Morgunblaðið - 22.08.2002, Page 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 19
FERÐAFÓLK hefur verið dug-
legt að heimsækja Flatey á Breiða-
firði í sumar. Mikið var um að vera í
eyjunni aðra helgina í ágúst enda
stóð mikið til. Séra Karl Matthías-
son fór með Breiðafjarðarferjunni
Baldri út í Flatey fyrir skömmu og
hafði þrjár kirkjulegar athafnir í
Flateyjarkirkju þann dag. Hann
gifti tvenn brúðhjón og messaði í
Flateyjarkirkju þar sem skírður
var ungur drengur.
Að loknum athöfnum var boðið í
giftingarveislu í samkomuhúsinu
og skírnarveisla var haldin í einu af
gömlu húsunum í Flatey sem hafa
verið gerð upp. Gömlum Flateying-
um fannst þetta minna á gömlu
dagana, þegar bærinn iðaði af lífi.
Þennan sama dag heimsóttu eyj-
una um 200 félagar úr Framsókn-
arfélagi Reykjavíkur. Breiðafjarð-
arferjan Baldur gat ekki annað
þessum fjölda ferðamanna og
þurfti að senda annað skip, tvíbytn-
una Særúnu, til að allir farþegar
kæmust ferða sinna. Fluttu skipin
nokkur hundruð farþega um
helgina
Yfir sumartímann fer Baldur
tvær ferðir á dag yfir Breiðafjörð
og ferðafólk stoppar í Flatey á
meðan Baldur fer upp á Brjánslæk.
Tvær
gifting-
ar og
skírn
Stykkishólmur
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Það fara ekki margar kirkjulegar athafnir fram nú orðið í Flateyj-
arkirkju á hverju ári, en fyrir skömmu fóru þrjár athafnir fram í
kirkjunni. Á myndinni eru brúðhjónin Helga Sveinsdóttir og Óskar
Eyþórsson og séra Karl Matthíasson. Altaristaflan eftir Baltasar er
óvenjuleg og sýnir eyjabændur að störfum.
LAUGARDAGINN 10. ágúst var
opnuð sýning á Skriðuklaustri undir
yfirskriftinni „Útlagar og útilegu-
menn“.
Forstöðumaður Gunnarsstofnun-
ar, Skúli Björn Gunnarsson, ávarp-
aði boðsgesti og kynnti sýninguna í
stuttu máli.
Á sýningunni er fjallað um sögu
útlaga, útilegumannasagnir, lífskjör
og byggðir fjallabúa með áherslu á
austfirskar heimildir. Skyggnst er í
smiðju listamanna, sem hafa notað
þetta þema í listsköpun sinni. Þá
eru og til sýnis ýmsir munir sem
tengjast útilegumönnum, m.a. tá-
gakarfa og grýta Fjalla-Eyvindar
ásamt öxi þeirri sem talin er hafa
verið notuð við síðustu aftöku á
Austurlandi.
Allt þetta vakti auðsjáanlega for-
vitni boðsgesta.
Sýningin er liður í þjóðfræðiverk-
efni sem Gunnarsstofnun stendur
fyrir með styrk frá Nýsköpunar-
sjóði námsmanna og Menningar-
borgarsjóði. Dagný Bergþóra Indr-
iðadóttir þjóðfræðinemi hefur unnið
að verkefninu í sumar og m.a. tekið
saman úrval af austfirskum útilegu-
mannasögum sem koma út á bók í
tengslum við opnun sýningarinnar.
Morgunblaðið/Guttormur V. Þormar
Eftirlíking af grýtu Fjalla-Eyvindar við Hvannalindir.
Útlagar og
útilegumenn
Geitagerði