Morgunblaðið - 22.08.2002, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 22.08.2002, Qupperneq 28
HAGFRÆÐINGUR Fé-lags eldri borgara íReykjavík segir að fólkgeri sér ekki almennt grein fyrir að það greiði mun hærra hlutfall af tekjum sínum í tekjuskatt en áður og þetta eigi þó sérstaklega við um þann hóp sem hafi lægstu tekjurnar. Þessi fullyrðing er rétt svo langt sem hún nær. En öllu máli skiptir auðvitað hvað þetta „áður“ táknar, þ.e. við hvaða ár eða tímabil er verið að miða. Bæði persónuafsláttur og skatthlutfall á hreyfingu Skattleysismörk á hverjum tíma finna menn með því að deila stað- greiðsluhlutfalli upp í persónuaf- sláttinn en báðar þessar stærðir hafa verið á hreyfingu frá því stað- greiðslan var tekin upp. Árið 1997 var persónuafslátturinn t.d. 24.115 krónur á mánuði og staðgreiðslu- hlutfallið 41,25% og skattleysis- mörkin 58.460. Í ár er persónuaf- slátturinn 26.002 og staðgreiðslu- hlutfallið 38,54% og skattleysis- mörkin 67.467 krónur. Á sama tímabili hækkaði verðlag um rúm 24%. Ef krónutala skattleysismark- anna er einfaldlega framreiknuð miðað við neysluvístölu væru þau núna 72.607 krónur en þar með er hins vegar litið framhjá breytingum á persónuafslættinum og stað- greiðsluhlufallinu. Ef persónuaf- slátturinn er framreiknaður og tekið mið af núverandi staðgreiðsluhlut- falli væru skattleysismörkin hins vegar 77.700 krónur en þá er alger- lega litið framhjá lækkun stað- greiðsluhlutfallsins á tímabilinu. En hvers vegna 1997? Því ekki að fara allt aftur til ársins 1988 þegar staðgreiðslan var tekin upp, en þá voru skattleysismörkin rúmar 44 þúsund krónur. Framreiknuð með vísitölu neysluverðs væru þau nú lið- lega 98 þúsund krónur en eru í reynd um 67.500 krónur. Það má líka velta fyrir sér hvers vegna ætti að miða við neysluvísitölu en ekki launavísitölu. Tekjuskattsstofninn hefur breikkað Því verður ekki á móti mælt að hinir tekjulægri eða tekjulægstu „greiða“ nú meira í tekjuskatt en þeir gerðu. Greiða er hér viljandi sett innan gæsalappa til þess að minna á þá staðreynd að þótt af mánaðarlaunum manna sé dreginn skattur er ekki þar með sagt að þeir hinir sömu greiði í reynd nettóskatt til samneyslunnar. Almennt má segja að raunbreytingar á skattleys- ismörkum frá árinu 1992, svo litið sé til síðustu tíu ára, hafa gert það að verkum að skattstofninn hafi breikkað sem á mannamáli þýðir að fleiri launþegar greiða nú tekjuskatt en áður, bæði vegna raunlækkunar skattleysismarkanna og eins vegna hækkunar launatekna umfram verð- breytingar. Þetta hefur þó ekki, að því er næst verður komist, gerbreytt þeirri mynd sem lengi hefur blasað við, þ.e. að aðeins um einn þriðji hluti skattgreiðenda greiði nettóskatta. En hvað með hina mikla hækkun skattanna á síðasta áratug? Það seg- ir ekki ýkja mikið eitt og sér. Fram- teljendum hefur auðvitað fjölgað verulega á þessum tíma, tekjur fólks hafa sem betur fer aukist og vægi tekjuskatta almennt hefur aukist á síðustu árum (þeirri spurningu hvort aðrir skattar hafi ekki örugg- lega lækkað á móti verður þó ekki svarað hér). Skattheimtan í hámarki árið 2000 Heildartekjur hins opinbera, þ.e. ríkis og sveitarfélaganna, sem