Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 27

Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 27 ÞAÐ var hvert sæti skipað íÞjóðmenningarhúsinu álaugardaginn þar semþeir Boris Spassky, Loth- ar Schmid og Guðmundur G. Þór- arinsson hittust fyrir atbeina Skák- sambands Íslands til að ræða málin við skákáhugamenn. Þessir þre- menningar voru ásamt Bobby Fischer í aðahlutverkum þegar ein- vígi aldarinnar var háð. Þá stóð kalda stríðið milli risa- veldanna tveggja, Sovétmanna og Bandaríkjamanna, sem hæst og kjarnorkuvopnakapphlaupið var í algleymingi. Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, sem flutti er- indi á málþinginu, sagði að á þess- um viðsjárverðu tímum hefðu tveir ungir hæfileikaríkir menn og skák- borð í Laugardalshöll orðið tákn fyrir spennuna sem einkenndi alla heimsbyggðina. Ólafur Ragnar sagði að einvígið hefði einnig verið var háð í miðju þorskastríði, á tímamótum í baráttu Íslendinga fyrir efnahagslegu sjálf- stæði, og það hafi aukið þjóðinni bjartsýni og styrk þegar hún þurfti mest á því að halda. „Þessi atburður mun alltaf skipa sérstakan sess í Ís- landssögunni og við vitum einnig að milljónir manna víðs vegar um heiminn muna eftir honum,“ sagði Ólafur Ragnar. Guðmundur G. Þórarinsson, sem var forseti Skáksambands Íslands á þessum tíma, sagði að einvígi ald- arinnar væri ekki réttnefni. Þetta hefði verið skákeinvígi allra tíma. Aldrei hefði skákkeppni vakið jafn mikla alþjóðlega athygli og ljóst að slíkt myndi aldrei gerast aftur. Guðmundur sagði einnig að það hefði í raun verið ómögulegt að skipuleggja og halda þetta einvígi. „En nokkrir bláeygir og auðtrúa Ís- lendingar fullir ómældri bjartsýni ákváðu að reyna. Og röð ótrúlegra atburða og tilviljana, sem sam- kvæmt líkindafræði geta ekki gerst á sama tíma og sama stað, þurfti til að keppnin yrði að veruleika,“ sagði Guðmundur. Hefði átt að gefa 3. skákina Boris Spassky tók í sama streng og sagði að það hefði verið krafta- verk að einvígið skyldi vera haldið. Ýmis niðurrifsöfl hefðu barist gegn einvíginu, þar á meðal Íþróttaráð Sovétríkjanna, sem vildi allra helst að Fischer yrði dæmdur ósigur. Spassky sagðist hins vegar hafa gert sitt besta til að einvígið færi fram. En þegar Spassky kom til Reykjavíkur árið 1972 var hann alls ekki vel undir það búinn andlega að verja heimsmeistaratitil sinn; þetta hefur varla dulist neinum sem hlýddi á Spassky í Þjóðmenningar- húsinu. Spassky sagði ítrekað að árin sem hann var heimsmeistari hefðu verið versta tímabil ævi hans og að hann hefði ekki notið neins stuðn- ings sovéskra stjórnvalda. Þótt hann hefði aldrei tapað skák fyrir Fischer í skákmótum fram til þessa var Fischer greinilega í miklu formi og hafði nánast niðurlægt andstæð- inga sína á leið sinni að úrslitaein- víginu. Spassky fjallaði á málþinginu mikið um þriðju skákina í einvíginu. Þá fyrstu vann hann þegar Fischer drap eitraða peðið svonefnda og aðra skákina vann Spassky þegar Fischer mætti ekki til leiks þar sem hann sagði að myndavélar trufluðu sig á sviði Laugardalshallarinnar. Þriðja skákin var síðan tefld í