Morgunblaðið - 13.08.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Opnunartímar:
Mánud.-föstud. frá kl. 10-18.
Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
Audi A3 Attraction 1.6, f.skr.d.
18.07.1997, 3 d., sjálfsk.,
15“ álfelgur.
Verð 1.270.000.
RÚMLEGA fimm hundruð manns,
með umboð fyrir 326 til viðbótar,
sátu fund stofnfjáreigenda Spari-
sjóðs Reykjavíkur og nágrennis í
gær þar sem fjallað var um yfir-
tökutilboð Búnaðarbanka Íslands,
greinargerð Fjármálaeftirlitsins
um málið og tillögu um að létta tak-
mörkunum á fjölda hluta í eigu ein-
stakra stofnfjáreigenda. Sú tillaga
var samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða.
Fundurinn hófst með ræðu Jóns
G. Tómassonar, stjórnarformanns
SPRON, þar sem hann rakti gang-
inn um málefni SPRON síðustu vik-
urnar.
Í upphafi ræðu sinnar sagði hann
meðal annars: „Þremur dögum fyrir
boðaðan fund stofnfjáreigenda, eða
hinn 25. júní, var gert kunnugt um
samkomulag fimm stofnfjáreigenda
við Búnaðarbanka Íslands hf. um
boð í stofnfjárhluti á fjórföldu fram-
reiknuðu nafnverði þeirra og síðan
yfirtöku Búnaðarbankans á rekstri
SPRON. Það er ekki ofsagt að þetta
yfirtökutilboð Búnaðarbankans hafi
hrint af stað atburðarás og átökum,
sem engan hafði órað fyrir, hvorki
úr hópi stjórnar SPRON, stofnfjár-
eigenda eða stjórnmálamanna, sem
tjáð hafa sig um málið, og stjórn-
endur Búnaðarbankans hefðu
áreiðanlega ekki lagt af stað í þessa
vegferð ef þeir hefðu séð hana fyrir
– og þann álitshnekki sem bankinn
hefur orðið fyrir vegna málsins.
Á það verður að benda að stofn-
fjáreigendurnir fimm ræddu aldrei
við stjórnendur sparisjóðsins um
þær hugmyndir sínar að hægt væri
að greiða margfalt verð fyrir stofn-
fjárhluti heldur sneru sér til sam-
keppnisaðila, til annars banka, og
síðan hafa þeir brotist um á hæl og
hnakka til að koma, fyrir dágóða
þóknun, sparisjóðnum undir Búnað-
arbankann,“ sagði hann og minnti á
umræður um að nauðsynlegt væri
að mæta kröfum um eiginfjárhlut-
fall sparisjóðsins og vænlegast í því
efni væri að breyta honum í hluta-
félag. Hefði hann bent á þetta allt
frá árinu 1998.
Deilt strax um gildi tilboðsins
„Yfirtökutilboð fimmmenning-
anna í umboði Búnaðarbankans frá
25. júní gjörbreytti að sjálfsögðu
þeim viðhorfum, sem mótað höfðu
störf stjórnarinnar í undirbúningi
að breytingu á rekstrarformi spari-
sjóðsins. Um gildi tilboðsins og
áform Búnaðarbankans var strax
deilt. Viðskiptaráðherra, sem fer
með atkvæði meirihlutaeignar rík-
issjóðs í Búnaðarbankanum, lét þau
orð falla, að þetta tilboð gengi í ber-
högg við túlkun allra þeirra, sem að
undirbúningi löggjafar um spari-
sjóði höfðu unnið og þar með vilja
löggjafans og raunar einnig gegn
þeim skilningi, sem bæði löggjafar-
valdið og framkvæmdavaldið höfðu
alltaf haft á ákvæðum laga um
sparisjóði. Ummæli svipaðs efnis
viðhöfðu bæði formaður og varafor-
maður efnahags- og viðskiptanefnd-
ar Alþingis svo og fjölmargir aðrir
alþingismenn, sem tjáðu sig um
málið.“
Stjórnarformaðurinn sagði full-
komna óvissu hafa ríkt um réttar-
stöðu í málinu og það hefði ekki
þjónað tilgangi að kalla stofnfjár-
eigendur á fund meðan hún væri
uppi. Sagði hann stjórnina hafa lýst
því yfir að kæmi það á daginn að
viðskipti fimmmenninganna og
Búnaðarbankans stæðust myndi
stjórnin haga undirbúningi mála í
ljósi slíkra viðhorfa og leita hag-
kvæmari kosta en Búnaðarbankinn
hafði boðað bæði fyrir sparisjóðinn
og stofnfjáreigendur.
