Morgunblaðið - 22.08.2002, Síða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 45
Náðu tökum á tölvunni
Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · skoli@raf.is · www.raf.is
Rafiðnaðarskólinn hefur mikla reynslu af almennri
tölvukennslu. Hjá okkur starfa vel menntaðir og hæfir
kennarar með reynslu úr íslensku atvinnulífi.
Reynsla okkar sýnir að tveggja til þriggja mánaða
tölvunám er ein áhrifaríkasta leiðin til þess að ná
tökum á tölvunni.
Rafiðnaðarskólinn hefur einn skóla á Íslandi hlotið
vottun Microsoft sem tæknikennslusetur (CTEC).
Við leggjum áherslu á þægilegt námsumhverfi og
stuðning við nemendur.
Á öllum tölvunámsbrautum fylgja vönduð
kennslugögn.
Rafiðnaðarskólinn býður einnig mikið úrval styttri
tölvunámskeiða. Kynnið ykkur málið á www.raf.is
T ö l v u - o g b ó k h a l d s n á m s a m h l i ð a s t a r f i
Rafiðnaðarskólinn býður þrjár leiðir sniðnar að ólíkum þörfum.
Boðið er upp á morgun-, dag- eða kvöldkennslu, staðbundið
nám og fjarnám.
Tölvunotkun 1, 2 og 3
Stuttar námsbrautir í þremur stigum þar sem farið er í almenna tölvunotkun og öll algengustu
forritin. Hér geta bæði byrjendur sem lengra komnir fundið námsefni við sitt hæfi. Gagnlegt og
hagnýtt nám fyrir þá sem ekki vilja skuldbinda sig í langt nám eða hafa lítinn tíma.
Ekki er ætlast til heimavinnu.
– 60 kennslustundir, hefst næst 23. september
Tölvur og vinnuumhverfi 1 og 2
Ítarlegt og skemmtilegt nám fyrir byrjendur sem lengra komna. Kennd er almenn tölvunotkun
og notkun algengustu forritanna. Unnið er mikið af raunhæfum verkefnum. Þetta er nám fyrir
þá sem vilja fá virkilega góða undirstöðu í tölvunotkun. Framhaldsnámið hentar þeim sem vilja
bæta við þekkingu sína og ná mjög góðu valdi á Office-forritunum. Tvær afar vinsælar
námsbrautir. Náminu lýkur með lokaverkefni. Einnig er boðið upp á stöðupróf í vélritun.
– 120 kennslustundir, hefst 16. september
Tölvu- og rekstrarnám
Öflugt nám í bókhaldi og tölvunotkun. Hér lærir fólk mikið á skömmum tíma. Námið er
krefjandi og skemmtilegt. Rafiðnaðarskólinn hefur boðið upp á Tölvu- og rekstarnám í 8 ár
og er stoltur af árangrinum. Þetta nám er valkostur margra sem vilja skipta um starf eða eru
í atvinnuleit. Hentar einnig þeim sem eru með eigin rekstur.
Náminu lýkur með prófum og lokaverkefni. Stöðupróf í vélritun fyrir þá sem vilja.
– 280 kennslustundir, hefst 2. september
Fyrir þá sem vilja ná árangri
Nánari upplýsingar í síma 568 5010
eða á www.raf.is
Engin
heimav
inna
Einnig
í fjarná
mi
Eldriborgaraveisla
með Sigurði Guðmundssyni til
Costa del Sol
2. október
frá kr. 69.950
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin í
hina vinsælu eldriborgaraferð í október til Costa del Sol. Á þessum
árstíma nýtur einstakrar veðurblíðu á þessum fagra áfangastað, og þú
getur lengt sumarið við bestu aðstæður í sólinni. Sértilboð á okkar
vinsælasta gististað, Timor Sol í 3
vikur. Á meðan á dvölinni stendur
nýtur þú þjónustu reyndra
fararstjóra Heimsferða, og leikfimi-
og skemmtidagskrár með Sigurði
Guðmundssyni.
Síðustu 28 sætin
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 69.950
2. október – 3 vikur
Flug, gisting, skattar, ferðir til og frá
flugvelli, íslensk fararstjórn.
Alm. verð, kr. 73.450
21. ÞING Félags norrænna ofnæm-
islækna er haldið dagana 21.–24.
ágúst í Háskólabíói. Þetta er í
fyrsta sinn sem slíkt þing er haldið
hér á landi.
Þátttakendur eru nálægt þrjú
hundruð og koma einkum frá Norð-
urlöndum, þó eru t.d. hópar frá Ítal-
íu og Portúgal.
Fjölda áhugaverðra fyrirlestra er
að finna á þinginu ásamt sýningu og
kynningu á áhugaverðum rannsókn-
um sem tengjast ofnæmi. Fyrirles-
arar eru flestir vel þekktir á al-
þjóðavettvangi.
21. ágúst verða fyrirlestrar þar
sem íslenskir og sænskir sérfræð-
ingar kynna áhugaverð efni sem
tengjast rannsóknum þeirra.