borðtennisherbergi til hliðar við sviðið. Spassky sagði að þeir Fisch- er hefðu verið ásamt Lothar Schmid yfirdómara að skoða að- stæður og Fischer hefði gert at- hugasemdir við allt og alla og sagt Schmid eitt sinn að þegja. Spassky sagðist hafa ofboðið en á endanum féllust skákmennirnir á að tefla skákina í hliðarherberginu. „Ég hefði átt að segja: Kæru vin- ir, kæri Bobby. Ég get ekki teflt undir þessum kringumstæðum. Ég gef skákina. Ég held að ef þetta hefði gerst hefði Bobby algerlega brotnað saman því fram að þessu stóð hann höllum fæti sálfræðilega. Þarna fékk hann tækifæri til að berjast áfram, finna veikleika mína,“ sagði Spassky. Hann sagði að eftir þessa skák, sem Fischer vann síðan nokkuð auðveldlega, hefði einvígið verið honum tapað. „Ég framdi í raun „sjálfsmorð“ því baráttuviljinn dvínaði eftir þetta,“ sagði Spassky. Truflandi rafsegulbylgjur? Stólamálið svonefnda hefur oft verið talið til marks um það and- rúmsloft sem ríkti á einvígisstaðn- um en stólar skákmannanna voru rifnir í sundur í miðju einvíginu og rannsakað hvort í þeim væru sendi- tæki eða efni sem gætu haft áhrif á andlegt ástand keppendanna. Spassky sagði á málþinginu að áður en einvígið hófst hefði hann fengið bréf þar sem sagt var að í öðrum hvorum stólnum kynni að verða komið fyrir búnaði sem gæti haft áhrif á einbeitingu hans. Ekk- ert var gert með þetta fyrr en í síð- ari hluta einvígisins. Spassky sagði að aðstoðarmenn sínir hefðu ákveð- ið að láta rannsaka stólinn en hann hefði ekki verið ánægður með þá ákvörðun. Hann sagðist hins vegar vera sannfærður um að meðan á einvíg- inu stóð hafi verið beitt einhverjum rafeindabúnaði, e.t.v. hátíðnihljóð- bylgjum, til að hafa áhrif á kepp- endur. Eftir þriðju skákina hefði hann oft fundið fyrir undarlegri til- finningu um að einhver eða eitthvað væri að trufla sig. Hann hefði því reynt að sitja sem minnst við tafl- borðið á sviðinu meðan á skákunum stóð og nota þess í stað sýningar- borð til að hugsa um stöðuna og leiki. „Í mínum huga er þetta mál enn óupplýst,“ sagði Spassky. Þótt Bobby Fischer hafi ekki sótt málþingið í eigin persónu má segja að hann hafi verið miðpunktur þess, rétt eins og hann var miðpunktur atburðanna í tengslum við einvígið á sínum tíma. Þessum skáksnillingi tókst að lenda í útistöðum við nán- ast alla sem að einvíginu komu en þrátt fyrir það virðist flestum hafa þótt næstum einkennilega vænt um hann. „Fischer var í raun ekki ósann- gjarn en hann var frá annarri reiki- stjörnu,“ sagði Schmid. „Hann var óvenjulegur en hann var þó ekki óvingjarnlegur. Hann var snilling- ur, á því leikur enginn vafi, en hann þurfti að berjast við alla, hann barð- ist við mig og jafnvel við Boris.