Morgunblaðið - 13.08.2002, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6. B.i. 10Sýnd kl. 6.
Þegar ný ógn steðjar að
mannkyninu hefst barátta
upp á líf og dauða.
STÓRKOSTLEGAR TÆKNIBRELLUR
OG BRJÁLAÐUR HASAR.
Sexý og Single
Búðu þig undir geggjaða
gamanmynd í anda There´s Somet-
hing About Mary! Cameron Diaz
hefur aldrei verið betri.
-
Sýnd kl. 8 og 10.40. Sýnd kl. 8 og 10.
„Ein besta mynd
þessa árs.
Fullkomlega
ómissandi.“
SV Mbl
Yfir
35.000
MANNS
Þú hefur aldrei upplifað aðra eins mynd! Láttu
ekki handtaka þig áður en þú fremur glæpinn!
Glæpalaust Ísland.
„Ein besta mynd þessa árs.
Fullkomlega ómissandi.“
SV Mbl
Sexý og Single
Vinsældir
eru ekki
keppni...
heldur
stríð!
kl. 4, 7 og 10.
YFIR 12.000 MANNS!
Powersýning
kl. 11.
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Sýnd kl. 5, 8, 10 og 11.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10.
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Yfir
35.000
MANNS
600 SÍÐUR
AF HEITUSTU
TÍSKUNNI
+
FLOTT FÖT
FYRIR ÞIG
+
HÖFUM
LÆKKAÐ
VERÐIÐ
NÝI LISTINN ER KOMINN
ÚT NÚNA!
HRINGDU í 565 3900
síminn opinn til 22 alla daga
www.freemans.is
ÞAÐ er langt um liðið síðan þessi
skífa kom út en þar sem glittir í aðra
plötu Blue-liða á næstunni er tilvalið
að skoða þennan grip, sem er þeirra
fyrsti.
Blue koma frá Bretlandi og hafa á
síðasta ári, svo og þessu, verið að
byggja upp veldi sitt. Stefnan er tek-
in á „töffara“-strákasveitarpopp, í
anda Five og East 17; sem er greini-
lega stillt upp á móti „mjúki mað-
urinn“-strákasveitarpoppi sem er
stundað af Westlife og Backstreet
Boys. Þar sem Five þraut örendi á
dögunum opnaðist gat á markaðin-
um sem Blue gera sitt besta til að
fylla.
Á heildina litið er
þetta nokkuð fram-
bærilega plata og
lögin innihalda
flest öll eftirminni-
lega króka. Tónlist-
in er poppskotið R
og B með sálarsveiflu; með ballöðum
og keyrslulögum í bland. Reyndar er
fullmikið mið tekið af bandaríska
strákasveitargeiranum í þessari
módelsmíði og grefur það nokkuð
undan frumleikanum, enn fremur
sem litleysis gætir, þar sem ofur-
áhersla er lögð á að hafa reiknilík-
anið sem allra marðkaðsvænast;
skiljanlega.
Það verður því spennandi að heyra
nýju plötuna frá piltunum bláeygðu,
sem út kemur í haust eins og áður
sagði, því nú eiga þeir betra færi á að
móta sinn eigin stíl, þar sem vin-
sældir og heilnæm sala eru komin í
höfn.
Tónlist
Undir
bláhimni
Blue
All Rise
Virgin/Innocent
Frumburður Blue er lofandi. Agnúar hér
og þar engu að síður.
Arnar Eggert Thoroddsen
EKKI þarf að hlusta lengi á Drap
mann með rassinum áður en það
rennur upp fyrir áheyranda að Fal-
lega gulrótin er ekki eiginleg hljóm-
sveit, frekar að kalla megi hana
hryðjuverkasveit sem tekið hefur að
sér að jórtra á tölvupoppi níunda
áratugarins og eftir að það hefur
velkst um vömb, kepp, laka og vinst-
ur er það sett á plast til að hrella við-
kvæmar sálir. Er því ekki réttast að
meta þennan disk ekki eins og venju-
lega hljómplötu, heldur eins og
klippiverk þar sem geðbilaður Trist-
an Tzara sleppir sér með skærin í
hljóðverinu, má kynna: dadaískt
tölvupopp? Eða eru þeir félagar
kannski að gera grín að öllu saman
og sjálfum sér um leið; hugsanlega
eru þeir að gera sitt besta, leika það
sem þeim finnst fágað tölvupopp
með grípandi laglínum … eða
kannski ekki.
