Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Verkjalína Heilsustofnunar NLFÍ
Vítahringur
verkja rofinn
VERKJALÍNAHeilsustofnunarNLFÍ í Hvera-
gerði hefur unnið að víð-
tækri stefnumótun og
námskeiðahaldi undanfar-
in ár. Sigrún Vala Björns-
dóttir, sjúkraþjálfi hjá
Heilsustofnuninni, sagði
Morgunblaðinu nánar frá
verkjalínunni.
– Hver er saga verkja-
línunnar?
„Þannig er mál með
vexti að um margra ára
skeið hafði verið starfrækt
verkjalína, það er nokk-
urra vikna meðferð við
verkjum, við Heilsustofn-
unina. Haustið 2000 var
ákveðið að ráðast í víðtæka
stefnumótunarvinnu þar
sem allt verkjalínuteymið
lagðist á eitt með að greina starfið
og skapa ákveðna stundaskrá sem
fylgt væri í verkjameðferð. Nýj-
ungarnar voru til dæmis öflugra
hópastarf og skýrari dagskrá,
sem skapaði meiri festu í meðferð-
inni.“
– Hvernig ber fólk sig að sem
vill komast í meðferð hjá ykkur?
„Enginn kemur hingað án
beiðni frá lækni, þannig að allir
sem koma í meðferð á verkjalín-
unni hafa verið greindir hjá lækni
og verið boðið að koma til dvalar
við Heilsustofnunina. Við kynnum
meðferðina fyrir læknum og
sjúkraþjálfurum til þess að allir
átti sig á gildi og starfsemi verkja-
línunnar. Við greinum úr beiðnum
sem okkur berast, og höfum sam-
band við þá sem við teljum að
ættu að fara í verkjameðferð.“
– Koma allir á sama tíma?
„Já, vegna þess að þetta er hóp-
meðferð koma allir á sama tíma á
Heilsustofnunina og eru í fjórar
vikur. Næst er von á þátttakend-
um 11. september, og síðan 6. nóv-
ember.“
– Hafa þeir sem veljast á
verkjalínuna átt við margvíslega
verki að stríða?
„Já, og margir hafa enga lausn
fundið á verkjunum, að minnsta
kosti ekki til langframa. Marg-
sinnis er leitað leiða til að lina
þjáningar tímabundið, en lítið
hugsað um heildina, þar með talið
andlegu hliðina. Við leggjum
áherslu á að kafa ofan í málin,
bæði andlega og líkamlega. Án
þess að takast á við andlega og lík-
amlega líðan lifir viðkomandi í
vítahring sem erfitt er að losna úr.
Meðferðin hjá okkur er miðuð við
að brjóta niður þennan vítahring.
Margir hafa þegið óvirka meðferð
þar sem einstaklingurinn þarf lítið
að leggja á sig en við svo fjölþætt
vandamál dugir slík meðferð
skammt. Þessu viljum við ein-
dregið snúa við og virkja einstak-
linginn til sjálfshjálpar til að
mynstrið geti breyst.“
– Hverjir hafa helst gagn af
meðferðinni?
„Helst er það fólk á vinnufær-
um aldri sem þjáist af langvarandi
stoðkerfisverkjum.
Margir hafa dottið út af
vinnumarkaðnum,
stuðningur fjölskyldu
er oft takmarkaður og
vandamálin hafa hlað-
ist upp. Þegar svo er komið dugar
ekki að fara í stutta meðferð
nokkrum sinnum í viku heldur
verður að rjúfa tengslin við dag-
legt amstur og byggja sig upp frá
grunni.“
– Af hverju einkennist meðferð
verkjalínunnar?
„Áhersla er lögð á líkamlega
þjálfun, fræðslu og slökun.
Fræðslan, í formi fyrirlestra, er
lykilatriði til þess að fólk geti í
framtíðinni haldið áfram á styrkj-
andi braut og ráðið bót á meinum
sínum til lengri tíma á sjálfstæðan
hátt. Margir átta sig á, með
fræðslu um líkamsvitund, andlega
líðan, svefnvandamál, þjálfun,
verki og slökun, að til eru fjölda-
margar leiðir til betra lífs með
minni verkjum. Við leggjum mikla
áherslu á að fólk finni sér hreyf-
ingu sem er því að skapi, hefur
gaman af að stunda og hefur
ánægju af. Stunduð er hópmeð-
ferð á öllum sviðum en einstak-
lingsmeðferð í formi ráðgjafar þar
sem komið er til móts við fjöl-
breyttar þarfir og ólík vandamál
þeirra sem til okkar koma. Fólk
fær stuðning af að hitta aðra sem
eiga við svipuð vandamál að stríða
og það er afar mikilvægt að vita af
öðrum í svipaðri stöðu. Umræðu-
fundum er stýrt af hjúkrunar-
fræðingum, sálfræðingi og lækni
verkjateymisins.“
– Hvernig bregðast þátttak-
endur við meðferðinni?
„Fyrstu tvær vikurnar geta
verið erfiðar, en það er afar ein-
staklingsbundið. Allir verða að
vera meðvitaðir um að það þarf
hörku til að takast á við verkina og
það krefst fórna. Til dæmis er
ekki boðið upp á nudd í meðferð-
inni vegna þess að fólk á að leita
árangurs án hjálpar
óvirkrar meðferðar.
Meðferðin er krefjandi
og þarfnast mikils
stuðnings. Árangurinn
hefur ekki látið á sér
standa. Við höfum þolprófað og
rannsakað árangur af meðferð-
inni, og borið saman við samsvar-
andi próf sem gerð eru við komu
viðkomandi á Heilsustofnunina.
Marktækur munur hefur mælst
á öllum þáttum eftir fjögurra
mánaða meðferð. Nú er unnið að
langtímarannsóknum sem munu
varpa enn skýrari ljósi á árangur
verkjameðferðarinnar.“
Sigrún Vala Björnsdóttir
Sigrún Vala Björnsdóttir er
fædd á Akureyri 1964. Hún lauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1984,
B.Sc.-prófi í sjúkraþjálfun frá
Háskóla Íslands 1990 og M.Sc.-
prófi í sjúkraþjálfun frá Univers-
ity of Alberta í Edmonton í Kan-
ada 1997. Sigrún Vala hefur
starfað sem sjúkraþjálfari hjá
Sjálfsbjörgu í Reykjavík, á
Reykjalundi og á MT-stofunni í
Reykjavík. Nú síðustu 3 árin hef-
ur hún starfað á Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði sem for-
stöðumaður verkjateymisins.
Sigrún Vala er gift Mohammed
Fadhel Meddeb sem nú er í mast-
ersnámi í umhverfisfræði og eiga
þau von á sínu fyrsta barni.
Fræðsla
um verki og
hreyfingu