22. ágúst munu þrír heimsþekktir
fræðimenn flytja fyrirlestra. Má
þar nefna Prof. William Busse og
dr. Thomas Platts-Mills, báða frá
Bandaríkjunum og Prof. Bengt
Björksten frá Svíþjóð. Fyrirlestrar
þeirra munu fjalla um astma og
hvaða framtíðarmöguleika menn
eygja þar varðandi greiningu og
meðferð. Áhrif bakteríuflórunnar í
görnunum á ónæmiskerfið. Einnig
mun dr. Platts-Mills fjalla um of-
næmisvaka og hvernig koma má í
veg fyrir ofnæmi.
23. ágúst mun Hákon Hákonar-
son barnalæknir halda fyrirlestur
um erfðir, ofnæmi og astma. Teng-
ist sá fyrirlestur rannsóknum hans.
Málþing verðu um leukotrín og
áhrif þeirra á astma og frjóofnæmi,
einnig er málþing um astma og mis-
munandi ástæður fyrir orsökum
þess sjúkdóms.
24. ágúst lýkur þinginu með
stuttu málþingi um ofnæmissjúk-
dóma
Forseti þingsins og undirbún-
ingsnefndarinnar er Sigurður Krist-
jánsson en aðrir í undirbúnings-
nefndinni eru Ásgeir Haraldsson,
Björn Árdal, Gunnar Jónasson, Sig-
urveig Þ. Sigurðardóttir og Unnur
Steina Björnsdóttir.
Norrænir ofnæmis-
læknar þinga
ÞÝSKU hjónin dr. Senta Siller og
dr. Norbert Pintsch gáfu til Flat-
eyrar eftir snjóflóðið 1995 mjög
skemmtilegt safn brúða frá ýms-
um löndum heims.
„Það er að hluta til hugsað sem
liður í að styrkja ferðaþjónustu á
Vestfjörðum og einnig sem tákn
fyrir hin mörgu þjóðarbrot sem
eiga búsetu á Vestfjörðum. Brúð-
urnar hafa m.a. fengist í söludeild
handverkshópsins Purku á Flat-
eyri, en Purka hefur umsjón með
brúðusafninu. Þau hjón hafa á
undanförnum árum unnið að verk-
efnum í Afríku, Asíu og Austur-
löndum nær til styrktar byggð-
arlögum sem eiga í vök að verjast.
Þau hafa m.a. kennt konum brúðu-
gerð og hafa séð um sölu brúð-
anna.
Nú er von á þessum hjónum til
Flateyrar ásamt Farzana Zahoor
sem stjórnar brúðugerð í þorpi í
Pakistan – fyrsta verkefni þeirra
hjóna.
Þau ætla að halda námskeið í
brúðugerð á Flateyri dagana 22.–
25. ágúst. Fimmtudagskvöld 22.
ágúst kl. 20:00. Föstudagskvöld 23.
ágúst kl. 20:00. Laugardag 24.
ágúst kl. 9:00–16:00. Sunnudag 25.
ágúst kl. 9:00–16:00. Námskeiðið
verður haldið á efri hæð Hafn-
arstrætis 11 á Flateyri (áður Fé-
lagskaup). Verð kr. 5.000 fyrir alla
dagana. Skráning er hjá Jóhönnu
Kristjánsdóttur, netföng johann-
a@snerpa.is mailto:johanna@s-
nerpa.is, eða flateyri@snerpa.is
mailto:flateyri@snerpa.is,“ segir í
fréttatilkynningu.
Námskeið í
brúðugerð
NÁMSKEIÐIÐ Sjálfstyrking ung-
linga hefst í byrjun september í
Foreldrahúsinu í Vonarstræti 4b.
Það er fyrir unglinga á aldrinum
13–17 ára. Námskeiðinu er ætlað
að efla sjálfstraust og félagslega
færni unglinga. Gerð eru tilfinn-
ingaverkefni og unglingunum er
kennt að skilgreina eigin tilfinn-
ingar. Það að þekkja eigin tilfinn-
ingar og hvernig viðkomandi ein-
staklingi líður getur hjálpað til við
að öðlast betra líf.
„Víðsýni og skilningur á sam-
félaginu er einnig stór liður í nám-
skeiðinu. Það að geta sett sig í
spor annarra og áttað sig á hvað
liggur að baki hegðun þeirra
hverju sinni auðveldar viðkomandi
að átta sig betur á skilaboðum frá
umhverfinu. Unglingarnir fara
með verkefni heim þar sem þeir
æfa sig í samskiptum, ráða bót á
neikvæðum tilfinningum og hvern-
ig þeir geti þjálfað sig í jákvæðu
sjálfstali og lært að hvetja sig
áfram til jákvæðra verka og hugs-
unar,“ segir í fréttatilkynningu.
Kennslan fer fram í Foreldra-
húsinu. Allar nánari upplýsingar
eru á heimasíðu www.foreldra-
hus.is
Námskeið í
sjálfstyrkingu
unglinga