„Fjármálaeftirlitið skilaði grein-
argerð sinni um yfirtökutilboð Bún-
aðarbankans 19. júlí sl. Niðurstaðan
var sú að þótt eftirlitið teldi gildandi
löggjöf ekki fela í sér bann við fram-
sali á stofnfjárbréfum á hærra verði
en endurmetnu nafnverði þá verði
jafnframt að tryggja að sparisjóð-
urinn sjálfur fái hlutdeild í þeirri
verðmætisaukningu. Ekki hafi verið
sýnt fram á þetta í þeim áformum,
sem Búnaðarbankinn hafði uppi og
Fjármálaeftirlitið staðfesti því ekki
umsókn samningsaðila, svo sem far-
ið var fram á og áskilið er að lögum.
Í niðurstöðu eftirlitsins er lögð rík
áhersla á skyldu stjórnar til að gæta
hagsmuna sparisjóðs umfram aðra
hagsmuni. Kemur þar skýrt fram,
að stjórn sparisjóðsins var ekki
heimilt að samþykkja framsal á
stofnfjárbréfum skv. samningi Bún-
aðarbankans og fimmmenning-
anna.“ Þá rakti Jón hvernig deilt
hefði verið um túlkun á niðurstöð-
unni, stjórn SPRON hefði litið svo á
að henni væri ekki heimilt að sam-
þykkja framsal á stofnfjárbréfum
samkvæmt samningi Búnaðarbank-
ans og fimmmenninganna en þeir
og lögmaður þeirra hefðu hins veg-
ar túlkað hana þannig að eina fyr-
irstaðan væri stjórn sparisjóðsins.
Hefði aðeins þurft að fella hana og
fá nýja stjórn til að samþykkja
framsölin þrátt fyrir þessa afstöðu
Fjármálaeftirlitsins.
Ætlað að tryggja vöxt
og viðgang SPRON
Undir lok ræðunnar greindi Jón
frá yfirlýsingu stjórnar SPRON:
„Fram eru komnar hugmyndir um
viðskipti með stofnfé sem jafnframt
er ætlað að tryggja vöxt og viðgang
SPRON og áframhaldandi þjónustu
hans sem sjálfstæðs sparisjóðs. Að
fengnu samþykki Fjármálaeftirlits-
ins á þeim áformum telur stjórn
SPRON að kominn sé grundvöllur
til að ná ofangreindum markmið-
um,“ segir þar meðal annars og síð-
an sagði hann: „Þessi yfirlýsing fel-
ur fyrst og fremst í sér áréttingu á
þeirri afstöðu stjórnarinnar, sem
kom strax fram 26. júní, að hún
myndi hafa hagsmuni sparisjóðsins
og stofnfjáreigenda að leiðarljósi
við ákvörðun á því, hvort stjórnin
hafnaði eða samþykkti framsal á
stofnfjárbréfum. Enn er áréttað –
og þá ekki síst af því tilefni sem
fimmmenningarnir og Búnaðar-
bankinn hafa gefið – að stjórnin
mun ekki ganga gegn afstöðu Fjár-
málaeftirlitsins, sem hefur það hlut-
verk skv. gildandi lögum að hafa
eftirlit með því að fjármálastarf-
semi sé í samræmi við lög, reglu-
gerðir, reglur og samþykktir sem
hverju sinni gilda um slíka starf-
semi, en þ.á m. er að sjálfsögðu
starfsemi bæði banka og sparisjóða.
