Morgunblaðið - 30.07.2002, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÓLYGINN sagði um listamanninn
Tedda að hann væri sterkastur á
svellinu í kjálkunum. Þetta er ekki
bara vegna þess að Teddi er málglað-
ur og skemmtilegur með afbrigðum
þegar hann opnar munninn (sem er
ósjaldan), heldur líka vegna þess að
hann setur þannig fram sjónarhorn
sitt, hárfínt næmi og mikið sjálf-
sprottið mannvit að hvert einfalt orð
fær djúpa merkingu og víðfeðma skír-
skotun.
Ólyginn hefði mátt bæta því við að
það er einmitt þessi einfalda fram-
setning sem er líka aðal hans í mynd-
listinni, en þar segir hann tíðindi af
efnismassanum eins og hann birtist í
rekaviði, ryðguðum járnbútum og
jafnvel í fölskum tönnum sem eru
klumsa í marmaramassa (en sem al-
kunna er situr sá massi þétt í sjálfum
sér, súpersvalur og fáskiptnari um
annarra hagi en annað grjót).
Þessi tíðindi af efnismassanum eru
margs konar. Þau segja flest af
reynslunni að vera til í ýmsum veðr-
um, en eru yfirleitt (og það eru töfrar
Tedda) háspekilega grundvallandi
um hvernig efni sest að í rýminu,
hrifsar það til sín og gerir sig að
stabílum granna í tilvistarpúslinu.
Þessir grannar bíða þín í Perlunni
hvern dag fram í húmandi kvöldið þar
til áttunda ágúst. Hittu þá. Og ef þú
hittir Tedda um leið topparðu tvisvar.
GUÐBRANDUR GÍSLASON,
framkvæmdastjóri.
Teddi í Perlunni
Frá Guðbrandi Gíslasyni:
Morgunblaðið/Sverrir
Teddi við eitt verka
sinna í Perlunni.
HÖFUÐBÓLIÐ Útskálar í Garði
hefur frá fornu fari verið kirkja og
til skamms tíma prestsbústaður.
Það á sér merka sögu og ætti skilið
að sýnd væri meiri virðing en nú er
gert. Það tekur mig mjög sárt að sjá
hvernig komið er fyrir prestsetrinu
gamla. Málið er mér skylt þar sem
ég er þar fæddur og uppalinn. Faðir
minn, Guðmundur Guðmundsson,
var þar sóknarprestur í 34 ár, eða til
1986 er hann lét af starfi.
Í tíð síðari presta fór staðnum
mjög aftur og lítt skeytt um viðhald.
Prestsetrið, byggt 1980, er eða öllu
heldur var falleg og reisuleg bygg-
ing sem hýsti m.a. barnaskólann þar
til skólahúsið í Gerðum var byggt.
Húsið er friðað en fyrir nokkrum ár-
um var allt innanhúss, veggir, gólf
og loft rifið og fleygt út. Hvers
vegna veit ég ekki. Skilst mér að það
hafi kostað ráðuneytið 10 milljónir
króna.
Vandaðir gamaldags ofnar lágu
fyrir utan og ekkert hugsað um að
varðveita. Ég tel að allir velunnarar
staðarins eigi heimtingu á að vita
hvað ráðamenn sem sjá um prests-
setur landsins ætla sér. Er verið að
bíða eftir því að húsið grotni algjör-
lega niður og fjúki? Vinsamlegast
sýnið staðnum meiri sóma. Hann á
það skilið.
BARÐI GUÐMUNDSSON,
Vitastíg 8a, Reykjavík.
Merkilegt hús í hættu
Frá Barða Guðmundssyni:
Útskálar í Garði.