Morgunblaðið - 01.09.2002, Side 37
unum Sigríði Björk og fjölskyldu,
Berglindi og fjölskyldu og Skúla
Magnússyni bróður hennar og fjöl-
skyldu.
Margrét Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
Allt veraldar líf er eitt vængjablak
hins volduga Guðs,
og þúsundir ára eitt andartak
hins eilífa Guðs.
(Páll J. Árdal.)
Síminn hringir, það er miðviku-
dagskvöld. Ég fæ ekki skilið það sem
við mig er sagt, það frýs eitthvað hið
innra. Þótt ég faðmi syrgjendur sem
gráta, þá eru mín tár bundin klaka-
böndum, þar til þíðan brýst fram og
bræðir og ekkert fæst við ráðið. Það
svíður í auga og í hjarta, sársaukinn
er ótrúlegur. Hvernig gat þetta
gerst?
Yndislegar konur, vinir og félagar,
eru horfnar eins og hendi sé veifað
og mér því fyrirmunað að segja þeim
á kveðjustund, hvað mér þótti vænt
um þær og hvað ég mat störf þeirra
og vináttu mikils. Ég veit það var
bros á vör og gleði í hjarta eftir ynd-
islegan dag, þegar ferðin stóra yfir
móðuna miklu hófst. Sú fullvissa er
huggun í sárri sorg.
Hverjar voru þessar konur? Þær
voru starfsfélagar mínir og vinir í
tugi ára sem aldrei brugðust. Við hlið
mér stóðu þær sem sterkir óbifan-
legir klettar hvað sem á gekk. Og
vináttan hélst þótt ég léti af störfum.
Á hverju ári hittumst við sem hópur
og stundum oftar og áttum saman
ómetanlegar samverustundir, sem
aldrei verða fullþakkaðar.
Í dag er Sólveig Matthíasdóttir
ljósmóðir til moldar borin. Þegar hún
kom síðast í heimsókn til mín færði
hún mér undurfagra gjöf, sem mér á
þessari stundu finnst táknræn fyrir
það sem nú hefur gerst. Ég sá hana
síðast þegar ég færði henni slæðuna
sem hún gleymdi í þeirri heimsókn.
Að auki hittumst við oft þegar ég fór
með foreldrahópana mína í skoðun-
arferð á deildina hennar. Alltaf var
faðmurinn jafn stór, hlýjan og brosið
eins ljúft og kveðjan til Söndru
gleymdist aldrei. Sólveig átti ekki að-
eins stóran faðm fyrir sín eigin börn,
barnabörn og fjölskyldu, það var
einnig pláss fyrir okkur hin. Það mun
ekki gleymast, enda áhrifin varanleg.
Orð eru svo fátækleg og máttvana
á slíkri stundu. Gull af manni er
gengin, langt um aldur fram. Eftir
standa minningarnar góðu, sem
munu fegra líf okkar sem eftir erum,
þegar sorgartakið sleppir. Blessuð
sé minning einstakrar konu.
Elsku Sigríður og Berglind. Al-
mættið styrki ykkur og fjölskyldu
ykkar á sorgarstund. Hafið þökk fyr-
ir þá fegurð sem einnig þið færðuð
mér.
Ef sál þín er sorta um vafin,
og sér hvergi ljósbjarma hér,
þá líttu til lausnarans góða,
því ljósið sitt gefur hann þér.
(Jón Hj. Jónsson.)
Hulda Jensdóttir.
„Svona gamlar frumbyrjur eru
aldrei látnar fæða sitjandi fæðingu.“
Það tók mig nokkra stund að átta
mig á þessum orðum Sólveigar. Ég
var á 32. aldursári og hafði mestar
áhyggjur af því að vera alltof ung til
að takast á við móðurhlutverkið. Þó
að ég ætti erfitt með að sætta mig við
að geta ekki fætt barnið mitt með
eðlilegum hætti, fann ég innst inni til
mikils léttis, því ég eygði von um að
Sólveig myndi samþykkja að vera
hjá mér. Og það var hún, á erfiðustu
og bestu stund ævi minnar.