hlut- fall af vergri landsframleiðslu (VLF) voru 35,8% árið 1990, 36,2% árið 1995 og fóru í 42% árið 2000 en reikna má með að hlutfallið hafi lækkað eitthvað í fyrra. Í viðskipta- blaði Morgunblaðsins síðasta haust var gerð allítarleg grein fyrir þess- ari þróun og virtist hún koma sum- um nokkuð á óvart. Þegar rætt hefur verið um breyt- ingar á tekjusköttum hefur ríkið bent á að vægi tekjuskatta hafi auk- ist, m.a. með tilkomu hátekju- og fjármagnstekjuskatts en vægi veltu- skatta minnkað. Það kann rétt að vera en þau rök eiga vitaskuld ekki við þegar skoðaðar eru tölur um heildartekjur hins opinbera sem hlutfall af VLF líkt og hér að ofan. Þær segja okkur einfaldlega að hið opinbera var hlutfallslega að taka meira til sín fram til ársins 2000 en hlutur fyrirtækja og einstaklinga minnkaði að sama skapi. En nú má gera því skóna að snúið hafi verið af þeirri braut, bæði með skattalækk- unum á fyrirtæki og einstaklinga og eins vegna minni umsvifa í hagkerf- inu. Í upphafi skyldi endinn skoða seg- ir máltækið en í okkar tilviki er það engan veginn ánægjulegur saman- burður: staðgreiðsla skatta hófst ár- ið 1998 og þá var skatt 35,2% og persónuafslátturi krónur. Skattleysismörk 44.183 krónur á mánuði. Í á greiðsluhlutfallið 38,54% sónuafslátturinn 26.002 á Og auk þess er nú tekinn s hátekjuskattur eða 7% a umfram 322.000 á mánuði þ jaðartekjuskatthlutfall þes 45,54%. Hvað táknar þetta annað en það að við borgum lega töluvert hærri tekjusk fallslega og raunar einn meðalskatt nú en þegar sta an var tekin upp á sínum t er athyglisvert út af fyr skoða þróunina frá því sta skatta var tekin upp. En hafa aðrir skattar, bætur þættir sem taka þarf tillit ti þessum tíma. Maður stí tvisvar sinnum í sömu án Forn-Grikkir og það á enn v Meðalskatturinn stighækkandi Meðalskattur er mikilvæ tak en hann segir okkur h einstaklingur greiðir hlutf Margvíslegar breytingar hafa orðið á skattby Skattur hef- ur lækkað á 140.000 mánaðar- laun og yfir                 ! " #             $                 28 FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. hafð greid skatta eða tæp 25% af h takt við verðbreytingar ið 1997 og Eiríkur greid lega 28% af heildartekju og hann greiddi 59.210 Skattbyrði Eiríks er því en hins vegar meiri en f Eiríkur er lágtekju vorið 1992 skattleysismörkunum. L vorið 1997 losuðu laun h hann greiddi þá um 3.60 Í vor var Gísli kominn greiddi af af þeim liðleg artekjum. Gísli er hátek 1992 og tæp 32% af heildarlaunu við vísitölubreytingar e lega 335.300 krónum vo í 5% hátekjuskatti sem t lega 119 þúsund í skatta voru laun Helga komin þeim 140.200 í skatta, þ 322.000 krónum. Meðal byrði Helga hafði lækka lega hærri en fyrir tíu á Helgi VARÐVEISLA ÍSLENSKRAR HÖNNUNARSÖGU Ef miðað er við þjóðir þar sembyggingarlist hefur staðið ímiklum blóma öldum saman er byggingararfleifð íslensku þjóðarinnar fátækleg. Því verður seint nógu mikil áhersla lögð á nauðsyn þess að varðveita vel sögufrægar byggingar og samhengi þeirrar byggingararfleifðar sem þó er fyrir hendi. Með markvissu átaki á sviði húsfriðunar og húsverndar á síðustu áratugum hefur töluvert áunnist á þessu sviði