Morgunblaðið - 13.08.2002, Síða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Heildsölur, smásölur
Erum með tvær sjálfstæðar verslanir sem flytja inn allar sínar vörur.
Eru með góð umboð og þekkt merki. Hægt að stórauka heildsöluþátt-
inn. Önnur verslunin er á Laugaveginum en hiní Kópavogi. Önnur flytur
inn og selur nærföt og náttföt, en hin er með allar barnavörur, þekktar
og vandaðar. Tvö óskyld fyrirtæki með mikla möguleika.
Matsölustaðir
Erum með nokkra veitingastaði sem hafa mjög siðlega opnunar-
tíma, jafnvel lokað á kvöldin og um helgar. Gott verð fyrir traust
fólk. Komið og skoðið úrvalið hjá okkur. Það borgar sig. Við höfum
örugglega eitthvað sem hentar ykkur. Góðir staðir fyrir unga kokka
eða tvær góðar saman. Vorum að fá góða kaffistofu með vínveit-
ingaleyfi.
Reykjanesbær
Vantar þið örugga vinnu? Engin hætta á uppsögn? Vilt þú þéna
sjálfur af þinni þekkingu og vinnusemi? Er með tvö mjög góð fjöl-
skyldufyrirtæki sem allir þekkja í bænum og gefa góðar tekjur.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Spennandi dæmi.
! "
NEYTENDUR
UM 63 milljónir gesta hafa heim-
sótt verslunarmiðstöðina Kringl-
una síðan hún var opnuð þennan
dag fyrir 15 árum en haldið verður
upp á afmælið með ýmsum hætti
næstu daga. Málverkasýning með
verkum lettneskra listamanna
verður m.a. opnuð í dag í tilefni af
heimsókn Vaira Vike-Freiberga,
forseta Lettlands, hingað til lands.
Hún mun opna sýninguna ásamt
forseta Íslands, Ólafi Ragnari
Grímssyni.
Afmælishátíð hefst síðan form-
lega á fimmtudaginn og mun
standa í 11 daga að sögn Ívars
Sigurjónssonar markaðsstjóra
Kringlunnar. „Á hverjum degi há-
tíðarinnar verður eitt þúsund
íspinnum dreift á meðal gesta,
trúðar munu vera á ferli og tilboð í
verslunum.“ Hann bendir á að
dans- og tónlistaratriði verði í
boði, leiktæki verði sett upp fyrir
börn innan- og utandyra auk þess
sem körtubílabraut verður komið
fyrir í bílakjallara. Þá geti þeir
sem leggja leið sína í Kringluna
tekið þátt í lukkupotti þar sem
hæsti vinningur er ferð til Flórída.
„Á laugardaginn verður síðan
borin á borð 15 metra löng afmæl-
iskaka sem metta á fimmtán þús-
und manns.“
Konur dvelja lengur
í Kringlunni en karlar
Í fyrra heimsóttu 5,3 milljónir
manna Kringluna eða um 102 þús-
und á viku en árið 1989 voru gestir
70 þúsund á viku, að sögn Ívars.
„Þá sýnir nýleg könnun að hver ís-
lendingur fer í Kringluna 2,3 sinn-
um í mánuði og dvelur þar 55 mín-
útur á virkum dögum en 61 mínútu
um helgar.“ Hann segir að konur
dvelji að jafnaði lengur í Kringl-
unni en karlar eða í 62 mínútur á
meðan karlarnir dvelji einungis í
42 mínútur.
Morgunblaðið/Ásdís
Vaira Vike-Freiberga, forseti Lettlands, og Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, munu opna málverkasýningu lettneskra listamanna í Kringl-
unni í dag en afmælishátíðin mun standa yfir í ellefu daga.
Kringlan á 15 ára afmæli í dag
63 milljónir
gesta frá upphafi
ÖRVERUR sem geta valdið maga-
pínu eru ekki hið eina varasama
við uppblásnar barnalaugar sem
staðið hafa í sólinni en þýsk rann-
sókn hefur sýnt fram á að börn inn-
byrði hættulega blöndu ýmissa eit-
urefna drekki þau af vatni í slíkum
laugum, að því er kemur fram á
vef dönsku neytendasamtakanna.