Og í niðurlaginu segir að samþykki
Fjármálaeftirlitið þau áform sem
Starfsmannasjóður SPRON hefur
lagt upp með, þá muni stjórn spari-
sjóðsins telja að það markmið sem
stjórnin hefur haft að leiðarljósi
verði tryggt og muni samþykkja
framsöl á stofnfjárbréfum, sem á
þeim grundvelli verða gerð.“
Vildi bæta hag
stofnfjáreigenda
Pétur Blöndal, einn þeirra fimm
sem staðið hafa að tilboði um kaup á
hlut stofnfjáreigenda með stuðningi
Búnaðarbankans, sagði nauðsyn-
legt að hagræða og sameina í
bankakerfinu til að auka samkeppn-
ishæfni. Hann rifjaði upp lagasetn-
ingu um að heimilt væri að breyta
sparisjóðum í hlutafélög og sagði
stofnfjáreigendur verða hlunnfarna
við slíkar breytingar. Sagði hann
það myndu hafa gerst 28. júní ef
SPRON hefði verið breytt í hluta-
félag að sjóður sem enginn ætti
hefði átt nærri 90% í hlutafélagi
sem stofnað yrði en stofnfjáreig-
endum hefði aðeins verið áskilin
11,5% hlutur þrátt fyrir að allur
rekstur sparisjóðsins hefði orðið til
fyrir framlag stofnfjáreigenda. Pét-
ur kvaðst hafa komið með hugmynd
um að bæta hag stofnfjáreigenda og
á því hefði byggst samvinnan við
Búnaðarbankann. Þessa hugmynd
hefði hann viljað bera undir stofn-
fjáreigendur og hefði þeim verið
boðið gengið 4 fyrir hlut. Pétur
kvaðst ánægður með tilboð Starfs-
mannasjóðs SPRON sem væri mið-
að við gengið 5,5 og kvaðst hann
styðja stjórnina heils hugar í því að
taka því tilboði að fengnu sam-
þykkti Fjármálaeftirlitsins. Kvaðst
hann einnig ánægður með að öllum
stofnfjáreigendum yrði selt. Hann
sagði einnig tilboð Búnaðarbankans
standa ef Starfsmannasjóði tækist
ekki að standa við tilboð sitt.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lög-
maður fimmmenninganna, sagði
það alltaf hafa verið ætlan þeirra að
fara að lögum í þessum málum. For-
senda fyrir tilboðinu hefði einnig
verið sú að tveir þriðju hlutar stofn-
fjáreigenda samþykktu það og ekki
væri því hægt að tala um óvinveitta
yfirtöku. Yfirtakan byggðist á því
að tilskilinn meirihluti stofnfjáreig-
enda væri fyrir hendi. Sagði hann
stjórnina hafa brugðist illa við, hún
hefði ætlað að bjóða nafnverð fyrir
hlut en þarna hefði komið fram fjór-
falt nafnverð.
Vilja tryggja sjálfstæði spari-
sjóðsins og starfsmanna
Ari Bergmann Einarsson, for-
maður Starfsmannasjóðs SPRON,
gerði stuttlega grein fyrir tilboði
sjóðsins til stofnfjáreigenda. Þakk-
aði hann góðar undirtektir við til-
boðið en liðlega 60% stofnfjáreig-
enda hafa samþykkt að ganga að
því. Hann sagði hafa komið fram
hugmyndir meðal starfsmanna um
að slá skjaldborg um SPRON þegar
tilboð fimmmenninganna kom fram
25. júní. Nauðsynlegt hefði þótt að
sameinast um að bjóða í stofnféð til
að tryggja sjálfstæði sparisjóðsins
og starfsmanna. Sagði hann stuðn-
ing almennan meðal starfsmanna og
að faglega hefði verið staðið að mál-
um. Hann sagði nú beðið niðurstöðu
Fjármálaeftirlitsins og eftir þeirri
niðurstöðu færi hvernig færi með
hluti þeirra sem ekki hefðu sam-
þykkt tilboð Starfsmannasjóðsins.
Stjórn Starfsmannasjóðsins hefði
rætt málið og leitast yrði við að
gæta jafnræðis meðal stofnfjáreig-
enda.
Nokkrir fleiri tóku til máls í um-
ræðunni en að henni lokinni var tek-
in á dagskrá tillaga um breytingu á
samþykktum sparisjóðsins. Fjallaði
hún um að ekki væru sett takmörk á
fjölda hluta í eigu einstakra stofn-
fjáreigenda. Annar tillögumanna,
Benedikt Jóhannesson, gerði grein
fyrir tillögunni og sagði hana m.a.
forsendu þess að tilboð Starfs-
mannasjóðs stæðist. Undir það tók
Jón G. Tómasson stjórnarformaður
og lagði til að tillagan yrði sam-
þykkt. Einnig fundarmanna lýsti
sig ósamþykkan henni en við at-
kvæðagreiðslu var hún samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða.
Stjórnarformaður Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis á fjölmennum fundi stofnfjáreigenda
Munum ekki ganga gegn
afstöðu Fjármálaeftirlitsins
Miklar umræður voru á fundi stofnfjáreig-
enda SPRON í gær um kosti og galla yfir-
tökutilboða sem stofnfjáreigendum hafa
borist. Tillaga um vantraust á stjórnina sem
var í fundarboði var tekin af dagskrá.
Morgunblaðið/Arnaldur
Rúmlega 500 manns sátu fund stofnfjáreigenda Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis á Grand hóteli í gær.