Þegar hún rétti mér drenginn
minn, þrýsti hún andlitum okkar
saman til að hann fyndi af mér lykt-
ina og hjálpaði mér að halda utan um
hann í stutta stund. Svo fór hún með
hann.
Dagana sem á eftir komu, var Sól-
veig mér ólýsanleg stoð. Hún var á
allan hátt ótrúleg kona sem hafði
þann fágæta hæfileika að vekja ör-
yggiskennd hjá öðrum. Það var yfir
henni kyrrð sem fylgir þeim sem hef-
ur náð sátt við sjálfan sig og um-
hverfi sitt. Ég kynntist Sólveigu
barn að aldri og þótti alla tíð afskap-
lega vænt um hana en þessa daga í
september fyrir þremur árum skildi
ég fyrst hvað hún lifði innihaldsríku
lífi.
Því miður sagði ég henni aldrei
hvað nærvera hennar og aðstoð við
fæðingu barnsins míns skipti mig
miklu. Það er örlítil huggun, að
tveggja barna móðir sem tók á móti
fjórum barnabörnum sínum og ótal-
mörgum börnum öðrum, vissi án efa
vel hvernig mér var innanbrjósts.
Ég votta Berglindi, vinkonu minni,
Sirrý, systur hennar og fjölskyldum
þeirra dýpstu samúð mína.
Sólveigu þakka ég innilega fyrir
samleiðina.
Hanna Styrmisdóttir.
Kveðja frá ljósmæðrum
Ég kvíði að heyra haustvængsins snögga
þyt.
(E. Ben.)
Harmafregn – þrjár konur létust í
bílslysi – allar ljósmæður; Sólveig
Matthíasdóttir, Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir og Margrét Hinriks-
dóttir. Harmafregn allri þjóðinni,
ástvinum hjartasár. Við íslenskar
ljósmæður kveðjum og söknum þess-
ara góðu kvenna og farsælu ljós-
mæðra með mikilli virðingu og þakk-
læti og einlægri samúð til þeirra
mörgu sem hafa misst. Blessuð sé
þeirra minning.
Þegar hefja átti skipulega fræðslu
ljósmæðra árið 1761 lagði Bjarni
Pálsson, okkar fyrsti landlæknir, svo
ráð á að til ljósmæðrastarfa yrðu
valdar þær konur er þekktar væru
fyrir skynsemi, ráðvendni og mikla
reynslu hefðu. Þessi ráð landlækn-
isins hafa ekki glatað gildi sínu. Ís-
lenskar ljósmæður hafa borið gæfu
til þess að valda sínu fallega starfs-
heiti – með skynsemi, ráðvendni og
reynslu auk menntunar og þekking-
ar – að því ógleymdu að bera virð-
ingu fyrir lífinu og starfinu.
Ljósmæðrafélag Íslands var stofn-
að árið 1919 og hefur félagið átt
marga trausta og farsæla stjórnar-
menn. Þeirra á meðal voru þær sem
við sjáum nú á bak. Sólveig og Sig-
urbjörg unnu um langt árabil í stjórn
félagsins. Manngerð þeirra, greind
og félagsþroski lyftu stéttarvitund-
inni upp til mikils metnaðar og mik-
ilvægra starfa. Árið 1975 kaus félag-
ið ritnefnd til þess að sjá um og
framkvæma útgáfu stéttarblaðs ljós-
mæðra er bæri heitið Íslenskar ljós-
mæður. Í þessa mikilvægu nefnd var
Sólveig kosin formaður og Sigur-
björg ritari m.a. Þar ríkti einhugur
og mikið var unnið. Þær góðu ljós-
mæður er við sjáum nú á bak lögðu
hug og hönd og ómælda vinnu til
þess að stéttartalið yrði Ljósmæðra-
félagi Íslands til sóma og varpaði
ljósi á sérstöðu ljósmæðrastéttarinn-
ar fyrr og nú. Í mikið var ráðist –
stéttartalið skyldi ná aftur til hinnar
fyrstu ljósmóður á Íslandi árið 1761 –
það tókst – ritverkið Ljósmæður á
Íslandi kom út árið 1984 í tveim bind-
um og geymir mikinn fróðleik.