Dýrustu laugarnar losa
minnst af skaðlegum efnum
Rannsóknin, sem gerð var á
vatni laugar sem staðið hafði í sól-
skini, sýndi að vatnið innihélt
hættulegt magn tinblandna ásamt
annars konar efnum sem losna úr
plasti laugarinnar og geta verið
skaðleg börnum. Miðað við rann-
sóknina er von á minnstu magni
skaðlegra efna í dýrustu barna-
laugunum. Að sögn sérfræðinga er
ekki mögulegt að framleiða vöru
af þessu tagi án einhvers magns
óæskilegra efna í plastinu, en mjög
misjafnt virðist hve mikið af efnum
losnar úr læðingi.
Ráðgjafar dönsku neytendasam-
takanna ráðleggja foreldrum að
skipta um vatn að minnsta kosti
daglega í barnalaugum, og gæta
þess að börnin drekki ekki vatnið,
sérstaklega ekki ef sólin hefur hit-
að það.
Plastefni losna
út í vatnið
Uppblásnar barnalaugar varasamar
VERSLUNIN Sævar Karl í
Bankastræti hefur opnað heimasíðu
þar sem meðal annars er að finna
leiðbeiningar um hvernig bera eigi
sig að þegar skyrta er straujuð, eða
settur á bindishnútur. Fólki er
einnig boðið að koma með fyrir-
spurnir er varða klæðaburð og
meðferð á fatnaði, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Þar eru einnig kynntir þeir lista-
menn sem sýnt hafa í versluninni
og þar er að finna upplýsingar um
Galleríi Sævars Karls.
Heimasíðan verður uppfærð dag-
lega með nýjum tilboðum og upp-
lýsingum um uppákomur og við-
burði.
Sævar Karl
með
heimasíðu
HAGNAÐUR Delta-samstæðunnar
nam 1.086 milljónum á fyrstu sex
mánuðum ársins en á sama tímabili í
fyrra var hagnaður 155,6 milljónir
króna.
Afkoma fyrir vexti, afskriftir og
skatta (EBIDTA) nemur 1.436,8
milljónum króna en nam 522,9 millj-
ónum króna á sama tíma í fyrra.
Rekstrartekjur námu 5.498 milljón-
um króna samanborið við 1.507,9
milljónir króna á sama tíma í fyrra.
Tekjur félagsins aukast því um
3.990,1 milljónir króna milli ára. Þessi
umskipti endurspegla mikinn vöxt fé-
lagsins en félagið keypti í júlí í fyrra
lyfjaverksmiðju á Möltu, Pharma-
med, auk þess sem Delta hf. hefur
keypt og unnið að sameiningu á
Omega Farma á árinu.
Heildarframleiðslugeta Delta er
um 3,6 milljarðar taflna á ári og þar af
hefur Pharmamed á Möltu afkasta-
getu upp á 2,5 milljarða taflna. Þessi
viðbót við framleiðslugetu Delta leik-
ur því stórt hlutverk í mikilli tekju-
aukningu félagsins á þessum árs-
helmingi samanborið við fyrri árs-
helming síðasta árs.
Rekstrargjöld tímabilsins námu
4.425,7 milljónum króna samanborið
við 1.114,2 milljónir króna á sama
tímabili árið 2001. Arðsemi eiginfjár
nam 69 %.
Veltufé frá rekstri var 1.085,2 millj-
ónir króna og handbært fé frá rekstri
nam 837,6 milljónum króna.
Rekstur dótturfélaga skilaði 381,4
milljóna króna hagnaði á fyrstu sex
mánuðunum.
Söluhæsta lyf Delta er Citalopram
en sala þess nam 1.376,6 milljónum
króna.
Í tilkynningu frá Delta kemur fram
að Þýskaland sé mikilvægasti mark-
aður félagsins en aðrir stórir mark-
aðir eru m.a. Skandinavía, Holland og
Bretland. Unnið er að sókn inn á
Bandaríkjamarkað og er stefnt að
undirritun fyrsta viðskiptasamnings-
ins fyrir árslok, að því er segir í til-
kynningunni.
Undir væntingum
Í hálffimm fréttum Greiningar-
deildar Búnaðarbanka Íslands er sagt
að uppgjör Delta sé undir vænting-
um, einkum vegna þess að velta á síð-
asta ársfjórðungi var minni en á þeim
fyrsta. „Mikill vöxtur hefur átt sér
stað hjá félaginu, bæði innri og ytri,
og er naumast hægt að bera þennan
árshelming saman við sama árshelm-
ing á síðasta ári.
Velta Delta samstæðunnar dróst
saman á milli fyrsta og annars árs-
fjórðungs úr 3 milljörðum í tæplega
2,5 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi.
