þar sem hann ólst upp, ásamt foreldrum og fjórum systkinum. Gekk í skóla þar sem smíðar og líkamsrækt urðu að- alnámsgreinarnar. Kvæntist móður minni og fluttist suður þar sem hafist var handa við húsbyggingu, þótt nám í þeirri grein hæfist ekki fyrr en síðar. Alla tíð verið handlaginn og því léku flest verk í höndum hans. Lífsbaráttan hafin og við tóku barn- eignir og mikil vinna, enda fyrir stóru heimili að sjá. Ákveðinn og staðfastur tókst hann á við komandi ár. Lagði sig allan fram í því sem hann tók sér fyrir hendur hverju sinni og varð vinnudagurinn því oft- ast langur. Ákvað að bæta við menntun sína og lærði húsasmíði. Námsbækurnar enduðu stundum of- an á andlitinu á þreyttum manni þeg- ar stunda átti heimanámið. Þrátt fyrir það var námið klárað með góð- um árangri enda uppgjöf ekki að hans skapi. Hugmyndirnar margar og var frumkvöðull á mörgum svið- um. Tilbúinn að rétta hjálparhönd þeim sem óskuðu og höfum við börn- in hans notið þess á margan hátt. Ekki talið eftir sér að lána okkur íbúðir endurgjaldslaust eða aðstoða við húsbyggingar, alltaf mættur boð- inn og búinn. Víða minningar um fiman og kvikan mann sem alltaf var vinnandi. Átti það til að ganga á höndum fram að sjötugu ef þannig lá á honum. Sást sjaldnast ganga stiga, alltaf hlaupið, tvær til þrjár tröppur í einu. Þegar um hægðist í vinnu á efri ár- um voru margar stundir notaðar til smíða ýmissa dýrgripa, munirnir fagrir enda vandað til allra verka. Margir fegurstu munirnir litu dags- ins ljós stuttu áður en veikindi og óbærileg sorg sóttu að, þegar sonur og dóttursonur létust með fárra ára millibili. Dýrmætar eru samveru- stundir síðustu ára eftir að um hægð- ist og tækifæri gáfust til að kynnast betur. Síðustu árin hefur hann notið ummönnunar starfsfólks Hjúkrun- arheimilisins Holtsbúðar sem annað- ist hann með mikilli hlýju og um- hyggju, allt þar til yfir lauk. Þegar komið var á framfæri þakklæti til starfsfóksins var viðkvæðið gjarnan: „En hann er nú líka svo yndislegur.“ Að lokum vil ég fyrir hönd barna þinna þakka þér fyrir allt og allt. Guð geymi þig þar til við hittumst á ný. Þín dóttir Rósa. Vertu Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pét.) Elsku besti afi minn. Vonandi líð- ur þér vel núna. Þegar ég kom með mömmu í heimsókn til þín spiluðum við stundum Olsen Olsen því þér fannst svo gaman að spila. Þú komst líka stundum til okkar og varst alltaf hjá okkur á aðfangadagskvöld. Nú get ég ekki heimsótt þig oftar. Ég vona að Guð passi þig fyrir mig. Þinn afastrákur Valtýr Már. FINNLAUGUR PÉTUR SNORRASON  Fleiri minningargreinar um Finnlaug Pétur Snorrason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.