Í þessum hughrifum saknaðar,
minninga og þakklætis leita ég í orð
skáldsins Stefáns frá Hvítadal úr
kvæði hans Aðfangadagskvöld:
Guð er eilíf ást,
engu hjarta er hætt.
Ríkir eilíf ást,
sérhvert böl skal bætt.
Lofið Guð, sem gaf,
þakkið hjálp og hlíf.
Tæmt er húmsins haf,
allt er ljós og líf.
Steinunn Finnbogadóttir,
fyrrverandi formaður Ljós-
mæðrafélags Íslands.
Það var haustið 1957, við vorum
mættar tíu ungar konur til að hefja
nám í Ljósmæðraskóla Íslands. Eins
og gefur að skilja vorum við spenntar
að heyja námið sem þá tók eitt ár og
skylda að búa í heimavist, tvær sam-
an í herbergi og útivistarbann eftir
kl. 23.30 á kvöldin.
Þessi tíu kvenna hópur, sem var að
mörgu leyti ólíkur, féll ótrúlega vel
saman. Sólveig var ein úr þessum
hópi, glæsileg kona sem strax varð
hvers manns hugljúfi. Alltaf jafn
þægileg, með sitt jafnaðargeð. Þessi
tími okkar í LMSÍ og heimavistinni
var ótrúlegur, hamingja frá a-ö.
Fæstar okkar höfðu komið inn á
sjúkrahús áður en námið hófst, okk-
ur var bara skellt á vakt. Það var eins
og að koma í heim þar sem allir eru
fullkomnir og maður sjálfur eins og
lítil mús. En þessi heimur var og er
stórkostlegur því í flestum tilfellum
er maður að taka þátt í sigrum. Þetta
var því mikil upplifun hvern einasta
dag. Eftir útskrift fórum við nokkrar
að vinna á fæðingargangi, þar á með-
al Sólveig, og leigðum svo saman
íbúð þrjár úr hópnum, Sólveig,
Magdalena og undirrituð. Þetta var
dásamlegur tími.
Síðar skildi svo leiðir eins og geng-
ur. En við héldum alltaf góðu sam-
bandi.
Þegar Fæðingarheimili Reykja-
víkur var stofnað fór Sólveig að vinna
þar. Á þessum árum giftum við okk-
ur báðar og eignuðumst börn og
buru. Hinn 3. september 1967 eign-
uðumst við báðar dætur með nokk-
urra klukkustunda millibili.
Þetta þótti svo sniðugt að tveggja
manna stofa var rýmd fyrir okkur og
þar dvöldum við saman í átta daga í
góðu yfirlæti.
Eftir að Fæðingarheimili Reykja-
víkur var lokað kom Sólveig aftur til
vinnu á sængurkvennagangi og vann
þar síðan, alltaf jafn þægileg og góð
við sængurkonurnar og naut þar
mikillar virðingar.
Að hugsa til þess að 45 ár séu liðin
frá því við hittumst í LMSÍ er í hug-
anum afstætt. Þetta eru nokkur
minningabrot um Sólveigu sem
koma upp í hugann eftir lát hennar.
Það var hastarlegt þegar hringt var
og tilkynnt um þetta hræðilega slys,
þrjár ljósmæður farast.
Ómar Khayyám segir á einum
stað:
… sjá tíminn, það er fugl
sem flýgur hratt,
hann flýgur máske úr augsýn
þér í kveld.