Það segir sitt um Ugluspeglana í
Fallegu gulrótinni að plötunni lýkur
ekki einu sinni og ekki tvisvar, held-
ur þrisvar; lokalagið er víst live
transmix af Djúpinu. Eftir rétt rúm-
ar sex mínútur lýkur því lagi, eða
hvað? Á elleftu mínútu (elleftu
stundu?) hefst það aftur með til-
brigðum sem standa í sex mínútur
eða svo og loks á 38. mínútu kemur
lokaflippið, ósamstæðir tölvuskalar
og lagabútar; þegar búið var að sópa
saman öllum afklippunum sagði ein-
hver: látum þetta aftast og aftan við
það rúsínuna í pylsuendanum, und-
urblíða lagastemmu svona rétt til að
senda hlustandanum langt nef.
Að þessu sögðu er Drap mann með
rassinum (sem vísar kannski í Drap
mann með skóflu með S/H Draumi
(sem vísaði í fyrirsögn í Morgun-
blaðinu) ... eða kannski ekki) á köfl-
um bráðskemmtileg plata. Þannig
eru fyrstu þrjú lögin, Animated
Menus, 2PK og Hi Impitance, mjög
skemmtileg, sérstaklega það síðast-
talda.
Umslagið er í takt við innihaldið
og vel heppnað sem slíkt.
Kannski … eða kannski ekki
Drap mann með rassinum með Fallegu
gulrótinni. Sveitina skipa Djöfla Dóri,
Siggi Mæjó, Tónskrattinn, Gunni Görn og
Addi Sækó, eða svo segir í það minnsta á
umslagi, en heimildir eru fyrir því að þeir
heiti í raun Halldór Geirsson, Sigurður
Guðjónsson, Hlynur Aðils Vilmarsson,
Gunnar Örn Svavarsson og Arnar Snær
Davíðsson. Allir leika þeir á hljómborð.
Hin dularfulla en fallega Gulrót á hljómleikum.
Árni Matthíasson
SVO GÆTI farið að njósnarinn
kvensami James Bond fái í fyrsta
sinn að sofa hjá í nýjustu mynd
sinni, Die Another Day.
Þrátt fyrir að Bond sé ann-
álaður fyrir kvensemi sína hafa
leikstjórar allra myndana um
hann gætt fyllsta velsæmis þegar
kemur að kvikmyndatöku uppi í
bóli Bonds. Berar axlir og úfið
hár er það svæsnasta sem áhorf-
endur hafa fengið að sjá…hingað
til.
Leikstjóri nýjustu mynd-
arinnar, Lee Tamahori, sagði í
viðtali á dögunum að ætlunin
væri að bæta smákryddi í ást-
aratriði njósnarans, sem leikinn
er af Pierce Brosnan, og mótleik-
konu hans Rosamund Pike. Þetta
mun þá vera í fyrsta sinn í fjöru-
tíu ára sögu njósnarans sem sýnt
verður það sem iðulega er gefið í
skyn.
Ekki er þó víst hvort umrædd
ástersena fái að haldast í mynd-
inni en líklegt þykir að hún verði
allavega klippt í burtu fyrir
frumsýningu myndarinnar, þar
sem Elísabet II Englandsdrottn-
ing mun mæta á svæðið og ekki
vill Bond særa blygðunarkennd
drottningar sinnar, eða hvað?
Áhugasömum er bent á að
hægt er að nálgast kynning-
armynd Die Another Day á Net-
inu þar sem umrætt atriði er
óklippt.
James Bond fær loksins að sofa
hjá í væntanlegri mynd sinni.
James Bond
gripinn glóðvolgur
í bólinu