Greiningadeild gerði ráð fyrir að velta
yrði óbreytt á milli ársfjórðunga og er
niðurstaðan því undir væntingum.“
Greiningardeildin finnur einnig að
skorti á upplýsingum í fréttatilkynn-
ingu Delta en ekki er fjallað um
ástæðu veltu- og framlegðarlækkun-
ar milli ársfjórðunga. „Þetta er baga-
legt þar sem ekki eru til samanburð-
arhæfar upplýsingar á milli ára. Því
er erfitt að átta sig á hvort um árstíð-
arbundnar sveiflur er að ræða.“
Viðskipti voru fyrir 22,5 m.kr. með
bréf Delta í Kauphöll Íslands í gær,
en gengi félagsins breyttist ekkert í
þeim viðskiptum. 55 m.kr. viðskipti
voru með bréf Pharmaco, sem nú á
meirihluta hlutafjár í Delta. Engin
breyting varð á gengi þeirra bréfa
heldur.
Delta hagn-
ast um rúm-
an milljarð
Velta milli ársfjórðunga minnkar
'"%+,
*,%
'$+
)((*
"#
),
("#&#
%"$*%
('&
!'
$'-#.
"
"
"
#
#
#
"
!
!
!
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
hefur gefið út reglugerðir um veiðar
aflamarksbáta, krókaaflamarksbáta
og dagabáta á fiskveiðiárinu 2002/
2003 sem taka gildi 1. september nk.
Vegna skerðinga, sem urðu á leyfileg-
um heildarafla í rækju á innfjarða-
svæðum, þ.m.t. Eldeyjarsvæði, á fisk-
veiðiárinu 2001/2002, verður á næsta
fiskveiðiári úthluta aflamarki sem
nemur samtals 2.018 þorskígildis-
tonnum til báta, sem hafa hlutdeild í
innfjarðarækju.
Ekki kemur til uppbóta hafi með-
altalsaflamark báta í innfjarðarækju
á einstökum svæðum verið 52,5 lestir
eða hærra á fiskveiðiárinu 2001/2002.
Vegna skerðinga sem orðið hafa í
hörpudisksveiðum í Ísafjarðardjúpi
og Húnaflóa verður á fiskveiðiárinu
2002/2003 úthlutað bátum, sem afla-
hlutdeild hafa í hörpudiski á þessum
svæðum, uppbótum í aflamarki, sem
samtals nemur 174 þorskígildis-
tonnum. Skulu 99 þorskígildistonn
koma í hlut báta með hlutdeild í
hörpudiski í Húnaflóa og 75 þorsk-
ígildistonn í hlut báta með hlutdeild í
hörpudiski í Ísafjarðardjúpi. Vegna
fyrirsjáanlegra skerðinga sem verða í
skelveiðum á Breiðafirði á fiskveiði-
árinu 2002/2003 verður á því fiskveiði-
ári úthlutað til þeirra báta sem hlut-
deild hafa í skel í Breiðafirði samtals
400 þorskígildistonnum.
Úthluta á uppbótum til einstakra
báta á grundvelli þeirrar aflahlut-
deildar, sem þeir hafa í rækju og skel
á viðkomandi svæði og miðast við
aflahlutdeild eins og hún var 1. ágúst
2002. Uppbæturnar skiptast á þorsk,
ýsu, ufsa og steinbít í hlutfalli við
leyfilegt heildarmagn í þessum teg-
undum á fiskveiðiárinu 2002/2003.
Úthluta skal á fiskveiðiárinu 2002/
2003 3.000 lestum af þorski, miðað við
óslægðan fisk, til báta sem höfðu afla-
hlutdeild 1. desember 1998 og voru
þann dag minni en 200 brúttótonn,
enda hafi þeir landað þorskafla á fisk-
veiðiárinu 1996/1997 eða 1997/1998.
Auk þess er heimilt að úthluta allt að
60 lestum samtals af þorski til báta,
sem komu í stað annarra báta á tíma-
bilinu 1. sept. 1997 til 17. mars 1999.
Í tilkynningunni segir jafnframt að
samkvæmt gildandi lögum sé ráð-
herra heimilt árlega að úthluta í sam-
ráði við Byggðastofnun allt að 1.500
lestum af óslægðum botnfiski til
stuðnings byggðarlögum sem lent
hafa í vanda vegna samdráttar í sjáv-
arútvegi.
Bátar á
rækju og skel
fá uppbót