“ Á málþinginu var nokkuð rætt um örlög Fischers, sem hefur verið í útlegð frá heimalandi sínu undan- farinn áratug, eða frá því hann tefldi einvígi við Spassky í Svart- fjallalandi árið 1992 í tilefni af 20 ára afmæli einvígisins í Reykjavík og braut þannig gegn viðskipta- banni Sameinuðu þjóðanna gegn Júgóslavíu. Ólafur Ragnar skýrði frá því að fyrir tveimur árum hefði Fischer hringt fyrirvaralaust í íslensku for- setaskrifstofuna, kynnt sig og beðið um að fá að tala við forsetann. Fischer, sem þá var í Japan, hafði verið að hlusta á bandaríska út- varpsstöð á Netinu og heyrði þar viðtal við Ólaf Ragnar þar sem ská- keinvígið í Reykjavík bar á góma. „Við áttum langt samtal um alls kyns mál sem ég vil ekki fjalla um í smáatriðum. Við töluðum líka um einvígið 1972 og sameiginlegan vin okkar, Sæmund Pálsson, sem var nágranni minn á Seltjarnarnesi,“ sagði Ólafur Ragnar á málþinginu. Hann sagði að menn vonuðu að í framtíðinni mætti Fischer njóta sama frelsis og aðrir og ferðast um heiminn eins og hann lysti. Ef…? Margt annað bar á góma í um- ræðunum. Guðmundur G. Þórarins- son sagði m.a. að það væri verðugt verkefni að reyna að hafa uppi á myndunum sem Chester Fox tók af skákeinvíginu og væru ómetanlegar heimildir um það. Sagði Guðmund- ur að Fox virtist hafa horfið af yf- irborði jarðar og myndirnar með honum. Þá rakti Guðmundur ýmsar spurningar sem hann sagðist hafa glímt við gegnum árin: Hvers vegna valdi Spassky Ísland sem keppnis- stað? Hvers vegna hættu Júgóslav- ar við? Óttaðist Fischer að mæta Spassky? Hvað hefði gerst ef Ís- lendingar hefðu hætt við að halda einvígið? Og hefði einvígið verið haldið ef Júgóslavar hefðu ekki hætt við? Vera kynni að það þjónaði engum tilgangi að velta þessum spurning- um fyrir sér. „Júgóslavarnir kynnu að hafa orðið jafn heppnir og við ef þeir hefðu haldið fyrri hluta einvíg- isins eins og áformað var. En þeir höfðu engan Sæma rokk.“ Morgunblaðið/Arnaldur Helgi Ólafsson stórmeistari stjórnar umræðum um einvígið. Við borð- ið sitja Boris Spassky, Lothar Schmid og Guðmundur G. Þórarinsson. Einvígið ófram- kvæmanlega Þrjátíu ár eru liðin frá því Boris Spassky og Bobby Fischer settust að tafli í Laugardals- höll. Af málþingi um þetta einvígi aldarinar, sem Guðmundur Sv. Hermannsson sat í Þjóðmenningarhúsinu, mátti ráða að enn séu ekki öll kurl komin til grafar þótt um 140 bækur hafi verið skrif- aðar um atburðinn. stuðning í mönnum, ennt sjálf- tuðningur lendingar ðu ótrauð- lýðræðis jóðir biðu jálfstæðið gar héldu um sjálf- nna og umræðun- oru meðal il að lönd- ta áfanga erður að stíga fyrsta skrefið, einhver verður að setja fram hugmyndina. Við lít- um á Íslendinga sem trausta vini.“ Ólafur Ragnar sagði að Íslend- ingar hefðu frá upphafi stutt ósk Letta um aðild að NATO. Ánægju- legt væri að verða vitni að því að þessi afstaða til aðildar Lettlands væri nú að verða að viðtekinni skoðun í bandalaginu. „Við vonum einnig að ef Lettland gerist aðili að Evrópusambandinu getum við fyrir tilstuðlan Evrópska efnahagssvæð- isins eflt verulega viðskipti þjóð- anna og efnahagslegt samstarf þeirra,“ sagði Ólafur Ragnar. Forsetarnir tveir ræddu um framtíð Rannsóknarþings norðurs- ins, samstarf sem allmörg ríki á norðurhveli jarðar, þ.