Morgunblaðið - 13.08.2002, Page 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 21
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Opið: Mán. - föst. 9-18, lau. 10-14
Ný vefsíða: www.i-t.is
Innbyggingarofn
3 eldunaraðg.
Grill og grillteinn
SJÓÐHEITT sumartilboð!
Kr. 44.900,- stgr Kr. 95.400,- stgr
e l d u n a r t æ k i
Tilboð 1 Tilboð 2 Tilboð 3
Innbyggingarofn, 7 eldunar-
aðg., Grill og grillteinn, stafræn
forritanl. klukka, kælivifta,
sjálfhreinsib., 3víddarbl.
Innbyggingarofn, 7 eldunaraðg.,
þ.a. blástur á 4, Start-stop
klukka, Sjálfhreinsib.,
3víddarblástur. Burstað stál
Kr. 89.300,- stgr
Vifta
3 hraðar, 2 ljós 295 m3/klst.
Útdregin vifta: 2 hraðar, 2
ljós 425 m3/klst.
sjálfvirk ræsing. Hvítt
Útdregin vifta: 2 hraðar, 2
ljós 425 m3/klst.
sjálfvirk ræsing. Burstað stál
Keramikhelluborð
4 High Light hraðhellur
Keramikhelluborð
4 High Light hraðhellur
Helluborð
4 steyptar hellur
Allt í burstuðu stáli
Group
Teka AG
AÐ minnsta kosti fjórtán upp-
reisnarmenn maóistahreyfing-
arinnar féllu í gær í átökum við
stjórnarher Nepal. Yfirvöld í
landinu sögðu tíu, þ.á m. hátt-
setta yfirmenn, hafa fallið í
hörðum bardaga í Banke-hér-
aði, þegar herinn gerði áhlaup
að búðum maóista. Uppreisnar-
mennirnir hafa barist fyrir því
frá 1996 að komið verði á fót
kommúnistastjórn í Nepal.
Átökin hafa kostað meira en
4.300 manns lífið.
Færri Frakk-
ar deyja í
umferðinni
DAUÐASLYSUM á þjóðveg-
um Frakklands fækkaði um
12% í júlímánuði. Alls fórust
665 í júlí en árlega farast um
átta þúsund manns í umferð-
inni í Frakklandi og er það hið
mesta sem þekkist í Evrópu.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, lýsti miklum áhyggjum
sínum af þessari staðreynd í
kosningum í vor og hét því að
hefja herferð fyrir því að fækka
banaslysum í umferðinni.
Gerðu
sprengju
óvirka
SPÆNSKIR sprengjusérfræð-
ingar gerðu sprengju óvirka í
strandbænum Santa Pola í gær
en talið er að Aðskilnaðarhreyf-
ing Baska, ETA, hafi komið
sprengjunni fyrir. Lögregla
fann sprengjuna eftir ábend-
ingu í símtali. Sprengjan var í
bakpoka, grafin í sandinn nærri
næturklúbbi við ströndina á
Costa Blanca.
Handtóku
fyrrv. UCK-
foringja
LIÐSMENN KFOR, alþjóð-
legu hersveitanna í Kosovo,
sem lúta yfirstjórn Atlants-
hafsbandalagsins (NATO),
handtóku á sunnudag Kosovo-
Albana, sem grunaður er um að
hafa myrt eða pyntað a.m.k.
fimm manns í tengslum við
átök í héraðinu 1998–1999.
Ekki hefur verið gefið upp hve-
nær eða hvar meint voðaverk
voru framin en maðurinn,
Rustem Mustafa, var á sínum
tíma foringi í Frelsisher Kos-
ovo (UCK).
STUTT
14 féllu
í Nepal