Við vitum ekki fyrirfram hvað dagurinn
ber í skauti sér,
oft hugsa ég mér að rós
sé rauðust þar
á reit sem konungsblóði
úrhellt var.
Þannig var Sólveig, eins og rósin
sem ekki fölnar. Ég kveð hana með
söknuði, Guð styrki aðstandendur
hennar í þeirra mikla missi.
Hjördís skólasystir.
Leiðir okkar Sólveigar lágu fyrst
saman fyrir 11 árum þegar hún byrj-
aði að vinna á sængurkvennagangi
22A á kvennadeild Landspítalans
þar sem ég starfaði þá. Sólveig hafði
unnið á Fæðingarheimilinu við Ei-
ríksgötu en flutti sig yfir þegar því
var lokað. Ég hafði heyrt af þessari
háu og glæsilegu konu sem þar vann
og þegar hún hóf störf á deildinni
tókst með okkur mikil vinátta. Eftir
að ég lét af störfum á deildinni fyrir
um þremur árum rofnuðu þessi vin-
áttubönd ekki og við héldum sam-
bandi okkar á milli.
Sólveig var einstök manneskja,
það var nánast sama hvað gekk á,
hún var alltaf með þetta jafnaðargeð,
skipti aldrei skapi. Aldrei heyrðist
hún hallmæla neinum og tók ætíð
upp hanskann fyrir þann sem minna
mátti sín. Í krefjandi vinnu og miklu
álagi var alltaf hægt að reiða sig á að
hún héldi ró sinni og yfirvegun enda
mjög fær og góð ljósmóðir.
Þegar kom að því að ég fór að
sinna aldraðri móður minni heima
við þá var það hún sem studdi mig,
taldi í mig kjark og gaf mér góð ráð.
Leiðir okkar lágu ekki alveg eins oft
saman eftir að ég fór af deildinni en
sambandið rofnaði ekki og hittumst
við reyndar oftar undanfarið en áður.
Við ræddum mikið um matarupp-
skriftir, bakstur og prjónaskap. Sól-
veig hafði mikinn áhuga á öllu sem
tengdist mat og bakstri. Það var ekki
svo sjaldan að hún kom með tertu á
deildina, þá var hún að prófa nýja
uppskrift, sagði hún. En okkar bestu
stundir voru þegar við þræddum
kaffihúsin í bænum og litum inn í
fatabúðirnar, þá var nú gaman, ég
fékk mér cappuccino en Sólveig
swiss-mokka. Svo voru það terturnar
sem við völdum, aldrei eins, því þá
gátum við smakkað hvor hjá annarri
og spáð í það hvort við ættum upp-
skriftir að þeim. Þegar við fórum síð-
ast í Kringluna hinn 15. ágúst síðast-
liðinn datt mér ekki í hug að ég ætti
ekki eftir að hitta vinkonu mína aft-
ur.
Að morgni fimmtudagsins 22.
ágúst sl. barst mér síðan sú frétt að
Sólveig hefði verið ein af þeim þrem-
ur konum sem lentu í þessu hræði-
lega slysi sem ég hafði heyrt af. Þeg-
ar harmafregn sem þessi berst er
eins og brestur komi í þá veröld sem
maður hefur gert sér og verður aldr-
ei söm aftur. Ekki hvarflaði það að
mér að einhver nákominn mér hefði
lent í þessu slysi, slíkt er eitthvað svo
fjarlægt en síðan gerist það.
Kallið er komið,
komin er nú stundin
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stíð.
(V. Briem.)
Það tómarúm sem Sólveig skilur
eftir verður aldrei fyllt og mun ég
alltaf minnast hennar sem þeirrar
góðu vinkonu sem hún var.
Ég bið góðan guð að geyma hana
og votta dætrum hennar, Sigríði og
Berglindi, og fjölskyldum þeirra
samúð mína.
Hafdís.