sem komandi kynslóðir munu njóta. Samt sem áður virðist sem enn sé ekki nægilega vel hugað að verndun eða varð- veislu á innréttingum sögufrægra húsa, en upprunalegar innréttingar eru að sjálfsögðu ómetanlegur þáttur í okkar stuttu hönnunarsögu og ber því að verja fyrir tískustraumum og skammtíma- hagsmunum eftir því sem kostur er. Fyrir skömmu birtist í Morgun- blaðinu frétt þess efnis að sótt hefði ver- ið um leyfi til framkvæmda við breyt- ingar innandyra á Hótel Borg, löngu eftir að hinar eiginlegu framkvæmdir hófust. Fram kom í fréttinni að Skipu- lags- og byggingarnefnd Reykjavíkur væri ósátt við breytingarnar og teldi þær ekki í anda hússins eða húsvernd- arstefnu. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður nefndarinnar, sagði af þessu tilefni að „of oft sé farið út í leyfisskyldar framkvæmdir áður en leyfi er veitt“, en slíkt er að sjálfsögðu algjörlega ófor- svaranlegt. Hún segir jafnframt að á fundi nefndarinnar hafi verið rætt um friðun innréttinga í Reykjavík og bendir réttilega á að byggingar á borð við Hótel Borg hafi ákveðið gildi í borgarmynd- inni. „Of oft höfum við séð innréttingar sem hafa mikið gildi fara, t.d. í Reykja- víkurapóteki og Agli Jacobsen. Þar sem það á við finnst okkur að halda eigi í inn- réttingar sem greinilega eru hluti af kar- akter húsanna, eins og mér fannst varð- andi Hótel Borg.“ Að sjálfsögðu verður að hafa í huga að þetta er ekki í fyrsta sinn sem víðtækar breytingar eru framkvæmdar innandyra á Hótel Borg, en svo virðist sem tilfinn- ing manna fyrir verðmæti upprunalegu innréttinganna hafi verið vakin alltof seint. Hið sama má segja um Iðunnar- apótek við Laugaveg, verslun Egils Jac- obsens og Reykjavíkurapótek, en inn- réttingar Reykjavíkurapóteks voru t.d. hannaðar af Sigurði Guðmundssyni í anda norrænnar nýklassíkur og höfðu sérstakt vægi sem slíkar. Þó þeim hafi að einhverju leyti verið bjargað, fer ætíð best á því að varðveita slíkar innrétting- ar í heilu lagi í því húsi sem þær tilheyra. Eins og Steinunn Valdís segir er mik- ilvægt að betur verði hugað að friðun innréttinga í framtíðinni og nauðsynlegt er að tryggja skilvirkar leiðir til að fyr- irbyggja eyðileggingu slíkra menningar- verðmæta. Í því sambandi má t.d. nefna verslunina Kirsuberjatréð við Vestur- götu 4 í Reykjavík, þar sem eigendur hafa lagt metnað sinn í að varðveita upp- haflegar innréttingar sem tilheyrðu verslun Björns Kristjánssonar er var opnuð árið 1888, en þær eru nú að verða einstakar í Reykjavík og hafa umtals- vert sögulegt gildi. Einnig er löngu tímabært að vernda innréttingar þeirra opinberu bygginga þar sem frumsaga ís- lenskrar hönnunar var mótuð af metnaði í húsbúnaði, innréttingum og litavali. Mikil umræða varð um breytingar í Þjóðleikhúsinu á sínum tíma, en minna hefur verið rætt um innviði Þjóðminja- safnsins þar sem stórfelldar breytingar hafa staðið yfir um langt skeið. Full ástæða er til að vernda innréttingar skólabygginga á borð við aðalbyggingu Háskóla Íslands, Austurbæjarskóla, Melaskóla og Laugarnesskóla. Betur má ef duga skal, að öðrum kosti verður frumsaga íslenskrar hönnunar aldrei varðveitt sem skyldi. ÚTIVISTARSVÆÐI