á m. Banda- ríkin, Kanada og Rússland, hafa átt í tvö ár og bæði Lettar og Íslend- ingar taka þátt í. Íslendingar áttu frumkvæði að samstarfinu og skrif- stofa þess er á Íslandi. Regnhlíf sem tryggði frið, velsæld og lýðræði Vike-Freiberga sagði að NATO væri hlíf sem hefði tryggt frið, vel- sæld og framþróun aðildarríkjanna og jafnað deilur þjóða sem hefðu svo oft barist í aldanna rás. Banda- lagið hefði einnig skotið traustari stoðum undir lýðræðið í ríkjunum, nefna mætti sem dæmi að eitt af skilyrðunum fyrir aðild væri að kjörnir fulltrúar hefðu síðasta orðið í varnarmálum, ekki hershöfðingj- arnir. Erlendir fjárfestar yrðu fús- ari að hasla sér völl í landi sem ekki byggi við ótrausta stöðu gagnvart grönnum sínum. Hátt í helmingur íbúa Lettlands er rússneskumælandi. Spurt var hvort þeir styddu einnig aðildar- hugmyndirnar og hvort Rússar væru enn andvígir því að Lettar gengju í NATO. „Kannanir sýna að rúm 40% rússneskumælandi fólks styðja að- ild að bandalaginu,“ sagði forset- inn. „Ef allir eru teknir með er stuðningurinn mjög öflugur eða um 65%. Rússar voru lengi andvígir stækkun NATO og ég held að [Vladímír] Pútín forseti segi enn að honum finnist hugmyndin ekki góð. En ég held að þeir mótmæli henni ekki af miklum ákafa og við heyr- um ekki heldur andmæli á þeim nótum að stækkunin myndi vera ógn við öryggi þeirra. Þær rök- semdir hafa orðið úreltar vegna þess að NATO og Rússland eiga nú fundi þar sem Rússar sitja á milli Spánverja og Portúgala við borðið þar sem Robertson lávarður stýrir fundunum. Þetta hefði engum get- að dottið í hug í kalda stríðinu,“ sagði Vaira Vike-Freiberga, forseti Lettlands. við sjálf- st ekki Morgunblaðið/Árni Sæberg on, forseti Íslands, og Vaira Vike-Freiberga, á blaðamannafundinum á Bessastöðum. erið mjög hefði ver- áratug- NATO rið auk- gt að stefnu um á hennar. legt væri í fang s að aðild andinu. iðina, ð NATO- lítil þjóð nveruleg „Ég tel að litlar þjóðir geti haft áhrif á stefnumótun og finnst Ís- lendingar vera dæmi um það. Þeg- ar ég varð forseti fyrir þrem árum var hugmyndin um stækkun NATO til austurs og að Eystrasaltríkin yrðu þar efst á blaði yfirleitt ekki viðurkennd. Ísland og Noregur mæltu þá ákaft með aðild Eystra- saltsríkjanna og ég tel að afstaða þeirra hafi haft nokkur áhrif þótt ég viðurkenni að fleira hafi komið til, vonandi átti okkar eigin við- leitni einhvern þátt,“ sagði Vike- Freiberga. Forsetinn sagði Letta hafa á til- finningunni að þeir hefðu misst af lestinni á síðustu öld og þess vegna lægi þeim á. Þeir hefðu að vísu get- að byggt nokkuð á reynslu frá sjálf- stæðisárunum milli heimsstyrjald- anna en einnig hefðu þeir notað sér skilyrði ESB til að herða á breyt- ingum á löggjöf í landinu. Hug- myndin um aðild að NATO hefði hert á nauðsynlegri þróun í varn- armálum. „Við vorum hlutlaus þjóð 1939 og hvað hafði það í för með sér? Við teljum ekki að hlutleysi sé kostur í stöðunni, sagan hefur kennt okkur allt annað. Við vildum gjarnan gera eins og Finnar og halda uppi öflugum her en því mið- ur eigum við ekki Nokia, kannski eignumst við einhvern tíma okkar Nokia!“ sagði Vike-Freiberga. Morgunblaðið/Árni Sæberg a Vike-Freiberga, og eiginmaður hennar, Imants Freibergs, heilsa ungri stúlku við l hægri eru Ólafur Ragnar Grímsson forseti og heitkona hans, Dorrit Moussaieff.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.