Kveðja frá
sængurkvennadeild
,,Öllu er afmörkuð stund,“ var
setning sem flaug gegnum huga
einnar okkar þegar sú hræðilega
frétt barst að Sólveig Matthíasdóttir
hefði látist í bílslysi ásamt tveimur
vinkonum sínum. Var tími Sólveigar
virkilega kominn til að fara á brott úr
þessu lífi? Það fannst okkur ekki.
Það getur verið hughreystandi að
halla sér að forlagatrúnni og segja að
þetta hafi átt að gerast, en sárt er
það. Það er hreint ótrúlegt að hún
komi ekki aftur til vinnu, okkur
finnst að hún hljóti að vera í sum-
arfríi.
Sólveig Matt, eins og hún var
gjarnan nefnd meðal starfsfélaga
hafði unnið rúman áratug samfleytt á
sængurkvennadeild Landspítalans.
Það fyrsta sem kemur upp í hugann
þegar hún er nefnd, er glæsileg kona
með hlýlegt bros og greinilega um-
hyggju fyrir þeim sem hún var að
annast. Þess nutu sængurkonur, ný-
burar og þeirra aðstandendur. Hún
var góð ljósmóðir og lagði alúð í sín
störf, einnig þau sem ekki falla undir
hefðbundin hjúkrunarstörf.
Vinnusemi hennar kom í góðar
þarfir á vinnustað. Konur sem hafa
eiginleika góðrar húsmóður sinna
sínu starfsumhverfi á jákvæðan hátt
og fylgjast með hvað gera þarf án
þess það standi í starfsreglum. Þann-
ig var Sólveig. Það hafa ekki allir
þennan eiginleika.
Minningabrotin streyma fram –
Sólveig með glampa í augum að segja
frá árangursríkri aðstoð við brjósta-
gjöf eða broslegri hegðun nýbura.
Sólveig að sinna mörgum konum á
sama tíma líkt og hún hefði margar
hendur.
Glöð í bragði, sá broslegu hliðina á
daglega lífinu þar sem aðrir sáu erf-
iðleika.
Sólveig að drífa hlutina af, vinna
fram í tímann. Stundum svolítið fljót-
fær, vissi af því sjálf og gat hent gam-
an að því.
Sólveig pirruð á seinagangi tölv-
unnar sem gat ekki tekið við nema
einni skipun í einu.
Sólveig Matt sem var auðvelt að
leita til ef einhver þurfti að fá skipt
vakt eða ef vantaði á vakt. Ekkert
mál að breyta öðrum áætlunum. Hún
gerði fólki greiða án þess að vita af
því.
Sólveig Matt sem kom með kræsi-
legar kökur gerðar af hennar al-
kunnu snilld, ef ske kynni að tími
ynnist til notalegrar samveru yfir
kaffibolla.
Þó að Sólveig væri glaðleg og
mannblendin flíkaði hún tilfinning-
um sínum takmarkað og bar ekki
vandamál á torg. Það kom greinilega
fram þegar Bragi eiginmaður hennar
greindist með krabbamein sem dró
hann til dauða fyrir nokkrum árum.
Þannig kringumstæður eru erfiðar,
en Sólveig sinnti sínu ljósmóður-
starfi með styrkri hugarró að því er
virtist.
Góðar minningar eru dýrmætar og
þakkarvert að hafa átt góðan starfs-
félaga. Við söknum Sólveigar Matt
mikið.
Dætrum hennar, tengdasonum,
barnabörnum, bróður og vanda-
mönnum öllum sendum við innilegar
samúðarkveðjur og óskum þess að
góðar minningar létti þeim sorgina
og söknuðinn.
Starfsfólk
sængurkvennadeildar.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2002 37
!" #"$
%&&
'($
!" #"$
!
"
#
$#% &
'
)
$
*
$
+,
$
$
!
$
! $
-
.
!
"
# $%
% &
! " #$% &