FYRIR SAUÐFÉ? Séu einhver sannindi algild á Íslandier það að sauðfjárbeit og skógrækt fara ekki saman. Mörgum Reykvíking- um hlýtur að hafa brugðið við þær fréttir að sauðkindur í eigu bænda á Kjalarnesi gengju tugum saman lausar á útivistar- svæði borgarbúa í Esjuhlíðum og væru þar búnar að rífa í sig og eyðileggja stór- an hluta af 20.000 trjáplöntum, sem ung- menni á vegum Reykjavíkurborgar og Landsvirkjunar hafa plantað í sumar. Í Esjuhlíðum er m.a. verið að rækta land- græðsluskóg og svæðið hefur af hálfu Reykjavíkurborgar verið skipulagt sem útivistarsvæði – og þá í þágu mannfólks- ins, en ekki til að næra sauðfé. Engan skal undra að forráðamenn Skógræktarfélags Reykjavíkur, sem hefur umsjón með svæðinu, hafi eftir talsvert japl, jaml og fuður ákveðið að fá sérhæfðan smala úr Borgarfirði til að smala svæðið og koma fénu fyrir í rétt þar til eigendur þess fengjust til að flytja það þangað sem það ynni ekki skaða. Féð slapp hins vegar fljótlega úr réttinni og hver sem ástæðan er fyrir því er það óviðunandi staða. Borgarkerfið virðist hafa átt í dá- litlum vandræðum með að mynda sér eina skoðun á því hvort kindurnar hafi mátt valsa um útivistarsvæðið eður ei og hvort yfirleitt væri hægt að banna eig- endum þess að beita því á afrakstur sum- arstarfs unglinga í Esjuhlíðum. Þannig segir deildarstjóri umhverfis- og heil- brigðisstofu Reykjavíkurborgar í Morg- unblaðinu í gær að verið sé að „vinna í málinu af fullum krafti og vonir séu bundnar við að drög að samþykkt um bann við lausagöngu búfjár verði sam- þykkt á fundi heilbrigðis- og umhverf- isnefndar á morgun, fimmtudag“. Í blaðinu í dag segir borgarlögmaður hins vegar að lausaganga búfjár í Esjunni hafi verið bönnuð allt frá 1986 sam- kvæmt búfjársamþykkt og enginn vafi leiki á því að féð megi ekki vera fyrir neðan ákveðna línu í fjallinu. Fyrst borg- aryfirvöld eru komin að þeirri niður- stöðu að lausagangan sé bönnuð er ráð að þau grípi nú þegar til aðgerða til að framfylgja því banni og losna við kind- urnar úr skógræktinni. Farið hefur fé betra. Hagsmunir sauðkindarinnar og eig- enda hennar annars vegar og þeirra, sem vilja rækta skóg og græða landið hins vegar, hafa löngum vegizt á hér á landi, þótt sjaldgæft sé að þessar andstæður birtist á jafngrátbroslega táknrænan hátt og í áflogum sauðfjárbónda og skóg- ræktarfrömuðar í Esjuhlíðum í fyrra- dag. Bæði eiga sinn tilverurétt, sauð- kindin og skógurinn. Í þessu máli er hins vegar nokkuð ljóst að hagsmunir mann- fólksins í borginni af því að fá að njóta skógarins í friði fyrir svöngu sauðfé vega þyngra en hagsmunir fjárins og hinna fáu bænda í borgarlandinu. Það hlýtur að vera í verkahring borgaryfirvalda að girða fyrir að uppákomur af því tagi, sem áður var lýst, endurtaki sig. Álagning tekjuskatts og útsvars einstaklinga hefur ríflega tvöfaldast að núvirði á síðasta áratug. Félag eldri borgara í Reykjavík og ASÍ segja að fólk með lægri tekjur hafi tapað á skattalækk- unum ríkisstjórnarinnar. Arnór Gísli Ólafsson skoðaði breytingar sem hafa orðið á tekjuskattskerfinu og velti upp spurningum um skattkerfið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.